Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 2
1. september 2011 FIMMTUDAGUR2
TÍSKA Áslaug Magnúsdóttir, sem
rekur fyrirtækið Moda Operandi,
gerir það gott í bandaríska hátísku-
geiranum en í
gegnum heima-
síðu fyrirtækis-
ins er hægt að
kaupa hátísku-
vörur beint af
tískupallinum,
sem er nýjung í
hátískunni.
Heimasíðan
opnaði í febrúar
og hefur slegið
í gegn meðal hátískuhönnuða og
kaupenda víða um heim. Fjöldi
hönnuða sem vinna með Moda
Operandi hefur tvöfaldast á árinu
og eru nú um hundrað talsins. Not-
endum síðunnar hefur fjölgað hratt
og allt stefnir í að markmið fyrir-
tækisins um að þeir verði orðnir
120 þúsund fyrir lok ársins náist.
- mmf / sjá Allt
ÁSLAUG
MAGNÚSDÓTTIR
Álfadís tískunnar gengur vel:
Nýjung innan
hátískugeirans
SAMGÖNGUR Strætó bs. skilaði 8,4 milljóna króna hagn-
aði á fyrri helmingi þessa árs. Það er betri afkoma en
áætlanir gerðu ráð fyrir, en verri en á síðasta ári þegar
hún var jákvæð um 79 milljónir króna á fyrri hluta árs-
ins. Eigið fé félagsins hefur aukist um 83 milljónir frá
síðustu áramótum, en þá var það jákvætt í fyrsta skipti
frá árinu 2004.
Athygli vekur að eitt af því sem jók kostnað fyrirtæk-
isins var fjölgun farþega. Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir í fréttatilkynningu að það
muni sennilega hafa neikvæð áhrif á afkomu Strætó við
núverandi aðstæður. „Þrátt fyrir allt má þó vel við una.“
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að
þetta skýrist af því hve hlutdeild fargjalda í útgjöldum
fyrirtækisins hafi farið hratt lækkandi á undanförnum
árum. Það hafi á engan hátt haldið í við eldsneytisverð.
Unnið er að rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á öllum
byggðasamlögum sem Reykjavíkurborg á hlutdeild í og
segir Dagur að stjórnsýsluúttektinni muni ljúka snemma
í haust. Strætó er eitt þeirra byggðasamlaga.
Dagur segir að stóra verkefnið varðandi Strætó liggi
í því að finna út hvernig hlutur almenningssamgangna
verði gerður sem mestur. - kóp
Strætó skilar hagnaði á fyrri hluta ársins eftir mikla hagræðingu:
Fleiri farþegar þýða aukinn kostnað
STRÆTISVAGN Unnið er að stjórnsýslu- og rekstrarúttekt á
Strætó bs., líkt og öðrum byggðasamlögum sem Reykjavíkur-
borg á hlutdeild í. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DANMÖRK, AP Nánari skoðun á hag-
tölum Danmerkur leiðir í ljós að
kreppan þar síðustu misseri var
tæknilega séð aldrei nein kreppa.
Þetta fullyrti Hagstofa Danmerkur
í gær.
Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi
þessa árs mældist eitt prósent, en
á fyrsta ársfjórðungi var hagvöxt-
ur 0,1 prósent. Áður hafði stofn-
unin metið það svo að samdráttur
hefði orðið upp á hálft prósent á
fyrsta fjórðungi ársins. Það hefði
þýtt samdrátt tvo ársfjórðunga í
röð, sem er tæknileg skilgreining á
efnahagskreppu.
Nú þykir ljóst að samdrátturinn
varð bara á síðasta fjórðungi árs-
ins 2010. - gb
Hagvöxtur í Danmörku:
Kreppan var
aldrei kreppa
Friðrik, varstu að verða kex-
ruglaður á þessu?
„Nei, en þetta er gott báðu megin.“
Matreiðslumaðurinn Friðrik Valur Karls-
son, eða Friðrik V, er hættur störfum á
veitingastaðnum Kex.
BANDARÍKIN, AP Flugmenn hafa að
nokkru misst flughæfni vegna óhóf-
legrar notkunar sjálfstýribúnaðar.
Þeir eiga því stundum í vandræð-
um með að bregðast við aðstæðum í
miðju flugi, þótt þeir hafi flugtak og
lendingu á valdi sínu. Slíkt skapar
hættu og hefur valdið flugslysum,
sem undanfarin fimm ár hafa kost-
að hundruð manna lífið.
Þetta segja bæði flugmenn og
flugmálayfirvöld í Bandaríkjun-
um. Flugumferðarstjórn Bandaríkj-
anna hefur gert á þessu rannsókn,
sem staðfestir að flugmenn reiði sig
stundum of mikið á sjálfstýribúnað.
„Við erum farin að sjá alveg nýja
tegund af slysum með þessum full-
komnu flugvélum,“ segir Rory Kay,
annar tveggja formanna ráðgjafa-
nefndar bandarísku flugumferð-
arstjórnarinnar um þjálfun flug-
manna. „Við erum að gleyma því
hvernig á að fljúga.“
Þessi nýja tegund slysa verður
annaðhvort þegar eitthvað í sjálf-
stýribúnaði bilar eða þegar rangar
upplýsingar eru slegnar inn í tölvu-
kerfið sem búnaðurinn notar. Dæmi
eru til þess að slíkt slái flugmenn út
af laginu og þeir viti ekki hvernig
þeir eigi að bregðast við. - gb
Æ fullkomnari sjálfstýribúnaður flugvéla veldur nýrri tegund flugslysa:
Flugmenn gleyma kunnáttunni
FLUGSLYS Í BANDARÍKJUNUM Ný rann-
sókn sýnir að nokkur fjöldi flugslysa
hefur þegar orðið vegna þess að flug-
menn reiða sig um of á sjálfstýringu.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Beiðni um að kín-
verski fjárfestirinn Huang Nubo
fái undanþágu frá banni við fjár-
festingu útlend-
inga utan EES
í fasteignum
er komin inn á
borð innanríkis-
ráðherra. Nubo
hefur samið um
kaup á 72 pró-
sentum af landi
Grímsstaða á
Fjöllum.
„Hún verð-
ur nú tekin til
efnislegrar um-
fjöllunar,“ segir
Ögmundur Jón-
asson innan-
ríkisráðherra.
„Við eigum eftir
að fara yfir
málin og vega
þau og meta í
ljósi gagna sem
okkur berast. Síðan þarf að ræða
þessa grunnspurningu, hvort við
erum reiðubúin að selja stóran
hluta af Íslandi í hendur erlendra
aðila? Það er spurning sem verður
ekki svarað í einu vetfangi.“
Ögmundur segir að kaup Nubos
á Grímsstöðum séu ekki heimil
samkvæmt íslenskum lögum. Hin
almenna regla sé sú að jarðakaup
erlendra aðila utan EES séu ekki
heimiluð. Hins vegar sé hægt að
leita eftir undanþágu frá þeirri
lagareglu. Og það sé nú á borði
ráðuneytisins.
Jóh a n n a Sig u rð a rdót t i r
forsætisráðherra og Katrín Júlíus-
dóttir iðnaðarráðherra hafa báðar
lýst því yfir að engin ástæða sé til
þess að óttast kaup Nubos á jörð-
inni. Lagalegt umhverfi hér á landi
sé of sterkt. Ögmundur er ekki eins
bjartsýnn.
„Ég hef lýst því yfir að ég tel
óráðlegt að kyngja þessu ómeltu
eða snöggsoðnu,“ segir Ögmundur.
„Ég ítreka það að oft hefur okkur
verið sagt að það sé ekkert að ótt-
ast – það var til að mynda sagt í
aðdraganda hrunsins.“
Innanríkisráðherra bendir einn-
ig á að eignarhaldi á landi fylgi
ýmis mikilvæg réttindi sem snúa
að auðlindum og nýtingu þeirra.
Hann undirstrikar að málið sé ekki
einfalt og hafi fleiri en eina hlið.
„Mér ber lagaleg og siðferðisleg
skylda til að standa vörð um hags-
muni okkar samfélags og lands og
það ætla ég mér að gera.“
Veiti innanríkisráðuneytið und-
anþágu til kaupa Nubos á jörðinni,
mun sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðuneytið fara með forræði á
fjórðungshlut ríkisins í Grímsstöð-
um. Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, segir að
engin áform séu uppi um að selja
þann hlut, enda hafi slíkt erindi
ekki borist ráðuneytinu.
„Fari slíkt ferli í gang verður
ráðuneytið að óska eftir heimild-
um Alþingis og það er meirihluti
Alþingis sem tekur ákvörðun um
það hvort slíkt skuli gert, segir
Jón. „Ef hingað berst erindi um
kaup á þessari jörð þá er alls ekki
sjálfgefið að ráðuneytið geri til-
lögu um sölu og það mál verður
að skoða í tengslum við önnur lög
í landinu og hvaða meðferð lands
er hér um að ræða.“
sunna@frettabladid.is
Undanþága Nubos
á borði Ögmundar
Beiðni um undanþágu á kaupum Huangs Nubo á Grímsstöðum er komin á
borð innanríkisráðuneytisins. Þurfum að fara rækilega yfir málin, segir innan-
ríkisráðherra. Ekki stendur til að selja 25 prósenta hlut ríkisins í Grímsstöðum.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
JÓN BJARNASON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði í gær
ökumann mótorhjóls við Ikea
í Garðabæ en hann mældist á
201 kílómetra hraða. Leyfilegur
hámarkshraði á þessum stað er 80
kílómetrar. Maðurinn var sviptur
ökuleyfi til bráðabirgða.
Maður getur átt von á sekt allt
að 150 þúsund krónum og að verða
sviptur ökuleyfi í þrjá mánuði.
Mótorhjól á ofsahraða:
Tekinn á 201
kílómetra hraða
Vísindamenn fá stolin tæki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur endurheimt tvö dýrmæt rann-
sóknartæki sem stolið var úr bifreið
tveggja erlendra vísindamanna í
Reykjavík í síðustu viku. Mennirnir
munu hafa verið ánægðir með frétt-
irnar, en þeir eru farnir af landi brott
og verða tækin send til þeirra.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Ræktandi ákærður
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur
verið ákærður fyrir að hafa ræktað
í húsnæði á Akranesi níu kannabis-
plöntur. Þá fann lögregla hjá honum
fimmtán kannabisstöngla, tæp tvö
kíló af kannabislaufum og tóbaks-
blandað kannabisefni.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður-
lands hefur frestað ákvörðun um
refsingu yfir ungum manni sem
nefbraut annan mann á 800 Bar á
Selfossi í maí á síðasta ári.
Ungi maðurinn var sextán ára
þegar hann nefbraut hinn. Hann
var ákærður fyrir líkamsárás.
Fyrir dómi játaði hann sök. Sam-
kvæmt sakavottorði sem lá frammi
í málinu hafði pilturinn ekki áður
gerst sekur um refsiverðan verkn-
að. Í ljósi þessa þótti dómnum fært
að fresta ákvörðun refsingar hans
og skal refsingin falla niður að liðn-
um tveimur árum frá uppkvaðn-
ingu dómsins haldi hann almennt
skilorð. - jss
Refsingu var frestað:
16 ára piltur
nefbraut mann
LÖGREGLUFRÉTTIR
BANDARÍKIN Óttast er að hitabeltis-
lægðin Katia sæki í sig veðrið á
næstu dögum og breytist í fellibyl.
Katia yrði þá annar fellibylurinn
sem gengur yfir Atlantshaf á
skömmum tíma. Alls létust 32
þegar fellibylurinn Írena gekk yfir
austurströnd Bandaríkjanna í síð-
ustu viku.
Katia hefur vaxið mikið síðustu
daga og bendir flest til þess að hún
nái stærð fellibyls.
Gera má ráð fyrir að Katia verði
yfir austurströnd Bandaríkjanna
um næstu helgi.
Annar fellibylur í uppsiglingu:
Óttast að Katia
sæki í sig veðrið
HUANG NUBO Formleg beiðni um undanþágu á kaupum Huangs Nubo liggur nú á
borði innanríkisráðherra.
SPURNING DAGSINS
ms.is
Ostur
eins og
krakkar
vilja hafa
hann