Íslendingur - 16.08.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.l
Akureyri, 16. ágúst 1940
33. tölubl.
Þegar Bretar hernámu ísland 10.
maí s. I kom hingað upp til lands-
ins formaður brezka hluta brezk-
islenzku viðskiptanefndarinnar, Mr.
Harris. Tók nefndin þegar eftir
komu hans til starfa, og létu
Bretar svo um mælt f sambandi
við hernámið, að þeir vildu bjóða
ísléndingum hagkvæma viðskipta-
samninga.
Þegar að þeim tfma leið, að
síldarútgerð skyldi hefjast, höfðu
enn ekki náðst samningar um sölu
síldarafurða til Bretlands, eða a- m
k. ekki orðið samkomulag qm verð.
T.n þá ákvað ríkisstjórnin, að Síld-
arverksmiðjur ríkisins skyldu taka
á móti síld fyrir ákveðið lágmatks-
verð gegn uppbót sfðar, er hið
endanlega verð afurðanna lægi
fyrir. Lögðu þá flest sklp út til
síldveiða nema togararnir, sem
heldur kusu að halda fiskveiðum
áfram.
Síldveiðin hefir gengið svo vel,
að slíks munu engin dæmi áður.
Hefir allan tímann staðið á losun,
enda þótt allar vetksmiðjur væru
settar f gang, jafnvel þær, sem ekki
var búist við, að starfræktar yrðu.
Skipin biðu við verksmiðjurnar f
tugatali eftir löndun og síldin var
farin að skemmast, þá loksins að
skipin komust að. Var þá tekið
það ráð, sem einsdæmi mun vera,
að banna veiði í 4 sólarhringa
samfleytt. En þegar banninu létti,
hófst sama ástandið á nýjan leik,
því ekkert lát var á síldinni, og
var heildataflinn í byrjun ágúst-
mánaðar orðinn meiri en alla ver-
tíðina í fyrra, þótt togararnir tækju
nú hlutfallslega minni þátt í veið-
unum en þá.
Var því nýtt 4 daga veiðihlé á-
kveðið hjá Ríkisverksmiðjunum nú
í vikunni.
Um mánaðamótin júlf-ágúst lá
fyrir kauptilboð frá Bretum á 25
þúsund tonnum af síldaroltu og
jafn miklu magni af síldarmjöli.
Hefir tilboði þessu verið tekið, en
ekkert látið opinberlega uppi um
verð. Það er nú fyrirsjáanlegt eftir
hin miklu uppgrip sítdveiðiflotans,
að heildarframleiðsla síldarafurð-
anna verður miklu meiri en þessi
25 þúsund tonn af hvoru, olíu og
mjöli. Þrátt fyrir það er hér um
stærsta sölusan.ning að ræða, sem
geröur hefir verið á þessum afurð-
um. En reynt mun verða að fá
Breta til að auka ktup sfn á
þeim.
Um sölu saltsíldar hefir tekist
öllu ve> Heíir ekki verið unnt að
selja fyrirfram nema 25 þús. tunn-
ur matéssíld til Ameríku. Hefir
þessi litla sala það i för með sér
að fjöldi fólks missir þá atvinnu,
er það undanfarin sumur hefir hafl
við síldarsöltun og þeir smáútgerð-
armenn, er veiða í reknet. En til
þess að bæta úr þessu ástandi,
réðst ríkisstjórnin f það, án þess
að hafa til þess heimild Alþingis,
að taka á ríkissjóð nokkra áhættu
af síldarsöltun, þannig að ríkissjóð-
ur ábyrgist síldarsaltendum 42
krónur fyrir hverja tunnu af haus-
aðri og slógdreginni síld, og náði
sú ábyrgð fyrst til allt að 40 þús-
und tunna, enda greiði saltendur
bátunum 17 krónur fyrir hverja
tunnu fersksíldar. Voru veiðileyfin
bundin við reknetabáta eingöngu,
þ. e. a. s. þá, sem ekki hafa stund-
að herpinótaveiðar í sumar eða
aðrar arðsamar veiðar. Leyfi hvers
báts nemur um 1000 tunnum, en
þau eru bundin því skilyrði, vegna
ríkisábyrgðaiinnar, að einn aðili
annist söluna, og hefir hún verið
falin Síldarútvegsnefnd.
Ráðstöfun þessi reyndist ekki
koma öllum kauptúnum að hak’i,
sem áður hafa haft síldarsöltun,
því sumstaðar er engin rekneta
veiði. Hefir því ríkisstjórnin hækk-
að ábyrgðina upp í 75 þús. tunn-
ur og veitt herpinótabátum veiði-
leyfi fyrir viðbótinn5, 35 þús. tunn-
um auk þeirra 25 þús. tunna af
matéssíld, sem seldar eru fyrirfram
á Ameríkumarkað. Nemur þá sölt-
unatleyfið alls 100 þúsund tunn-
um.
Talið er, að Svíar hafi fengið
leyfi Breta til að kaupa hér þrjá
skípsfarma af saltsíld, og fái þeir
einnig leyfi Þjóðverja til kaupanna,
sem ekki er talið ólíklegt að fái *,
þá mun markaður fenginn fyrir
mesta eða alla þá síld, er ríkissjóð-
ur hefir ábyrgsf.
Ekki verður annað sagt, en það
hafi verið vel ráðið af tíkissljórn-
inni, að hlutast til um þessa síld-
arsöltun, þótt hún með því tæki
nokkra áhættu á ríkissjóð, án
heimildar Alþingis, þar sem atvinna
fjölda fólks v'ir bjargræðistíinann
og þar með afkoma þess, var í
veði.
Dánardægur. Séra Tryggvi
Kvaran prestur að Mælifelli í Skaga-
firði lézt 5. þ. m. á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki eftir þunga legu.
Meiri sykur. Skömmtunar-
nefnd rikisins hefir nú ákveðið að
veita auka úthlutun á sykri til sult-
unar í þessum mánuði er nemur
2Ysj kg. á mann.
Sjö íslendingar
koma heim frá
Danmörku.
Aðfaranótt mánudagsins 12. þ. m.
kom 32 tonna skúta inn á Reykja-
víkurhöfn með fslenzka fánann
málaðan á bæði borð og naíniö
»Frekja«. Áhöfn skútunnar voru
7 íslendingar, er dvalið höfðu í
Danmörku, er í-jóðverjar gerðu inn-
rásina þar 9. aprfl s. 1. Hafði hver
þessara manna ákveðna stöðu á
skútunni og var verkaskipting sem
hér segir: Lárus Blöndal var skip-
stjóri, Gunnar Guöjónsson skipa-
miðlari stýrimaður, Gísli Jónsson
vélaeftirlitsm. 1. vélstj. Björgvin
Fredriksen 2 vélstj. Úlfar Þórðar-
son læknir matsveinn, Theodór
Skúlasson læknir háseti, Konráð
Jónsson verzl.m , háseti.
Fessir 7 menn eru fyrstu íslend
ingarnir, sem komist hafa heim
frá Danmörku eftir hertökuna, og
var undirbúningur fararinnar langur
og erfiður. Feim tókst að fá keypta 52
ára garnla skútu, en erftðara gekk
að fá olíu. Þó heppnaðist það að
lokum. Þá tókst þeim að fá farar-
leyfi hjá þýzku hernaðaryfirvöldun-
um en þeir ut ðu aö sigla til Noregs
og fá leyfið framlengt þar, ef þeir
hygðu á að halda lengra. Jafnframt
fengu þeir lýsingu á, ht^aða leið
þeir skyldu fara til aö komast hjá
duflum. Feir voru 3 vikur á leiðinni
frá Danmörku, enda töfðust þeir
fyrst í Noregi og síöan í Færeyjum,
meðan þeir biðu eftir leyfi brezku
hernaöaryfirvaldanna til að halda
ferðinni áfrarn. Frá Færeyjum til
Vestmannaeyja voru þeir 2x/2 sólar-
hring. Fengu þeir særaitegt veður
hingað upp, en voru flestir sjóveikir
framan af ferðinni.
Um íslendinga í Höfn hafa þeir
það að segja, að þeim líði yfirleitt
vel og skorti ekkert, en flesta muni
þó fýsa til heimferðar.
NÝJA BIÓI
Föstudagskvöld kl. 9:
Prir um eina
(She can cuddle
kiss and cook).
Tal- og hljómmynd í 10 þátt-
um. — Aðalhlutverkið leika
frægir og vinsælir amerískir
leikarar:
fanei Oaynor,
RobertMonigomery
og Franchot Tone,
Myndin er skemmtileg og
fyndin saga um sveitastúlku,
sem kemur til stót'oorgar og
verða ungu mennirnir strax
bráðskotnir < henni.
Laugardagskvöld kl. 9:
Bylting í
Texas
Börnum bannaður aðgangur
Sunnudagskvöld kl. 9:
Þrír um eina
Sunnudaginn kl. 5 l
Kentucky
Niðursett verö! Sföasta sinn!
Bráðabirgðaiög um loftvarna-
ráöstafanir hefir ríkisstjórnin gefið
út nýlega. Samkvæmt þeim er
bæja- og sveitastjórnum heimilt í
samráði við ríkisstjórn að gera
loftvarnaráðstafanir, hver á sínum
stað og greiðist kostnaöur af þeim
að jöfnu úr bæjar- (sveitar) og
ríkissjóði.
Drukknun. Fyrir rúmri viku
vildi það slys til á vélskipinu »Sæ-
unn« frá Siglufiröi, er það var á
leiö út Skjálfanda, aö einn skipverja
féll í sjóinn og drukknaði. Hét
hann Björn Andrésson og átti heima
f Grindavík. Var hann rúmlega
ferlngur að aldri og ókvæntur,
Dánarfregn 11. þ. m. lézt að
heimiK sínu, hér í bæ, Baldurshaga
Benedikt Jóhannsson verzlunarmaður.
Kirkjan: Messað í Lögmanns-
hlíð n. k. sunnudag kl. 12 á há-
degi, (ekki síðdegismessa í Akur-
eyrarkirkju eins og augl. var í Degi.
Atvinna er allmikil hér í bæn-
um um þessar mundir. Vinna m. a.
um 40 verkamenn hjá -brezka setu-
liðinu.
Kviknar i vélbát. S. 1. mánu-
dag kviknaði í vélbátnum Sævar á
Raufarhöfn. Kom eldurinn upp í
hásetaklefa þar sem einn háseta var
sofandi. Slapp hann út óskaddaður
að mestu, Tókst fljótt að slökkva
eldinn, en klefinn brann að innan
og misstu sumir skipverja íatnað sinn
Eldurinn mun hafa kviknað út frá
ofni.