Íslendingur - 25.10.1940, Side 3
ISLENDÍNGUR
3
Þankabrot
/óns í Grófinni.
•
FYRIR skömmu skýrðu sunnan-
blöðin frá því, að brezkur her-
maður heföi beitt kvenmann ofbeldi
í Reykjavik og dregið hann með
sér afvega, áður en hjálp kom. Við
rannsókn málsins kom í ljós, að
kvenmaður þessi hafði >verið með*
honum og fleiri brezkum hermönn-
um áöur, en í þetta skipti hafði
risið ágreiningur milli þeirra um
þaö, hversu langt þau skyldu fara
frá alfaraleiö til að njótast
Þetta dæmi sýnir glöggt, hversu
alvarlegt það er, að lauslætiskonur
skuli látnar sjálfráðar feröa sinna á
götum úti að næturlagi á slíkum
tfmum, 3em nú standa yfir, og hve
nauðsynlegt er, til að draga úr
margvíslegum óþægindumog árekstr-
um vegna framkomu þeirra við her-
mennina, að »taka þær úr umferð*,
eða gera þær þekkjanlegar frá
öörum konum. Það er heimskulegt
að halda, að meiri hætta sé á
árekstrum, þó að rosknir og ráð-
settir borgarar gangi heim til sfn
úr kvötdboði undir áhrifum víns, en
ef léttúöardrósir fá að leika lausum
hala um nætur. Ef nauðsynlegt
þykir, að taka alla karlmenn »úr
umferð* sem sjást á götum úti
»undir áhrifum*, hversu kurteisir
og prúöir sem þeir eru, hversu
nauösynlegt er þá ekki aö taka
skækjurnar »úr umferð* til að íyrir-
byggJa árekstra af þeirra völdum?
Og þó ekki sé til heimild í lögum
fyrir slíkum aðgeröum, nægir þá
ekki dagskipun þar, eins og um
ölvuðu mennina?
SEM betur fer, mun það ekki vera
nema mjög lítill hluti íslenzkrar
kvenþjóðar, sem þörf væri á að »taka
úr umferð*, vegna dvalar brezka
setuliösins í landinu, En eigi að
síður er leitt að sjá, hversu gjarnt
hálfvöxnum unglingsstúlkum er að
umgangast hermennina eins og
kunningja og samborgara, Aðstand-
endum þessara ungtinga ætti að vera
í lófa lagiö aö sýna þeim fram á það,
að í heimalandi þessara manna
þekkist ekki slík framkoma við ó-
kunnuga menn, nema meðal þeirra
kvenna sem ganga kaupum og sölum
Nærföt
karlm. þykk og
hlý, nýkomin
DRAUNS-VERZLIIN
PÁLL SIGURGEIRSSON
á torginu. í okkar litla Jandi, þar
sem svo að segja hver þekkir annan,
hefir slíkt engan misskilning vakið,
en ekki er víst, að allir þeir Bretar,
er nú dvelja hér á landi, haíi áttað
sig á þessu séreinkenni íslendinga.
Ég hef sjálfur horft á 4 unglings-
stúlkur sitja aftan á vörubíl inn
Hafnarstræti, veifa allar í einu og
hrópa til hermanus, er gekk um
stéttina. Þær hafa sjálfsagt gert
þetta »í gamnic sem kallað er, en
væri það ekki Ktið gaman, eí við-
komandi hermaður færi heim til
Englands með þann skilning og álit,
að þannig væri íslenzk kvenþjóð í
háttum sínum?
Sá hluti kvenþjóðarinnar, sem á
að vera þessa »lands og lýða ljós
í þúsund ár« verður að syna meiri
þjóðarvitund og sjálfsmetnað en
ungJingarnir, sem elta hermennina,
hrópa til þeirra og veifa til þeirra.
En sá hugsunarháttur er því miður
furðulega útbreiddur, jafnvel meðal
eldri kvenna, að ekkert sé athuga-
vert við þaö, að ung stúlka kynnist
brezkum hermanni vel upp öldum
og menntuðum. En þeim virðist
alveg standa á sama um, hvort
þessir Bretar hafa komið hér í kurt-
eisisheimsókn eða til að hertaka
landið og finna engan greinarmun á
því Og ef eldra fóJkiö á ekki meiri
þjóöarmetnað og sjálfsmetnað, bvern-
ig fer þá um börnin og unglingana?
I. 0. O. F. == 12210259 =
Meðal Akureyrlnga, sem
komu meö Esju frá Petsamo voru
ungfrúrnar: Ólafía Þorvaldsdóttir,
Ingibjörg Pálsdóttir og Hekla Arna-
dóttir.
Ungmennastúkan Akurlilja nr.
2 heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 27. okt. næstk. kl. 8.30 e. h.
Aukalagabreyting. — Kosning
embættismanna. — Nýtt mál við-
víkjandi vetrarstarfseminni, sem
allir félagar verða að kynnast. —
Dans á eftir fyrir fundargesti.
Barnastúkan „Sakleysið“ heldur
fund í Skjaldborg næstk. sunnud.
kl. 1.30. — Kosning embættis-
manna. — Kosning flokksstjóra. —
Félagar, munið að mæta.
TÓM AS STE/NGRIMSSO /V
A K U R E Y R !.
O G
Mslo.
e*. srtjsn
Stniku vantar
nú þegar í
— Hattabúð Akureyrar —
Æskilegt að hún si myndarleg til
handanna.
Kenni sænsku
Lóa Þorvaldar
Rósenborg.
2% hesta bátavél
til sölu. Tækifærisverð R. v. á.
Sanmanám-
skeifl
fyrir konur heldur Heimil-
isiðnaðarfélag Norðurlands
frá 4. —30. nóv. n, k. —
Nánari upplýsingar á Eyrar-
landsvegi 1Q. Sími 224.
Útvarpstíðindi
fást í vetur hjá
tíuðmundi Arnasynt,
Bjarmastfg 11.
Stofa
til leigu. — R. v. á.
ísafoldarfundur í Skjaldborg
miðvikud. 30. þ. m. á venjulegum
tíma. Kosn. embættismanna o. fl.
Nýkomið:
Handklæði
A fþurrk unarkíútar
Kvennærföt
Karlm.nærföt
Barnabuxur
Flauel rnargir litir.
Borðdúkar
o. //.
Víjruhús Akureyrar.
Hafnarstræti 105.
Kaupir og selur
notuð húsgögn, hreinan fatnað, bæk-
ur. Ennfremur flöskur og glös.
Fornsalan
Hef fyrirliggjandi mikið og
gott úrval af leikföngum,
svo sem:
Pappaleikföng m. teg.,
í fallegum umbúðum
Myndabækur m. teg.
Barnaspil
Leirmodelkassa m. st.
Kubbakassa
Eldhúsleikföng
Tðmas Steingrímsson.
Umboðs & heildverzlun, Ak,