Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 8
1. september 2011 FIMMTUDAGUR8
1. Með hverjum fundar Árni Páll
Árnason viðskiptaráðherra um
Icesave í næstu viku?
2. Hver er áætlaður kostnaður
vegna framkvæmda við byggingu
nýs Landspítala?
3. Hver leikur Hel í teiknimyndinni
Þór?
SVÖR
1. Yfirstjórn ESA. 2. Um 40 milljarðar. 3.
Katla Margrét Þorgeirsdóttir.
TÆKNI Fjárfestingarsjóðurinn
Frumtak hefur keypt hlut í töl-
fræði- og gagnafyrirtækinu
DataMarket fyrir 1,2 milljón-
ir dala, eða tæpar 140 milljónir
króna.
Hjálmar Gíslason, stofnandi og
framkvæmdastjóri DataMarket,
segir fjárfestinguna kærkomna
og fyrirtækið muni nú geta leitað
út fyrir landsteinana á erlendan
markað.
DataMarket hjálpar fólki að
finna og skilja töluleg gögn úr
alls konar gagnabönkum, ekki
síst með myndrænni framsetn-
ingu.
„Við höfum verið að þróa þessa
vöru í nokkurn tíma og nú verður
henni komið í verð. Féð frá Frum-
taki verður mestmegnis notuð í
markaðsstarf,“ segir Hjálmar.
„Við erum nú að einbeita okkur
að austurströnd Bandaríkjanna.
Það er alveg ljóst að það er ekki
um mjög auðugan garð að gresja
á markaðnum hér á landi.“
Fyrirtækið undirbýr nú opnun
söluskrifstofu í New York. Síðan
í janúar síðastliðnum hefur
verið lögð meiri áhersla á öflun
og úrvinnslu erlendra gagna og
segir Hjálmar að sú vinna muni
halda áfram. Meðal annars er
unnið úr gögnum frá Sameinuðu
þjóðunum, Alþjóðabankanum, og
Eurostat.
„Þróunin verður áfram hér á
landi en sölu- og markaðsstarfið
þarf að vera þar sem kúnnarnir
eru.“
Fjárfestingarsjóðurinn Frum-
tak er í eigu íslensku bankanna,
lífeyrissjóðanna og Nýsköpunar-
sjóðs. - sv
Frumtak kaupir 140 milljóna króna hlut í fyrirtæki sem hjálpar fólki að :
DataMarket leitar út fyrir landsteinana
HJÁLMAR GÍSLASON DataMarket stefnir
nú á að opna söluskrifstofu í New York.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÝRLAND, AP Að minnsta kosti 88 manns hafa látið
lífið í fangelsum í Sýrlandi síðustu fimm mánuði,
eða frá því að mótmæli og uppreisn gegn Bashar
Assad forseta hófust. Tíu hinna látnu voru á barns-
aldri.
Þetta fullyrða alþjóðlegu mannréttindasamtök-
in Amnesty International, sem hafa safnað saman
frásögnum fólks, meðal annars af pyntingum sem
fangar eru beittir.
„Þessi mannslát í fangelsum eru að verða óheyri-
lega mörg og virðast vera framhald á þeirri sömu
grimmdarlegu lítilsvirðingu fyrir mannslífum sem
við sjáum daglega á götum Sýrlands,“ segir Neil
Sammonds hjá Amnesty International.
Í nýrri skýrslu frá samtökunum um mannslát
í fangelsum í Sýrlandi segir að ummerki á líkum
hinna látnu sýni að sumir þeirra hafi mátt þola bar-
smíðar, svipuhögg, stungur og bruna.
Undanfarin ár hafa að meðaltali fimm manns
látist árlega í fangelsum í Sýrlandi, að sögn sam-
takanna. Þessi gríðarlega fjölgun kemur heim og
saman við það að handtökum hefur fjölgað mjög
síðan uppreisnin hófst.
Samtökin segjast hafa upplýsingar um meira en
1.800 manns sem sagðir eru hafa beðið bana síðan
uppreisnin hófst. Þúsundir að auki hafa verið hand-
teknar. - gb
Amnesty International gagnrýnir stjórnvöld í Sýrlandi fyrir illa meðferð fanga:
Nærri níutíu látist í fangelsi
HERMENN Í SÝRLANDI Sýrlenska stjórnin hefur gripið til
harkalegra aðgerða gegn mótmælendum. NORDICPHOTOS/AFP
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM
Costa del Sol
Allra síðustu sætin 10. september
í 10 nætur
Frá aðeins kr.
109.000 með allt innifalið
Heimsferðir bjóða frábæra 10 nátta ferð til Costa del Sol þann 10.
september. Í boði er einstakt sértilboð á Griego Mar hótelinu.
Gríptu þetta tækifæri og skelltu þér í frábæra ferð til Costa del
Sol og njóttu lífsins á hreint ótrúlegum kjörum.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði
verð getur hækkað án fyrirvara.
Hotel Griego Mar ***
Kr. 109.000 - með „öllu inniföldu”
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi með
„öllu inniföldu” í 10 nætur.
Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu” kr. 129.900.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.
MENNTAMÁL Menntamálaráðuneyt-
ið hyggst breyta orðalagi nýrrar
reglugerðar um lán til íslenskra
námsmanna erlendis vegna mis-
munandi túlkana á henni.
„Ráðuneytið
hefur ákveðið
að breyta orða-
lagi reglugerð-
arinnar. Það
kom upp ólík
túlkun, annars
vegar hjá lög-
fræðingi LÍN
og hins vegar
hjá ráðuneyt-
inu. Til að taka
af allan vafa verður orðalaginu
breytt þannig að ekki komi upp sú
staða að fólk lendi á milli kerfa eða
standi uppi réttindalaust,“ segir
Elías Jón Guðjónsson, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra.
Hann segir námsmenn hafa
þurft að bíða eftir afgreiðslu vegna
óvissunnar um túlkunina.
Eygló Harðardóttir alþingismað-
ur segir að samkvæmt orðanna
hljóðan hafi til dæmis mátt túlka
reglugerðina á þann hátt að þeir
sem eru í grunnháskólanámi
erlendis eigi ekki rétt á láni til
meistaranáms. „Mér finnst sjálf-
sagt og eðlilegt að þetta sé leiðrétt
þannig að fólk sé ekki að detta á
milli kerfa.“
Samkvæmt nýju reglugerðinni
þurfa umsækjendur um námslán
annaðhvort að hafa stundað launuð
störf hér á landi síðustu 12 mán-
uði fyrir umsóknardag og haft
samfellda búsetu hér á sama tíma
eða að hafa stundað launuð störf
í skemmri tíma en 12 mánuði og
haft búsetu hér á landi í tvö ár
samanlagt á samfelldu fimm ára
tímabili.
Guðrún Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, LÍN, segir reglugerð-
ina vera í anda þess sem verið sé
að gera hjá öðrum Norðurlanda-
þjóðum. „Við erum ekki að setja
harðari reglur en þær,“ segir Guð-
rún.
Eftir ákveðinn búsetutíma á
Norðurlöndum öðlast Íslendingar
rétt til námsláns og styrkja þar.
„Það fá til dæmis margir Íslend-
ingar framfærslustyrk hjá Dönum
í stað námsláns sem þykir vinsæll
kostur. Þessir námsmenn eru þá
búnir að vera nægilega lengi í
Danmörku til þess að komast á
svona styrk. Svona styrkir eru
einnig veittir í Noregi og Svíþjóð
en í þessum löndum er meira um
námslán en í Danmörku. Danir
veita hlutfallslega mestu styrkina
en eru þó að tala um að takmarka
þá fyrir aðra en danska ríkisborg-
ara. Almennt eru þrengri reglur
á Norðurlöndunum varðandi nám
erlendis en til náms í heimalandi.“
Elías Jón segir breytingu
menntamálaráðuneytisins verða
birta við fyrsta tækifæri.
ibs@frettabladid.is
Komið í veg fyrir að
fólk detti milli kerfa
Óvissa var um túlkun nýrrar reglugerðar um lán til íslenskra námsmanna
erlendis. Orðalaginu verður breytt til að taka af allan vafa til að námsmenn
standi ekki uppi réttindalausir. Íslendingar fá styrki og lán á Norðurlöndum.
NÁMSMENN Ný reglugerð um námslán hefur valdið óvissu hjá þeim sem hyggja á
nám erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
VEISTU SVARIÐ?