Íslendingur - 21.08.1942, Side 2
2
ÍSLÉNDÍNGUR
Þegar síminn
hringir.
Margir munu kannast viö J>að af
eigin reynslu, hversu oft það hefir
taíið afgreiðslu þeirra í búöum eða
á skrifstoíum, að afgreiðslumaðurinn
eöa skrifstofumaðurinn hefir veriö
að svara í símann, áður en hann
hafði lokið við að afgreiða þann eða
þá, er bíöa inni, Daemi munu til,
að þar sem einn maður er við af-
greiðslu, fer hann e. t, v. tvívegis
eða oftar í símann meðan hann er
að afgreiða einn mann. Veldur
þetta, sem vonlegt er, gremju og
óþolinmæði meöa) þeirra viðskipta-
manna, sem verða íyrir löngum
töfum vegna forréttinda símanot-
andans.
Nýlega var í Kaupsýslutíðindum
grein meö fyrirsögninni: Þegar
síminn hringir, og fjallar hún um
þetta efni. Og þar sem viöhorf það,
er fram kemur í greininni, er fylli-
lega vert íhugunar, leyfir íslendingur
sér að taka upp meginhluta greinar-
innar, sem er á þessa leið:
> . , . Fyrir skömmu kom auð-
ugur kaupraaður utan af lsndi inn
til heildsala í höfuðborginni. Þeir
fóru að seraja um viðskipti sín á
milli, en innan tíu mínútna hringdi
síminn. Einhver leitaði upplýsinga
um smáv.örur, sem hann vanhagaði
um. Stórkaupmaðurinn svaraði fyrir-
spurnunum og mælti með vörum
stnum, en ekkert varð þó úr við-
skiptum. Varla hafði hann sleppt
heyrnartólinu og snúið sér aftur að
kaupmanninum, þegar síminn hringdi
aftur. Sama sagan endurtók sig, og
tuttugu mínútur voru liðnar, áður en
varði.
Svo stóð á, að kaupmaðurina, sem
varð að bíða þolinmóöur, þurfti að
flýta sér, til þess aö verða ekki af
áætlunarbíl heim til sín, Hann hafði
því fengið samkvæmt sérstakri
beiöni, þennan ákveðna viðtalstíma.
En nú varð hann, sem var á staðn-
uœ aö bíða, á meöan forstjórinn af-
greiddi aðra viðskiptamenn, sem
voru í fjarlægð Ef ákveðið hefði
verið áður, að þeir simuöu á þess-
um tíma, þá gat kaupmaðurinn, sem
átti að koma á þessum tíma, ekki
átt að gjalda þess — og hann átti
skýlaust forgangsréttinn.
Paö má álíta, að menn, sem síma
í viðskiptaerindum. hafi minni áhuga
fyrir kaupum, en þeir, sem koma
sjálfir. í*eir, sem síma, hafa sjaldan
fengið fyrirfram loforð fyrir símtali
þann ákveöna tíma Fyrirhöfn þeirra
er lítil, í samanburði við fyrirhöfn
þeirra, sem eftir aö hafa fengið á-
kveðinn viðtalstíma, þurfa að koma
á staðinn. — Á svo að eyða hinum
umbeðna tíma frá heimsækjandanum.
til þess að sinna þeim, sem síma
fyrirvaialaust?
Síminn er orðinn svo nauðsynleg-
ur, að segja má, að ekki sé hægt
að reka verzlun án hans, En eiga
þeir, sem nota hann, þrátt fyrir það
að njóta forgangsréttar ? Á símanot-
andi ekki fremur að bíða en heim-
sækjandi? Getur hann ekki símað
seinna eða komið á ákveðnum tíma?
Yfitleitt er ekki hægt aö álykta aem
svo, aö maðurinn, sem er í fjarlægð,
sé rétthærri, en maðurinn, sem er
á staðnum. Það væri naumast á-
stæðulaust, þótt viðskiptavinur, sem
fær ekki afgreiðslu, fyrr en á eftir
símanotendum, færi leiðar sinnar,*
Er ekki full ástæöa til að verzl-
unarfyirtæki, opinberar stofnanir og
einstaklingar hugleiði þaö, sem hér
hefir veiið dregið fram og reyni að
koma á meira jafnretti á þessu sviði?
Jarðarför Eggerts Einarssonar kaupmanns, sem
andaðist 14. þ. m, fer fram laugardaginn 22. ágúst og
hefst með bæn að heimili hans Strandgötu 21 kl. 1,30
eftir hádegi.
Eiginkona og börn.
Raddir
lesendanna.
Hættan af olíu- og
benzíngeymunum á
Oddeyrartanga.
Fyrir nokkru vildi það til, að
benzínsprengiiig varð í erlendum
bát hér á höfninni, framund-
an gamla barnaskólanum. Báturinn
mun hafa verið í ca, 200 m. fjar-
lægð frá húsinu, en þó varð loft-
þrýstingurinn það mikill, að hann
braut nokkrar rúður í gluggum á
framhlið þess og eina rúðu í sam-
komuhúsinu.
Sfðan þetta skeði hefur sú hugs-
un sífellt ásótt mig, hve gífurleg
hætta bænum \stafar af olíu- og
benzfngeymum h. f, Shell hér á
Tanganum. Enginn gæti sagt fyrir,
hversu gífurlegt tjón á eignum og
mannslífum sprenging í svo stórum
benzfngeymi gæti valdið,
Hér í bænum hefir verið skipuð
loftvarnarnefnd til að annast allt
það sem í okkar valdi steudur til
að dregið veröi úr hættu af loft-
árásum. Hér hafa verið fram-
kvæmdar loítvarnaræfingar og hjálp-
arsveitir skipaðar. Um þetta er
gott eitt að segja. Það hafa kom-
ið fram tillögur um byggingu loft-
varnarskýla, en þeim tillögum hefir
ekki veriö sinnt. Enda hæpið að
þær ráðstafanir kæmu hér að veru-
legu gagni. En ráðstafanir gerðar
til aö diaga úr hættu bæjarins af
benzíngeymunum á Oddeyrartanga
mundi stórlega auka öryggi hans.
Þessi hætta er líka eins og kunn-
ugt er vegna slysni bæjarstjórnar-
innar, að hafa leyft byggingu geym-
anna á þessum stað. Eðlilegasta
ráðstöfunin væri sú að flytja geym-
ana burtu af staðnum. Geymarnir
tómir eru ekki svo þungir, að það
ætti aö vera vel framkvæmanlegt.
Sá stærri mun vera um 25 tonn en
sá minni um 20 tonn. Það mætti
vel setja þessa geyma út á sjó og
fleyta þeim þangað, sem hentugt
þætti að hafa þá.
Viö gerum aö sjálfsögðu kröfur
til erlenda setuliðsins, að það stofni
okkur ekki í hættu með aðgerðum
sínum. En fyrst og fremst ber okk-
ur að gera það sem stendur í okk-
ar valdi til að auka öryggi bæjar-
búa. Og ef við gerum það, mqstti
vænta enn meiri árangurs um við-
leitni okkar til áhrifa á öryggisráð-
stafanir erleuda setuliðsins.
Bœjarbúi.
Auglýsið f Isl.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð-
arför Baldvins Sigurðssonar £rá Höfða.
Aðstandendur.
Innilegustu þakkir sendum við öllurh þeim, sem sýndu okkur
vinsemd og liluttekningu við andlát og jarðarför móður okkar,
Bergljótar Sigurðardóttur.
«
Systkinin.
Innilega þakka eg öllum þeim, er auðsýndu mér samúð og hlut-
tekningu við andlát og jarðarför sonar míns, Jóhanns Sigurgeirs
Baldvinssonar. — Guð blessi ykkur öll.
Margrét Jónsdóttir.
Fluflfélaárás á vita.
Síðari hluta s. I. þriðjudags skaut
þýzk sprengjuflugvél á tvo vita við
Skagafjörð. Var annar vitinn svo-
nefndur Hegranesviti en hinn vit-
inn á Skagatá. Nokkrar skemmdir
munu hafa orðið á vitunum, en
engin slys á mönnum, þar sem
báðir vitarnir voru mannlausir,
þegar árásin var gerð.
Skömmu áður hafði þýzk flugvél
flogið hátt yfir Reykjavík, og voru
gefin þar hættumerki. Er álitið að
sú í'lugvél hafi heimsótt vitana.
Stfórn Verzlunarmannafé
/agslns á Akureyri mæiist tii
þess, að félagsfólk fjölmenni við
jaröarför Eggerts Einarssonar kaup-
manns, er hefst að heimili hans kl.
1,30 e. h á morgun.
Héraösmót það, er Sjálfstæði*-
félögin boðuðu til s. 1. sunnudag,
fórst fyrir vegna óveðurs,
Hjónaband. Ungfrú Marfa
Brynjólfsdóttir símamær og Skúli
Bjarkan cand. phil.
Ný hækkun farm-
gjalda.
Eimskipafélag íslands hefir faiið
fram á 50,%" hækkun farmgjalda í
Atneríkusiglingum, og þar sem fé
lagið hefir tapað mjög á þessum
siglingum undanfarið, helir hækk-
unin verið leyfð. Hefir áhættu-
þóknun skipshafna nýlega hækk-
að til muna.
Þá er búist við, að ekki verði
unnt að fá leiguskip til vöruflutn-
inga framvegis, og hlýtur það að
leiða til þess, að innflutningur til
landsins minnki stórlega.
Fimmtugsafmæli átti Stein
grímur Hansson verkstjóri 17. þ. m.
Ikviknun. S. 1, sunnudagskvöld
kom upp eldur í Matarkjallaranum
Hafnarstræti 105 hér í bæ. ílaföi
kviknað þar í fitupotti, en enginn
maður verið viðstaddur þá stundina.
Slökkviliðið náði fljótt aö buga eld-
inn, og nrðu ekki miklar skemmdir
á húsinu, en innanstokksmunir
skemmdust nokkuð af vatni.
Við þökkum innilega þeim, sem glöddu okkur með skeytum,
gjöfum og heimsóknum á 50 ára hjúskaparafmæli okkar, 14. þ. m.
Akureyri, 17. ágúst 1942. 1
Aðalheiður Jóhannsdóttir, Guðmundur Sigurgeirsson,
Hólabraut 17.