Íslendingur

Eksemplar

Íslendingur - 06.09.1940, Side 2

Íslendingur - 06.09.1940, Side 2
2 ISLENDINGUR Auglýsing. — í hinum mikla leiðangri Ferðafélags Akureyrar, dag- ana 3.—7. Agúst-mánaðar síðastl., til Herðubreiðar, Öskju og Dyngju-fjalla, varð Oddur Björnsson afleiðis og einu síns liðs fullan sólarhring fararinnar. Varð hann þá fyrir því óhappi, að glata silfur-reknum og gulli sleignum göngustaf, með stálteini hið innra, en að mestu úr hvalskíði hið ytra. Nafn eigandans er grafið á gullplötu, ofantil á stafnum. — Góð skilalaun lofast finnanda, hvort sem fyrr eða síðar finnast kynni, til dæmis af fjárleitarmönn- um í haust. — Stafurinn getur hafa orðið eftir í einhverri klettaklauf. Stríðið ársgamalt. Stríðið er nú búið að geisa rúmt ár, Hinn 1. september 1939 réðst þýzki herinn inn í Pólland og 3, sama mánaðar sögðu Bret- land og Frakkland Pýzkalandi stríð á hendur og síðan samveldislönd B eta hvert af öðru* Síðan hafa margir atburðir gerst og miklir. Hver smáþjóðin eftir aðra hefir orðið að horfa á, hvern- ig styrjaldai þjóðirnar fótumtróðu hlutleysi hennar og sjálfstæði. Og í skjóli slyrjaldarinnar hefir víðáttu- mesta og fjölmennasta ríki álfunnar gleypt hvern lanc'skikann eftir ann an frá nágrannaþjóðunum, — stund- um land þeirra allt. Þýzkaiand hefir lagt undir sig háift Pólland og meginhluta Frakk- lands, en auk þess Noreg, Dan- mörku, Holland og Belgíu. Rússar hafa lagt undir sig 3 Eystrasalts- ríkin, hálft Pólland og sneiðar af Rúmeníu og Finnlandi. ítalir, serr. fóru í stríðið með Pjóðverjum í júní s. 1. hafa lagt undir sig brezka nýlendu við suðurenda Rauða hafs (Brezka Somaiiland) og Bretar her- numið ísland og Færeyjar. Og í dag er stiíðíð í algleym- ingi. Flugsveitir Pjóðverja koma á fárra stunda Festí inn yfir Eng- land, og sprengjurnar dynja á hús- um, ökrum og engjum eins og haglél. B etar svara með loftárás- um á þýzkar borgir og bæi. Loft- flotarnir líkjast fuglageri, en af jörðu neðan er skotið á hópana af lottvarnabyssum, og einn og einn >fugl« hnígur vængbrotinn eða helsærður til jarðar. En slóðirnar eftir hinn járnaða hæl hermennskunnar liggja víða um hina »menntuðustu« álfu heims- kringlunnar. í löndum, sem allt kapp lögðu á að vera hlutlaus í þessum ægilega diöfladansi, hefir fegurstu bæjtim verið umhverft í brunarústir. Að náttarþeli hefir verið læðst inn f lönd, sem ósk- uðu sér friðar, og íbúunum heilið afarkostum, ef þeir ekki kysstu á vönd kúgarans Og tilraunum þeirra til að víkja frá sér hinum Lögregla bæjanna aukin. Það hefir verið ákveðið af ís- lenzku ríkisstjórninni, að lögreglan í bæjum þeim, sein brezka setuliðið er fjölmennast í, verði aukin, svo að einn lögregluþjónn komi á hverja 50.0 íbúa, en bseir þessir eru: Reykjavík, Ákureyri og Hafnar- fjörður. í Reykjavík verður 16 lög reglumönnum bætt við, en þar hafa nú verið 60 undanfarið. Auk þess verður skipaður lögregluþjónn á Sauðárkróki, en þar hefir enginn verið áður. Hvenær þessi aukning kemur til framkvæmda er enn ó- víst, en sennilega mjög bráðlega. Rikið ber allan kostnað hinnar nýju lögreglu, - Pessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar mun mælast vel fyrir og þykja fylli- lega tímabær. óboðnu gestum hefir verið svarað með eldi og eyðileggingu. En víða hafa andlegir ættingjar Efialtes- ar hins gríska staðið í þjónustu hinna óvelkomnu gQsta og greitt götu þeirra. Fyiir ári síðan mun fáa hafa ór- að fyrir, hversu nú er umhorfs í Evrópu. Og hver treystir sér til að segja fyrir, hvernig þar verður umhorfs að ári liðnu? Verður stríðinu lokið, — og ef því verður lokið, — lýkur því þá með sigri lýðiæðisaflanna og endurheimtu sjálfstæði smáþjóðanna, sem nú bíða úrslitanna í fjötrum? Sú skálmöld, sem nú ríkir í Evrópu, hefir ef til vill ekki enn hálfnað sitt skeið. En hvenær henni lýkur og hvernig henni líkur, verður ekki reynt að svara hér. Síldarmjöl ódýr- ara en í fyrra. Nýlega hefir ríkisstjórnin ákveðið innanlandsveið á síldarmjöli. Verður það 25 krónur pokinn á Siglufjarðar- höfn. í fyrra var verðið 28 krónur fyrir pokann. Er þetta 25 króna verö miklu lægra en það. sem Bretar greiða samkv. afurðasamn- ingnurn við þá, en nú er svo komið, að búið er að framleiða nokkru meira mjöl en þeir kaupa. Um sölu á því sem framyfir er, er allt í óvissu. og a m, k, engar líkur til að það seldist fyrir hærra verð, en það sem ákveðið hefir verið í inn- anlandssölu. Kemur bændum það vissulega vel, að unnt hefir veriö að stilla mjölverðinu svo mjög í hót, því víða um land hefir heyskapur gengið ílla vegna óþurrka. Eru hey því með lélegasta móti og þess vegna mikil þörf á fóðurbætisgjöf með þeim. Munu síldarmélskaup bænda því að líkindum veröa mikilí haust og vetur, Frá síldveiðunum. Um helgina síðustu var bræðslu- síldaraflinn orðinn 2,335 milj. hl. en var á sama tíma í fyrra 1,145 milj. hl. Saltsildin var nú 80323 tunnur en í fyrra 215410 tn, Hæstan afla í flotanum hafði Tryggvú gamli (26416 mál). Af línuveiðurum var Ólafur Bjainason langhæstur. Hafði 22150 raál í bræðslu og 155 tn. í salt, Hætti hann um sömu mundir síldveiðum, og mun hásetahlutur skipsins vera um 5000 krónur. Að sjálfsögðu er svo hár hlutur á svo skömmum tíma algert einsdæmi. Loftvarnanefnd. Samkvæmt heimild í bráðabirgða- lögum um loftvarnaráðstafanir, er ríkisstjórnin gaf út 2. ágúst s. 1, hefir bæjarstjórn Akureyrar kosið í loítvarnanefnd þá Gunnar Schram símastjóra og Árna. Jóhannsson gjaldkera. Lögreglustjóri er sjálf- kjörinn formaður nefndarinnar, samkv. sömu lögum. Kvenfélag Akureyrarkirkju hef- ir beðið blaðið að færa bæjarbú- um beztu þakkir fyrir rausnarleg- ar gjafir, góðar undirtektir og alla aðstoð við hlutaveltu kirkjunnar. Hugarórar Álþýðum. Alþýðumaðurinn síðasti gerir kola- veröið hér að umtalsefni, en hefir sjáanlega ekki hirt um að afla sér upplýsinga um það má) áöur, svo öll skrif hans uin kolaverðið verða hugarórar einar, Telui Alþ.m. unnt að fá nóg af kolum fyrir 9C krónur smálestina, enda hafi þau veriö seld það í nágrenni bæjarins. En kol þau, er síðast komu hingað til kola verzlana, með s, s. Norco, kosta hingað komin nokkuð yfir 100 kr. tonniö, og er þó ekki vitað, að nokkurt skip hafi iengið lægri kola- fragf til íslands. Geti Alþ.m. fengið kol Jyrir 90 kr. smálestina, þá get ur ekki verið um að ræða nema af- gang af farmi, sem eigandinn vill losna við og selur undir kostnaðar- verði. Þá talar Alþ.m. um, að Verðlags- nefnd stingi 40 kr, hagnaði af kola- tonni að Axel Kristjánssyni. Hefði blaðinu verið sæmra að kynna sér verðjöfnunarfyrirkomulagið, áður en það hleypur með slíka vitleysu. Verð jöínunin nær til allra kola hér á staðnum, og hagnaðurinn af sölu nýju kolanna hjá hverri kolaverzl- uninni sem er, er látinn ganga til aö lækka verðið á kolum þeim, sem fyrir voru í bænum. Verðjöfnunin gengur jafnt yfir allar 3 kolaverzl- anir bæjarins, þannig að engin ein þeirra hefir meiri hagnað af sölu hverrar smálestar en önnur. Petta hefði Alþ.m, getað fengið að vita, með því að snúa sér til ein- hverrar kolaverzlunar bæjarins eða Verölagsnefndar eftir upplýsingum áður en hann tók að bollaleggja um gróða Axels Kristjánssonar af sölu hinna nýkomnu kola. Börnin komin úr sumardvöl. Um þessar mundir eru þau kaup staðarbörn, sem dvalið hafa á sumarheimilum í sveit, að koma heim aftur. Komu börnin frá Hrafna- gili og Laugalandi heim um helgina síöustu. Hafði þeim faiið vel fram þenna dvalartíma í sveitinni, og hefði sá tfmi gjarna mátt vera lengri, þar sem skölar munu nú hefjast nokkrum vikum síðar en undan- farin ár. Smábarnaskóli. í síðasta blaði auglýsti ungfrú Guðiún Porsteins dóttir smábarnakennslu. Mun skóli hennar taka til starfa um miðjan þenna mánuö. Ungfrú Guðrún hefir síundað nám við Kennaraskól- ann og lauk mjög góðu prófi þaðan s. 1. vor. Hefir hún því tileinkað sér nýjustu starfshætti og tækni við kennslu smábarna. Landamærin breytast Pað er engin nýlunda, að landa- mæri Evropuríkja færist úr stað hin síðari ár. Hefir ekki sízt kveöið rammt að slíku á yfirstandandi áii, Einkum hefir eitt ríki, sem enn hef- ir tekist að halda sig utan við styrj- öldina, orðið hart úti (að Eystrasalts- löndunum undans.kildum) en þetta ríki er Rúmenía. Á þessu sumri lögðu Rússar undir sig stór svæði af landinu: Bessarabíu og Norðttr- Bukovina, og þótt Rúmenum þætti súrt í brotið, létu þeir kúgast af hinu stóra herveldi. En er Rússar höfðu innlimað þessi tvö fylki, koma landakröfur á hendur Rúm- enum frá Ungverjum og Búlgurum. Leit þá all-ófriðlega út á Balkan skaganum, svo að Þjóðverjar og ítalir tóku að sér aö leysa deiluna. Komu þeir von Ribbentrop og Ciano greifi saman ásamt fulltrúum Rúmena og Ungverja og kváðu upp þann úrskurð, að Ungverjar skyldu fá meira en helming Transsylvaniu. Rúmanska stjórnin beygði sig fyrir þessum dómi, en mikil óánægja og ólga er ríkjandi meðal rúmenskra bænda yfir þessum úrskurði. Ung- verjar eru heldur ekki sem ánægð- astir, því þeir vildu fá s/4 hluta Transsylvaniu. Hafa Þjóðverjar tek- ið að sér að ábyrgjast hin nýju landamæri Kúmeníu. í gær var rúmenska þingið af- numið og Antonescu hershöfðingja falið einræðisvald. Mun hann ætla að bæla alla ólgu niður með valdi, Karol konungur hefir sagt af sér en sonur hans tekið við konung- dómi. ALLIR LOFA O. J. & K.-KAFFI. Fæst í næstu búð.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.