Íslendingur

Eksemplar

Íslendingur - 11.10.1940, Side 2

Íslendingur - 11.10.1940, Side 2
2 ISLENDINGUR Luxusútgáfa. Nýlega heíir stofnað verið 1 Reykjavík útgáfufélag, er nefnir sig »Landnámat. Hefir þaö sent frá sér ávarp mikið í blöðunum um fyrirhugaða starfserai sína. Hefst hún á útgáfu á verkum Gunnars Gunnarssonar, Segir í ávarpinu, að þetta verði »glæsilegasta útgáfa á íslandi, einungis fyrir félaga í Landnámu og alis ekki seld öðrum«, og að bækurnar verða »bundnar í vandað skinnband, tölusettar og á- ritaðar af höfundis. Félagar eiga að geta fengið tvö til þrjú bindi af útgáfunni árlega með því að greiða 42 krónur á ári (þ. e. bindið kostar 14 — 21 krónu). Það er ánægalegt til þess að vita, að ráðist skuli i heildarútgáfu á ritum Gunnars Gunnarssonar. En það er um leið raunalegt til þess að vita, að þetta skuli eiga að vera »lúxusútgáfa«, svo dýr, að alþýðu manna sé gert ókleift að eignast hana. En íátækum mönnum mun- ar um minni árgjöld til eins bóka- útgáíufélags en 42 krónur, sem þeir svo kannske fá ekki nema tvær bækur fyrir. Gunnar Gunnarsson er skáld allra íslendinga en ekki nokkurra út- valdra, sem kringumstæður hafa til að kaupa verk hans dýru verði. Þess vegna átti að gefa út alþýðu- útgáfu á verkum hans, að vísu sæmilega vandaða, en svo ódýra, að almenningur heíði getað keypt. En íyrir slíkri útgáfu getur »lúxus«- útgáfan taíið um mörg ár. Bðkavinur. Skipulag og dýrtíð. Undanfarin 10 ár heíur verið ötullega unnið að því að skipuleggja allt sem skipulagt varð hér á landi. Er þessi skipulagningaralda upp- haflega til orðin hjá sósíalistum, en hefir nú fyrir löngu gagntekið hugi flestra Framsóknarmanna, enda hafa Alþýðu- og Framsóknarílokkurinn »þakkað« sér flest skipulagningar- afrekin. Svo að segja öll verzlun í landinu er nú skipulögð. Innflutningur og útílutningur er skipulagður, síld- arsala, kjötsala, mjólkursala, o, s. frv. allt er þetta skipulagt. Þegar framleiöandinn vill selja einhverja framleiðsluvöru, þarl hann fyrst að gæta þess vandlega, hvort honum sé heimilt að selja hana án þess að það brjóti í bága við ein- hverja nýja löggjöf. ÍM þær eru orðnar svo margar reglugerðirnar, sem segja við framleiðandann: »Enginn má« og »óheimilt er«, að hann má teljast ófrjáls um ráð- stöfun flestra framleiðsluvara. Gæti hann ekki fyllstu varúðar um allt, er viðkemur sölu afurðanna, kynni sér ítarlega, hvað hann má og hvað ekki, — getur hann búist við háum íésektum. Um verðlag á vöru sinni á inn- lendum markaði ræður framleiðand- inn litlu eða engu. Það eru nefnd- ir í höfuðstaðnum eða öðrum kaup- stöðum sem ákveða það. All-mikill hluti hins ákveðna verðs, stundum allt að helmingur. aða jafnvel meira fer til skipulagsins, en afganginn fær framleiðandinn sjálfur að lokum. Nefndirnar, sem með verzlunar- fjötrana hafa að sýsla, eru margar og dýrar. Vér getum nefnt Gjald- eyris- og innflutningsnefnd, útflutn- ingsnefnd, síldarútvegsnefnd, fiski- málanefnd, verðlagsnefnd. kjötverð- lagsnefnd og mjólkursölunefnd, Fiskimálanefnd ræður fiskverði innanlands, kjötverðlagsnefnd kjöt- verði og mjólkursölunefndir verðlagi á mjólk og mjólkurafurðum. Það sýnist nú næsta óþarft að hafa slíkan nefndafjölda til þess að ákveða verð á einum premur tegundum innlendrar framleiðsluvöru. því það er augljóst mál, að hinar launuðu nefndir eru aðeins ómagar á fram- leiöslunni og því fleiri sem þær eru, 'því dýrari verður framleiðsluraran fyrir neytendur, og því minna fær framleiðandinn í sinn hlut af sölu- verði hennar, Þá er ekki auðið að sjá, að. verð- lagsnefndin sé til nokkurs gagns, Fyrir skömmu lækkuðu ýmsar er- lendar vörur í verði, t. d. kornvör- ur og sykur, án þess aö sú nefnd kæmi þar nokkursstaðar nærri. Hinar mörgu og óþörfu en dýru nefndir, er skipulagningarkapphlaup- ið á alla sök á, gerir ekkert annað en auka á dýrtíðina og gera öll við- skipti innanlar.ds ógreiðari og fyrir- hafnarmeiri. Það er s;imeiginlegt hagsmunamál framleiðenda og neyt- enda, að þessum nefndum sé fækkað, og ætti Alþingi að haga gjörðum sínum samkvæmt því. Porri. Höföingslund. Á sextugsafmæli Bjarna Jónssonar framkvæmdastjóra Nýja Bíó f Reykja- vík 3. okt. s. 1. gáfu þau hjón, hann og frú Sesselja Guðmunds- dóttir kona hans, Vísindafélagi íslendinga 10 þúsund krónur, til þess að eíla rannsóknir á lækninga- mætti íslenzkra heilsulinda. Er gjöf þessi gefin til minningar um tvær dætur, er þau hjónin hafa misst. Fræðsluvikunni lauk s. 1. sunnudag með erindi Sig. Nordal um íslenzka gáfumenn. Var erindið vel sótt. Á eftir var kaffi drykkja uppi í bæjarstjórnarsal fyrir þá sem vildu, Tóku nokkrir til máls yfir borðum og lýstu ánægju sinni yfir fræðsluvikunni og hinni fyrirhuguðu námsflokkastarfsemi. Fyrirlestratél. Akureyrar var stofnað s. 1. sunnudagskvöld með um ,40 meðlimum. í stjórn vorukosnir: Snorri Sigfússon skóla- stj. formaður, Jónas Þór forstj og f*orst. M. Jónsson skólastjóri. SfÖÍUg'Ur veröur í dag Kristján Helgason aígreiðslumaður hjá KEA Tengdapabbi var sýndur í fyrsta sinn í gærkvöldi. Nánari frásögn í næsta blaði. Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að húsfrú Anna MagnúsdótUr á Þverá í Öngulsstaðahreppi andaðist 4. október síðastl. Jarðarförin er ákveðin fimmtudaginn 17. okt. næstk. og hefst kl. 11 f. h. með húskveðju að heimili hinnar látnu. Aðsiandendur. Vandamönnum og vinum tilkynnist að móðir okkar, Sigurbjörg Davíðsdéttir, andaðist að heimili sínu, Víðigerði í Eyjafirði, mánudaginn 7. þ. m. —Jarðarförin er ákveðin að Munkaþverá 15 þ. m. og hefst kl. 13. Víðigerði 9/io 1940. Litlahóli 9/io 1940. Laufey Jóhannesdóttir. Vilhjálmur Jóhannesson Lá við slysi. 1, þ. m. vildi sá atburður til suð- ur í Hvalfirði, að sprengikúla kom niður á tún á bóndabæ einum (Þaravöllum) og myndaði 6 metra langan og 2 metra breiðan gíg í túnið. Eitt sprengjubrotið flaug skammt yfir höfði tveggja unglinga, er voru að taka kartöflur upp úr garði þar skammt frá, en kúlan korn niður skammt frá bæjarhúsunum, þar sem annað heimafólk var inni statt. Kúlan hafði hlaupið úr fallbyssu hjá brezka setuliðinu á Kjalarnesi, og hafði s'cotið riðið af vegna gá- leysis. Hreppstjórinn, Pétur Ottesen alþm. tók skýrslu um málið og 3endi ríkisstjórninni ásamt skaða- bótakröfu vegna skemmda í túninu á Þaravöllum og ákveðinnar kröfu um, að slíkir atburðir sem þessir vrru algerlega fyrirbyggðir. Róbert Abraham píanoleikari er alfarinn til Reykjavíkur, þar sem hann tekst á hendur söngkennslu við Verzlunarskólann. Hefir hann beðiö blaðið að skila kveðju til þeirra vina og kunningja, er hann ekki náði til að kveðja, áður en hann fór. Úrvalslið Akureyrar keppir við úrvalslið Breta á sunnudaginn kemur kl. 2,30. • Knattspyrnuunnendur fá áreiöan- lega að sjá beztu knattspyrnumenn- bæjarins taka á því sem til er á sunnud, kemur. Bretar unnu hrað- keppnina á sunnud, var, en á sunnud. kemur eigast úrvalslið beggja við fullan leiktíma. Sveit Breta er nokk- uð breytt. Skipt er um v. bakvörð og alla framlínuna Nöfn leikmanna geta menn séð á götuauglýsingunum. Úrvalslið Ak. hefur verið stundvíst og samtaka og komið vel fram og yíirleitt gefur þaö beztu \onir um verulega sterka knattspyrnusveit á Akureyri. Og taki þaö leiknina og samleikinn 1 þjónustu sína nú, ekki síður en undanfarið, fáum við áreið- anlega skemmtilegan leik á sunnud. kemur. Dómari verður Pte. Price, biðjið kaupmann yðar um eina ciós Hjónaband: Ungírú Úórlaug Vestmann og Magnús Magnússon trésmiður. Húsmæðnr: Notið Venus gdlfgljáa Sannnfærist um gæðin

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.