Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 24.05.1940, Qupperneq 2

Íslendingur - 24.05.1940, Qupperneq 2
tSLÉNDINGUR 2 Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að Marinó Jónsson frá Uppsölum, andaðist á sjúkrahúsi Akureyrar, aðfaranótt sunnudags 19. þ. m. Jarðarförin er ákveðin, að Munkaþverá, mánudaginn 27. maí næstkomandi, kl. 1 e. m. Kveðjuathöfn fer fram frá heimili hins látna, Ránargötu 7, Akureyri, sama dag, kl. 10 fyrir hádegi. Aðsfandendur. Þankabrot Jóns í Grófinni. ÞEGAR varðskipið »Ægir« kom ineð olíuna á dögunum, haíði frétzt, að meö skipinu væru brezkir hermenn, er ætluðu hér í land. Er skipið lagði að Shell bryggjunni streymdi fólk f tuga- og hundraða- tali ofan Strandgötuna, börn, ungl- ingar og fullorðnir og fylltist bryggj an á skammri stundu. Hverju var fólkiö aö fagna? Var þ*ð að fagna olfunni? Eða var það að fagna brezku hermönnunum, sem komu til aö hernema bæinn? Fannst því kannske sérstök ástæða til að »mæta« á bryggjunni, þegar verið var að senda okkur »herverndina«, og brjóta hlutleysi okkar á líkan hátt og Þjóðverjar gerðu í Dan- mörku? Ríkisstjórnin hafði þó mót- mælt hlutfeysisbrotinu og alls ekki beðiö um hervernd þjóðinni til handa. En mannsöfnuðurinn á Shell- bryggjunni bar ekki vott um, að hann virti mikils fullveldi landsins og frelsi þess, eða a. m k. væri af- sakanlegt, þótt brezku hermönnunurn kæmi það svo fyrir sjónir. Og skyldi ekki seinni hersending- unni hafa þótt skrítin skrúðgangan, er elti hana af Torfuneísbryggjunni hérna um morguninn, þegar hún gekk fylktu liði upp að bækistöð sinni? Börnunum er e. t. v, vor- kunnarmál, en ekki meira og minna menntuöum, ungurn mönnum og rigíullorðnu fólki. Slíkur Eskimóa- háttur er bænum til vansæmdar. Og þegnar þess ríkis, sem að ný- fengnu sjálfræði allra mála er her- numið, lækka sjálfa sig f augum samlanda sinna og annarra, er þeir fórna metnaðinum til að geta satt forvitnina og haft augnagaman um stundarsakir. AF tilviljun barst mér eitt eintak af bla*inu Sunninörsposten frá Aalesund, er út kom 9 þ. m. Birtir það 2 tilkynningar frá von Falkenborst, þýzkum yfirhershöíð ingja, er gefa nokkra hugmynd um þær ógnir, er frændþjóð okkar, Norðmenn, á við að búa. Önnur tilkynningin er aðvörun til Norö- manna. Segir þar, að hver, sem styðji norsku ríkisstjórnina á flótta hennar, verði leiddur fyrir herrétt, hver, sem finnist vopnaður, verði skotinn og ef mótstaða sé sýnd og »hendinni sem vinsamlega sé fram rétt, sé vísaö frá* sjái hann sig til neyddan aö brjóta mótstööuna á bak aftur með hinum ströngustu aöferöum, Isama blaði er birt áskorun til norsku þjóðarinnar um hjálp til íbúanna í Molde og Kristiansund. Segir þar, að fjöldi fólks hafi orðið að flýja heimili sín, án þess að geta haft nokkuð með sér. Skorti það mat, sængurföt, skó og ýmsan klæðnað. VERKAM. síðasti heldur þvl fram, að Kuusinen sé enn lifandi og eigi nú að fá jarlsdæmi í landspíld- unni, er Rússar rændu af Finnum, sem einskonar verðlaun fyrir íöður- landssvikin. Gissur Þorvaldssou var gerður að jarli, Vidkun Quisling aö forsætisráðherra, og sennilega hefir Holland átt sína föðurlandssvikara, sem hjálpaö hafa þýzka innrásar- hernum í von eða vissu um veg- tyllur. En þó maður reyni sem lengst að forðast þi hugsun, að manns eigin þjóö ali við bijóst sér slíkar mannskepnur, þá gefur dálæti Verkamannsins á hinum margum- talaða svikara Kuusinen ástæðu til að ætla að þær fyrirfinnist. En hvaöan það þrælsblóö er, sem renn- ur um æðai slíkra manna, er umhugs- unarefni og ráðgáta mannfjöldinn á félagssvæðinu sem hér segir: Eyjafjarðarsýsla 5390 Akureyrarkaupstaður 4674 Alls 10064 Útkoman verður því sú, að þótt gert sé ráð fyrir, að hver einasta sál í Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar- kaupstað sé í kaupfélagi, þá eiga þessi tvö nefndu félög samt heimt- ingu á innflutningi handa 2524 manns fram yfir alla íbúatöluna á félagssvœðinu. Þessi fáu dæmi, sem ég hefi hér nefnt, nægja til að sýna, hvernig þessi dásamaða höfðatöluregla er, þegar farið er að leita ofan í kjöl. Tímamenn trúa því, að þessi regla sé svo ginnhelg, að ekki þurfi nema að nefna hana til þess að Sjálfstæðismenn standi og verði að gjalti. Ég er ekki viss um, að það reynist rétt, ef á hólminn kemur. FYRIR skömmu gerði íslendingur að umtalsefni það furðulega fyr- irbrigði, er Eysteinn ráðherra var kjörinn í milliþinganefnd t'l að end- urskoða gjaldeyrislögin og fram- kvæmd þeirra. Dagur segir, að ísl. sé hneykslaður yfir að Framsókn skuli skipa í nefndina þann manninn, sem bezt vit hafi á þessum málum og sé þeim kunnugastur. En vill Dagur gera svo vel og nefna dæmi þess, að gjaldkeri einhvers fyrirtæk- is sé kjöiinn endurskoðandi á reikn- ingum þess, en það er mjög hlið- stætt því, er Eysteinn á að endur- skoða 3Ín eigin verk í gjaldeyris- málunum. DAGUR í gær segir frá stofnun Eyfirðingafélags, er fraru hafi farið á eftir kaupfélagsfundinum. Á félagiö að vinna að því, að skrifuð sé og út gefin saga Eyjafja>-ðarhér- aðs frá upphafi og safna ýmsum fróöleik utn merka og sérkennilega Eyfirðinga 0. s. frv. Er þetta tví- mælalaust hið þarfasta verk. En svo illa hefir til tekist, að við stjórnarkosningu hefir pólitískt lit- arral ráðið og það svo, að kosinn hefir verið framsóknarmaöur aust- firzkur að ætt og uppruna í stjórn félagsins. En í slíkum félagsskap sem þessum á ekki að skipa stjórn úr einum pólitískum flokki, enda á það sér ekki fot dæmi f hliðstæðum félögum annarsstaðar. UM síðustu mánaðamót skýröi út- varpið frá ávarpi, er norski rithöfundurinn Knut Hamsun, hafði gefið út til norskra hermanna þar sem hann hvetur þá til að leggja niður vopnin og endar mál sitt á því, að •E’jóðverjar muni leysa þá undan haröstjórninni*. Danski rithöíundurinn M. Ander- sen Nexö var sagður hafa sent rússnesku stjórninni samhygöarskeyti um þær mundir, er hún lét her sinn ráöast á Finna, og einn þekkt- asti rithöfundur íslendinga ver meg- inhluta af bleki sínu til áróðurs fyrir kommúnismann. Er ekki alvarleg hætta vofandi yfir frelsi norrænu þjóðanna, er þekktustu iithöfundar hennar reka þannig erindi erlends valds heima fyrir? Mæðradagurinn Sunnudagurinn kemur, sá 26. þ. m, er* þetta ár dagur mæðranna, og ætti hann því aö vera mesti hátíöis- dagur ársins. Allir eiga' eöa hafa átt móöur, og flestir elska móður sína eða minningu hennar meira en allt annaö í lífinu og viöurkenna, að mæðurnar leggi alla sína krafta ó- skipta fram, til þess að efla mann- gildi og velferð barna stnna. Nú hefir þessi dagur verið valinn sem fjáröflunardagur, í því augna- miði, að á þann hátt sé hægt að gleöja og styrkja þreyttarogumkomu- litlar mæður, sem hart hafa orðið úti í baráttunni viö ýmsa örðugleika lífs- ins, t, d. með þvf að veita þeim lítið sumarfrí eða annað slíkt. Ætti nú hver sá maður eöa kona, sem vill heiðra móður sínna, að sína lit á þvf um leiö og hann hlýjar sitt eigiö heimili eða gleður sína eigin móöur, að láta lítið fé af her.di til hinna, og kaupa merki, sem seld verða hér í bænum á mæðradaginn, og sækja skemmtisamkomu, sem haldin verður f Samkomunúsi bæjarins að kvöldi dagsins, Forstöðu þessarar fjáröflunar hefir »Mæðrastyrksnefndin«, sem er skip uð fulltrúum frá fimm kvenfélögum í bænum, Styrkið málefni mæðranna, Mœörastyrksnefndin. Setuliðið aukið. Bretar hafa nýlega aukið allmikið setulið sitt í Reykjavík og nágrenni. Hefir það tekiö til afnota flestar stórbyggingar bæjarins, skóla- og íþróttahús, gistihús o, fl. Bátar og bifreiðar hafa verið í þjónustu þess við hergagnaflutninga og auk þess fjöldi verkamanna. í Hvalfirði hafa siglingar verið auglýstar hættulegar á vissu svæði og er brezkt skip á þeim slóöum til leiðbeiuingar. Setuliðsdeildin, sem kom hingað til Akureyrar s. I. föstudag, settist aö í Hafnarstræti 102. Á mánu- daginn kom brezkur tundurspillir H M S »Fox'nound« með hóp her- manna, er varð hér eftir, en þeir, sem fyrir voru, fóru aftur með skipinu. Einn Þjóðverji var hand- tekinn hér og fór hann einnig með sama skipi. Ekki er blaðinu kunn- ugt um, hvort meira lið er væntan- legt hingað. Kvenfél. Fraintíðin heldur skemmtisamkomu í Sam- komuhúsinu annað kvöld kl. 9 til ágóða fyrir nýja sjúkraÉúsið. Veröa þar flutt erindi, sungnir einsöngvar og tvfsöngvar og leikinn einleikur á slaghörpu (s. b. götuauglýsingar). Að lokum verður dansað fram eftir nóttu. Bæjarbúum er það að sjálfsögðu fullkunnugt, aö þörfin fyrir hið nýja sjúkrahús er orðin brýn og eins hitt, að fjárskorti- er eingöngu um að kenna, hve seint bygging þess gengur. Með næstu ferö Esju er von á mönnum hingað til að koma fyrir Röntgentækjunuru í hinum nýju húsakynnum, og ætti því ekki aö iíða á löngu, áður en Röntgen- deildin tekur • til starfa. En það þarf meira til, Kvenfél. Framtíðin vinnur ótrautt aö framgangi þessa nauðsynjamáls, og er bæjarbúum skylt aö styðja það á hvern þann hátt, sem þeir mega. Áð sjálfsögðu fylla þeir Samkomuhúsiö annað kvöld. — Sparið kaffið! Notid Ludvig^David Kaffibæti. — Undirritaður annast margskonar tryggingar, fyrir: Válrygoingarsltriíslaíu Siglósar Siglivatssonar í Reykjavík, svo sem bruna- og líftryggingar Q. fl. Akureyri, 23. maí 1940. EGGERT STEFÁNSSON.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.