Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 27.09.1940, Blaðsíða 2

Íslendingur - 27.09.1940, Blaðsíða 2
2 ISLENDINGUR af einlægri lirifningu, en þó mis- munandi, eftir því sem föng stóðu til. Og svo sem fj’r er að vikið> mátti eindregið rekja þann mismun til viðfangsefnanna fremur en flutn- ingsins, sem, að mfnum dómi, var yfirleitt hinn pryöilegasti hjá lista- mönnunum báðum. En mín skoðun er sú, að hér um slóðir a. m. k. ætti túlkandi listafólk nær eingöngu að binda sig við lagræn og klassisk viöfangsefni. Hin skynsamlega nútíma tónlist, sem því nær eingöngu virðist grundvallast á iálmandi hljóma- eða kannske réttar tiltekið óhljóma- leit og öðruru hliðstæðum fyrir- brigðum, þar sem höfundurinn vís- vitandi ákveður að þessi hljómur skuli endilega tákna rauðskjöldótta kú, hinn græna hanaíjöður o. s. frv. talar ekki til hjartans. Hún getur aðeins vakið nokkra furðu, eins og t. d. ef maður sæi fyrir sér hrúts- hornóttan hund eða ferfætta hænu. En bver mundi telja slíkt viðundur búningsbót á sköpunarverkinu ? Kannske eiga hjörtu mannanna eftir að verða svo »skynsöm«, að endemi séu bezt til þess fallin að hrlfa þau, en að svo komnu er nútíma tón- listin svokallaða ekki annað en »nýju fötin keisaranst, sem tízkan hefir gert mönnutn að einskonar lífsskilyrði að dáðst að, þótt sjálíir sjái þeir hvorki munstur né snið, og séu í hjarta sínu sammála barn- inu, sem engu hefur að tapa, um, að >hann sé ekki í neinu*. Það guðdómlega við listina er, að hún er eins og lífið sjálft, liljur vallarins og fíngurgómar mannanna, hvort tveggja í senn svo óendan- lega lík, og svo óendanlega ó- lík. Eins og fyrr greinir var frammi- staða listamannanna hin prýöilegasta í hvívetna. Og þótt það megi kall- ast ofdirfska af mér, að gera nokk- uð upp á milli þeirra, finnst mér ekki saka þó að ég gaspri lítið eitt, svona á eftir þeim, þar að lútandi. Hvort sem því veldur hrifnæmi mín íyrir íslenzkri skaphöfn eöa annað. Þá verður það að segjast, að sum- ar af preludium Chopins hafa aldrei snert mig eins djúpt og nú í fluín- ingi Árna Kristjánssonar, og hefi ég þó margsinnis heyrt þær fluttar af heimskunnum snillingum, Það er nú liðið víst hátt á fimmta ár síðan ég heyrði Árna síðaát, og viröist mér hann hafa tekið mjög athyglisverðum framförum. Birtist hann mér að þessu sinni sem heil- steyptur snillingur, sem hvergi miss- ir marks. En jafnframt fékk ég einhverja löngun til að sjá eða öllu heldur heyra hann hleypa fram af Knattspffilappleikur. Knattspyrnuleikurinn á sunnud. kem- ur vekur athygli fyrir tvennt. Hvern- ig reynist úrvalsliðið úr K. A,, Þór og hvernig leika Bretarnir? Akur- eyringarnir eru allir í góðri æfingu nú vegna fjölda kappleika í sumar og þeir hafa hug á aö standa sig. Sá er þetta ritar mun skrifa »kritik« um hvern einstakan leikmann í næsta blaö. Enginn leikmaöur þarf að hugsa sér að koma til mála í úrvalslið framvegis, ef hann ekki sýnir fullan vilja á góðum samleik, er ötull og vakandi, en kurteis og 1 góðu skapi. Áhorfendur munu hrópa með ykkur, ef þið gerið ykk- ur far um að sýna góða knattspyrnu. Hver og einn verður að láta í té þá tækni, sem hann hefur yfir aö ráða. Þið verðið að reyna að sam- stilla sveitina alla svo Haktikin« fari ekki út um þúfur. Og munið aö mæta til leiks í íæka tíð. íri. Kaupgjald hækkar. Kauplagsnefnd hefir nýlega reikn- að út vísitölu framfærslukostnaöar í Reykiavík fyrir mánuðina júlí til september, en vísitalan miðast viö töluna 100 í janúar — marz 1939. Að þessu sinni er vísitalan 136 og er þaö 6 stiga hækkun frá síðasta útreikningi áöur. Kaupgjaldsupp- bætur frá 1. október n. k. veröa því: • í I. flokki (kaup 1,50 eðaminna) 11% -II. - ( - 1,50-2,00) 24% -III. - (- 2,01 eðameira) \9,3% sér beizlinu meira og oftar en hon- um er tamt. Hinsvegar virðist mér Björn, sem líka er miklu yngri, öllu laus- ari í reipunum, en þeim mun glæsi- legri í cilþrifum, og afburða smekk- vís víða. Þykist ég þess fullviss, að þar er voldugur snillingur á uppsiglingu. Og ég vænti þess fast- lega, og óska þess innilega, að lífið, sem hann á þessum vettvangi á svo að segja allt framundan, færi honum fleiri og glæsilegri sigra en jafnvel hið bjartsýnasta ungmenni getur upp lifað í draumum sínum. Að endingu óska ég svo þessum óskasonum íslands gæfu og gengis um alla framtíð. Akureyri 22. sept. 1940. Björgvin Ouðmundsson. Sparið kolin! „Rafba“ Notið ratmagnið! rafmagaseldavélarnar fást nú aftur. Jarðarför litlu stúlkunnar minnar, Regínu Sigursteins- <lóttur, sem andaðist 15. þ. m., er ákveðin þriðjud. 1. okt. næstk. kl. 1 e. h. — Hefst með bæn á heimili mínu Norður- götu 6. b. Kristín Jóhannesdóttir. íslenzkir togarar bjarga hundruð- um manna. Togararnir Arinbjörn hersir og Snorri goði björguðunýlega 3—400 hermönnum af sökkvandi skipi í írlandshafi. Voru togararnir á heim- leið að næturlagi, er skipverjar komu auga á stórt skip á siglingu skammt frá og flugvél, er lét sprengju falla ofan á það Síðan flaug flug- vélin rétt yfir siglur togaranna án þess að gera tilraun til að vinna þeim mein og flaug síöan brott. Skipið sem varð fyrir sprengjunni varð nú allt að eldhafi og þustu þeir, er á skipinu voru, að björgun- arbátum þess og komu þeim á ilot. Eldurinn varð þó fljótt svo magn- aður, að ekki náðist til sumra bát- anna og hengu menn víða utan á skipinu í köðlum. Báöir togararnir unnu að björguninni og höfðu náö flestum mönnunum, er tundurspillir kom á vettvang og tók við þeim. Skipið var franskt og áhöfnin mest frönsk og ensk auk nokkurra svert- ingja. Atvinnuleysið í Reykjavík. I byrjun ágústmánaðar þessa árs voru skráðir 166 atvinnulausir menn í Reykjavík. Er það lægsta tala á síöastliðnum 5 árum. Lægst hef- ir hún komist á þessu 5 ára tímabili í 199 en hæst í 316. Af þessum 166 mönnum voru 144 algengir verkamenn, 21 iðnlærðir og 1 sjó- maður. I I Gammí'SVimtnr fást í BRAUNS-VERZLUN PÁLL SIGURGEIRSSON. brotagull og gullpeninga Guð/ón, g;ullsmiður. Utantör til Bretlands og Danmerkur 1939, nefnist ritlingur, sem blaðinu hefir borizt. Er það skýrsla til fræðslu- málastjórnarinnar frá Snorra skóla- stjóra Sigfússyni í tilefni af utanför hanns í fyrra, Fór Snorri för þessa til að kynna sér uppeldis- og skóla- mál í Danmörku og Bretlandi, og segir hann í skýislunni frá þvi, er honum þótti eftirtektarverðast og eftirbreytniverðast af því, er bar fyrir augu hans og eyru í barna- skólum þessara landa. Nýjar kvöldvökur, 3. hefti yfirstandandi árs er nýkom- ið út. Tvær framhaldssögur eru I þessu hefti: Kennimaður eftir Sig, Róbertsson og Synir Arabahöföingj- ans, þýdd saga. Þá er þar ferða- saga eftir Jóhann J. E. Kúld, tveir þjóðsagnaþættir og bókmenntaþáttur.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.