Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 06.09.1940, Blaðsíða 1

Íslendingur - 06.09.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXVI. árgangur. Akurcyri, 6. september 1Q40 35. tölubl. Framsóknarmenn bykjast vera andvígir innflutningshömlum, af því að þær hindri »eðlilegan* vöxt kaupfélaganna. En f hvert skipti, sem Sjálfstæðisblöðin ympra á því, að slakað sé á höftunum, rísa blöð Framsóknarmanna upp og mót- mæla. Stefna Sjálfstæðismanna í verzlunarmálum er kölluð »kram- vörustefna* og því haldið fram, að eina ástæðan fyrir þvf, áö Sjálf- stæðismenn aðhyllist meira frelsi í verzlunarmálum en nú er ríkjandi, stafi af löngun kaupmanna f meiri kramvöruverzlun, því hún færi þeim meiri hagnað en verzlun með nauðsynjavörur. En Framsóknarmönnum ætti að vera það ljóst, að það er ekki síð- ur hagsmunamál neytendanna, að veizlunin sé sem frjílsust. Dæmin sýna, að höftin halda uppi dýrtíð, hvar sem þeim er beltt. Þegar frflistinn var settur í Danmörku með lögum árið 1937 voru fyrst aðeins 6% af innflutningnum á listanum, en neytendurnir og blöð- in héldu áfram baráttunni fyrir írekari tilslökun þar til um 40% innflutningsins hafði verið settur á frílista árið 1938. Pessi tilslökun leiddi í ljós stórkostlega verðlækk- un. Hrísmjöl lækkaði úr 80 aurum hvert kg. í 50 aura, sveskjur úr 190 aurum í 90 aura og rúsínur eins, kókosmjöl úr 120 í 50 aura o. s. frv. Pegar Sjálfslæðisflokkurinn lét leiðast til þátttöku í ríkisstjórninni, setti hann það sem skilyrði, að ngkkrar helztu nauðsynjivörur yrðu settar á frílista. 15 maí 1939 kom svo tilkynning frá viðskiptamála- ráðuneytinu um það, að teknar hefðu verið á frílista kornvörur, salt, kol og olíur, strigapokar og umbúðastrigi, bækur og tímarit. Um þetta sama leyti lækkaði ís- lenzka krónan í verði um 22%, og hafði það í för með sér mikla verðhækkun á innfluftum vörum. En mjög var það eftirtektarvert, að þær vörur, s,°m komu samtímis á frílista, hækkuðu ekki að neinu ráði og sumar jafn vel alls ekki. Sýnir þetta, að lýmkun haftanna þýðir yfirleitt lækkað verð, og er það tyrst og fremst hagsmunamál neyter.danna. Eins og kunnugt er, starfar hér á landi svokö luð verðlagsnefnd. Getur hún ákveðið hámaiksálagn- ingu á vörum og útsöluverð þeirra, og ætti hún því að geta haft eftir- lit með því, að kaupmennirnir græddu ekki of mikið á »kraminu«, eins og Framsóknaiblöðin virðast óttast. En þótt Sjálfstæðismenn berjist fyrir frekari lýmkun haft- anna, er fjarri því, að þeir vilji að svo komnu sleppa öllum innflutn- ingi lausum. Að sjálfsögðu yrði ekki leyfður innflutningur á þeim vörum, er framleiða má í landinu svo að nægi til neyzlu innanlands, því með því móli væri íslenzkum iðnaði og ftamleiðslu stefnt í hættu. Og sjálfsagt væri að banna með öllu innflutning á alóþörfum og skaðlegum varningi. En Sjálfstæðismenn geta ekki fallist á þá skoðun, sem uppi hefir verið í Framsóknaiblöðunum, að allar þær vörur, sem ekki hafa ver- ið teknar á frílista, sé óþarfa kram. Þeir munu aldrei fallast 4, að fatn- aður, skóíatnaður, byggingarefni, landbúnaðarvörur, vélar, búsáhöld, pappír og ritföng sé helber óþarfi, sem ekki ætti að flytja inn í land- ið. Þeir telja þetta allt nauðsyn- lega hluti, sem ekki verður hjá komist að flytja inn, og þess vegna vilja þeir bæla þeim vöru- tegundun. á frílistann nú, þegar gjaldeyrisástandið hefir svo mjög breytzt til batnaðar, og þar sem viðskipti Islendinga eru að heita má bundiu við eina þjóð eða tvær. »Dagur« 29. f. m. gerir vetzlu’ ardeiluna að umræðuefni og spyr, hvort loka eigi fyrir vöxt kaupfé- laganna eða leyfa þeim að taka eðlilegri þróur. Samvinnumenn lýstu því yfir á Laugarvatni í sum- ar, að innflutningshöftin . stæðu »eðli!egum« vexti kaupfélaganna fyrir þrifum, og vildu þeir því stefna að afnámi haftanna eða rýmkun. Bera blöð þeirra sig jafn- framt illa yfir því, að féögin hafi aldrei fehgið nógu mikið innflutt af byggingavörum, vefnaðarvörum, skófatnaði og búsáhöldum, — þessari »kramvöru», sem Tíminn vill ekki, að kaupmenn fái að flytja inn án leyfis gjaldeyiis- og i'’n- flutningsnefndar. En því þá ekki að taka þessar vö ur á fn'lista, svo að kaupfélögin geti haldið áfram að taka »eðhlegri« þróun og engin vörumiðlunamefnd þurfi að setjast á laggirnar? Eftir því sem bezt verður séð, er »Dagur* aö tala utan að þessu í greininni um verzlunardeiluna á dögunum. Ef Tíminn gerir eins, ættu tveir stærstu stjórnmálaflokk- arnir að geta einhverju umþokað til að létta höftunum af verzluninni. Geri hann það hinsvegar ekki, verður örðugt fyrir almetining að átta sig á viðhorfi Framsóknar- flokksins til þessa máls. Sjóðþurrð hjá „Dagsbrún“. Nýlega hefir orðið uppvfst um stórkostlega sjóðþurrð hjá verka- mannafélaginu »Dagsbrún« í Reykja- vík, er nemur fullum 21 þúsund krónum. Hefir formaður félagsins, Einar Biörnsson verið handfekinn, og hefir hann játað að hafa tekið til eigin afnota þetta fé. Einnig hefir ráðsmaður félagsins, Marteinn Gíslason verið handtekinn fyrir yfirhylmingu, Við síðustu stjórnarkosningar í félaginu höiðu Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokksmenn kosningabanda- lag og náðu stjórninni úr höndum kornmúnisfa og Héðins Valdimars- sonar. Við skiptingu tiúnaðarstarfa varð að samkomulagi, að Alþýðu- flokkurinn fengi formann og gjald- kera, en Sjáifstæðismenn varafor- mann. ritara og fjármálaritara, en auk þess fékk Alþýðuflokkurinn íáðsmann félagsins valinn- Fyrstu vikurnar gekk allt með eðlilegum hælti, en er kom fram á sumarið, fór formaður að smeygja sér undan því að halda sijórnar- fundi, þráit fytir ítiekaðar áskoranir meðstjórnenda hans, Sjálfstæðis- rnannanna þriggja og gjaldkerans. Tók þá loks að gruna, að ekk væri allt með felldu við undanfærslur formanns, og kiöfðust þeir þá skýrslu um fjárreiður félagsins. Var fundur boðaður en formaður mætti ekki. Komu aðeins Sjálf- stæðismennirnir og ráðsmaður fé- lagsins. Var nú gengið á hanti með að skýra fiá Ijárreiðum félags- ins, en hann hvaif á brott og hafði með sér lyklana að fjárhiizl- unum, Loks tókst þó að ná formarini á fund og fá lyklana að hitz'um fé- lagsins. í byrjun þess fundar ját- aði formaður fjárdráttinn. Ákváðu þá hinir stjórnendurnir að fá löggiltan endurskoðanda til að gera fullkomna endurskcðun á fjárreið unum, en g fu formanni Og ráðs- manni þriggja daga frest til að greiða féð, er vantaði- Að þeini tíma liðnum greiddi formaður 2300 krónur. Ákvað meiri hluti stjórn- arinnar, þegar hér var komið, að leggja fram kæru á hendur Einari og Marteini fyrir fjárhvarfið, og Aðalhlutveikið leikur hinn glæsi- legi leikari og íþiótfamaður Errol Flynn. Aðe/ns í þetta eína sinn. Laugardags- og sunnudags- kvöld kl. 9: lce-Follies Tal- og hljómmynd í 10 þátí- um. Aðalhlutvetkin leika: foan Grawtord og fames Stewart Ennfremur hinir heimsfrægu skautahlauparar The International Ice-Fol/ies. Síórfenglegar og skrautlegar skautadanssýningar. Skemmti- leg mynd, sem allir þurfa að sjá sem unna skautaíþróttinni, Sunnudaginn kl. 5 S Brosandi meyjar I.O.O.F, = 122699 = Drukknun. Surmudaginn 25. ágúst S, 1 féll maður fyrir borð af v s, Gylía írá Rauðuvík og drukkn- aði. Hét hann Gunnlaugur Batdvins- son og átti heima í Rauðuvik. Hann var vélstjóri á skipinu, Fegar slys- ið varð, voru allir í bátunum nema Gunnlaugur og matsveinninn. Tók matsveinninn ekki eftir, er Gunn- laugur féll útbyrðis, en sá hann fyrst á floti skammt frá skipinu. Gunnlaugur var syndur og reyndi að ná til skipins, en barst í þess slað frá því, unz hann sökk, Skipið var statt undan Rauðunúpum, er slysið varö. -1|" ".. " .... Wl.ll i voru þeir hið sima kvöld teknir fastir af lögreglunni, Srkadómari hefir mál þetta til rannsóknar, og mun þvf enn ekki vera lokið. En uppvíst er orðið, að báðir hinir sakfelldu hafa notað féð, Einar yfir 14 þúsund kiónur og Marteinn yfir 6 þúsund.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.