Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 27.09.1940, Qupperneq 1

Íslendingur - 27.09.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXVI. árgangur.l Akureyri, 27. september 1940 I 40. tölubl. KRISTJÁN X. konungur fslands og Danmerkur átti 70 ára afmæli í gær. Minntist Ríkisútvarpið afmælis konungs í dagskrá sinni, og guðsþjónusta var lialdin í dómkirkjunni i Reykjavík, þar sem biskupinn yfir Islandi, Sigurgeir Sigurðsson flutti predik- un í tilelni af afmælinu. Kristján konungur X og drottning hans hafa látið sér mjög annt um ísland og velferð íslenzku þjóðarinnar, og minnast allir íslendingar þeirra ineð óskiptri virðingu og hlýjum hug. Á þessum tímamótum í lífi konungs munu honum berast héðan margar hljóðar árnaðaróskir yfir hin breiðu höf. Sémi biezk skiifslofa vegna kvartana, skaða- bótakrafa o. s. frv. Brezka herstjórnin hefir látið opna skrifstofu á Ráðhústorgi 7 (hús Axels Kristjánssonar). Skrif- stofan heitir Hirings and Com- plaints Office — Northern Iceland. Er tekið þar á móti öllum kvört- unum í sambandi við brezka setu- liðið hér, svo sem vegna skemmda eða notkunar á landi, lóðum, hús- um o. s. frv. Ennfremur er samið þar um leigu, ef samkomulag næst ekki á milli hlutaðeigenda. Kvart- anir og kröfur þurfa að vera skrif- legar og mega vera á íslenzku. Þriggja manna nefnd fjallar um málin. í nefndinni eiga sæti: Dr. Kristinn Guðmundsson, formaður, Major Stókes og Captain Clive Morris. Náist ekki samkomulag við nefndina, er hægt að skjóta Hjúskapur. Nýlega hafa verið gefin saman í hjónaband í Kaup mannahöfn ungfrú Elsa Brems óperu- söngkona og Stefán Guðmundssori óperusöngvari. málunum til aðalnefndarinnar í Reykjavík og er Lárus Fjeldsted, hrm., formaður hennar. Er æskilegt að allir þeir, sem kvartanir eða kröfur hafa á hend- ur brezka setuliðinu, snúi sér skriflega til skrifstofunnar og það heldur fyrr en síðar. Tíðartar hefir verið mjög kalt lengst af þenna mánuð og stöðugir óþurrkar. Um helgina sföustu hlýn- aöi þó í veðri og brá til sunnanált- ar. Var mjög mikið uti af heyjum, en þau náðust um og eftir helgina. V'oru þau nokkuð tekin að skemm- ast, en þó minna en orðið hefði í hlýrra tíöarfari. Vfðast er búið að taka upp kart- öflur úr görðum, og er uppskeran all-misjöfn. Yfirleitt mun hún þó vera undir meðallagi. Piano l óskast til leigu, kaup geta komið til mála. Borð og istólar óskast til kaups. — Upplýsingar í Prentverkl Odds Björnssonar Kjötverðið hækkar nm 75°|0 Algengasta umræðuefni manna á meðal síðustu dagana er hin gífur- lega verðhækkun á kindakjöti, sem meiri hluti kjötveiðlagsnefndar hef- ir samþykkt. Hefir heildsöluverð á I. tlokks kjöti verið ákveðið kr. 2,10 pr. kg., og gildir það verð alls staðar, en áður hefir landinu verið skipt í verðlagssvæði. í II. verðflokki er kjötið selt á 2,00 krónur en í III. flokki á 1,85 krón- ur. — í fyrra haust var heildsöluverð á I. flokks kjöti hér á Akureyri kr. 1,20 pr. kg., og er hækkun kjöt- verðsins hér þvf hvorki meiri ré minni en 90 aurar á hvert kg. eða 75 af hundraði. Kaupgjaldshækkun nemur á sama tíma frá 19,3 —27%^ hjá þeim stéit- um, sem hafa fengið lögboðna launahækkun, en ýmsar aðrar stéttir ha a enga hækkun fengið eða mjöí litla. Hið háa kjötverð er því sjáanlega ekki rniðað við kaupgetu almennings í bæjunum. Ríkisstjórnin hefir hlutast til um, að síldatmjöl yrði selt ódýrara inn- anlands nú í haust en í fyrra. Sú íhlutun hennar hefir mælzt vel fyrir og vakið vonir um, að með henni hafi verið reynt að stuðla að hóf- stilltu verðlagi á innlendum fram- leiðsluvörum. Pað hefði verið í fullu samrærni við afskipti ríkis- stjórnarinnar af síldarmjölsverðinu, ef hún hefði haft hönd í bagga með gjörðum kjötveiðlagsnefndar og séð um, að verðlag á kjöti til neyzlu innanlands hefði verið í einhverju samræmi við kaupgetu fólksins og verðlag arnara nauð- synja. KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð n. k. sunnudag kl. 12 á hádegi. Nýr frílisti Viöskiptamálaráðherra hefir gefið út nýjan frílista, sem birtur hefur veriö í Lögbirtingablaðinu. Á listan- um eru allmargar vörutegundir, sem frjálst er að flytja inn frá Bretlandi. Eru þar m. a. fóðurmjöl, kaffi, te, cacaó og sykur, smávörur til fatn- aðar (tvinni, tölur, nálar o. s. frv ), skófatnaður úr gúmmíi og striga, byggingavörur, útgerðarvörur, land- búnaðarverkfæri, girðingaeíni, mótor- vélar, varahlutir í mótorvélar op bifreiðar o. fl., olíulampar og olíu- vélar, sauma- og prjónavélar, suðu- pottar, katlar og pönnur, brúsar, fötur og þvottabalar, efnivörur til smjörlíkisgerðar, sápugerðar og kaffi- bætisgerðar, raflagningaefni, raf- magnsperur og raíhlöður, prent- pappír, umbúðapappír, sáraumbúðir °g lyfjavörur ýmsar, þvottasódi, baðlyf, litarefni, kolsýra, ammoniak o m. m. fleira. Vilhjálmur Pór er nýlega kominn heim til Islands ásamt fjöl- skyldu sinni eftir tveggja ára dvöl í Nev York. Er hann nú staddur bér í bænum, og halda vinir hans og kunningjar honum samsæti í kvöld. Fei hann síðan til Reykja- víkur og tekur við starfi sínu sem bankastjóri Landsbankans. Bústaðaskipti. Þeir kaupend ur blaðsins hér í bæ, sem flytjast búferlum um næstu mánaöamót, tilkynni afgreiðslu blaðsins það, svo unnt sé að koma f veg fyrir vanskil. Póstmannatélag Akureyrar var stofnað hér á Akureyri 15, þ m. Stofnendur voru 19. Nær félags- svæðið frá Horni að Langanesi. Formaður félagsins var kjörinn Óli P, Kristjánsson póstmeistari en með- stjórnendur Karl Helgason póstaf- gr.m. Blönduósi og Valgarð Blöndal póstafgr m. Sauðárkróki. Tilkyimtng frá h.f. Nýja-Bíó. Til hægðarauka fyrir bíógesti hefir verið ákveðið að að- göngumiðasala fari fram á kvöldin í Bíó frá kl. 8—9 í stað 8.30 — 9. Lengist því sölu- tíminn um hálfa klukkustund. — Sala aðgöngumiða fer eftir sem áður fram á hverjum degi frá kl. 1-3. Pantaða aðgöngumiða verður að sækja inilli kl. 5-6 e. h.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.