Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 21.08.1942, Síða 2

Íslendingur - 21.08.1942, Síða 2
2 ÍSLÉNDÍNGUR Þegar síminn hringir. Margir munu kannast viö J>að af eigin reynslu, hversu oft það hefir taíið afgreiðslu þeirra í búöum eða á skrifstoíum, að afgreiðslumaðurinn eöa skrifstofumaðurinn hefir veriö að svara í símann, áður en hann hafði lokið við að afgreiða þann eða þá, er bíöa inni, Daemi munu til, að þar sem einn maður er við af- greiðslu, fer hann e. t, v. tvívegis eða oftar í símann meðan hann er að afgreiða einn mann. Veldur þetta, sem vonlegt er, gremju og óþolinmæði meöa) þeirra viðskipta- manna, sem verða íyrir löngum töfum vegna forréttinda símanot- andans. Nýlega var í Kaupsýslutíðindum grein meö fyrirsögninni: Þegar síminn hringir, og fjallar hún um þetta efni. Og þar sem viöhorf það, er fram kemur í greininni, er fylli- lega vert íhugunar, leyfir íslendingur sér að taka upp meginhluta greinar- innar, sem er á þessa leið: > . , . Fyrir skömmu kom auð- ugur kaupraaður utan af lsndi inn til heildsala í höfuðborginni. Þeir fóru að seraja um viðskipti sín á milli, en innan tíu mínútna hringdi síminn. Einhver leitaði upplýsinga um smáv.örur, sem hann vanhagaði um. Stórkaupmaðurinn svaraði fyrir- spurnunum og mælti með vörum stnum, en ekkert varð þó úr við- skiptum. Varla hafði hann sleppt heyrnartólinu og snúið sér aftur að kaupmanninum, þegar síminn hringdi aftur. Sama sagan endurtók sig, og tuttugu mínútur voru liðnar, áður en varði. Svo stóð á, að kaupmaðurina, sem varð að bíða þolinmóöur, þurfti að flýta sér, til þess aö verða ekki af áætlunarbíl heim til sín, Hann hafði því fengið samkvæmt sérstakri beiöni, þennan ákveðna viðtalstíma. En nú varð hann, sem var á staðn- uœ aö bíða, á meöan forstjórinn af- greiddi aðra viðskiptamenn, sem voru í fjarlægð Ef ákveðið hefði verið áður, að þeir simuöu á þess- um tíma, þá gat kaupmaðurinn, sem átti að koma á þessum tíma, ekki átt að gjalda þess — og hann átti skýlaust forgangsréttinn. Paö má álíta, að menn, sem síma í viðskiptaerindum. hafi minni áhuga fyrir kaupum, en þeir, sem koma sjálfir. í*eir, sem síma, hafa sjaldan fengið fyrirfram loforð fyrir símtali þann ákveöna tíma Fyrirhöfn þeirra er lítil, í samanburði við fyrirhöfn þeirra, sem eftir aö hafa fengið á- kveðinn viðtalstíma, þurfa að koma á staðinn. — Á svo að eyða hinum umbeðna tíma frá heimsækjandanum. til þess að sinna þeim, sem síma fyrirvaialaust? Síminn er orðinn svo nauðsynleg- ur, að segja má, að ekki sé hægt að reka verzlun án hans, En eiga þeir, sem nota hann, þrátt fyrir það að njóta forgangsréttar ? Á símanot- andi ekki fremur að bíða en heim- sækjandi? Getur hann ekki símað seinna eða komið á ákveðnum tíma? Yfitleitt er ekki hægt aö álykta aem svo, aö maðurinn, sem er í fjarlægð, sé rétthærri, en maðurinn, sem er á staðnum. Það væri naumast á- stæðulaust, þótt viðskiptavinur, sem fær ekki afgreiðslu, fyrr en á eftir símanotendum, færi leiðar sinnar,* Er ekki full ástæöa til að verzl- unarfyirtæki, opinberar stofnanir og einstaklingar hugleiði þaö, sem hér hefir veiið dregið fram og reyni að koma á meira jafnretti á þessu sviði? Jarðarför Eggerts Einarssonar kaupmanns, sem andaðist 14. þ. m, fer fram laugardaginn 22. ágúst og hefst með bæn að heimili hans Strandgötu 21 kl. 1,30 eftir hádegi. Eiginkona og börn. Raddir lesendanna. Hættan af olíu- og benzíngeymunum á Oddeyrartanga. Fyrir nokkru vildi það til, að benzínsprengiiig varð í erlendum bát hér á höfninni, framund- an gamla barnaskólanum. Báturinn mun hafa verið í ca, 200 m. fjar- lægð frá húsinu, en þó varð loft- þrýstingurinn það mikill, að hann braut nokkrar rúður í gluggum á framhlið þess og eina rúðu í sam- komuhúsinu. Sfðan þetta skeði hefur sú hugs- un sífellt ásótt mig, hve gífurleg hætta bænum \stafar af olíu- og benzfngeymum h. f, Shell hér á Tanganum. Enginn gæti sagt fyrir, hversu gífurlegt tjón á eignum og mannslífum sprenging í svo stórum benzfngeymi gæti valdið, Hér í bænum hefir verið skipuð loftvarnarnefnd til að annast allt það sem í okkar valdi steudur til að dregið veröi úr hættu af loft- árásum. Hér hafa verið fram- kvæmdar loítvarnaræfingar og hjálp- arsveitir skipaðar. Um þetta er gott eitt að segja. Það hafa kom- ið fram tillögur um byggingu loft- varnarskýla, en þeim tillögum hefir ekki veriö sinnt. Enda hæpið að þær ráðstafanir kæmu hér að veru- legu gagni. En ráðstafanir gerðar til aö diaga úr hættu bæjarins af benzíngeymunum á Oddeyrartanga mundi stórlega auka öryggi hans. Þessi hætta er líka eins og kunn- ugt er vegna slysni bæjarstjórnar- innar, að hafa leyft byggingu geym- anna á þessum stað. Eðlilegasta ráðstöfunin væri sú að flytja geym- ana burtu af staðnum. Geymarnir tómir eru ekki svo þungir, að það ætti aö vera vel framkvæmanlegt. Sá stærri mun vera um 25 tonn en sá minni um 20 tonn. Það mætti vel setja þessa geyma út á sjó og fleyta þeim þangað, sem hentugt þætti að hafa þá. Viö gerum aö sjálfsögðu kröfur til erlenda setuliðsins, að það stofni okkur ekki í hættu með aðgerðum sínum. En fyrst og fremst ber okk- ur að gera það sem stendur í okk- ar valdi til að auka öryggi bæjar- búa. Og ef við gerum það, mqstti vænta enn meiri árangurs um við- leitni okkar til áhrifa á öryggisráð- stafanir erleuda setuliðsins. Bœjarbúi. Auglýsið f Isl. Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð- arför Baldvins Sigurðssonar £rá Höfða. Aðstandendur. Innilegustu þakkir sendum við öllurh þeim, sem sýndu okkur vinsemd og liluttekningu við andlát og jarðarför móður okkar, Bergljótar Sigurðardóttur. « Systkinin. Innilega þakka eg öllum þeim, er auðsýndu mér samúð og hlut- tekningu við andlát og jarðarför sonar míns, Jóhanns Sigurgeirs Baldvinssonar. — Guð blessi ykkur öll. Margrét Jónsdóttir. Fluflfélaárás á vita. Síðari hluta s. I. þriðjudags skaut þýzk sprengjuflugvél á tvo vita við Skagafjörð. Var annar vitinn svo- nefndur Hegranesviti en hinn vit- inn á Skagatá. Nokkrar skemmdir munu hafa orðið á vitunum, en engin slys á mönnum, þar sem báðir vitarnir voru mannlausir, þegar árásin var gerð. Skömmu áður hafði þýzk flugvél flogið hátt yfir Reykjavík, og voru gefin þar hættumerki. Er álitið að sú í'lugvél hafi heimsótt vitana. Stfórn Verzlunarmannafé /agslns á Akureyri mæiist tii þess, að félagsfólk fjölmenni við jaröarför Eggerts Einarssonar kaup- manns, er hefst að heimili hans kl. 1,30 e. h á morgun. Héraösmót það, er Sjálfstæði*- félögin boðuðu til s. 1. sunnudag, fórst fyrir vegna óveðurs, Hjónaband. Ungfrú Marfa Brynjólfsdóttir símamær og Skúli Bjarkan cand. phil. Ný hækkun farm- gjalda. Eimskipafélag íslands hefir faiið fram á 50,%" hækkun farmgjalda í Atneríkusiglingum, og þar sem fé lagið hefir tapað mjög á þessum siglingum undanfarið, helir hækk- unin verið leyfð. Hefir áhættu- þóknun skipshafna nýlega hækk- að til muna. Þá er búist við, að ekki verði unnt að fá leiguskip til vöruflutn- inga framvegis, og hlýtur það að leiða til þess, að innflutningur til landsins minnki stórlega. Fimmtugsafmæli átti Stein grímur Hansson verkstjóri 17. þ. m. Ikviknun. S. 1, sunnudagskvöld kom upp eldur í Matarkjallaranum Hafnarstræti 105 hér í bæ. ílaföi kviknað þar í fitupotti, en enginn maður verið viðstaddur þá stundina. Slökkviliðið náði fljótt aö buga eld- inn, og nrðu ekki miklar skemmdir á húsinu, en innanstokksmunir skemmdust nokkuð af vatni. Við þökkum innilega þeim, sem glöddu okkur með skeytum, gjöfum og heimsóknum á 50 ára hjúskaparafmæli okkar, 14. þ. m. Akureyri, 17. ágúst 1942. 1 Aðalheiður Jóhannsdóttir, Guðmundur Sigurgeirsson, Hólabraut 17.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.