Íslendingur - 14.06.1940, Síða 3
ÍSLENDlNGUR
3
samband norðlenzkra karlakóra hélt
söngmót, hið þriðja í röðinni, hér
í bæ nú um síðustu helgi.
Voru þátttakendur að þessu sinni
sjö karlakórar, þeir:
Karlakór Akureyrar, söngstjóri
Áskell Snorrason, Karlakórinn Geys-
ir, söngstjóri Ingimundur Árnason,
Karlakórinn Heimir úr Skagafirði,
söngsljóri Jón Björnsson bóndi á
Hafsteinsstöðurn, Karlakór Reyk-
dæla, söngstjóri Áskell Jónsson,
Karlakór Reykhverfinga, söngstjóri
Sigurjón Pétursson, Karlakór Mý-
vetninga, söngstjóri Jónas Helgason,
Karlakórinn Þrymur, söngstjóri Frið-
rik A. Friðriksson prófastur Húsa-
vík.
Mótið hófst með samsöng í Nýja-
Bíó á laugardagskvöld stundu fyrir
miðnætti og hélt svo áfram daginn
eftir með samsöng kl. 2 og 5 s. d.
Var glaumur eigi allsmár er öllum
kórunum var slegið saman, og rúm-
lega 200 manns létu til sín heyra í
einu. Að loknum síðasta samsöng
staðnæmdust kórarnir á Ráðhústorgi
og sungu þar nokkur lög, við al-
mennan fögnuð mikils mannfjölda.
Fylktu svo liði, undir Heklufánan-
um gamla, og gengu í skipulegri
fylkingu syngjandi inn að Skjaldborg,
en þar var mótinu slitið með
samsæti.
Allir fóru samsöngvarnir ágællega
vel fram, og var hin bezta og
heilsusamlegasta sker,imtur\ enda fá-
dæma vel sóttar og viðtökur á
heyrenda hinar allra beziu og
maklegustu,
Var mót þetta öllum hlutaðeig-
endum til hinnar mestu sæmdar,
hinum einstöku kórum svo ogstjórn
sambandsins og forstöðunefnd
mótsins. —
Formaður sambandsins er, og
hefir verið, Stefán Ág- Kristjánsson
sjúkrasamlagsstjóri.
Á mótinu mætti formaður Sam-
bands íslenzkra karlakóra SWúli
Ágústsson frá Birtingáholti,
Afmæliskeppni Þðrs
í tilefni af 25 ára afmæli Þórs
fór fram sundke.ppni í sundlauginni
að kvöldi 6. þ m. aö viðstöddu fjöl-
menni. Flutti Jón P. Hallgrímsson
afmælisávarp en að því loknu fór
fram keppni í 5 sundíþróttum. —
Vann í*ór 3 þeirra en Siundfélagiö
Grettir 2.
Á laugardagskvöld fór fram á
í’órsvellinum handknattleikut kvenna
milli Pór og K. A. Vann K. A.
meö 4:2. J?á fór fram hafthlaup
og knattspyrna milli gamalla Þórs-
félaga. [Á sunnudagskvöld kepplu
meistaraflokkar Pórs og K. A. f
knattspyrnu. Vann Þór meö 7 : 1
Gjalddagi blaðsins er
15. júní.
Samkomuhúsinu í fyrrakvöld. Hún
stundaöi nám á Tónlistarskólanum í
Rvík fyrir nokkrum árum og hélt
hljómleika aö námi loknu viö góðan
orðstír. Pá fór hún til London til
framhaldsnáms og hlaut þar mjög
lofsamlega dóma fyrir list sína, enda
vann hún þar tvívegis verðlaun. —
Mun hún nú vera bezti pianoleikari
meðal kvenna hér á landt,
Aðsókn að hljómleikum ungfrúar-
innar var daufari en skyldi. En
þeir, sem -þangaö komu, munu hafa
talið kvöldinu vel varið. Fögnuöur
áheyrendanna var mjög mikill og
listakonan klöppuð óspart fram. —
Fyrir 34 árum gaf glímufélagiö
Grettir á Akureyri vandað belti
— farandverðlaun — sem keppt var
um í 30. sinn í Reykjavík þann 11.
þ. in. Keppendur voru 12 þar af 4
utan Reykjavíkur. Sigurvegarinn
varð fyrrverandi beltishafi, lngi-
mundur Guðmundsson, Revkjavík,
en fegurðarglímuskjöld í. S. í. hlaut
Kjartan B. Guöjónsson, Reykjavík.
Á umliðnum 30 árum hafa þessir
unniö beltið, sem hér segir:
1. Ótafur V. Davíösson l.sinni
2. Jóhannes JóseLson 2. —
3. Guðmundur Stefánsson 1. —
4. Sigutjón Pétursson 4. —
5. Tryggvi Gunnarsson 2. —
6. Hermann Jónasson 1. —
7. Sigurður Greipsson 6. —
8. Þorgeir Jónsson 1. —
9. Sigurður Thorarensen 7. —
10. Lárus Salómonsson 2 —
11. Skúli Þorleifsson 1. —
12. Ingimundur Guðmundss. 2. —
Hver hirðir
ágóðann?
Alþýðumaðurinn á þriðjudaginn
skýrir frá því, að togarinn »Skutull*
frá ísafiröi hafi grætt svo mikið í
vetur, að hann hafi greitt upp hlutafé
sitt og eigi 500 þús kri í sjóði
eftir veturinn.
Maður nokkur hér í bæ tók sig
til eftir lestur greinarinnar og reikn-
aði út, hve mikiö ríki og bær vildi
hafa af slíkum gróöa í sinn hlut.
Gerði hann í útreikningi sínum ráð
fyrir, að gróöi togarans væri 600
þús. kr. (hlutaféö, sem greitt var
væri 100 þús. kr.) og að helmingur
teknanna (300 þús, kr.) væri lagður
í varasjóð. Komst hann þá að
þeirri sorglegu niðurstöðu, að sam-
kvæmt útsvarsstiga Akureyrar yrðu
þessi gjöld togarans (útsvar, tekju-
og eignaskattur) ca. 540 þús. krónur
en samkv. útsvarsstiga ísafjarðar
um 750,000,00 — sjö hundruö og
fimmtíu þúsund krónur.
Það er sannarlega lítiö fagnaðar-
efni fyrir þann mann, sem ráðast
vildi í útgerð, að eiga það víst, ef
hann hagnaðist á útgerðinni álíka
og »Skutull« virðist hafa gert í vet-
ur, að ekki aðeins gróðinn allur væri
af honum tekinn, heldur og miklu
meira, eins og verða mundi samkv.
útsvarsstiganum í bænum »þar sem
framtakið ræður*. í*að þarf sannar-
lega meir en lítið frarotak til að
ráðast £ útgerð eða aðrar athafnir
meöan sllk skattalöggjöt er viö líði,
enda mun hún eiga drýgri þátt en
almennt er álitiö í aö lama athafna-
löngun einstaklinganna. Það virðist
eitthvað bogiö við þá skattalöggjöí,
sem leyfir að tekin séu yíir 130%
af tekjum manns eða hlutafélags,
eins og nú á sér stað, ef útsvars-
stigi ísafjarðar er notaður viö álagn-
ingu útsvarsins. En hann mun nú
vera hæstur allra útsvarsstiga á
landinu.
Landssamband sjálf-
stæðra verkamanna.
var stofnað í Reykjavík fyrir nokkr-
um dögum. 19 fnlltrúar frá 13
félögum Sjálfstæðisvetkamanna sótlu
stofnþingið, en alls eru slík félög
17 talsins víðsvegar um land.
Þ.ngið samþykkti margar ályktanir
og tillögur í atvinnumálum og verk-
lýðsmálum.
Forseli sambandsins var kosinn
Hermann Guðmundsson Hafnar-
firði.
Húsið Hafnar
stræti 102 Ak.
er til sölu til niðurrifs og burtflutn-
ings af lóðinni. Húsið er innréttað
í smá herbergi og er því ógrjmni
timburs í því. Ennfremur mikið af
öðrum byggingarefnum, sem nú eru
nær ófáanleg og mjög hækkuð í
verði, linöleum, Ijósleiðslu og rör,
vatnsveiturör, skólprör, vaskar, sex
nýlegar eldavélar og fjöldi ofna
(Svendborg eldfæri). Húsið er með
járnþaki og járnklætt' utan. Greiðslu-
skilmálar mjög góðir. Lysthafendur
snúi sér til m(n fyrir 25. þ. m.
Akureyri 14. jún( 1940.
Jón Stefánsson.
Litla fjölskyldu
vantar íbúð í nýtízku húsi
frá 1. okt. R. v. á.
(lott herbergi
til leigu á ytri brekkun-
um. Uppl, síma 253
Lokaö klukkan eitt Samkv.
reglugerð um lokun sölubúða, er
skrifstofum og sö'ubúðum hér f
bæ lokað klukkan 1 á laugardögum
frá og með 15 júní til 15 septem-
ber- Verður því búöum lokað hér
á morgun klukkan eitt.
nyja nioHHSHBK
Föstudags- laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
,Frou-Frou‘
(The Toy Wlfe).
Tal og hljómmynd £ 10 þátt-
um. Aðalhlutverkin leika:
Hin heimsfrægá leikkona
Luise Rainer, sem
hlotið hefir gullmedalíu
fyrir leik sinn i »Gott
iand», Meivyn Dou-
glas, Robert Young,
og Barbara O' Neii.
Hinn meistaralegi leikur Luise
Rainer í hlutverki »Frou-Frou',
hinnar léttúðugu og ógæfusömu
eiginkonu mun öllum verða ó-
gleymanlegur. — Myndin er
mjög tilkomumikil og hrífandi
og hefir hlotið ágæta dóma
erlendis, og ( Reykjavtk var
hún sýnd sem páskamynd, —
I.O.O.F. = 1220*49 = IIl,
Auglýsið í Isl,
65 ára varð ( gær frú Svafa
Daníelsdóttir 'Bjarmastig 11 hér' í
bæ.
TRÉSMIÐIR
Sunnudaginn kl. 5:
Karlsson stýri-
maður og kær-
ustur hans.
Mánudaginn 17. júníkl. 9:
Charlie Chan
í ópernimi.
Stórkostléga spennandi leyni-
lögreglumynd. Aðalhlutverk-
in leika:
Warner Öland og
Boris Kariott. —
Áhorfendur munu spenntir og
hrifnir fylgjast rneð hinunr
kynlegu viðburðunr, er gerast
á söngleikhúsi og sem Charlie
Chan fær aö lokum méð snar-
ræði sínu og kænsku ráðið
fram úr,
AUKAMYND.
Frá Finnlandsstyrjöldinni.
Þvottaduftið FLIK-FLAK þvær bezt