Íslendingur - 11.10.1940, Qupperneq 2
2
ISLENDINGUR
Luxusútgáfa.
Nýlega heíir stofnað verið 1
Reykjavík útgáfufélag, er nefnir sig
»Landnámat. Hefir þaö sent frá
sér ávarp mikið í blöðunum um
fyrirhugaða starfserai sína. Hefst
hún á útgáfu á verkum Gunnars
Gunnarssonar, Segir í ávarpinu,
að þetta verði »glæsilegasta útgáfa
á íslandi, einungis fyrir félaga í
Landnámu og alis ekki seld öðrum«,
og að bækurnar verða »bundnar í
vandað skinnband, tölusettar og á-
ritaðar af höfundis.
Félagar eiga að geta fengið tvö
til þrjú bindi af útgáfunni árlega
með því að greiða 42 krónur á ári
(þ. e. bindið kostar 14 — 21 krónu).
Það er ánægalegt til þess að
vita, að ráðist skuli i heildarútgáfu
á ritum Gunnars Gunnarssonar. En
það er um leið raunalegt til þess
að vita, að þetta skuli eiga að vera
»lúxusútgáfa«, svo dýr, að alþýðu
manna sé gert ókleift að eignast
hana. En íátækum mönnum mun-
ar um minni árgjöld til eins bóka-
útgáíufélags en 42 krónur, sem þeir
svo kannske fá ekki nema tvær
bækur fyrir.
Gunnar Gunnarsson er skáld allra
íslendinga en ekki nokkurra út-
valdra, sem kringumstæður hafa til
að kaupa verk hans dýru verði.
Þess vegna átti að gefa út alþýðu-
útgáfu á verkum hans, að vísu
sæmilega vandaða, en svo ódýra,
að almenningur heíði getað keypt.
En íyrir slíkri útgáfu getur »lúxus«-
útgáfan taíið um mörg ár.
Bðkavinur.
Skipulag og dýrtíð.
Undanfarin 10 ár heíur verið
ötullega unnið að því að skipuleggja
allt sem skipulagt varð hér á landi.
Er þessi skipulagningaralda upp-
haflega til orðin hjá sósíalistum, en
hefir nú fyrir löngu gagntekið hugi
flestra Framsóknarmanna, enda hafa
Alþýðu- og Framsóknarílokkurinn
»þakkað« sér flest skipulagningar-
afrekin.
Svo að segja öll verzlun í landinu
er nú skipulögð. Innflutningur
og útílutningur er skipulagður, síld-
arsala, kjötsala, mjólkursala, o, s. frv.
allt er þetta skipulagt.
Þegar framleiöandinn vill selja
einhverja framleiðsluvöru, þarl hann
fyrst að gæta þess vandlega, hvort
honum sé heimilt að selja hana án
þess að það brjóti í bága við ein-
hverja nýja löggjöf. ÍM þær eru
orðnar svo margar reglugerðirnar,
sem segja við framleiðandann:
»Enginn má« og »óheimilt er«, að
hann má teljast ófrjáls um ráð-
stöfun flestra framleiðsluvara. Gæti
hann ekki fyllstu varúðar um allt,
er viðkemur sölu afurðanna, kynni
sér ítarlega, hvað hann má og hvað
ekki, — getur hann búist við háum
íésektum.
Um verðlag á vöru sinni á inn-
lendum markaði ræður framleiðand-
inn litlu eða engu. Það eru nefnd-
ir í höfuðstaðnum eða öðrum kaup-
stöðum sem ákveða það. All-mikill
hluti hins ákveðna verðs, stundum
allt að helmingur. aða jafnvel meira
fer til skipulagsins, en afganginn
fær framleiðandinn sjálfur að lokum.
Nefndirnar, sem með verzlunar-
fjötrana hafa að sýsla, eru margar
og dýrar. Vér getum nefnt Gjald-
eyris- og innflutningsnefnd, útflutn-
ingsnefnd, síldarútvegsnefnd, fiski-
málanefnd, verðlagsnefnd. kjötverð-
lagsnefnd og mjólkursölunefnd,
Fiskimálanefnd ræður fiskverði
innanlands, kjötverðlagsnefnd kjöt-
verði og mjólkursölunefndir verðlagi
á mjólk og mjólkurafurðum. Það
sýnist nú næsta óþarft að hafa
slíkan nefndafjölda til þess að ákveða
verð á einum premur tegundum
innlendrar framleiðsluvöru. því það
er augljóst mál, að hinar launuðu
nefndir eru aðeins ómagar á fram-
leiöslunni og því fleiri sem þær eru,
'því dýrari verður framleiðsluraran
fyrir neytendur, og því minna fær
framleiðandinn í sinn hlut af sölu-
verði hennar,
Þá er ekki auðið að sjá, að. verð-
lagsnefndin sé til nokkurs gagns,
Fyrir skömmu lækkuðu ýmsar er-
lendar vörur í verði, t. d. kornvör-
ur og sykur, án þess aö sú nefnd
kæmi þar nokkursstaðar nærri.
Hinar mörgu og óþörfu en dýru
nefndir, er skipulagningarkapphlaup-
ið á alla sök á, gerir ekkert annað en
auka á dýrtíðina og gera öll við-
skipti innanlar.ds ógreiðari og fyrir-
hafnarmeiri. Það er s;imeiginlegt
hagsmunamál framleiðenda og neyt-
enda, að þessum nefndum sé fækkað,
og ætti Alþingi að haga gjörðum
sínum samkvæmt því.
Porri.
Höföingslund.
Á sextugsafmæli Bjarna Jónssonar
framkvæmdastjóra Nýja Bíó f Reykja-
vík 3. okt. s. 1. gáfu þau hjón,
hann og frú Sesselja Guðmunds-
dóttir kona hans, Vísindafélagi
íslendinga 10 þúsund krónur, til
þess að eíla rannsóknir á lækninga-
mætti íslenzkra heilsulinda. Er gjöf
þessi gefin til minningar um tvær
dætur, er þau hjónin hafa misst.
Fræðsluvikunni
lauk s. 1. sunnudag með erindi Sig.
Nordal um íslenzka gáfumenn. Var
erindið vel sótt. Á eftir var kaffi
drykkja uppi í bæjarstjórnarsal fyrir
þá sem vildu, Tóku nokkrir til
máls yfir borðum og lýstu ánægju
sinni yfir fræðsluvikunni og hinni
fyrirhuguðu námsflokkastarfsemi.
Fyrirlestratél. Akureyrar
var stofnað s. 1. sunnudagskvöld
með um ,40 meðlimum. í stjórn
vorukosnir: Snorri Sigfússon skóla-
stj. formaður, Jónas Þór forstj og
f*orst. M. Jónsson skólastjóri.
SfÖÍUg'Ur veröur í dag Kristján
Helgason aígreiðslumaður hjá KEA
Tengdapabbi var sýndur í
fyrsta sinn í gærkvöldi. Nánari
frásögn í næsta blaði.
Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að húsfrú
Anna MagnúsdótUr
á Þverá í Öngulsstaðahreppi andaðist 4. október síðastl.
Jarðarförin er ákveðin fimmtudaginn 17. okt. næstk.
og hefst kl. 11 f. h. með húskveðju að heimili hinnar látnu.
Aðsiandendur.
Vandamönnum og vinum tilkynnist að móðir okkar,
Sigurbjörg Davíðsdéttir,
andaðist að heimili sínu, Víðigerði í Eyjafirði, mánudaginn
7. þ. m. —Jarðarförin er ákveðin að Munkaþverá 15 þ.
m. og hefst kl. 13.
Víðigerði 9/io 1940. Litlahóli 9/io 1940.
Laufey Jóhannesdóttir. Vilhjálmur Jóhannesson
Lá við slysi.
1, þ. m. vildi sá atburður til suð-
ur í Hvalfirði, að sprengikúla kom
niður á tún á bóndabæ einum
(Þaravöllum) og myndaði 6 metra
langan og 2 metra breiðan gíg í
túnið. Eitt sprengjubrotið flaug
skammt yfir höfði tveggja unglinga,
er voru að taka kartöflur upp úr
garði þar skammt frá, en kúlan korn
niður skammt frá bæjarhúsunum,
þar sem annað heimafólk var inni
statt.
Kúlan hafði hlaupið úr fallbyssu
hjá brezka setuliðinu á Kjalarnesi,
og hafði s'cotið riðið af vegna gá-
leysis. Hreppstjórinn, Pétur Ottesen
alþm. tók skýrslu um málið og
3endi ríkisstjórninni ásamt skaða-
bótakröfu vegna skemmda í túninu
á Þaravöllum og ákveðinnar kröfu
um, að slíkir atburðir sem þessir
vrru algerlega fyrirbyggðir.
Róbert Abraham píanoleikari
er alfarinn til Reykjavíkur, þar sem
hann tekst á hendur söngkennslu við
Verzlunarskólann. Hefir hann beðiö
blaðið að skila kveðju til þeirra
vina og kunningja, er hann ekki
náði til að kveðja, áður en hann
fór.
Úrvalslið Akureyrar
keppir við úrvalslið
Breta á sunnudaginn
kemur kl. 2,30.
•
Knattspyrnuunnendur fá áreiöan-
lega að sjá beztu knattspyrnumenn-
bæjarins taka á því sem til er á
sunnud, kemur. Bretar unnu hrað-
keppnina á sunnud, var, en á sunnud.
kemur eigast úrvalslið beggja við
fullan leiktíma. Sveit Breta er nokk-
uð breytt. Skipt er um v. bakvörð
og alla framlínuna Nöfn leikmanna
geta menn séð á götuauglýsingunum.
Úrvalslið Ak. hefur verið stundvíst
og samtaka og komið vel fram og
yíirleitt gefur þaö beztu \onir um
verulega sterka knattspyrnusveit á
Akureyri. Og taki þaö leiknina og
samleikinn 1 þjónustu sína nú, ekki
síður en undanfarið, fáum við áreið-
anlega skemmtilegan leik á sunnud.
kemur. Dómari verður Pte. Price,
biðjið kaupmann
yðar um eina ciós
Hjónaband: Ungírú Úórlaug
Vestmann og Magnús Magnússon
trésmiður.
Húsmæðnr:
Notið Venus gdlfgljáa
Sannnfærist um gæðin