Íslendingur - 06.09.1940, Qupperneq 4
4
ISLENDINGUR
Til viðskiptamanna vorra:
Nú getum vér aftur boðið viðskiptamönn-
um vorum góð ensk kol til vetrarins,
B. S. Y. ASS. HARDS,
sem kosta- 136 krönur smálestin.
Vér væntum að geta nú endurnýjað okkar fyrri viðskipti,
er vér reynum að gjöra yður sem hagfeldust. —
AXEL KRISTJÁNSSON h.f.
Notaðar menntaskólabækur
sérstaklega stærðfræði, eðlisfræði, sögu- og dönsku-
bækur, aðrar en á ‘slenzku, kaupir
Bókaverzlun Gunnl. Tr./ónssonar
á Akureyri.
Heimsendingar frá aðal-verzluninni hófust á ný um síð-
astliðin mánaðamót. Pöntunum er einnig veitt móttaka í úti-
búunum á Oddeyri og í innbænum, en sendingar fan ein-
göngu fram frá aðal-verzluninni. — Til að létta og flýla fyrir
afgreiðslu eru húsmæður vinsamlegast beðnar að sjá um, að
greiðsla og skömmtunarseðlar séu ávalt fyrir hendi þegar send-
ingin kemur, þar sem bílstjórinn hefir fyrirmæli um, að skila
ekki sendingum nema gegn greiðslu og skömmtunarseðlum.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Börn og fullorðnir þurfa Q|/wp Þá er heilsufar þeirra
daglega að borða O I \ T i\ og vellíðan í lagi. —
Sumardvöl
barna í Lauga-
landsskóla.
(Skýrsla umsjónarmanna
til framkvæmdanefndar).
Að tilhlwtun skólanefndar barna-
skóla Akureyrar, barnaverndar-
nefndar Akureyrar og nokkurra
félaga, var um 40 börnum frá Ak-
ureyri komið til sumardvalar að
Laugalandsskóla.
Formaður framkvæmdarnefndar,
er þessir aðilar skipuðu, var
Snorri Sigfússon skólastjóri.
Börnin fóru að Laugalandi 17.
júlí og dvöldu þar til mánaða-
móta ágúst og september, eða 46
daga alls.
Til þess að gæta barnanna voru
ráðnir k'ennararnir Marinó L. Ste-
fánsson og Steinþór Jóhannsson.
Skólanefnd Laugalandsskólans
tók að sér matreiðslu, þjónustu og
ræstingu hússins, og réði til þess
3 stúlkur. Frk. Lena Hallgríms-
dóttir kennslukona sá um fæði
barnanna og ræstingu, en frú
Guðbjörg Bergsveinsdóttir annað-
ist þjónustubrögð og hreinlætis-
eftirlit á börnunum.
Dagleg störf og reglur á barna-
heimilinu voru sem hér segir:
Kl. 8 að morgni farið á fætur.
Kl. 8.45 morgunverður.
Kl. 9—10 herbergjaræsting.
Kl. 10—12 gönguferðir um ná-
grennið.
Kl. 12 miðdegisverður, og að
honum loknum stuttur hvíldar-
tími.
Kl. 1 sund (eða sull) í lauginni,
fyrir þá sem vildu. Eftir það til
kl. 3.30 vinna og leikir.
Kl. 4—7 sund fyrir synda, —
berjaferðir þegar gott var veður
— vinna og leikir.
Kl. 7 kvöldverður.
Kl. 7.30 þvottur.
Kl. 10 venjulega allir sofnaðir.
Hvert barn tók upp rúm sitt að
morgni og bjó um það að kvöldi,
og samkvæmt tilmælum frá kenn-
urunum tóku telpurhar að mestu
leyti að sér ræstingu herbergja
sinna til skiptis, nema á sunnu-
dögum, en drengirnir þrifu til
umhverfis skólann.
Um fæðið er þetta að segja:
Morgunverður var hafragrautur
og mjólk ásamt smurðu brauði
með ofan-á-leggi. Kvöldverður var
skyrhræra og mjólk og smurt
brauð, — fleiri tegundir, með
miklu og fjölbreyttu ofan-á-leggi.
Miðaftansdrykkur barnanna var
mjójk, nema á sunnudögum kakó.
Hádegisverður var eins og gerist
og gengur á heimilum. Börnin
fengu eins og þau vildu af matn-
um. Um 60 1. af mjólk voru notað-
ir daglega, eða um IV2 1. á mann
að meðaltali.
Fæðið mun hafa verið heppi-
legt fyrir börn, enda þyngdust
þau um rúmlega 1 kg. yfir tímann
að meðaltali.
Á gönguferðunum söfnuðu börn-
in ýmsum jurtum, sem þau þurrk-
uðu, nafngreindu og festu á blöð
og höfðu síðan heim með sér.
Sum söfnuðu allmiklu og af
áhuga, önnur litlu. Vermihúsin að
Brúnhúsum og kornakurinn að
Klauf voru oít heimsótt. Fá voru
fatnar 3 lengri ferðir, upp á fjall,
fram að Munkaþverá og yfir að
Hraínagili. Börnin notuðu sér sund-
laugina allmikið og sum læröu
lítiö eitt.
Börnin unnu mikið úr tré og
pappa eða pappír. Drengirnir smíö-
uðu flugvélar, blla, pílur, boga, vopn
og fleira. Sumt af þessu var furöu
vel gert áhaldah'tið.
Úr pappa og pappír unnu börnin,
einkum stúlkurnar, ótal margt:
M a, allikonar skrautlegan höfuö-
búnað, fána og verölaunastjörnur.
Var þetta gert til undirbúnings fyr-
irhuguðu íþróttamóii.
Mót þettá var haldið seint á dval-
artímanum. Undirbúningur þess
hafði tekið marga daga. Hófst það
með skrúðgöngu, þar sem börnin
báru skrauthúfur sínar og pappírs-
fána og sungu. Síðan fóru fram
allskonar kappleikir s. s.; hlaup,
stökk, sund, Slokkaleikir, þrautir o.
fl. og tóku öll börnin þátt í sumu
af þessu.
Börnin voru vanin á góða um-
gengni og reglusemi, og skóskipta
var stranglega gætt, þegar farið var
út og inn.
Skemmdir urðu engar á húsinu
eða munum skólans, og mjög litlar
úti við.
Heiisufar var yfirleitt gott. Fó
var lítilsháttar kveí. Nokkur börn
duttu og hrufluðu sig ílla, önnur
fengu smávegis ígerðir, Ein stúlka
klemmdi fingur milli stafs og hurð-
ar og varð að ganga til læknis f
15 daga. önnur hafði útbrot á
handlegg þegar hún kom, versnaði
það og var ekki aö fvllu gróið,
þegar hún fór, Eyddist {iví »apótek«
það, sem börnunum var ætlað, og
varð að fá nokkra viðbót.
Héraðslæknirinn kom einu sinni
fram eftir.
Kostnaðinn af veru barnanna
á Laugalandi greiða foieldrar þeirra
að nokkru leyti. Hitt verður greitt
með frjálsuta fjárframlöguni ein-
stakra manna og styrk frá ríki
og bæ.
Yekjaraklukkiir
Vöruhús Akureyrar.
Ráðskonu
vanlar á lítið heimili hér í
bæ frá 15. þ. m. R. v: á.
Fjármark
Sigurðar Garðarssonar
Staðarhóli, Öngulsstaðahreppi, er:
Sýlt hœgra og fjööur aftan vinstra.
Vetrarstúlku
vantar mig frá 1. október
með annari.
Málfriður Friðriksdóttir
Brekkugötu 4,
Peningabudda
með nokkru af pening-
um og skömmtunarseðl-
um fundin. R. v. á.
Fæði
gegn sanngjörnu verði geta
2—3 reglupiltar íengið frá
1. okt. n. k. Rjónusta get-
ur komið til mála. R v. á.
sem fékk lánaðan hjá mér
» járnleist fyrir skömmu, er
beðinn að skila honum strax. —
HJALTI SIOURÐSSON-
ZION. Næstkomandi sunnudag
8.30 e. h. almenn samkoma, allir
velkomnir.
.Allir velkomnir!
01- og Gosdrykkjagerö Akureyrar
kaupir f/öskur
Eggert Einarsson.
Erlendur skófatnaður
selst tneö tækifærisverði dag-
lega milli kl. 13 og 15. —
J. S, KVARAN.
j brotagull og gullpeninga
Guðjón, gullsmiður.
OPINBERAR SAMKOMUR
í Verzlunarmannahúsinu alla sunnu-
daga kl. 5 e. h, og fimmtud. kl.
8,30 e. h, —
Prentsmiðja Bjöm/a Jóauwoo&r.