Íslendingur - 21.06.1940, Síða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugöíu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.
Akureyr í,
21. júní 1940
26. tölubl.
Þar sem fram-
takinu er refsað
Alþýðumaöurinn var nýlega að
skýra frá þvf að togarinn »Skutu!l«
á ísafirði hefði selt ísfisk í Englandi
öllum skipum betur, og verður
blaðinu svo mikiö um velgengni
þessa togara, að það eyðir löngu
rúmi í að vegsama stjórn ísafjarðar-
kaupstaðar, sem á engan hátt mun
hafa með framkvæmdastjórn ííkutuls
að gera, þótt bæjarsjóður eigi hlut
f honum. Alþýðumaðurinn nefnir
ísafjörð bæinn, »þar sem framtakið
ræöur ríkjum«, og verður þetta
nafn næsta broslegt, þegar litiö er
yfir sögu bæjarins undanfarin ár.
Svo auðnulaus hefir rauöa stjórnin
verið. að ekkert framtak heiir getað
þrifist þar. Menn, sem eitthvað
vildu hafast að, uröu að flýja bæinn
með allt sitt, því annars áttu þeir á
hættu að vera rúnir inn að skyrt-
unni. En eymd og vesaldómur
lagöist yfir bæinn. Alþýðumaðurinn
telur þenna flótta fólksins úr bæn-
um hafa verið sveltitilraun »íhalds-
ins«, sem haíi bara verið að gera
Alþýðuflokknum það til bölvunar að
fara burtu með skip sfn og eignir!
Þaö hafi átt að svelta fólkiö til aft-
urhvarfs frá Alþýðuflokknum!«
En ekki er gott að skilja, fyrir
hvaða fólk þetta veslings blaö þyk-
ist vera að skrifa, er þaö heldur
slíkri bábilju fram. Eða dettur því
í hug, að til sé fólk, er unnt væri
aö fá til að trúa þvf, að fólk flytji
unnvörpum brott úr einhverjum bæ
aöeins til að striða bæjarstjórnar-
meirihlutanum eða koma honum í
vandræði?
Nei. Ástæðan fyrir því, að bæ-
irnir, sem lúta stjórn Alþýðuflokks-
ins, ganga saman eða standa í stað
um vöxt meðan aðrir bæir vaxa,
er engin önnur en sú, að þar er
meiri eymd og vesaldómur, meiri
álögur, minna framtak. Og eitt ljós-
asta dæmi þess er útsvarsstiginn.
Það er ekki ófróðlegt að bera sam-
an, hvaða útsvar sami maður muni
bera t. d. á Akureyri og ísafiröi.
Eftir útsvarsstiga þeim sem gilt
hefir við sföustu niöurjöfnun útsvara
í þessum bæjum, yrði útsvar manns,
er ætti konu hér segir; og 3 börn, svo sem
Tekjur: Útsvar.' Ak. ísaf.
3000 kr. 40 kr. 55 kr.
4000 — 125 — 145 -
5000 - 265 — 285 — Einhleypur maður;
2000 kr. 68 kr. 85 kr,
5000 — 533 — 565 —
20000 — 5310 - 10700 -
400C0 — 15265 — 28700 —
Eins og sjá má á þessum saman-
burði eru útsvörin hærri á ísafiiði
jaínt á háum tekjum sem lágum,
þó að fyrst muni verulega á, þegar
tekjurnar hækka. Vinstri flokkarnir
hafa löngum hælt sér af því, að
þeir hafi komið skattalöggjöfinni í
það horf, að nú taki hún kúfinn
ofan af háu tekjunum. En sá galli
er raunar á, hvað ísafjörð snertir,
að með útsvarsstiganum þar er svo
um hnútana búið, að ef einhver
ísfirzkur borgari hefir 30 þús. kr.
tekjur, verður hann að greiða til
bæjar og ríkis 30160 krónur eða
160 krónum meira en tekjurnar, og
fari tekjurnar eitthvað íram úr
þessu, verður hann að greiða ca.
140 krónur af hverjum 100 króna
tekjuauka. Hvernig á svo framtak-
ið að ráða ríkjum, þar sem ein-
staklingurinn veit, að ráöist hann í
eitthvert fyrirtæki, er aðeins um
eitt aö ræða fjrrir hann, hvort sem
hann tapar eða græöir, — — að
fara á hausinn, sem kallað er?
Það er að vísu engin nýlunda, þótt
maöur fari á hausinn, ef hann tapar.
En á ísafirði er séö um, að sá, sem
græðir eitthvað að ráði, fari líka á
hausinn, Útsvarsstiginn sér ráð fyr-
ir þvi’.
Flestum mun finnast, að útsvars
stiginn sé nógu hár hér á Akureyri,
og kemst hann þó ekki í neinn sam-
jöfnuð við fsfirzka stigann. Mönn-
um mun sjálfsagt þykja nóg um, aö
þurfa að greiða til ríkisins allt aö
44 aura af hverri krónu tekna sinna
að viðbættum 12 af hundraði og
síðan 55 aura af sömu krónunni
tii bæjarsjóðs. Hér á Akureyri þarf
maður með 10 þús. króna tekjur að
greiða 1835 krónur í útsvar og
310 krónur af næsta þúsundi, en á
ísafirði af sörnu tekjum 2365 krón-
ur og 60C kr. af næsta þúsundi.
Af 13 þús. kr. tekjum greiðist á
Akureyri 2825 krónur og 370 krón-
ur af næsta þúsundi en á Isafirði
af sömu telqum 4400 krónur og
900 krónur af hver/'u þúsundi sem
þar er fram yfir.
Þegar þannig er að þegnunum
búið, er þess ekki að vænta, að
þeir séu óðfúsir til athafna. Me*an
skattalöggjöfin er notuð sem refsi-
vöndur á allt framtak manna og
sjálfsbjargarviðleitni, hlýtur stöðugt
að halla undan fæti í atvinnulífi
þjóðar vorrar. Og þá er það skiljan
legt, að fólkið flýi burtu úr þeim bæj-
unum, er haröast leika þaö í þessu
efni, en þar er ísafjörður fremst í
flokki. Mesta drifíjöður alls fram-
taks er eignarhvötin, — hagnaðar-
vonin. Þetta skilja löggjafar allra
landa og haga skattalöggjöfinni eftir
því. Sú regla er að vísu sjálfsögð og
allstaðar gildandi, að taka hlutfalls-
lega meiri skatt af háum tekjum en
lágum og hafa álögurnar stighækk
andi, en hvergi mun það þekkjas.t
nema hér á landi, að tekið sé meira
en hagnaðurinn allur, enda er slík
skattaálagning tóm sjálfsblekking.
En þar sem lengst er gengið í þá
áttina, — í »gósenlandi« sóslalista,
— ísafirði, hverfa athafnamennirnir
á brott. Svo mun allstaðar fara, þar
sem framtakinu er refsað með
skattaráni.
Prentlistin
500 ára.
Prentarar halda af-
mælishátið að Hólum
Á þessu ári er 500 ára afmælis
prentlistarinnar minnst víöa um
heim. íslenzkir prentarar halda af-
mælið hátíðlegt að Hólum í Hjalta-
dí.l n. k. mánudag, en þar var
fyrsta íslenzka prentsmiðjan sett á
stofn fyrir fullum 400 árum.
Reykjavíkur-prentarar leggja af
stað til hátíðarinnar á sunnudags-
morgun með bifreiðum, og eiga þeir
að hitta prentara af Akureyri á
Vatnsskarði. Halda þeir svo í ein-
um hóp til Hóla. Hafa prentararn-
ir meðferöis gott eintak af Guð
brandarbiblíu og haglega útskorið
skrín til að geyma liana i. Ætla
þeir að færa Hólakirkju gripi þessa
að gjöf.
Hátíðin að Hólum hefst með
guðsþjónustu vígslubiskups sr. Fr.
Rafnar kl, 9 að morgni, en kl. 1
hefst miðdegisveizla, pg verða þar
fluttar ræður og ávörp, um kvöldið
verða kvikmynda- og skuggamynda-
sýningar og dans.
í tilcfni þessa prentlistarafmælis
gefur ísafoldarpreutsmiðja út vandað
minningarrit á þessu súmri.
Vegna hátíðahalda prentara n. k.
mánudag verður prentsmiðjum bæj-
arins lokað mánudag og þriöjudag
24. og 25 júní.
Menntaskólanum var sagt
upp 17. þ m. Stúdentspróf tóku
38 þar af 16 úr stærðfræðideild.
Gagnfræðapróf tóku 77, þar af 11
utan skóla.
Hjónaband Ungt'ru Sigríður
Hallgrímsdóttir (Krístinssonar frá
Reykhúsum) og Ingvar Brynjólfsson
stud. raag.
ZION. Næstkomandi sunnudag
8.30 e. h. almenn samkoma, allir
velkomnir.
(Tlie Toj Wile).
Niðursett verð! Síðasta sinn!
Laugardags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
Dularfulli
Mr. Moto
Spennandi og skemmtileg ame-
risk leynilögreglumynd frá Fox,
um ný afreksverk lögregluhetj-
unnar Mr. Moto.
Aðalhlutverkið leikur:
Peter Lorre.
AUKAMYNDIR:
Talmyndafréttir frá
Grikklandi o. fl. —
Börn fá ekki aðgang.
Sunnudaginn kl. 5:
A leið tii ham-
ingjunnar
17. júni hátíðahöldin hér á
Akureyri voru fjölsótt og skemmti-
leg. Mesta ánægju vöktu knatt-
spyrnukeppni og boðsund karla, 40
ára og eldri. Þórarinn Björnsson
menntaskólakennari flutti minni lóns
Sigurðssonar við sundlaugina, en
Geysir skemmti með söng, Allur á-
góðinn aí hátíðahöldunum rennur í
íþróttahússsjóð.
Dánardægur. Aðíaranótt 15.
þ. in, lézt á Landsspílalanum 1 Reykja-
vík Þórólfur Sigurðsson frá Baldurs-
heimi, eftir stutta legu.
75 ára varð 15. þ. m. sr.
Matthías Eggertsson fyrrum prestur
í Grímsey, en nú til heimilis i
Rej^kjavík.
Silturbrúðkaup. 25 ára hjú-
skaparafmæli áttu 17. þ, m. hjónin
Stefán Jónasson útgm. og Gíslína
Friðriksdóttir á Knararbergi.
□ Rún 59406247 — Frl. A*kv.