Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 4
1. september 2011 FIMMTUDAGUR4
Markmiðin sem sett
voru í upphafi hafa
náðst og hefur grunnur verið
lagður að kröftugum efna-
hagsbata
JULIE KOZACK
YFIRMAÐUR SENDINEFNDAR AGS
GENGIÐ 31.08.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,4228
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,12 113,66
184,23 185,13
163,24 164,16
21,905 22,033
21,109 21,233
17,791 17,895
1,4763 1,4849
181,95 183,03
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
www.heilsuborg.is
Anna Rósa grasalæknir
hefur opnað stofu á Heilsuborg
Tímapantanir: annarosa@annarosa.is eða s: 662 8328
www.annarosa.is
TÓM VANDRÆÐI Silvio Berlusconi hefur
staðið í ströngu síðustu misseri og
þarf nú að endurskoða fyrirhugaðar
aðhaldsaðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍTALÍA Silvio Berlusconi er í tals-
verðum vandræðum með að
koma aðhaldsaðgerðum sínum
til framkvæmda, en hann þurfti
að hætta við fyrirhugaðan
hátekjuskatt vegna andstöðu
samstarfsflokka ríkisstjórnar-
innar.
Norðurbandalagið setti sig
upp á móti auknum hátekju-
skatti, en líka gegn niðurskurði
á framlögum til héraðsstjórna
og voru þau áform líka lögð til
hliðar.
Þetta skilur eftir sig fjögurra
milljarða gat í niðurskurðinum,
sem var nauðsynlegur til að fá
fyrirgreiðslu hjá Seðlabanka
Evrópu. Berlusconi hyggst fylla
upp í gatið með öflugri inn-
heimtu skatta. - þj
Berlusconi enn í klandri:
Þarf að hætta
við hátekjuskatt
Í Fréttablaðinu í gær var ranghermt
að Greining Íslandsbanka teldi endur-
reisn efnahagslífsins ódýra. Hið rétta
er að hluta endurreisnarinnar taldi
hún ódýrari en óttast hefði verið.
ÁRÉTTING
EFNAHAGSMÁL Samstarfsáætlun
Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (AGS) gekk vel og helstu mark-
mið áætlunarinnar náðust. Þetta er
niðurstaða starfsmanna AGS sem
sendu frá sér skýrslu um íslenska
hagkerfið í gær. Þar kemur fram að
veikur efnahagsbati sé hafinn þótt
atvinnuleysi sé enn mikið auk þess
sem verðbólguhorfur hafi versnað.
„Markmiðin sem sett voru í upp-
hafi hafa náðst og hefur grunnur
verið lagður að kröftugum efnahags-
bata,“ sagði Julie Kozack, yfirmaður
sendinefndar AGS gagnvart Íslandi,
á blaðamannafundi í gær. Þá sagði
Kozack að þegar haft væri í huga
hvernig staðan var á Íslandi þegar
samstarfið hófst væri ljóst að mikill
árangur hefði náðst.
Í skýrslu AGS eru talin upp þrjú
lykilmarkmið sem höfundar telja að
tekist hafi að uppfylla. Í fyrsta lagi
að gengi krónunnar sé orðið stöð-
ugt og hagstætt útflutningi. Þá hafi
tekist að koma í veg fyrir að gengið
myndi hrynja sem hefði haft mjög
slæm áhrif á innlenda eftirspurn.
Tekið er fram að gjaldeyrishöftin
hafi gegnt lykilhlutverki í því sam-
hengi.
Í öðru lagi segir í skýrslunni að
mikill árangur hafi náðst við að
koma ríkisfjármálunum á sjálfbæra
braut. Árangurinn geri það að verk-
um að unnt sé að ná markmiði um
opinberar skuldir upp á 60 prósent
af landsframleiðslu í fyrirsjáanlegri
framtíð. Þá hafi tekist að koma á fót
nýju og mun minna bankakerfi sem
hafi að fullu verið endurfjármagnað.
Þá segir í skýrslunni að vel heppn-
að skuldabréfaútboð ríkisins í júní
hafi verið stórt skref fram á við.
Starfsmenn AGS segja útlit fyrir
sæmilegan hagvöxt á næstu miss-
erum en hafa áhyggjur af því hvað-
an hagvöxtur til meðallangs tíma á
að spretta. Aflvaki hagvaxtar nú sé
fjárfesting og einkaneysla en óvissa
um fjárfestingar í tengslum við auð-
lindanotkun valdi áhyggjum. Þá er
tekið fram að ríkisstjórnin hafi ekki
kynnt með nægilega skýrum hætti
hvernig hún hyggist auka fjárfest-
ingu, sem valdi frekari óvissu.
Stefnt er að því að skuldir hins
opinbera lækki á næstu árum og
verði í kringum 80 prósent af lands-
framleiðslu árið 2016. Þá er gert ráð
fyrir að fjárlagaafgangur verði árið
2014, einu ári seinna en áður var
stefnt að.
Fjallað er um endurskipulagn-
ingu á skuldum heimila og fyrir-
tækja í skýrslunni. Þar segir að
endurskipulagningin hafi gengið
sífellt betur síðustu mánuði og að
nú sé útlit fyrir að verkefninu verði
lokið í lok þessa árs. Þá er lögð á
það áhersla að endurskipulagning
skulda fyrirtækja sé lykilatriði til
að búa í haginn fyrir hagvöxt og
sköpun starfa.
AGS segir áætlun stjórnvalda um
losun gjaldeyrishafta skynsamlega
og bætir við að fara verði varlega
við losunina þar sem nokkur áhætta
sé á að eitthvað fari úrskeiðis. Þá
geti dómsmál vegna Icesave og
neyðarlaganna haft slæm áhrif á
skuldastöðu ríkisins án þess þó að
skipta sköpum. magnusl@frettabladid.is
Grunnur verið lagður að
kröftugum efnahagsbata
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir helstu markmið samstarfsáætlunar sjóðsins og stjórnvalda hafa náðst.
Veikur efnahagsbati er hafinn og verði áfram haldið vel á spöðunum liggur leiðin upp á við, segir AGS.
ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS á Íslandi, og Julie Kozack, yfirmaður sendinefndar
sjóðsins gagnvart Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
25°
19°
19°
23°
26°
17°
17°
27°
21°
29°
27°
29°
21°
26°
25°
18°Á MORGUN
3-8 m/s, en stífari
á Vestfjörðum.
LAUGARDAGUR
Stíf SA-átt á V-fjörðum,
annars hæg breytileg.
13
13
12
14
14
14
13
13
12
9
12
7
9
12
15
10
6
5
7
6
6
8
1010
11
15
13 11
7 12
13
12
LÆGÐ VIÐ LAND
Stífur vindur af
suðaustri og væta
einkennir veðrið
syðra í dag en mun
fínna veður fyrir
norðan. Hægari
austlæg og síðan
norðaustlæg átt
á landinu næstu
daga og væta eink-
um eystra. Léttir
smám saman til
syðra um helgina.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Bréf sem íslensk stjórnvöld sendu
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í aðdraganda sjöttu
og síðustu endurskoðunar sjóðsins á samstarfs-
áætluninni við Ísland var birt í gær. Í bréfinu er
fjallað um áherslur stjórnvalda á næstu miss-
erum.
Helstu áskoranir stjórnvalda eru sagðar
losun gjaldeyrishafta, þróun peningamála-
stefnu til notkunar eftir að gjaldeyrishöft hafa
verð losuð, að klára að koma ríkisfjármálunum
á sjálfbæran grunn og að styrkja enn frekar
regluverk utan um fjármálakerfið. Þá er lögð
mikil áhersla á að endurskipulagning skulda
fyrirtækja gangi hratt fyrir sig.
Nokkuð er fjallað um ríkisfjármálin í bréfinu.
Þar kemur fram að verið sé að undirbúa álagn-
ingu umhverfisskatta og skatta á nýtingu auð-
linda. Kynntur verður nýr skattur á fjármála-
starfsemi og gerðar breytingar á skattlagningu
lífeyrissparnaðar. Þá verður hinn tímabundni
auðlegðarskattur framlengdur og kolefnis-
skattur gerður varanlegur. Loks verða fleiri
eignir ríkisins seldar á næstu árum. Einnig
kemur fram að virk leit standi yfir að leiðum til
að draga úr útgjöldum hins opinbera. Þau verði
áfram skorin niður á árunum 2012 til 2015.
Loks kemur fram í bréfinu að von sé á
skýrslu frá efnahags- og viðskiptaráðuneyt-
inu um íslenska fjármálakerfið. Með hliðsjón
af henni verður svo unnin löggjöf með það að
markmiði að styrkja eftirlit með fjármálakerf-
inu og að auka fjármálalegan stöðugleika. - mþl
Bréf íslenskra stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna endurskoðunar á samstarfsáætlun:
Skattar áfram hækkaðir og útgjöld skorin niður
ÝMIS VERKEFNI FRAM UNDAN Undir bréfið til AGS skrifa
Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Árni
Páll Árnason og Már Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN