Íslendingur


Íslendingur - 14.02.1941, Page 3

Íslendingur - 14.02.1941, Page 3
iSLENDÍNGUR » Hvort heldur er um- ræðuefnið lOgreglu- málin eða Brynleifur Tohíasson? Það hendir oft blaðaritara, þegar þeir eru komnir í klípu í ritdeilu, aö þeir hverfa frá málefninu, sem um er rætt, og snúa sér að and- stæöingi sínum meö persónulegri áreitni. Þetta hefir nú hent hr. Sigurö Eggerz í »Aftur á bak<-grein hans i ísl. 7, þ. m. Ég hélt, aö hann væri meiri og drengilegri kappi en hann hefir synt sig á hólminum. Hann veröur aö minn- ast þess, aö »noblesse oblige«, mað- ur sem er stórkrossriddari, hefir þrisvaK veriö ráöherra o. s. frv. — Aöalatriöin í grein hans eru þau, aö ég »taki sjálfan raig of hátíö- lega,« aö ég sé broslegur, »skrýtiö pólitískt pródúkt« og »ir.utile pondus terrae* í sjálfstæöismálinu o. s, frv. Hann huggar sig viö þessar fullyrö- ingar í raunum sfnum. Ef hann heldur, að aðrir taki hann hátíðleg- ar, er hann hefir gefiö mér þennan vitnisburö, heldur en nú, þá er hann einfaldari en ég hélt hann vera. Álftur hann, aö menn taki hann alvarlegar en nú, ef hann segir að ég sé broslegur? O saneta sim- plicitas! Hyggur hann pólitískan veg sinn vaxa viö það, að segja náunganum þaö álit sitt, að ég sé »skr>’tiö pólitískt prodúkt? Skrýtinn hugarburður! — Telur hann líklegt, aö hann verði síður léttvægur fund- inn sem þjóömálamaður, ef hann kemur með þá fullyrðingu, að ég sé >inutile pondus terrae« á þeim vettvangi? Hálmstrá eitt að halda í! Éað er von aö ég spyrji: Hvort heldur er umræðuefni hr. Sigurðar Eggerz lögreglumálin á Akureyri eöa Brynleifur Tobíasson? En — eins og þú ávarpar aöra, ávarpa aörir þig, Hvernig stendur á því, að hr. S. E. fór ekki rétt meö heim- ildir, sem hann þykist kunna þegar fyrir nokkru, í fyrri grein sinni? Er það samboðið dómara? Hvers vegna vill hann ekki svara síöustu fyrir- spurninni i grein minni í »Degi« 6. þ. m. ? Kveinkar hann sér við þvf? — Lýöræöiskappinn hr. Sig- urður Eggerz baö ritstjórn »íslend- ings« að synja grein minni rúms í »Islendingi«. fíann t\'ildi varna mér máls. ÞaO var r.ú allur lýð- rccðisbragurinn! Og svona eru þeir sumir þessir herrar, sem hæst gala um íyðræði þessi missirin á landi voru. Undir lýðræöisgrfmunni er fólginn sá einræðissinni, sem muldr- ar og þylur: Eg fyrst, aðrir síðar! Ef aðrir fara ekki að dæmi þeirra og eru þeim ekki sammála, er stjak- að við þeim, þeim ytt úr götu og reynt að taka fyrir munninn á þeim, ef bolmagniö er fyrir hendi. — Ég gef ekki mikiö fyrir slíka lýðræðis- postula. Hr. Sigurður Eggerz segir, að ég hafi óhl/ðnast lögunum með hegðun minni í lögreglumálunum (hans er orðalagið), Éessi »hegðun«, sem hann talar um, nær v/st til allra þeirra bæjarfulltrúa, sem samþykktu rök- studdu dagskrána frá mér um dag- inn, en þeir voru átta alls. Hvers vegna þolir vörður réttvísinnar þessa óhlýöni? TJm þessa óhlýðni fer hann svofelldum orðum: »Annað mál er þaö, að ég tek ekki svona hluti hátíðlega*. Með öðrum orðum: Vörður réttvísinnar ber á mig og aðra, að við óhlýðnumst lögum, en segist ekki taka þá hluti hátíðlega*. — Er ekki Sig. Eggerz sem vörður réttvísinnar með þessum ummælum kominn inn á dálítiö varasama braut? Eða vill hann, að hann sé ekki tek- inn alvarlega? Sumir kunna að hlæja, en þó að allir aðrir geri það, þá hlæ ég ekki. Mér oibýður! Ég held, að hr. Sig. Eggerz hafi með öllum sínum skrifum um lög- reglumálin og einstaka menn í sam- bandi við þau stigið langt skref aftur á bak, en ekki áfraru, og að þess vegna hafi hann — líklega þó óafvitandi — valið lokagrein sinni um þessi efni alveg rétt nafn, en það er: Aftur á bak. Brynleifur Tobiasson. Inflúenza. Inílúenza hefir komið upp í Reykjavfk fyrir nokkru og breiðist þaðan út um land, Er hún talin liafa komið frá Bretlandi. í Reykja- vfk er öllum skólum lokað og mann- fundir bannaðir, en ýms héruð hafa lýst yfir einaogrun sinni og ákveðið að verjast veikinni. Er veikin mjög næm og leggjast oft altir heimilis- menn samtfmis, en enn sem komið er mun hún tiltölulega væg. Blaðið náði f gærkvöldi tali af Jóhanni Þorkelssyni héraðslækni og spurði hann, hvort infiúenzan væri komin hingað. Kvað hann lækna haía orðið vara við nokkur tilfelli, en um enga útbreiðslu væri enn að ræöa. Bjóst hann við, að veikin mundi hafa borist hingað með Ésju eða flugvélinni. Kvaðst hann hafa átt tal við Reykjavik og ísafjörð í gær, og fengið vitneskju ura, aö ó- venjulega lítið bæri á fylgikvilJum (lungnabólgu o. þ. h.) með inflúenz- unni og mundi hún því vera með vægasta móti. Menn fengju að vísu all-háan hita í 1 —3 daga, og svo ör væri útbreiöslan, að á ísafiröi t. d. hefðu óOO sýkingar komið fram, það sem af er þessari viku. Éá gat héraðslæknirinn þess, að ef út- breiðsla veikinnar yrði ör hér í bæn- um, mundi verða leitað til skátanna um aðstoð á heimilum, og mundu menn þá geta snúið sér til sín eða bæjarfógetaskrifstofunnar raeð hjálp- arbeiðnir. Éá gat hann þess, að örðugra væri að átta sig á veik- inni vegna þess að slæmur kvef- faraldur hefði verið fyrir í bænum, er hún barzt hingað. Þýzk flugvél sást á sveimi yfir þorpinu að Sel- fossi við Ölfursárbrú s.l sunnudags- morgun. Brezkir setuliðsmenn skutu á hana af vélbyssum, en flugvélin svaraði með vélbyssuskothríð og særöust nokkrir hermenn. Flaug hún síðan í áttina til Reykjavíkur og voru þá gefin hættumerki. En ekki kom þar til neinnar viðureign- ar. Hvarf flugvélin á brott fyrir hádegið og er álitið að hún hafi komið frá Norður Noregi og horfið þangað aftur. A ÐALFUNDUR verður haldinn í Verzlunarmannafélaginu á Akureyri í húsi félagsins miðvikudaginn 19. þ. m. kl. 8,30 síðdegis. Erindi: dr. Sv. Þórðarson Aðalfundarstörf (kosin stjórn og nefndir) Félagar, fjölmennið. Stjórnin. Frá og með mánudeginum 16. þ. m. höfum við opna sölubúð frá kl. 9 f. h. til kl. 4 e. h. fyrir allskonar fiskvörur, svo sem: Flakaðan og bein- lausan fisk, hraðfrystan fisk, steiktan fisk, heitan og kaldan og fleira. Matarkjallarinn (fisll ðnd Chip) Hafnarstræti 105. SpilaklábbDr Akareyrar auglýsir á öðrum stað hér í blaðinu Bridge-keppni, sem fram á að fara innan skamms, og þar sem mörgum Bridge iðkanda mun forvitni á til- högun kepppinnar, hefir blaöið aflað sér eítirfarandi upplýsinga: Keppnin verður fjórmenningskeppni og keppir sveit við sveit. Fær sú sveit, er vinnur, 1 vinning, hvort sem vinningurinn er stór eða lítill. Eftir að hver sveit hefir keppt tvisvar við allar hinar, keppa þær tvær, sem flesta vinninga hafa, um úrslitin. Sama spil verður spilað á öllum borðum og undir sömu kringumstæð- um, því hvert spil út af fyrir sig er sérstök heild, og kemur því áfram- haldandi reikningur ekki til-greina, Með þessu móti verður bezt séð, hvernig hver sveit út af fyrir sig fer með sín spil, því allar sveitirnar hafa nákvæmlega sömu skilyrði í byrjun' hvers spils. Undanfarin ár hefir klúbburinn ekki séð sér fært að leyfa áhorf- endum að koma og horfa á keppnina, en það mun verða leyít núna, og er hér því gott tækifæri fyrir Bridge-iökendur (Kontrakt-Bridge) að sjá, hvernig hinar ýmsu sveidr fara með sín spil. Má að sjálfsögðu margt af því læra. Sparis/óöur Akureyrar Blaðið birtir í dag reikning Spari- sjóðs Akureyrar 1940. Hefir sjóð- urinn bætt hag sinn á árinu og umsetning hans orðið meiri en nokkru sinni áður. Innstæður manna hafa aukist yfir 100 þús krónur á árinu og er varasjóður nú orðinn 45 þús krónur. Aðalfundur Spari- sjóðsins var haldinn 6. þ m., og var stjórn hans og varastjórn endur- kosin. Karlmannanærfðt þykk og þunn nýkomin. VöruMs Akureyrar. Hörmulegt slys. S. 1. sunnudag vildi það hörmu- lega slys til að vörubifreiö, sem var á leið frá Sandskeiði til Reykjavík- ur, ók út af veginum, og 4 menn sem stóðu uppi á pallinum köstuðust af og komu niður í grjóturð. Meiddust þeir meira og minna, en einn svo, að hann lézt að kvöldi sama dags. Hét hann Guðmundur Eiríksson. Vegna inflúenzu verður árshátíð Bllstjörafélags Akureyrar frestað um óákveðinn tíma. 1.-2. herbergja íbúð óskast til leigu 14. maf n. k. R, v. á. 7 manna fólksbifreið í góðu standi til sölu, Frekari upplýsingar gefur Tryggvi lónsson (Sirni 353) KAUPUM DAGLEGA meðalaglös hálfflöskur, pelaflöskur, smyrslaglös, tablettuglös pilluglös og bökunardropaalös. — kureyrar Apótek, Sími 32. Herbergi með Ijósi og hita til leigu nú þegar JÓN H ALLUR. Stúkurnar Brynja og Bernskan halda hlutaveltu í Skjaldborg sunnud. 15. febr. Sjá götuauglýs- ingar.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.