Íslendingur - 22.11.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.
Akureyri, 22. nóvember 1940
tölubl.
Kirkjuvigslan
Nýja kirkjan
vist 1400 ti I
S. 1. sunnudag fór vígsla nýju
kirkjunnar fram. Hófst athöfnin
kl. 1 síðdegis. Hálfri stundu áður
var kirkjan opnuð, og hafði þá
safnast svo mikill mannfjöldi að,
að kirkjan troðfylltist á nokkrum
mínúturn. Peir sem komu 10 mín-
útum síðar urðu frá að hverfa.
Telja kunnugir, að 1400 — 1500
manns muni hafa verið í kirkju,
en varla minna en 600—700 hafi
orðið að hverfa heim, án þess að
sjá’ eðalheyra nokkuð af því, sem
fram fór.
Biskupinn ylir íslandi, sr. Sigur-
geir Sigurðsson framkvæmdi vígsl-
una ásamt vígslubiskupi, sr. Friðrik
J. Rafnar og 10 klerkum úr nær-
liggjandi prestaköllum. Flutti bisk-
upinn vígsluræðuna en vígslubiskup
predikun. Kiikjukórinn og Kantötu-
kór Akureyrar önnuðust sönginn.
Töldu viðstaddir, að athöfnin hefði
verið mjög áhrifamikil og hátfð-
leg. —
Að lokinni vígslu flutti húsa-
meistari ríkisins, Ouðjón Samúels-
son prófessor, ræðu frá kórdyrum.
Hafði hún meðal annars inni að
halda lýsingu á kirkjunni, en hana
hefir húsameistari teiknað og haft
eftirlit með byggingu hennar.
Á sunnudagskvöldið hélt sóknar-
nefndin veizlu að Hótel Guilfoss
fyrir ýmsa gesti, svo sem: Her-
mann Jónasson kirkjumálaráðherra,
Vilhjálm Pór bankasljóra og frú,
Quðjón Samúelsson húsameistara,
stjórn Kvenfélags Akureyrarkirkju
og fleiri, Voru margar ræður
fluttar í samsæti þessu og enn-
fremur lesið bréf frá hjónunum
Rannveigu og Vilhjálmi Pór. þar
sem þau tilkynna, að þau gefi Ak-
ureyrarkirkju nýtt orgel (Hamm-
onds rafmagnsorgel) í minningu
um foreldra sína, og komi það
væntaniega í næsta mánuði. Mörg
heillaóskaskeyti bárust sóknarnefnd
og sóknarpresti þenna dag í tilefni
af vfgslunni.
Hin nýja Akureyrarkirkja er mjög
vegleg bygging og tignarleg, enda
mun hún dýr orðin, en margar
rausnarlegar gjafir einstakra manna
hafa lélt átakið við að koma henni
upp.
Pað eru nú liðin lúm tvö ár,
sfðan byrjað var að grafa fyrir
grunni kirkjunnar, en margir hafa
lagt hönd að byggingu hennar
þessi ár. Guðmundur Ólafsson
vígð f viður-
1500 manna.
byggingameistari sá um undirstöð-
ur og kjallara, en Porsteinn frá
Lóni, Ásgeir Austfjörð og Bjarni
Rósantsson byggingameistarar hafa
séð um byggingu þess, sem eftir
var og húðun. Indriði Helgason
rafvirkjameistari sá um raflagnir,-
Raftækjaverksmiðja Hafnarfjarðar
um hitunartæki, Osvald Knudsen
málarameistari um málningu, Krist-
ján Aðalsteinsson húsgagnasmíða-
meistari. um bekki, og Ólafur
Ágúslsson húsgagnasmiðameistari
um altari og annan útbúnað í
kórnum. Þá gerði Ásmundur Sveins-
son myndhöggvari nokkrar lág-
myndir á framgafl söngloftsins.
Kirkjan tekur á sjötla hundrað
manna í sæti, en undir kórnum, í
kjallara kirkjunnar, er kapella.
sem taka mun um 80 manns í
sæti. Er í ráði að nota hana við
hinar fámennari jarðarfarir, spurn-
ingar fermingaibarna og fleira, en
enn er ekki lokið frágangi hennar
að fullu.
í sumar hefir verið unnið að
því að steypa tiöppur upp að
kirkjunni neðan frá Kaupvangs-
torgi, og er því verki vel á veg
komið.
DanariJiinniiit).
Fann 25, sept, síðastl. andaðist á
sjúkrahúsi Akureyrar Kristinn Gunn-
laugsson Hjalla á Upsaströnd, tæp-
lega 54 ára að aldri,
Kristinn heitinn var prýðilega vel
gefinn maður þd sjálfmenntaður væri,
enda bókamaður mikill og fróðleiks-
gjarn; var hann því skemmtinn
heim að sækja og kunni vel að
haga orðum slnum, aö til gleði og
ánægju væri. Vakti hann því ætíð
velvild og hlýju þeirra, sem samleið
áttu með honum. Hann var prúður
í framgöngu og stilltur vel og lét
lítt á sjá þó raunir steðjuðu aö,
var »traustur á velli og traustur í
lund«.
Það má því hiklaust telja, að
þarna sé góður drengur til moldar
hniginn og að því er okkur finnst,
sem á eftir horfum, fyrir aldur
fram, En mæt minning um horfinn,
góðan dreng, vekur ætíð hreinan
hugblæ með þakklæti fyrir liðnar
stundir.
Blessuð veri minning hans.
Nágranni.
Sambandsþing ungra nýjabiói
Sjálfstæbismanna
var haldið í Reykjavík dagana 9.
og 10. þ. m. Sóttu þingið rúmlega
70 íulltrúar úr flestum bæjum og
sýslum landsins. Margar ályktanir
voru samþykktar á þinginu, m. a. í
verklýðsmálum sjávarútvegsmálum,
landbúnaðarmálum, skattamálum og
sjálfstæðismálinu. Forseti samband-
sins var kjörinn Gunnar Thoroddsen
lögfræðingur, en með honum í stjórn:
Tóhann Hafstein erindreki, Sig, Bjarna-
son frá Vigur, Leifur Auðunsson
Dalsseli Rang. og Magnús Tónsson
Mel í Skagafirði,
Framkvæmd umferða-
laganna frestað
Ríkisstjórnin hefir gefið út bráða-
birgðalög. þar sem ákveðið er að
fresta framkvæmd umferðalaganna
og bifreiðalaganna um óákveðinn*.
tíma,
Á síðasta þingi var samþykkt ný
löggjöf um þessi efni, og átti samkv.
þeim að taka upp »hægri handar*
umferð um n. k. áramót. En vegna
hinnar mjög auknu umferðar í
landinu um þessar mundir, hefir
rlkisstjóinin talið óráðlegt, að láta
breytinguna koma til framkvæmda.
Munu allir yera á einu máli um
það.
KIRKJAN: Messa'ö, verður í Ak-
ureyrarkirkju n. k. sunnudag kl.
5 e. h.
LeiÖrétiing.
í grein St. Steinsen bæjarstjóra um
Rafveitumátin í síðasta blaði, er villa
í 3. dálki 3. línu að neðan. Stendur
þar 140 þúsund krónur, en á að
vera 340 þúsund krónur.
Föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
„Faldi fjátv
sjóðurinn“
(Keep your
Seats Please)
Ensk skopmynd eftir gaman-
sögu JEF PETROFFS. —
Sönglögin eftir: HARRY PARR
DARIES og GIFFORD og
CLIFF.
Aðalhlutverkin leika:
George Formby og
Florence Desmond
Faldi fjársjóðurinn er í einum
af sjö stólum, sem seldir eru
á uppboði og lenda sinn hjá
hverjum eiganda, Segir mynd-
in frá mörgum skiítnum og
hlægilegum atburðum, sem
koma fyiir við leitina að stól-
ur.um.
Laugardagskvöld kl. 9:
islarii
11
U
I
Amerísk stórmynd frá Warner
Bros. — Aðalhlutverkin leika:
Bette Davis, Edvard
G. Robinson og Jane
Bryan.
Mikilfengleg og spennandi
kvikmynd úr sögu hnefaleik-
anna.
Börn fá ekki aðgang. —
Sunnudaginn kl. 5:
Andy Hardy
Iþróttafélaflið „Þór“ I { sumarleyfi.
minr.tist 25 ára starfsafmælis síns s,l.
laugardagskvöld með fjölmennum
mannfagnaði í Samkomuhúsinu
Hófst hann með kaffidrykkju, en á
meðan fóru fram ýms skemmtiat-
riði og um 20 manns tóku til máls.
I.O.O.F. = 12211229 = 1
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr.
Á eftir var dansað. Félaginu
bárust heillaskeyti og ýmsar gjafir,
þar á meðal tréknöttur á fæti,
farandgripur til að keppa um í
knattspyrnu. Höfðu gamlir Pórs-
félagar gefið knöttinn, en Geir
í’ormar skorið hann út. Afmælis-
fagnaðurinn var hinn myndarlegasti
og fór prýðilega fram.
20.00 frá ónefndri. Þakkir. Á. R.
XJngmennastúkan Akurlilja nr.
2 heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 24. þ. m. kl. 8Vz e. h.
B-flokkur fræðir og skemmtir.
„Brynju“ -jundur næstk. mið-
vikud. kl. 8Y2 e. h.