Íslendingur - 11.10.1940, Page 3
ISLENDÍNGUR
3
MannfjOldi á íslandi.
í Nýútkomnum Hagtíðindum er
yíirlit um mannfjöldann á íslandi
við s. 1, áramót og til samanburð-
ar teknar samsvarandi tölur frá
árslokum 1938. Alls voru lands-
menn 120264 við síðustu áramót
og hafði fjölgað á árinu 1939 um
1376. í kaupstöðunum voru 58159i
en í sýslufélögum 62105. í Reykja'
vík var mannfjöldinn 38219, á Akur-
eyri 5103, Hafnarfirði 3615, Vest-
mannaeyjum 3442, Siglufirði 2975,
ísafiröi 2788, Neskaupstað 1100 og
Seyðisfirði 917. í Vestmannaeyjum,
Hafnarfirði, Neskaupstað, og Seyðis-
firði hafði íbúum fækkað, en fjölgað
nokkuð í öllum öðrum kaupstöðum,
og þó langmest í Reykjavik. Af
sýslufélögum var Þingeyjarsýsla
mannfiest, með 5933 íbúa, þá Ej'ja-
fjarðarsýsla með 5350 en þriðja í
röðinni var Gullbringu og Kjósar-
sýsla með 5141 íbúa. Þrjú kaup-
tún höfðu yfir 1000 íbúa: Akranes
1805, Keflavík 1271 og Húsavík
1004. Alls eru 14221 íbúar búsettir
í 23 verzlunarstöðum, er hafa yfir
300 íbúa hver.
Konur voru fleiri en karlar, eða
1022 á móti hverju þúsundi karla.
Dátiardægur, 4. þ. m. íézt að
heimili sínu Þverá í Eyjafirði ekkj-
an Anna Magnúsdóttir, eftir stutta
legu.
Sama dag Jézt hér á sjúkrahús-
inu Benjamín Stefánsson fyrrum
bóndi að Hrísum í Eyjafirði.
Pá eru og nýlátnar Hólmfríður
Jónsdóttir frá Melgerði móðir Ólafs
bónda Tóhannessonar í Melgerði og
þeirra systkina, og Sigurbjörg
Davíðsdóttir í Viðigerði, móðir Lauf-
eyjar húsfreyju Jóhannesdóttir í Viði-
gerði og þeirra systkina.
Ennfremur eru nýlega látnir Helgi
Jðnsson múrari hér í bæ og Jón
Þórðarson fyrrum bóndi á Þórodds-
stöðum í Ólafsfiröi, faöir Sveinbjarn-
ar byggingameistara og þeirra
bræðra. Allt þetta fólk var komið
á gamalsaldur.
Orösetiding irá Barnablað
inu »Voriði; Börn á Akureyri,
sem kaupa barnablaðið »Vorið« eru
beðin að gjöra svo vel og vitja 3.
heftis blaðsins í Skjaldborg (stúku-
stofunni niöri) á sunnudaginn kl. 2 — 3
e. h. Æskilegt væri að þeir, sem
eiga eftir að greiða blaðið, geri þaö
um leið,
Stárfið er margt,r
!en velliðanj.
'afköst og
vinniiþol er
háð því að
fatnaðurinn
se
hagkvœmur
og
j traustur
vifc
VHHWJJffATrACilCffi ÓSflANDS'Vr Rv,l|avif
EUui. susrito oa luilkomnatta vorktmiftja ilnnar gr^inor ó Llonói
Eftirfarandi tilkynning
inun verða send lil allra leigusala.
Allir þeir, sem hafa leigt brezka herliðinu laud eða húsakynni, þurfa
að senda skriflega kröfu á Ieigunni í lok hvers mánaðar.
Ákveðið hefur verið að borga allar leigur mánaðarlega fyrirfram svo
reikninga fyrir leigu í september og októbermánuði ber að senda nú strax
Allar slíkar leigukröfur ber að senda til
The Officer i/c Hirings and Claims,
Ráðhúslorg 7, Akureyri
Utan nr heimi. Vetrarstúlku
Prí ve/dasáttmála
hafa stórveldin Þýzkaland, Ítalía og
Japan gert með sér fyrir nokkru.
Er þetta stjórnmála-, hernaðarmála-
og viðskiptamálasáttmáli, Er svo
ákveðið í samningnuro, að þjóðir
þeisar skuli veita hver annari að-
stoð, ef aörar þjóðir geri tilraunir
ti) að trufla frið og reglu á viður-
kenndum forustusvæðum þessara
ríkja. Er sáttmáli þessi álitinn stíl-
aður gegn Bandaríkjunum og eigi
hann að hræða þau frá þvi að veita
Bretum hjálp í styrjöldinni.
Gyðingalög í Noregi?
Pær fregnir hafa heyrst frá Berlín,
að Gyðingalög muni veröa sett í
Noregi innan skamms. Heiir Quis-
ling krafist þess, að Gyöingum í
Noregi verði bannað að vinna í
þjónustu ríkisins eöa stunda lækn-
isstörf.
Chrístmas Moller
verzlunarmálaráðherra Dana hefir
sagt af sér vegna þess, að Þjóð-
verjar vilja fá rétt til að gera
verzlunarsamninga fyrir Dani. Var
afsögn bans tekin til greina, og
Halfdan Henriksen tekinn í embætt-
ið í hans stað.
Rjúpur tríðaðar.
Rjúpur hafa veriö alfriöaðar þetta
ár. Er það vel farið, því undanfar-
in ár hefir verið óvenju lítið af
þeim.
Sundmeistaramót Islanðs
fer fram í Sundhöllinni í Reykjavík
þessa viku Fyrsta kvöld mótsins
setti Þorbjörg Guðjónsdóttir úr Ægi
met í 200 m. bringusundi fyrir
konur á 3. mín. 26,4 sek, í fyrra-
kvöld setti sama sundmær met í
100 metra bringusundi fyrir konur
á 1. mín 33,8 sek. Annar kepp-
andi á þeirri vegalengd var Steinunu
Jóhannesdóttir úr íþróttafél. Pór hér
í bæ. Synti hún vegalengdina á
1 mín. 35,3 sek. Eldra metið átti
hún, en það var 1 mín, 37,5 sek.
Kveniél. Framtiðin hefnr beð-
ið blaðið að flyija bæjarbúum beztu
þakkir fyrir hina góöu hjálp við
sjúkrahúshlutaveltuna.
Ungmennst. Akurliljan nr. 2
heldur fund í Skjaldborg sunnud.
13. okt. kl. 2>Vz e. h. Félagar! Mæt-
ið á ný til starfa.
vantar á gott sveitaheimili
hér í sýslunni. Má ef vill
hafa með sér barn, 4—9 ára.
Gott kaup. Upplýsingar gefur
Elías Tómasson
frá Hrauni. Sími 99 eða 167.
Stúlka
óskast nú þegar.
Stefán Árnason
Þingvallstræti 16. —
Stúlku
vantar mig nú þegar.
Á S T A J Ú L .
Nokkra enskunemendur
get eg tekið.
Stefán Bjarman,
Eiðsvallagötu 1.
Tvö silijaÉ herberoi
með forstoíuinngangi til
leigu í Brekkugötu 37.
í góðu lagi til sölu nú
þegar. — Upplýs. gefur
Pór O. Björnsson,
Akureyri.
Herbergi
með ljósi og hita til leigu
fyrir einhleypan, — Upplýs-
ingar síma 38.
íbúð
2—3 herbergi og eldhús
óskast nú þegar. R. v. á.
HJÁI.PRÆÐISHERINN. Á sunnu-
dag kl. 11. Ilelgunarsamkoma. Kl.
6 e. h. opinber samkoma og kl 8,30
e. h. Á þriðjudag kl. 7,30 opinber
samkoma.
Atlir velkomnir.
\v.lA hióHHBHHI
Föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. Q:
Hnefa-
leikarinn
Tal- og hljómmynd í 10 þátt-
um. — Aðalhlutverkið leikur:
Kvennagullið Robert
Taylor og Maureen
O’ Sullivan
Myndin fjallar um líf amerískra
atvinnubnefaleikara og segir frá
yfmsu misjöfnu um þá. Hnefa-
leikarinn er afar skemmtileg
mynd og eru hneíaleikarnir,
sem sýndir eru í henni mjög
spennandi og gefa glögga og
sanna mynd af hinum frægu
amerísku hnefaleikamótum.
Laugardagskvöld kl. 9
Amerísk stórmynd af hinni víð-
lesnu skáldsögu eftir P. C.
WREN. Aðalhlutverkin leika:
GARV COOPER, RAY
MILLAND og ROBERT
PRESTON.
Börn fá ekki aðgang. —
Sunnudaginn kl. 5 l
Flóttinn frá
Spáni.
I.O.O.F. = 12210119 = O.
KIRKJAN: Messað á Akureyri
næstk. sunnudag kl; 2 e. h.
Safnaðarfundur.
KENNSLA.
Vön kennslukona getur
tekið nokkur smábörn
til kennslu í Lækjar-
götu 18. —
Blikkfötur
og balar.
Vörahús Akureyrar
Barnavagn
(útlendur) í góðu standi, til
sölu. Upplýsingar Eyrar-
landsveg 19, uppi.