Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 10
1. september 2011 FIMMTUDAGUR
Við leitum að
góðu fólki
Á vefnum getur þú með einföldum hætti
flett í gegnum og skoðað atvinnuauglýsingar
Fréttablaðsins. Þú kaupir atvinnuauglýsingu
í Fréttablaðinu - öflugasta auglýsingamiðli
landsins og hún birtist frítt í heila viku á
einum stærsta vefmiðli landsins –
og Fréttablaðið kynna
nýjan og öflugan atvinnu-
og raðauglýsingavef
...ég sá það á visir.is
LÍBÍA Víða í Líbíu notar fólk föstu-
lokin til að fagna falli Múamm-
ars Gaddafí, þótt hann sé enn ekki
fundinn og stuðningsmenn hans
hafi ekki allir gefist upp.
Bráðabirgðastjórn þjóðarráðs
uppreisnarmanna hefur beðið
NATO um áframhaldandi stuðn-
ing, en vill ekki þiggja friðar-
gæslulið frá Sameinuðu þjóðunum.
Uppreisnarmenn búa sig undir
lokabaráttu við stuðningsmenn
Gaddafís, sem enn eru við völd í
borgunum Sirte og Sebha. Þeir
hafa gefið uppreisnarmönnum í
Sirte frest fram á laugardag að
semja um uppgjöf, en eftir það
verði látið sverfa til stáls. Þar á
eftir kæmi röðin að Sebha.
Abdel Hakim Belhaj, yfirmað-
ur herliðs uppreisnarmanna í Trí-
polí, segir að al-Saadi, einn sona
Gaddafís, hafi haft samband við
sig símleiðis á þriðjudag að ræða
uppgjafarskilmála. Al-Saadi hafi
viljað fá tryggingu fyrir því að sér
yrði ekki gert mein. Belhaj segir
að farið verði að lögum, þegar al-
Saadi gefi sig fram. Hann þurfi
ekki að óttast að honum verði gert
mein.
Mikil óvissa ríkir um fram-
tíðina, bæði hvers konar samfé-
lagi uppreisnarmenn vilja koma
á í landinu og eins hvort þeir eru
nægilega samhuga til þess eða
hvort þeir hafa meirihlutastuðn-
ing meðal almennings.
Leiðtogar á Vesturlöndum gera
sér margir hverjir vonir um að
lýðræðislegt fyrirkomulag verði
ofan á, en fyrirfram er ómögulegt
að segja hvort sú verður raunin.
Í Líbíu er þó fyrir hendi grunn-
ur að lýðræðiskerfi, sem gæti virk-
að því Gaddafí kom upp í landinu
kerfi borgarafunda sem á hverjum
þéttbýlisstað kusu reglulega full-
trúa sína á þjóðþing landsins. Að
vísu bara að forminu til, en upp-
reisnarmenn hafa notfært sér
svipað kerfi til að koma skipulagi
á starfsemi sína.
Í landinu búa að vísu margir
ættbálkar, sem gætu tekið upp á
því að berjast um völdin, en sér-
hagsmunir þeirra rista ekki jafn
djúpt nú og þegar Gaddafí komst
til valda fyrir fjórum áratugum.
Vesturlönd hafa að minnsta kosti
ákveðið að veðja á leiðtoga upp-
reisnarmanna og ætla að styrkja
þá til verka með stórum fjár-
hæðum, bæði með því að aflétta
frystingu fjármuna og með því að
útvega þeim beinharða peninga í
kassann. Á morgun verður efnt til
ráðstefnu í París, þar sem fulltrú-
ar frá tugum ríkja ætla að ræða
um framtíð Líbíu og uppbygg-
inguna, sem þar er fram undan.
gudsteinn@frettabladid.is
Sigri uppreisnarliðs
fagnað við föstulok
Uppreisnarmenn í Líbíu búa sig undir lokabaráttu við stuðningsmenn Gaddafís.
Þeir vilja stuðning NATO áfram en ætla ekki að þiggja friðargæslulið frá Sam-
einuðu þjóðunum. Gaddafí er ófundinn en einn sona hans hefur beðist griða.
EFTIRLIT Uppreisnarmenn stöðva bifreiðar á eftirlitsstöðvum umhverfis borgina Sirte, þar sem stuðningsmenn Gaddafís halda
enn út. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Fjölsmiðjan í Kópa-
vogi fékk á dögunum veglegan
styrk frá Eimskipafélagi Íslands.
Eimskip gaf Fjölsmiðjunni, sem
er vinnusetur fyrir ungt fólk á
krossgötum, tölvubúnað sem hætt
var að nota. Vonast er til að tölv-
urnar nýtist vel.
Að Fjölsmiðjunni standa meðal
annars Rauði Krossinn, velferðar-
ráðuneytið, vinnumálastofnun og
sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu. Fjölsmiðjan hefur verið rekin
frá árinu 2001 og innan hennar eru
starfræktar sjö deildir fyrir fólk á
aldrinum 16 til 24 ára. - þj
Eimskip styrkir starfsemi fyrir ungt fólk á krossgötum:
Fjölsmiðjan fær gjöf
GÓÐ GJÖF Þorbjörn Jensson veitir gjöf-
inni viðtöku frá Kristjáni Þóri Hallbjörns-
syni, forstöðumanni hjá Eimskipum.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akra-
nesi handtók fyrir skemmstu tvo
menn sem grunaðir voru um inn-
brot í fyrirtæki og voru staðnir
að því að gramsa í bátum í höfn-
inni.
Annar var handtekinn um borð
í skipi og var hann búinn að róta
þar talsvert. Skömmu síðar var
svo annar handtekinn við höfn-
ina. Rannsókn leiddi í ljós að
farið hafði verið inn í tvo báta og
gúmmíbjörgunarbátur blásinn
upp í skipi. Vistataska hafði verið
tekin úr björgunarbátnum. - jss
Tveir menn handteknir:
Óboðnir gestir í
bátum á Skaga
LÖGREGLUMÁL Fjölmennt lögreglulið
var kallað að Breiðagerði í Reykja-
vík fyrir hádegi í gær þegar hópur
fólks reyndi að koma í veg fyrir að
kona yrði borin út af heimili sínu.
Til ryskinga kom á milli lögreglu og
mótmælenda og eftir samningavið-
ræður var ákveðið að fresta útburð-
inum.
Fulltrúi sýslumannsins í Reykja-
vík mætti að húsinu klukkan tíu í
gærmorgun. Hann hugðist bera íbú-
ann, hálffimmtuga konu, út vegna
vanskila. Um þrjátíu manna hópur
úr samtökunum Heimavarnarliðinu
varnaði fulltrúanum hins vegar inn-
göngu og því var lögregla kölluð til.
Viðskiptum lögreglu og mótmæl-
enda lauk með því að nokkrir mót-
mælendanna voru færðir á brott.
Íbúinn neitaði hins vegar enn að
opna útidyrnar fyrir sýslumanns-
fulltrúanum og var því kvaddur til
lásasmiður sem dírkaði upp lásinn.
Eftir nokkrar viðræður íbúans og
sýslumannsfulltrúans varð það úr
að útburðinum var frestað og ákveð-
ið að skjóta málinu til úrskurðar-
nefndar um viðskipti við fjármála-
fyrirtæki, en Arion banki hefur
verið þinglýstur eigandi hússins í
tvö ár. - sh
Fjölmennt lögreglulið tókst á við Heimavarnarliðið í Breiðagerði:
Útburði frestað eftir mótmæli
RÆÐAST VIÐ Íbúinn, Anna Lilja Valgeirs-
dóttir, kom úr úr húsinu eftir viðræður
við fulltrúa sýslumanns og tilkynnti
mótmælendum að samningar hefðu
náðst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI