Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 06.09.1940, Blaðsíða 4

Íslendingur - 06.09.1940, Blaðsíða 4
4 ISLENDINGUR Til viðskiptamanna vorra: Nú getum vér aftur boðið viðskiptamönn- um vorum góð ensk kol til vetrarins, B. S. Y. ASS. HARDS, sem kosta- 136 krönur smálestin. Vér væntum að geta nú endurnýjað okkar fyrri viðskipti, er vér reynum að gjöra yður sem hagfeldust. — AXEL KRISTJÁNSSON h.f. Notaðar menntaskólabækur sérstaklega stærðfræði, eðlisfræði, sögu- og dönsku- bækur, aðrar en á ‘slenzku, kaupir Bókaverzlun Gunnl. Tr./ónssonar á Akureyri. Heimsendingar frá aðal-verzluninni hófust á ný um síð- astliðin mánaðamót. Pöntunum er einnig veitt móttaka í úti- búunum á Oddeyri og í innbænum, en sendingar fan ein- göngu fram frá aðal-verzluninni. — Til að létta og flýla fyrir afgreiðslu eru húsmæður vinsamlegast beðnar að sjá um, að greiðsla og skömmtunarseðlar séu ávalt fyrir hendi þegar send- ingin kemur, þar sem bílstjórinn hefir fyrirmæli um, að skila ekki sendingum nema gegn greiðslu og skömmtunarseðlum. Kaupfélag Eyfirðinga. Börn og fullorðnir þurfa Q|/wp Þá er heilsufar þeirra daglega að borða O I \ T i\ og vellíðan í lagi. — Sumardvöl barna í Lauga- landsskóla. (Skýrsla umsjónarmanna til framkvæmdanefndar). Að tilhlwtun skólanefndar barna- skóla Akureyrar, barnaverndar- nefndar Akureyrar og nokkurra félaga, var um 40 börnum frá Ak- ureyri komið til sumardvalar að Laugalandsskóla. Formaður framkvæmdarnefndar, er þessir aðilar skipuðu, var Snorri Sigfússon skólastjóri. Börnin fóru að Laugalandi 17. júlí og dvöldu þar til mánaða- móta ágúst og september, eða 46 daga alls. Til þess að gæta barnanna voru ráðnir k'ennararnir Marinó L. Ste- fánsson og Steinþór Jóhannsson. Skólanefnd Laugalandsskólans tók að sér matreiðslu, þjónustu og ræstingu hússins, og réði til þess 3 stúlkur. Frk. Lena Hallgríms- dóttir kennslukona sá um fæði barnanna og ræstingu, en frú Guðbjörg Bergsveinsdóttir annað- ist þjónustubrögð og hreinlætis- eftirlit á börnunum. Dagleg störf og reglur á barna- heimilinu voru sem hér segir: Kl. 8 að morgni farið á fætur. Kl. 8.45 morgunverður. Kl. 9—10 herbergjaræsting. Kl. 10—12 gönguferðir um ná- grennið. Kl. 12 miðdegisverður, og að honum loknum stuttur hvíldar- tími. Kl. 1 sund (eða sull) í lauginni, fyrir þá sem vildu. Eftir það til kl. 3.30 vinna og leikir. Kl. 4—7 sund fyrir synda, — berjaferðir þegar gott var veður — vinna og leikir. Kl. 7 kvöldverður. Kl. 7.30 þvottur. Kl. 10 venjulega allir sofnaðir. Hvert barn tók upp rúm sitt að morgni og bjó um það að kvöldi, og samkvæmt tilmælum frá kenn- urunum tóku telpurhar að mestu leyti að sér ræstingu herbergja sinna til skiptis, nema á sunnu- dögum, en drengirnir þrifu til umhverfis skólann. Um fæðið er þetta að segja: Morgunverður var hafragrautur og mjólk ásamt smurðu brauði með ofan-á-leggi. Kvöldverður var skyrhræra og mjólk og smurt brauð, — fleiri tegundir, með miklu og fjölbreyttu ofan-á-leggi. Miðaftansdrykkur barnanna var mjójk, nema á sunnudögum kakó. Hádegisverður var eins og gerist og gengur á heimilum. Börnin fengu eins og þau vildu af matn- um. Um 60 1. af mjólk voru notað- ir daglega, eða um IV2 1. á mann að meðaltali. Fæðið mun hafa verið heppi- legt fyrir börn, enda þyngdust þau um rúmlega 1 kg. yfir tímann að meðaltali. Á gönguferðunum söfnuðu börn- in ýmsum jurtum, sem þau þurrk- uðu, nafngreindu og festu á blöð og höfðu síðan heim með sér. Sum söfnuðu allmiklu og af áhuga, önnur litlu. Vermihúsin að Brúnhúsum og kornakurinn að Klauf voru oít heimsótt. Fá voru fatnar 3 lengri ferðir, upp á fjall, fram að Munkaþverá og yfir að Hraínagili. Börnin notuðu sér sund- laugina allmikið og sum læröu lítiö eitt. Börnin unnu mikið úr tré og pappa eða pappír. Drengirnir smíö- uðu flugvélar, blla, pílur, boga, vopn og fleira. Sumt af þessu var furöu vel gert áhaldah'tið. Úr pappa og pappír unnu börnin, einkum stúlkurnar, ótal margt: M a, allikonar skrautlegan höfuö- búnað, fána og verölaunastjörnur. Var þetta gert til undirbúnings fyr- irhuguðu íþróttamóii. Mót þettá var haldið seint á dval- artímanum. Undirbúningur þess hafði tekið marga daga. Hófst það með skrúðgöngu, þar sem börnin báru skrauthúfur sínar og pappírs- fána og sungu. Síðan fóru fram allskonar kappleikir s. s.; hlaup, stökk, sund, Slokkaleikir, þrautir o. fl. og tóku öll börnin þátt í sumu af þessu. Börnin voru vanin á góða um- gengni og reglusemi, og skóskipta var stranglega gætt, þegar farið var út og inn. Skemmdir urðu engar á húsinu eða munum skólans, og mjög litlar úti við. Heiisufar var yfirleitt gott. Fó var lítilsháttar kveí. Nokkur börn duttu og hrufluðu sig ílla, önnur fengu smávegis ígerðir, Ein stúlka klemmdi fingur milli stafs og hurð- ar og varð að ganga til læknis f 15 daga. önnur hafði útbrot á handlegg þegar hún kom, versnaði það og var ekki aö fvllu gróið, þegar hún fór, Eyddist {iví »apótek« það, sem börnunum var ætlað, og varð að fá nokkra viðbót. Héraðslæknirinn kom einu sinni fram eftir. Kostnaðinn af veru barnanna á Laugalandi greiða foieldrar þeirra að nokkru leyti. Hitt verður greitt með frjálsuta fjárframlöguni ein- stakra manna og styrk frá ríki og bæ. Yekjaraklukkiir Vöruhús Akureyrar. Ráðskonu vanlar á lítið heimili hér í bæ frá 15. þ. m. R. v: á. Fjármark Sigurðar Garðarssonar Staðarhóli, Öngulsstaðahreppi, er: Sýlt hœgra og fjööur aftan vinstra. Vetrarstúlku vantar mig frá 1. október með annari. Málfriður Friðriksdóttir Brekkugötu 4, Peningabudda með nokkru af pening- um og skömmtunarseðl- um fundin. R. v. á. Fæði gegn sanngjörnu verði geta 2—3 reglupiltar íengið frá 1. okt. n. k. Rjónusta get- ur komið til mála. R v. á. sem fékk lánaðan hjá mér » járnleist fyrir skömmu, er beðinn að skila honum strax. — HJALTI SIOURÐSSON- ZION. Næstkomandi sunnudag 8.30 e. h. almenn samkoma, allir velkomnir. .Allir velkomnir! 01- og Gosdrykkjagerö Akureyrar kaupir f/öskur Eggert Einarsson. Erlendur skófatnaður selst tneö tækifærisverði dag- lega milli kl. 13 og 15. — J. S, KVARAN. j brotagull og gullpeninga Guðjón, gullsmiður. OPINBERAR SAMKOMUR í Verzlunarmannahúsinu alla sunnu- daga kl. 5 e. h, og fimmtud. kl. 8,30 e. h, — Prentsmiðja Bjöm/a Jóauwoo&r.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.