Íslendingur - 14.02.1941, Qupperneq 3
iSLENDÍNGUR
»
Hvort heldur er um-
ræðuefnið lOgreglu-
málin eða Brynleifur
Tohíasson?
Það hendir oft blaðaritara, þegar
þeir eru komnir í klípu í ritdeilu,
aö þeir hverfa frá málefninu, sem
um er rætt, og snúa sér að and-
stæöingi sínum meö persónulegri
áreitni. Þetta hefir nú hent hr.
Sigurö Eggerz í »Aftur á bak<-grein
hans i ísl. 7, þ. m. Ég hélt, aö
hann væri meiri og drengilegri
kappi en hann hefir synt sig á
hólminum. Hann veröur aö minn-
ast þess, aö »noblesse oblige«, mað-
ur sem er stórkrossriddari, hefir
þrisvaK veriö ráöherra o. s. frv. —
Aöalatriöin í grein hans eru þau,
aö ég »taki sjálfan raig of hátíö-
lega,« aö ég sé broslegur, »skrýtiö
pólitískt pródúkt« og »ir.utile pondus
terrae* í sjálfstæöismálinu o. s, frv.
Hann huggar sig viö þessar fullyrö-
ingar í raunum sfnum. Ef hann
heldur, að aðrir taki hann hátíðleg-
ar, er hann hefir gefiö mér þennan
vitnisburö, heldur en nú, þá er hann
einfaldari en ég hélt hann vera.
Álftur hann, aö menn taki hann
alvarlegar en nú, ef hann segir
að ég sé broslegur? O saneta sim-
plicitas! Hyggur hann pólitískan
veg sinn vaxa viö það, að segja
náunganum þaö álit sitt, að ég sé
»skr>’tiö pólitískt prodúkt? Skrýtinn
hugarburður! — Telur hann líklegt,
aö hann verði síður léttvægur fund-
inn sem þjóömálamaður, ef hann
kemur með þá fullyrðingu, að ég
sé >inutile pondus terrae« á þeim
vettvangi? Hálmstrá eitt að halda í!
Éað er von aö ég spyrji: Hvort
heldur er umræðuefni hr. Sigurðar
Eggerz lögreglumálin á Akureyri
eöa Brynleifur Tobíasson? En —
eins og þú ávarpar aöra, ávarpa
aörir þig, Hvernig stendur á því,
að hr. S. E. fór ekki rétt meö heim-
ildir, sem hann þykist kunna þegar
fyrir nokkru, í fyrri grein sinni? Er
það samboðið dómara? Hvers vegna
vill hann ekki svara síöustu fyrir-
spurninni i grein minni í »Degi«
6. þ. m. ? Kveinkar hann sér við
þvf? — Lýöræöiskappinn hr. Sig-
urður Eggerz baö ritstjórn »íslend-
ings« að synja grein minni rúms í
»Islendingi«. fíann t\'ildi varna
mér máls. ÞaO var r.ú allur lýð-
rccðisbragurinn! Og svona eru þeir
sumir þessir herrar, sem hæst gala
um íyðræði þessi missirin á landi
voru. Undir lýðræöisgrfmunni er
fólginn sá einræðissinni, sem muldr-
ar og þylur: Eg fyrst, aðrir síðar!
Ef aðrir fara ekki að dæmi þeirra
og eru þeim ekki sammála, er stjak-
að við þeim, þeim ytt úr götu og
reynt að taka fyrir munninn á þeim,
ef bolmagniö er fyrir hendi. — Ég
gef ekki mikiö fyrir slíka lýðræðis-
postula.
Hr. Sigurður Eggerz segir, að ég
hafi óhl/ðnast lögunum með hegðun
minni í lögreglumálunum (hans er
orðalagið), Éessi »hegðun«, sem
hann talar um, nær v/st til allra þeirra
bæjarfulltrúa, sem samþykktu rök-
studdu dagskrána frá mér um dag-
inn, en þeir voru átta alls. Hvers
vegna þolir vörður réttvísinnar þessa
óhlýöni? TJm þessa óhlýðni fer hann
svofelldum orðum: »Annað mál er
þaö, að ég tek ekki svona hluti
hátíðlega*. Með öðrum orðum:
Vörður réttvísinnar ber á mig og
aðra, að við óhlýðnumst lögum, en
segist ekki taka þá hluti hátíðlega*.
— Er ekki Sig. Eggerz sem vörður
réttvísinnar með þessum ummælum
kominn inn á dálítiö varasama braut?
Eða vill hann, að hann sé ekki tek-
inn alvarlega? Sumir kunna að
hlæja, en þó að allir aðrir geri
það, þá hlæ ég ekki. Mér oibýður!
Ég held, að hr. Sig. Eggerz hafi
með öllum sínum skrifum um lög-
reglumálin og einstaka menn í sam-
bandi við þau stigið langt skref
aftur á bak, en ekki áfraru, og að
þess vegna hafi hann — líklega þó
óafvitandi — valið lokagrein sinni
um þessi efni alveg rétt nafn, en
það er: Aftur á bak.
Brynleifur Tobiasson.
Inflúenza.
Inílúenza hefir komið upp í
Reykjavfk fyrir nokkru og breiðist
þaðan út um land, Er hún talin
liafa komið frá Bretlandi. í Reykja-
vfk er öllum skólum lokað og mann-
fundir bannaðir, en ýms héruð hafa
lýst yfir einaogrun sinni og ákveðið
að verjast veikinni. Er veikin mjög
næm og leggjast oft altir heimilis-
menn samtfmis, en enn sem komið
er mun hún tiltölulega væg.
Blaðið náði f gærkvöldi tali af
Jóhanni Þorkelssyni héraðslækni og
spurði hann, hvort infiúenzan væri
komin hingað. Kvað hann lækna
haía orðið vara við nokkur tilfelli,
en um enga útbreiðslu væri enn að
ræöa. Bjóst hann við, að veikin
mundi hafa borist hingað með Ésju
eða flugvélinni. Kvaðst hann hafa
átt tal við Reykjavik og ísafjörð í
gær, og fengið vitneskju ura, aö ó-
venjulega lítið bæri á fylgikvilJum
(lungnabólgu o. þ. h.) með inflúenz-
unni og mundi hún því vera með
vægasta móti. Menn fengju að vísu
all-háan hita í 1 —3 daga, og svo ör
væri útbreiöslan, að á ísafiröi t. d.
hefðu óOO sýkingar komið fram,
það sem af er þessari viku. Éá
gat héraðslæknirinn þess, að ef út-
breiðsla veikinnar yrði ör hér í bæn-
um, mundi verða leitað til skátanna
um aðstoð á heimilum, og mundu
menn þá geta snúið sér til sín eða
bæjarfógetaskrifstofunnar raeð hjálp-
arbeiðnir. Éá gat hann þess, að
örðugra væri að átta sig á veik-
inni vegna þess að slæmur kvef-
faraldur hefði verið fyrir í bænum,
er hún barzt hingað.
Þýzk flugvél
sást á sveimi yfir þorpinu að Sel-
fossi við Ölfursárbrú s.l sunnudags-
morgun. Brezkir setuliðsmenn skutu
á hana af vélbyssum, en flugvélin
svaraði með vélbyssuskothríð og
særöust nokkrir hermenn. Flaug
hún síðan í áttina til Reykjavíkur
og voru þá gefin hættumerki. En
ekki kom þar til neinnar viðureign-
ar. Hvarf flugvélin á brott fyrir
hádegið og er álitið að hún hafi
komið frá Norður Noregi og horfið
þangað aftur.
A ÐALFUNDUR
verður haldinn í Verzlunarmannafélaginu á
Akureyri í húsi félagsins miðvikudaginn 19. þ. m.
kl. 8,30 síðdegis.
Erindi: dr. Sv. Þórðarson
Aðalfundarstörf (kosin stjórn og nefndir)
Félagar, fjölmennið.
Stjórnin.
Frá og með
mánudeginum 16. þ. m.
höfum við opna sölubúð frá kl. 9 f. h. til kl. 4 e. h.
fyrir allskonar fiskvörur, svo sem: Flakaðan og bein-
lausan fisk, hraðfrystan fisk, steiktan fisk, heitan
og kaldan og fleira.
Matarkjallarinn (fisll ðnd Chip)
Hafnarstræti 105.
SpilaklábbDr Akareyrar
auglýsir á öðrum stað hér í blaðinu
Bridge-keppni, sem fram á að fara
innan skamms, og þar sem mörgum
Bridge iðkanda mun forvitni á til-
högun kepppinnar, hefir blaöið aflað
sér eítirfarandi upplýsinga:
Keppnin verður fjórmenningskeppni
og keppir sveit við sveit. Fær sú
sveit, er vinnur, 1 vinning, hvort
sem vinningurinn er stór eða lítill.
Eftir að hver sveit hefir keppt tvisvar
við allar hinar, keppa þær tvær,
sem flesta vinninga hafa, um úrslitin.
Sama spil verður spilað á öllum
borðum og undir sömu kringumstæð-
um, því hvert spil út af fyrir sig er
sérstök heild, og kemur því áfram-
haldandi reikningur ekki til-greina,
Með þessu móti verður bezt séð,
hvernig hver sveit út af fyrir sig
fer með sín spil, því allar sveitirnar
hafa nákvæmlega sömu skilyrði í
byrjun' hvers spils.
Undanfarin ár hefir klúbburinn
ekki séð sér fært að leyfa áhorf-
endum að koma og horfa á keppnina,
en það mun verða leyít núna, og
er hér því gott tækifæri fyrir
Bridge-iökendur (Kontrakt-Bridge) að
sjá, hvernig hinar ýmsu sveidr fara
með sín spil. Má að sjálfsögðu
margt af því læra.
Sparis/óöur Akureyrar
Blaðið birtir í dag reikning Spari-
sjóðs Akureyrar 1940. Hefir sjóð-
urinn bætt hag sinn á árinu og
umsetning hans orðið meiri en
nokkru sinni áður. Innstæður manna
hafa aukist yfir 100 þús krónur á
árinu og er varasjóður nú orðinn
45 þús krónur. Aðalfundur Spari-
sjóðsins var haldinn 6. þ m., og
var stjórn hans og varastjórn endur-
kosin.
Karlmannanærfðt
þykk og þunn nýkomin.
VöruMs Akureyrar.
Hörmulegt slys.
S. 1. sunnudag vildi það hörmu-
lega slys til að vörubifreiö, sem var
á leið frá Sandskeiði til Reykjavík-
ur, ók út af veginum, og 4 menn
sem stóðu uppi á pallinum köstuðust
af og komu niður í grjóturð.
Meiddust þeir meira og minna,
en einn svo, að hann lézt að kvöldi
sama dags. Hét hann Guðmundur
Eiríksson.
Vegna inflúenzu
verður árshátíð
Bllstjörafélags Akureyrar
frestað um óákveðinn
tíma.
1.-2. herbergja
íbúð óskast til leigu 14.
maf n. k. R, v. á.
7 manna fólksbifreið
í góðu standi til sölu,
Frekari upplýsingar gefur
Tryggvi lónsson (Sirni 353)
KAUPUM DAGLEGA
meðalaglös hálfflöskur, pelaflöskur,
smyrslaglös, tablettuglös pilluglös
og bökunardropaalös. — kureyrar
Apótek, Sími 32.
Herbergi
með Ijósi og hita til leigu
nú þegar
JÓN H ALLUR.
Stúkurnar Brynja og Bernskan
halda hlutaveltu í Skjaldborg
sunnud. 15. febr. Sjá götuauglýs-
ingar.