Íslendingur

Issue

Íslendingur - 22.11.1940, Page 1

Íslendingur - 22.11.1940, Page 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXVI. árgangur. Akureyri, 22. nóvember 1940 tölubl. Kirkjuvigslan Nýja kirkjan vist 1400 ti I S. 1. sunnudag fór vígsla nýju kirkjunnar fram. Hófst athöfnin kl. 1 síðdegis. Hálfri stundu áður var kirkjan opnuð, og hafði þá safnast svo mikill mannfjöldi að, að kirkjan troðfylltist á nokkrum mínúturn. Peir sem komu 10 mín- útum síðar urðu frá að hverfa. Telja kunnugir, að 1400 — 1500 manns muni hafa verið í kirkju, en varla minna en 600—700 hafi orðið að hverfa heim, án þess að sjá’ eðalheyra nokkuð af því, sem fram fór. Biskupinn ylir íslandi, sr. Sigur- geir Sigurðsson framkvæmdi vígsl- una ásamt vígslubiskupi, sr. Friðrik J. Rafnar og 10 klerkum úr nær- liggjandi prestaköllum. Flutti bisk- upinn vígsluræðuna en vígslubiskup predikun. Kiikjukórinn og Kantötu- kór Akureyrar önnuðust sönginn. Töldu viðstaddir, að athöfnin hefði verið mjög áhrifamikil og hátfð- leg. — Að lokinni vígslu flutti húsa- meistari ríkisins, Ouðjón Samúels- son prófessor, ræðu frá kórdyrum. Hafði hún meðal annars inni að halda lýsingu á kirkjunni, en hana hefir húsameistari teiknað og haft eftirlit með byggingu hennar. Á sunnudagskvöldið hélt sóknar- nefndin veizlu að Hótel Guilfoss fyrir ýmsa gesti, svo sem: Her- mann Jónasson kirkjumálaráðherra, Vilhjálm Pór bankasljóra og frú, Quðjón Samúelsson húsameistara, stjórn Kvenfélags Akureyrarkirkju og fleiri, Voru margar ræður fluttar í samsæti þessu og enn- fremur lesið bréf frá hjónunum Rannveigu og Vilhjálmi Pór. þar sem þau tilkynna, að þau gefi Ak- ureyrarkirkju nýtt orgel (Hamm- onds rafmagnsorgel) í minningu um foreldra sína, og komi það væntaniega í næsta mánuði. Mörg heillaóskaskeyti bárust sóknarnefnd og sóknarpresti þenna dag í tilefni af vfgslunni. Hin nýja Akureyrarkirkja er mjög vegleg bygging og tignarleg, enda mun hún dýr orðin, en margar rausnarlegar gjafir einstakra manna hafa lélt átakið við að koma henni upp. Pað eru nú liðin lúm tvö ár, sfðan byrjað var að grafa fyrir grunni kirkjunnar, en margir hafa lagt hönd að byggingu hennar þessi ár. Guðmundur Ólafsson vígð f viður- 1500 manna. byggingameistari sá um undirstöð- ur og kjallara, en Porsteinn frá Lóni, Ásgeir Austfjörð og Bjarni Rósantsson byggingameistarar hafa séð um byggingu þess, sem eftir var og húðun. Indriði Helgason rafvirkjameistari sá um raflagnir,- Raftækjaverksmiðja Hafnarfjarðar um hitunartæki, Osvald Knudsen málarameistari um málningu, Krist- ján Aðalsteinsson húsgagnasmíða- meistari. um bekki, og Ólafur Ágúslsson húsgagnasmiðameistari um altari og annan útbúnað í kórnum. Þá gerði Ásmundur Sveins- son myndhöggvari nokkrar lág- myndir á framgafl söngloftsins. Kirkjan tekur á sjötla hundrað manna í sæti, en undir kórnum, í kjallara kirkjunnar, er kapella. sem taka mun um 80 manns í sæti. Er í ráði að nota hana við hinar fámennari jarðarfarir, spurn- ingar fermingaibarna og fleira, en enn er ekki lokið frágangi hennar að fullu. í sumar hefir verið unnið að því að steypa tiöppur upp að kirkjunni neðan frá Kaupvangs- torgi, og er því verki vel á veg komið. DanariJiinniiit). Fann 25, sept, síðastl. andaðist á sjúkrahúsi Akureyrar Kristinn Gunn- laugsson Hjalla á Upsaströnd, tæp- lega 54 ára að aldri, Kristinn heitinn var prýðilega vel gefinn maður þd sjálfmenntaður væri, enda bókamaður mikill og fróðleiks- gjarn; var hann því skemmtinn heim að sækja og kunni vel að haga orðum slnum, aö til gleði og ánægju væri. Vakti hann því ætíð velvild og hlýju þeirra, sem samleið áttu með honum. Hann var prúður í framgöngu og stilltur vel og lét lítt á sjá þó raunir steðjuðu aö, var »traustur á velli og traustur í lund«. Það má því hiklaust telja, að þarna sé góður drengur til moldar hniginn og að því er okkur finnst, sem á eftir horfum, fyrir aldur fram, En mæt minning um horfinn, góðan dreng, vekur ætíð hreinan hugblæ með þakklæti fyrir liðnar stundir. Blessuð veri minning hans. Nágranni. Sambandsþing ungra nýjabiói Sjálfstæbismanna var haldið í Reykjavík dagana 9. og 10. þ. m. Sóttu þingið rúmlega 70 íulltrúar úr flestum bæjum og sýslum landsins. Margar ályktanir voru samþykktar á þinginu, m. a. í verklýðsmálum sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum, skattamálum og sjálfstæðismálinu. Forseti samband- sins var kjörinn Gunnar Thoroddsen lögfræðingur, en með honum í stjórn: Tóhann Hafstein erindreki, Sig, Bjarna- son frá Vigur, Leifur Auðunsson Dalsseli Rang. og Magnús Tónsson Mel í Skagafirði, Framkvæmd umferða- laganna frestað Ríkisstjórnin hefir gefið út bráða- birgðalög. þar sem ákveðið er að fresta framkvæmd umferðalaganna og bifreiðalaganna um óákveðinn*. tíma, Á síðasta þingi var samþykkt ný löggjöf um þessi efni, og átti samkv. þeim að taka upp »hægri handar* umferð um n. k. áramót. En vegna hinnar mjög auknu umferðar í landinu um þessar mundir, hefir rlkisstjóinin talið óráðlegt, að láta breytinguna koma til framkvæmda. Munu allir yera á einu máli um það. KIRKJAN: Messa'ö, verður í Ak- ureyrarkirkju n. k. sunnudag kl. 5 e. h. LeiÖrétiing. í grein St. Steinsen bæjarstjóra um Rafveitumátin í síðasta blaði, er villa í 3. dálki 3. línu að neðan. Stendur þar 140 þúsund krónur, en á að vera 340 þúsund krónur. Föstudags- og sunnudags- kvöld kl. 9: „Faldi fjátv sjóðurinn“ (Keep your Seats Please) Ensk skopmynd eftir gaman- sögu JEF PETROFFS. — Sönglögin eftir: HARRY PARR DARIES og GIFFORD og CLIFF. Aðalhlutverkin leika: George Formby og Florence Desmond Faldi fjársjóðurinn er í einum af sjö stólum, sem seldir eru á uppboði og lenda sinn hjá hverjum eiganda, Segir mynd- in frá mörgum skiítnum og hlægilegum atburðum, sem koma fyiir við leitina að stól- ur.um. Laugardagskvöld kl. 9: islarii 11 U I Amerísk stórmynd frá Warner Bros. — Aðalhlutverkin leika: Bette Davis, Edvard G. Robinson og Jane Bryan. Mikilfengleg og spennandi kvikmynd úr sögu hnefaleik- anna. Börn fá ekki aðgang. — Sunnudaginn kl. 5: Andy Hardy Iþróttafélaflið „Þór“ I { sumarleyfi. minr.tist 25 ára starfsafmælis síns s,l. laugardagskvöld með fjölmennum mannfagnaði í Samkomuhúsinu Hófst hann með kaffidrykkju, en á meðan fóru fram ýms skemmtiat- riði og um 20 manns tóku til máls. I.O.O.F. = 12211229 = 1 Áheit á Akureyrarkirkju: Kr. Á eftir var dansað. Félaginu bárust heillaskeyti og ýmsar gjafir, þar á meðal tréknöttur á fæti, farandgripur til að keppa um í knattspyrnu. Höfðu gamlir Pórs- félagar gefið knöttinn, en Geir í’ormar skorið hann út. Afmælis- fagnaðurinn var hinn myndarlegasti og fór prýðilega fram. 20.00 frá ónefndri. Þakkir. Á. R. XJngmennastúkan Akurlilja nr. 2 heldur fund í Skjaldborg sunnu- daginn 24. þ. m. kl. 8Vz e. h. B-flokkur fræðir og skemmtir. „Brynju“ -jundur næstk. mið- vikud. kl. 8Y2 e. h.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.