Íslendingur - 13.12.1940, Blaðsíða 1
Dýrtíðarf ióðið
Alþingi verður að gera ráð-
stafanir til að stífla það.
Síðan ófriðurinn hófst fyrir rúmu
ári síðan, hefir dýrtíðin í landinu
vaxið jöfnum skrefum, án þess að
rönd hafi verið við reist. Hafði
þó Alþingi og ríkisstjórn gert
nokkrar ráðstafanir til að hafa
hemil á henni með lögfestingu
vinnulauna, húsaleigulögum, laga-
ákvæðum um verðlagseftirlit o. s.
frv. En anda þeirra laga og reglu-
gerða er að því lutu, hefir verið
slælega fylgt, svo að ekki sé of
mikið sagt.
Pað var fyrirsjáanlegt, að aliar
innfluttar vörur, svo sem kornvara,
kol, olía og fleiri nauðsynjar hlutu
að hækka að miklum mun í verði,
enda kom það fljót* á daginn.
T. d. fjórfaldaðist kolaverðið á fám
mánuðum. Innlendar vörur komu
svo smátt og sinátt á eftir; Mjólk
og mjólkurafurðir, grænmeti, egg
o. fl., að ógleymdri hinní gífurlegu
hækkun á kjötverðinu s. I. haust
og fiskverðinu, er sigldi í kjölfarið.
Pá hækka öll fargjöld á sjó og
landi, burðargjöld, sjúkrasamlagsið-
gjöld, talsfmagjöld o. fl. o. fl. —
Sérstakar nefndir annast verðá-
kvörðun einstakra vöruflokka, svo
sem mjólkur og kjöts, en þó að
slíkar nefndir eigi að vera óvilhall-
ur >verðdómstóll», eins og minni-
hluti kjötverðlagsnefndar leit á s. I.
haust, þá er eins og meiri hluti
þeirrar nefndar hafi skoðað sig
sem umbjóðanda framleiðenda sér-
staklega. En þegar svo er komið,
er sízt að undrast, þótt dýrtíðin
gangi risaskrefum um heimili reyt-
endanna.
Um áramótin næstu falla úr gildi
þau lagaákvæði, er binda kaupgjald
verkamanna og iðnverkafólks við
vísitölu Hagstofunnar, enda hafa
flest eða öll stéttarfélög sagt upp
kauptöxtum sínum. Má því búast
við, að nokkur kauphækkun sé fyr-
ir dyrum, sem enn hefir í för með
sér hækkað verð á innlendri fram-
leiðslu, því vöruverðið og kaup-
gjaldið spenna hvort annað upp til
skiptis- Petta er hin háskalegasta
svikamylla, sem hlýtur að enda í
bráðri ófæru, ef ríkisvaldið hleypur
frá þeirri sjálfsögðu skyldu að
setja hemla á verðlag og kauplag
eins og aðrar þjóðir telja sjálfsagð-
ar ráðstafanir á slíkum tímum sem
nú eru. Og því meiri, sem verð-
bólgan verður, því meiri og af-
drifaríkari verður sú kreppa eða
það hrun, er á eftir fyigir.
Af ráðstöfunum, sem gerðar hafa
verið til að halda dýrtíðinni í
skefjum er nú eigi annað eftir en
húsaleigulögin. Samkvæmt þeim er
óheimilt að hækka leigu eftir hús-
næði. Nú er vitanlegt, að vegna
dýrtíðarinnar hefir viðhaldskostnað-
ur húsa vaxið gífurlega. Pessi
löggjöf er því ekki lengur sann-
gjörn, þegar búið er að taka allar
aðrar stíflur úr farvegi dýrtíðar-
flóösins. Hún kemur mjög hart
niður á þeim mönnum, sem e. t.
v. eru nýlega búnir að byggja og
skulda lánsstofnunum mikinn -hluta
byggingakostnaðar, en þurfa að
leigja eitthvað út af húsinu. Ef
ekki á að setja neinar skorður við
dýrtíðinni í landinu, er ósanngjarnt
að taka þessa menn út úr og
þrengja svo að þeim, að þeir geti
ekki haldið húsum sínum. Peim
Leikfélag Akureyrar hefir valið
fyrir jólaleik »Dúnungann« eftir
hina heimsfrægu, sænsku skáld-
konu Selmu Lagerlöf, og mun
þetta vera fyrsta sýning hérlendis
á leikriti eftir hana. Hefir blaðið
fengið eftirfarandi upplýsingar um
leikinn:
Leikurinn gerist í Viirmalandi í
Svíþjóð nálægt árinu 1840. Leik-
svið eru undurfögur, fólkið klætt
fallegum búningum, þjóðdansar
dansaðir við dynjandi músik og
glaðan söng. Jón Norðfjörð hefir
þýtt leikritið, og annast alla stjórn
leiksins. Tililhlutverkið »Dún ung-
ann« leikar ungfrú Margrét Ólafs-
dóttir, en önnur hinna stærri hlut-
verka frú Svava Jónsdóttir, frú
Sigutjóna Jakobsdóttir, Árni Jóns-
son og Jón Norðfjörð. Frumsýn-
ing á leiknum er fyrirhuguö 2.
jóladag, og er það í fyrsta skipti,
sem Leikfélagið hefir frumsýningu
á leikriti á jólunum.
Blaðið hefir eigi kynnt sér efni
leiksins, en umhverfið, þar sem
hann gerist, er afburða glæsilegt,
eins og þeir vita, er séð hafa
»Vermlendingana« á leiksviði. Þá
er nafn höfundarins, hinnar heims-
frægu skáldkonu, nægileg trygging
fyrir því, að leikurinn hafi eitthvað
að flytja, sem áhorfandinn man
er engin linkind sýnd um greiðslur
skatta og skyldna af húsunum til
hins opinbera, og fá að greiða
jafnt, hvort sem húsin eru hrein
eign eða þeir skulda andvirði
þeirra.
Ef ríkisvaldið ætlast til, að dýr-
tíðin gangi jafnt yfir alla, þá verð-
ur hún annaðhvort að sleppa öll-
um »hemlum« eða auka þá aftur
og beita þeim á fleiri sviðum en
áður, — og mun síðari kosturinn
vera líklegri til þrifa fyrir þjóð
vora.
Koma brezka setuliðsins inn í
land vort hefir átt mikinn þátt f
að auka dýrtíð í landinu, einkum
í hækkuðu verði innlendra afurða.
Munu þau íslénzk heimili eigi
mörg, sem hafa efni á að kaupa
egg í jólabaksturinn, svo að eitt
dæmi sé tekið.
Pað er hin mesta vílla að sleppa
verðlagi á innlendum markaði Iausu,
og mun það fyrr eða síðar koma
skýrar í Ijós en orðið er. Alþingi,
sem saman kemur í vetur, verður
að taka dýrtíðina til meðferðar og
gera ráðstafanir í þá átt að stöðva
eða draga til muna úr því kapp-
hldupi, sem nú vofir yfir milli
verðlags og kauplags í landinu.
lengur en þangað til tjaldið fell-
ur. —
Sænskir sjónleikir hafa hvarvetna
hlotið vinsældir, þar sem þeir hafa
verið sýndir, og mun svo enn fara
hér.
Vörður,
félag ungra Sjálfstæðismanna held-
ur fund að Hótel Gullfoss (uppi)
kl. 1,30 n. k. sunnudag (15. des.)
Formaður flytur erindi; Andbýl-
ingarnir og við. Frjálsar umræð-
ur á eftir. Verkefnanefnd, kosin á
aðalfundi, mun flytja tvö mál-
Rætt verður um vetrarstarfið, árs-
hátíð félagsins o- fi. Kosið í full-
trúaráð. Pess er vænzt, að félagar
fjölmenni á fundinn og taki með
sér nýja félaga.
Nýtt hættusvæði
Brezka herstjórnin hér á landi
hefir gefið út tilkynningu um nýtt
hættusvæöi fyrir Austfjörðum, er nær
frá Berufiröi norður fyrir Njarðvík,
Áður hafði hún tilkynnt hættusvæði
fyrir Vestfjörðum. Valda þessar
hernaöaraögeröir stórkostlegum
hnekki fyrir útgerðina á Vestfjörðum
og AustfjörÖum.
nýjta móHBHHS
Föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
Destry skerst
í leikinn
(Destry Rides Again)
Amerísk stórmynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika heimsfræg-
ir leikarar svo sem:
Marlene Dietrich,
James Stewart og
skopleikarinn
Mischa Auer.
Mynd þessi hefir allsstaðar hlot-
ið feikna vinsældir og hrifningu
þeirra kvikmyndagesta er vilja
sjá verulega spennandi, fjörmikl-
ar og æfintýraríkar ‘rayndir.
Börn fá ekki aðgang.
Laugardagskvöld kl. 9:
Tal- og '.hljómmynd úr lífi
Hardysfjölskyldunnar. — Aðal-
hlutverkin leika:
Mickey Rooney,
söngstjarnan Judy Qar-
land, Lewis Stone og
flestir aörir sömu leikar-
ar og áöur.
Nú ei Andy Hardy oröinn það
gamall, að hann verður alvar
lega ástfanginn. — Hann'hefir
þó reynt ýmislegt í þeim sök-
um í sumarleyfinu sínu og áöur.
Myndir úr lífi Hardys fjölskyld-
unnar eru óvenju skemmtilegar
og athyglisverðar fyrir foreldra,
því að Hardy dómari er auk
þess að vera elskulegur heim-
ilisfaðir, hreinasti snillingur að
leysa viðkvæmar gátur upp-
eldis stálpaðra barna sinna,
sem góður vinur, félagi og
faðir þeirra,
Sunnud. kl. 3 (Barnasýning)4
Ýmsar smámyndir
Sunnud. kl. 5: (Alþýðus.)
Endurfundir.
Bönnuð börnum, —
Jólaleikur Leikfélagsins.