Íslendingur


Íslendingur - 16.07.1943, Síða 3

Íslendingur - 16.07.1943, Síða 3
ÍSLENDINGUR 3 K. A. vann Valash- bikarinn. Vorkeppnin í meistaraflokki fór fram 1. þ m. Að þessu sinni kepptu aðeins tvö félög: Þór og K. A. Veöur var mjög gott, logn og sól- skin, Leikorinn var lipur og að ýmsu leyti góður. Fyrri hálfleikur endaöi með 2; 0 fyrit K. A. Þór tókst að skora mark stuttu fyrir leikslok. K. A. sigraði því í vor- keppninni með 2:1. Keppt var ura nýjan bikar, »Valash-bikarinn«, sem tíogi ísaks- son forstjóri hefir gefið, en Valash er uppáhaldsdrykkur íþróttamanna. Vonandi keppa fleiri félög á næsta ári um þenna fagra grip. Dómari á vormótsleiknum var Jakob Gíslason og leysti verk sitt vel af hendi. X. Bandamenn á Sikiley. Aðfaranótt 10. júlí gerðu Banda- menn innrás á Sikiley. Gengu her- sveitir frá Norður Afríku í land á vesturodda eyjarinnar og hófust þegar bardagar við hersveitir Möndulveldanna þar. Náðu Banda- menn fljótt borginni Syrakusa á vald sitt, og ýmsum fleiri borgum. Eisenhover hershöfðingi stjórnar innrásinni. Tilkynning trá útanríkis- ráðuneytinu 8. júlí 1943 Jóhannes Gunnarsson var í gær- morgun vígður Hólabiskup 1 Was- hington af Henri, sendiherra páfa þar í borg. Aö lokinni biskupsvígsl- unni hafði sendiherra páfa hádegis- verðarboð á Hótel Mayflower og bauð þangað fjölda íslendinga, bú- settum í Washington og New York. Síðar um daginn hafði sendiherra íslands móttöku á heimili sínu til heiðurs hinum nývígða Hólabiskupi, og voru þangað boðnir sendiherra páfa, fulltrúar kaþólsku kirkjunnar og ýmsir íslendingar. Utanríkisráðuneytið. Heyrnarhjálp. Ungfrú Kristín Jónsdóttir, erindreki fél. >Heyrnar- hjálp«, sem verið hefir á ferð um Norðurland til þess að hitta um- sækjendur um heyrnartæki og lofa fólki að reyna þau, verður hér á Akureyri n. k. mánudag, og tekur þá á móti fólki í barnaskólanum kl. 10—12 f. h. og kl. 2—5 e. h. Hún verður fjarveraudi þriðjudag og miðvikudag, en kemur aftur og tekur þá á móti fólki á sama staö fimmtudag, föstudag og laugardag, á sömu tímum. Mun þetta verða nánar auglýst í blöðum og útvarpi. Gjalddagi Isl. var 15. júní Þankabrot /óns í Gróf/nni. Asunnudaginn var ég á gangi um Eyrarlandsveg og lagði þá leið mína inn í Lystigarðinn. Var margt fólk þar samankomiö, innlent og erlent á öllum aldri. Garöurinn var í sínum fegursta sktúða, og fannst mér ég skyndilega kominn inn í aðra og betri veröld, Um- gengni öll var með sérstökum á- gætum. Margir reyna að komast burtu úr gatnarykinu á sunnudögum, en ferðalög eru dýr um þessar mundir. Það kostar t. d, mikið fyrir' íoreldra að fara með börn sín austur í Vaglaskóg. En þeir þurfa ekki svo langt til að komast úr rykinu og í grængresi og skógarilm. IPeir geta farið með börn sín í Lystigarðinn og dvalið þar stund úr deginum, án þess að kosta nokkru fé til. Hið eina, sem sú för kostar, er eftirlit með umgengni barnanna á staðnum, en ánægjan af dvölinni í garðinum greiðir þá fýrirhöfn margfaldlega. EIN af málvillum þeim, sem algeng er orðin hjá unglingum er ofan í í stað niðrí í, t. d ; »Ég sá hann ofan í (eða oní) gárðinum*. Éetta er mjög leiðinleg vilia í töluðu máli, en enn leiðara er þó að sjá hana á prenti, eins og nú kemur ósjaldan fyrir. Nýlega rakst ég á þessa setningu í Revkjavlkurblaði; »Lá ræfill af öðru lambinu ofan í gjótu«, og í öðru Reykjavíkurblaði las ég daginn eftir: Einn steinn .......lenti ofan í poitinu*. Sjálfsagt hefir lambræfillinn lent niðri í gjótunni og steinninn niðri í portinu. MJÖG er það misjaínt, hversu að- gangseyrir er hár að samkom- um hér í bænum. Nýlega var hér á ferð efnilegur einsöngvari, sem vakið hefir á sér talsverða athjTgli í höfuðstaðnum og hafði frægan pianósnilling sér til aðstoðar' Héldu þeir söngskemmtun í Nýja Bíó, og kostuðu aðgöngumiðar 6 kr. Fám dögum síðar efndi jazzsöngkona til næturhljómleika á sama stað og hermdi eftir nokkrum þekktustu íslenskum söngmönnum og tieirum. Aðgöngumiðai kostuðu kr. 12 50 og 10,oo, og var skemmtunin talin vel sótt, Er meira en vafasamt, að söngvararnir, sem hermt var eftir hefðu fengið svo góða aðsókn sjálfir, ef þeir hefðu komið til að syngja í eigin persónu og selt aðgöngumið- ana þessu verði, ESS var getið í blöðum nýlega, að Guðmundur skáld frá Sandi befði fengiö verðlaun úr Sumargjafa- sjóði Birtingaholts. Af því að nokkrir menn hafa spurt mig, hvaða sjóður þetta sé, vil ég tilfæra hér frásögn um sjóðinn, sem birtist í Tímaritinu Menntamál, jan — júní 1941, en það hefti er helgað minningu sr. Magn- úsar Helgasonar prófessors. l3að segir svo; • Samkvæmt eríðaskrá gaf Magnús 20 þús. kr. í sjóð er nefnist Sumar- gjafasjóður Birtingaholts, Var sjóð- urinn afhentur Bókmenntafélagi ís- lands. Skal veita úr sjóðnum annað- hvort ár verðlaun fyrir beztu ljóð, sem út hafa komið á íslenzku s. 1. 10 ár og afhendist á sumardaginn fyrsta. Heita veröiaunin »Sumargjöf trá Birtingaholti*. Dómnefnd skipa: Forseti Bókmenntafél., prófessor í ísl. íræðurn viö Háskóla íslands og íslenzkukennari við Kennara- skólann. Verðlaunin voru nú veitt í fyrsta sinn, aö upphæð 1025 kr, Munu menn álmennt telja Guðmund Frið- jónsson vel að þessari viðurkenn- ingu kominn. FÁIR ganga þess duldir, að út- svörin hér á Akureyri eru með þeim hæstu, er þekkjast á landinu. Fljótt á litið mundu menn ætla, að þau væru hærri í Reykjavík, þar sem þau nema 10 sinnum hærri upphæö en hér. En því fer þó fjarri. Hjón með 2 börn verða að greiða hér 130 króna útsvar af 7000 kr. nettótekjum en 50 kr. í Reykjavík. Af 10 þús kr. á Akur- eyri 535 kr. en g30 kr. í Reykja- vík. Einhleypir menn greiða hér 535 kr. af 7000 kr. tekjum en 270 i Reykjavík, af 10 þús, kr. tekjum 1000 kr. hér, en 570 kr, í Reykja- vík. Á Akranesi er notaður sami stigi og í Reykjavfk að viðbætium 10 af hundraði á , útsvarsupphæð- ina. — Ýmsar fregnir. Óskar Halldórsson útgerðarm. og börn hans hafa gefið 30 þús. krón- ur tíl að koma upp vaxmyndasafni i Reykjavík. Er það minningar- gjöf um son Óskars, Theodór, sem var meðal skipsverja á 1. v. Jarl- inn, er fórst í Englandsför haustið 1941. Tannlæknafélag íslands hélt aðal- fund hér á Ak. nýlega. Samþykkti fundurinn áskorun til rfklsstjórnar- innar um að leyfa óhindraðan inn- flutning á ávöxtum og fella niður eða Iækka tolla á þeim. Sigurður Tómasson úrsmiður í I4eykjavík hefir fnndið upp tæki til að setja íslenzkan texta í kvikmynd- ir á ódýran hátt. Á mánudaginn varð Sigtryggur Helgason Gránufélagsgötu 28 fyrir bifreið á mótum Strandgötu og Glerárgötu. Féll hann á götuna og hruflaðist á höfði og höndum, Var hann fluttur í sjúkrahúsið. Auglysið í Isl. ÍBÚÐ 2 — 3 herbergi og e,ldhús vant- ar mig 1. okt. í haust. Vegna fjarveru minnar úr bænum, eru þeir sem þessu vilja sinna beðnir um að snúa sér til Sigurðar Guðmundss. skóla- meistara, Sveinn Þórðarson kennari. Feröaritvéi (Imperial) lítið notuð, til sölu, Eiríkur Kristjánsson. Stúlku vantar á Ljósmyndastotu , Edvards Sigurgeirssonar Akureyri Til sölu með tækifærisverði urg kýr af ágætu kyni. Einnig stór bárujárnsskúr. LeiturKristjánss Éingvöiium Ak. Góður, fjðrróiun bátur óskast keyptur. R. v. á. Grá ílekkótt tík alals"«t hefir tapast. Er hún mjög hænd að mönnum og eltir hvern sem er. Ef einhver vissi um tík þessa, er hann vinsamlegast beðinn að gera aðvart á lögregluvarðst. setuliðsins. Fundarl. Stúlku vantar mig, 1. eða 15. ágúst fíunnlaug Thorarensen Hafnarstræti 104. Stör OFN hentugur í kirkju, samkomu- hús eða verkstæði, til sölu Tómas Björnsson.' Héraðsmót S/áitstæðis- manna vérður haldið f Nausta- borgum sunnudaginn 25. júlí. Nánar auglýst síðar. Gjatir til Vinnustofusjóðs Krist- neshælis: Frú iPórdís Árnadóttir og Jón Trampe Litladal. kr. 100. Kven- fél. Hlíf Ak. kr, 500 N. N. áheit kr 50. Beztu þakkir. Jónas Rafnar. Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Síðasti leikur Fram í kvöld ki. 8,30

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.