Íslendingur - 11.10.1940, Page 1
- m
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXvT"árgangur!^^^™^™ Akureyrí, 11. október 1Q40
Pegar núverandi þjóðstjórn var
mynduð, féllu mörg fögur orð í
blöðunum um nauðsyn þess, að
þau drægju úr vopnaburði sínum
hvert gegn öðru, svo að friðsam-
legt samstarf hinna þriggja flokka
er að þjóðstjórninni standa, mætti
takast og endast sem bezt. Pað
var jafnvel vitnað í sögu ís'ands,
— um sundrung þjóðarinnar á 13.
öld, er leiddi að lokum erlent vald
til öndvegis í innanlandsmálum
vorum. Sú hætta kynni enn að
vofa yfir, ef þjóðin sýndi ekki
fyllsta skilning á þörfinni fyrir frið-
samlegu samstarfi stétta og stjórn-
málaflokka að lausn vandamálanna.
Pað var einkum einn flokkur í
iandinu, sem þakka vildi sér þá til-
raun, er gerð var til slíks sam-
starfs með myndun þjóðstjórnar-
innar. Pessi flokkur var Framsókn-
arflokkurinn, og er séð var, að
samstarf ráðherranna í hinni nýju
rfkisstjórn var yfirleitt svo gott,
sem menn frekast höfðu vænzt,
lét Tíminn þess eigi ósjaldan getið,
hverjir ættu mestan heiðurinn af
því, að til hennar vat stofnað.
Um hættu þá, sem sjálfstæði
smáþjóða getur stafað af innan-
landsdeilum og flokkadrætti, eru
víst flestir á einu máli. Hver smá-
þjóðin af annari hefir orðið eriendu
veldi að bráð síðustu árin, mest
fyrir þá sök, að þjóðin stóð ekki
einhuga saman á stund hættunnar.
Og síðan ísland var hernumið af
erlendu stórveldi s. I. vor, hefir
þörfin fyrir einingu fslenzku þjóð-
arinnar sennilega aldrei verið meiti.
Pað verður ekki séð, að Fram-
sóknarmönnunum, sem gengust
fyrir hinu >friðsamlega samstarfi*
sé fyllilega ljós þörfin á slíkri ein-
ingu þjóðarinnar. Að minnsta
kosti sjást þess lítil merki í blaði
þeirra Tímanum. Pað mun orðið
langt síðan, að sézt hefir Tfmablað, er
ekki hefir innihaldið meiri eða minni
skæting og skammaryrði um Sjálf-
stæðisflokkinn, ráðherra hans eða
blöð hans. Svo langt hefir illdeilu-
hneigð blaðsins gengið, að það
hefir veitzt að Sjálfstæðisblöðunum
með skætingi fyrir ummæli, er
staðið höfðu í Pjóðviljanum, snert-
andi mál, er aldrei hafði verið
minnst á með einu orði í Sjálf-
stæðisblöðunum, Pannig hefir
Tíminn reynt að finna sér eitthvað
til, svo að hann geti haldið áfram
að troða illsakir við gamla and-
stæðinga.
En blaðið hafði Iftinn sórna af
frumhlaupinu. Pvf tókst ekki að
koma illindum af stað í það skipt-
ið. Svo reyna varð á nýjan leik.
1. október birtir það forystugrein
undir yfirskriftinni S/'álfstæðisflokk-
urintt og ->svarti dauðinn«. Er því
haldið fram í grein þessari, að
Sjálfstæðisflokkurinn og blöð hans
hafi haft forustu um afnám bann-
Iaganna og á því að hleypa áfeng-
isflóðinu inn í landið, og hafi
Framsóknarflokkurinn »ekkert ann-
að« gert »í áfengismálunum en að
framfylgja sigri Sjálfstæðisflokksins
í atkvæðagreiðslunni um bannlög-
in«. Enn segir þar, að annar full-
trúi Sjálfstæðisflokksins í þjóð-
stjórninni hafi »tekið við áfengis
sölunni* og »tekist að gera hana
meiri fcþúfu en dæmi eru til áð-
ur«. Loks segir í greininni. að
undanfarið hafi nokkuð verið rætt
um skömmtun áfengis en »á engan
hátt hafi þær tillögur komið frá
Sjálfstæðisflokknum«.
Petta eru aðeins nokkur sýnis-
horn úr einni af mörgum greinum
í svipuðum tón, sem blað forsáfftis-
ráðherrans leggur fram sem sinn
skerf til hins friðsamlega samstarfs
þeirra flokka og blaða, er standa
að baki þjóðstjórninni, Með kaldri
ró heldur greinarhöf, því fram, að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi heimtað
bannlögin afnumin og Framsókn-
arflokkurinn aðeins framfylgt sigri
hans í atkvæðagreiðslunni, enda
þólt öllum landslýð sé ljóst, að
bannmálið hefir aldrei verið flokks-
mál, heldur átt sína fylgismenn og
andstæðinga í líkum hlutföllum
iman allra flokka. Ummæli h*öf.
um að núv. fjármálaráðherra hafi
»tekist að gera áfengisútsöluna að
meiri féþúfu en áður«, verða varla
skilin á annan veg en þann, að
ráðherrann hafi stuðlað að aukn-
um drykkjuskap í landinu. Ekkert
liggur fyrir um aukinn drykkjuskap,
en áfengið hefir smátt og smátt
verið hækkað í verði og tnun þar
mega finna orsök vaxandi tekna hjá
áfengisverzluninni.
Pegar greinarhöf. segir, að engar
tillögur um skömmtun áfengis hafi
komið frá Sjálfstæðisflokknum, slær
hann fram haldlítilli blekkingu. Að
vísu hefir enginn »flokkur* geit
tillögur um skömmtun, en efni
þeirrar skömmtunarreglugerðar, sem
nú er í gildi, er sótt í frumvarp
um breytingu á áfengislöggjöfinni,
er Pétur Oitesen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins flutti á Alþingi fyrir
tveim árum, en aldrei komst fram.
Qg það er eiumitt þessi þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sem á fyrstu
tillöguna um skömmtun áfengis,
Ef Framsóknatflokkurinn hefði vilj-
að slfka skömmtun, mundi frumvarp
P. O. hafa hlotið aðra meðferð en
raun varð á.
Pétur Ottesen mun vera einn
hinn eldheitasti bindindis- og bann-
maður, sem sæti á á Alþingi, og
er hann jafnframt einn af mætustu
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Hann hefir því flestum mönnum
fremur unnið bindindismálinu gagn
á þingi, en margir fleiri Sjálfstæðis-
menn hafa veitt því lofsverðan
stuðning, enda eru sumir þeirra
meðlimir Good-Templarareglunnar.
Og meðan frú Guðrún Lárusdóttir
iifði og sat á Alþingi sem fulltrúi
Pað hefii alltnikið verið rætt og
ritað um skattfrelsi togaraúlgerðar-
innar og háværar raddir heyrst um,
að nema bæri þá ívilnun úr gildi.
Togaraútgerðin hefði, síðan stríðið
hóíst, rakað saman fé, og það væri
því ekki rétt, að hún slyppi við að
greiða tekjuskatt og útsvör, meðan
launastéttirnar væru að kikna un'd
an opiuberum álögum og dýrtíð.
Þessu hefir enginn mælt á móti, en
á það hefir verið bent, að með nú-
verandi álagningarreglum um skatt-
og útsvarsgreiðslu myndi togaraút-
gerðin veröa því harðar úti, sem
gróöi hennar væri meiri, Pvi eins
og kunnugt er, þá er skatt- og
útsvarsstiginn þannig úr garði gerð-
ur, að þegar tekjurnar hafa náð
vissu marki, hrökkva þær eklri all-
ar til greiðslu skatts og útsvars,
heldur verður þá um fullkomið
eignarr.ám að ræða. Samkvæmt
tekjuskattstiganum ber að greiöa 44
af hundraði af þeim tekjum, sem
hærri eru en 28 þúsund krónur.
Skattinn má svo innheimta með
12 % viðauka. En bæjarfélögin
heimta svo í útsvarsgreiðslu frá
54 — 90% af þessum sömu tekjum.
Par sem útsvarsstiginn er hæstur,
getur bærinn og ríkið til samans
tekið yfir lSOýá' af tekjunum, þegar
þær hafa náð vissu marki, og þarf
engar útskýringar á, hver endemis-
löggjöf það er, sem slíkt leyfir.
Togaraútgerðinni var veitt um-
töluð ívilnun á mestu þrengingatím-
um hennar, ef það mætti verða
henni til viðreisnar. Á yfirstand
andi ári heíir hún grætt mikið, og
er þvl ekki nema sanngjarnt, að
hún taki á sig eitthvaö af þeim
byrðum, sem skattalöggjöfin leggur
öðruin atvitinuvegum og öllum ein-
staklingum á herðar. En aö afnema
undanþáguna, án þess að á undan
fari endurskoðun skattalöggjafarinnar
Sjálfstæðisflokksins, barðist hún ó-
trauð fyrir stofnun drykkjumanna-
hælis. Sannleikutinn er sá, að
innan Sjálfstæðisflokksins hefir ver-
ið að finna þá þingfulltrúa, er bezt
unnu í þágu bindindismála í land-
inu. Áður en Framsóknarþing-
mennirnir hafa tekið að sér forustu
í þeim málum innan Alþingis, er
of snemmt fyrir Tímapilta að hefja
grjótkast í Sjálfstæðisflokkinn vegna
áfengismálanna. Langi þá tii að
sýna betur vilja sinti til hins »frið-
samlega samstarfs*, verða þeir að
»fitja upp á prjónunum* á nýjan
leik, — bera annars staðar niður.
og breyting á skatt- og útsvars-
stigum, gæti orðið rothögg á tog-
araútgerðiua, Skattalöggjöf, • sem
leyfir, að eltki aðeins allar tekjur
einstaklingsins séu hirtar aí því op-
inbera, heldur og gengið á eignir
hans, ef tekjur hans fara fram úr
vissu marki, mun hvergi þekkjast
né þolast nema á íslar.di, Pjóð vor
má ekki við því að búa við skatta-
löggjöf, sem í íramkvæmdinni verk-
ar sem refsivöndur á allt fiamtak
og athafnnlíf í landinu.
Bjarni Benediktsson
prófessor hefir veiið settur borgar-
stjóri í Reykjavfk fyrst um sinn,
vegna veikindaforfalla Péturs Hall-
dórssonai borgarstjóra. Er ráðstöf-
un þessi gjörð eftir tillögu hans.
Gunnar Thoroddsen lögfr. mun
taka að sér kennslu í lagadeild
Háskólans i stað Bjarna.
Stjórn hrezka setullðsins
hér á Akureyri hefur sett strangari
reglur um útivist hermanna á kvöld-
in, en áður voru í gildi, Er óbreytt-
um hermönnum gert að skyldu að
halda sig inni eftir kl. 9 á kvöldin.
Mun árásin á konurnar um daginn
hafi orðið þess valdandi, að hert
var á aganum.
Hjúskapur. Ungfrú Maria Ind-
riðadóttir og Sigurður Róbertsson
rithöfundur.
Frá Amtsbókasafninu: V&gna
breytinga á hitunartækjum safns-
ins, verður það lokað fyrst um
sinn.
Skattalöggjöf i n n i
verður að breyta.