Íslendingur - 27.09.1940, Qupperneq 2
2
ISLENDINGUR
af einlægri lirifningu, en þó mis-
munandi, eftir því sem föng stóðu
til. Og svo sem fj’r er að vikið>
mátti eindregið rekja þann mismun
til viðfangsefnanna fremur en flutn-
ingsins, sem, að mfnum dómi, var
yfirleitt hinn pryöilegasti hjá lista-
mönnunum báðum.
En mín skoðun er sú, að hér um
slóðir a. m. k. ætti túlkandi listafólk
nær eingöngu að binda sig við
lagræn og klassisk viöfangsefni.
Hin skynsamlega nútíma tónlist,
sem því nær eingöngu virðist
grundvallast á iálmandi hljóma-
eða kannske réttar tiltekið óhljóma-
leit og öðruru hliðstæðum fyrir-
brigðum, þar sem höfundurinn vís-
vitandi ákveður að þessi hljómur
skuli endilega tákna rauðskjöldótta
kú, hinn græna hanaíjöður o. s. frv.
talar ekki til hjartans. Hún getur
aðeins vakið nokkra furðu, eins og
t. d. ef maður sæi fyrir sér hrúts-
hornóttan hund eða ferfætta hænu.
En bver mundi telja slíkt viðundur
búningsbót á sköpunarverkinu ?
Kannske eiga hjörtu mannanna eftir
að verða svo »skynsöm«, að endemi
séu bezt til þess fallin að hrlfa þau,
en að svo komnu er nútíma tón-
listin svokallaða ekki annað en
»nýju fötin keisaranst, sem tízkan
hefir gert mönnutn að einskonar
lífsskilyrði að dáðst að, þótt sjálíir
sjái þeir hvorki munstur né snið,
og séu í hjarta sínu sammála barn-
inu, sem engu hefur að tapa, um,
að >hann sé ekki í neinu*.
Það guðdómlega við listina er,
að hún er eins og lífið sjálft, liljur
vallarins og fíngurgómar mannanna,
hvort tveggja í senn svo óendan-
lega lík, og svo óendanlega ó-
lík.
Eins og fyrr greinir var frammi-
staða listamannanna hin prýöilegasta
í hvívetna. Og þótt það megi kall-
ast ofdirfska af mér, að gera nokk-
uð upp á milli þeirra, finnst mér
ekki saka þó að ég gaspri lítið eitt,
svona á eftir þeim, þar að lútandi.
Hvort sem því veldur hrifnæmi mín
íyrir íslenzkri skaphöfn eöa annað.
Þá verður það að segjast, að sum-
ar af preludium Chopins hafa aldrei
snert mig eins djúpt og nú í fluín-
ingi Árna Kristjánssonar, og hefi
ég þó margsinnis heyrt þær fluttar
af heimskunnum snillingum, Það
er nú liðið víst hátt á fimmta ár
síðan ég heyrði Árna síðaát, og
viröist mér hann hafa tekið mjög
athyglisverðum framförum. Birtist
hann mér að þessu sinni sem heil-
steyptur snillingur, sem hvergi miss-
ir marks. En jafnframt fékk ég
einhverja löngun til að sjá eða öllu
heldur heyra hann hleypa fram af
Knattspffilappleikur.
Knattspyrnuleikurinn á sunnud. kem-
ur vekur athygli fyrir tvennt. Hvern-
ig reynist úrvalsliðið úr K. A,, Þór
og hvernig leika Bretarnir? Akur-
eyringarnir eru allir í góðri æfingu
nú vegna fjölda kappleika í sumar
og þeir hafa hug á aö standa sig.
Sá er þetta ritar mun skrifa »kritik«
um hvern einstakan leikmann í
næsta blaö. Enginn leikmaöur þarf
að hugsa sér að koma til mála í
úrvalslið framvegis, ef hann ekki
sýnir fullan vilja á góðum samleik,
er ötull og vakandi, en kurteis og
1 góðu skapi. Áhorfendur munu
hrópa með ykkur, ef þið gerið ykk-
ur far um að sýna góða knattspyrnu.
Hver og einn verður að láta í té
þá tækni, sem hann hefur yfir aö
ráða. Þið verðið að reyna að sam-
stilla sveitina alla svo Haktikin« fari
ekki út um þúfur. Og munið aö
mæta til leiks í íæka tíð.
íri.
Kaupgjald
hækkar.
Kauplagsnefnd hefir nýlega reikn-
að út vísitölu framfærslukostnaöar í
Reykiavík fyrir mánuðina júlí til
september, en vísitalan miðast viö
töluna 100 í janúar — marz 1939.
Að þessu sinni er vísitalan 136 og
er þaö 6 stiga hækkun frá síðasta
útreikningi áöur. Kaupgjaldsupp-
bætur frá 1. október n. k. veröa
því: •
í I. flokki (kaup 1,50 eðaminna) 11%
-II. - ( - 1,50-2,00) 24%
-III. - (- 2,01 eðameira) \9,3%
sér beizlinu meira og oftar en hon-
um er tamt.
Hinsvegar virðist mér Björn,
sem líka er miklu yngri, öllu laus-
ari í reipunum, en þeim mun glæsi-
legri í cilþrifum, og afburða smekk-
vís víða. Þykist ég þess fullviss,
að þar er voldugur snillingur á
uppsiglingu. Og ég vænti þess fast-
lega, og óska þess innilega, að lífið,
sem hann á þessum vettvangi á
svo að segja allt framundan, færi
honum fleiri og glæsilegri sigra en
jafnvel hið bjartsýnasta ungmenni
getur upp lifað í draumum sínum.
Að endingu óska ég svo þessum
óskasonum íslands gæfu og gengis
um alla framtíð.
Akureyri 22. sept. 1940.
Björgvin Ouðmundsson.
Sparið kolin!
„Rafba“
Notið ratmagnið!
rafmagaseldavélarnar
fást nú aftur.
Jarðarför litlu stúlkunnar minnar, Regínu Sigursteins-
<lóttur, sem andaðist 15. þ. m., er ákveðin þriðjud. 1. okt.
næstk. kl. 1 e. h. — Hefst með bæn á heimili mínu Norður-
götu 6. b.
Kristín Jóhannesdóttir.
íslenzkir togarar
bjarga hundruð-
um manna.
Togararnir Arinbjörn hersir og
Snorri goði björguðunýlega 3—400
hermönnum af sökkvandi skipi í
írlandshafi. Voru togararnir á heim-
leið að næturlagi, er skipverjar
komu auga á stórt skip á siglingu
skammt frá og flugvél, er lét sprengju
falla ofan á það Síðan flaug flug-
vélin rétt yfir siglur togaranna án
þess að gera tilraun til að vinna
þeim mein og flaug síöan brott.
Skipið sem varð fyrir sprengjunni
varð nú allt að eldhafi og þustu
þeir, er á skipinu voru, að björgun-
arbátum þess og komu þeim á ilot.
Eldurinn varð þó fljótt svo magn-
aður, að ekki náðist til sumra bát-
anna og hengu menn víða utan á
skipinu í köðlum. Báöir togararnir
unnu að björguninni og höfðu náö
flestum mönnunum, er tundurspillir
kom á vettvang og tók við þeim.
Skipið var franskt og áhöfnin mest
frönsk og ensk auk nokkurra svert-
ingja.
Atvinnuleysið í
Reykjavík.
I byrjun ágústmánaðar þessa árs
voru skráðir 166 atvinnulausir menn
í Reykjavík. Er það lægsta tala
á síöastliðnum 5 árum. Lægst hef-
ir hún komist á þessu 5 ára tímabili
í 199 en hæst í 316. Af þessum
166 mönnum voru 144 algengir
verkamenn, 21 iðnlærðir og 1 sjó-
maður.
I I
Gammí'SVimtnr
fást í
BRAUNS-VERZLUN
PÁLL SIGURGEIRSSON.
brotagull og gullpeninga
Guð/ón, g;ullsmiður.
Utantör til Bretlands og
Danmerkur 1939,
nefnist ritlingur, sem blaðinu hefir
borizt. Er það skýrsla til fræðslu-
málastjórnarinnar frá Snorra skóla-
stjóra Sigfússyni í tilefni af utanför
hanns í fyrra, Fór Snorri för þessa
til að kynna sér uppeldis- og skóla-
mál í Danmörku og Bretlandi, og
segir hann í skýislunni frá þvi, er
honum þótti eftirtektarverðast og
eftirbreytniverðast af því, er bar
fyrir augu hans og eyru í barna-
skólum þessara landa.
Nýjar kvöldvökur,
3. hefti yfirstandandi árs er nýkom-
ið út. Tvær framhaldssögur eru I
þessu hefti: Kennimaður eftir Sig,
Róbertsson og Synir Arabahöföingj-
ans, þýdd saga. Þá er þar ferða-
saga eftir Jóhann J. E. Kúld, tveir
þjóðsagnaþættir og bókmenntaþáttur.