Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 12
1. september 2011 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Tillögur um breytingar á sjávarútvegsstefnu ESB
Í tillögum um breytta fisk-
veiðistefnu ESB er gert
ráð fyrir lengri nýtingar-
samningum og minni kvóta-
pottum en í kvótafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar,
auk þess sem auðlindagjald
takmarkist við að standa
undir kostnaði við stjórn-
sýslu.
Stuttur nýtingartími, víðtækt
vald ráðherra til úthlutunar afla-
heimilda, bann við framsali heim-
ilda og takmarkanir á leigu eru
meðal þátta sem hagsmunaaðilar
í sjávarútvegi hafa fett fingur út í
og telja að geta aukið óhagkvæmni
og skert rekstrargrundvöll fyrir-
tækja í greininni.
Forvitnilegt er því að bera þau
atriði saman við tillögur fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB) um breytingar á
sameiginlegri sjávarútvegsstefnu
sambandsins sem kynnt var á dög-
unum.
Sjávarútvegsstefna ESB hefur í
gegnum árin verið gagnrýnd harð-
lega fyrir óhagkvæmni, ofveiði og
gríðarlegt brottkast sem þar hefur
tíðkast. Fyrirhugaðar umbætur,
sem nú eru komnar til umræðu í
ráðherraráði sambandsins og Evr-
ópuþinginu, taka á þeim vankönt-
um með ýmsum hætti til að tryggja
sjálfbærni og arðsemi greinarinn-
ar.
Margs konar álitaefni
Meðal þess sem fram kemur í til-
lögum Evrópusambandsins er að
framsal aflaheimilda er leyft, sem
og leiga, með takmörkunum. Það er
þvert á íslenska fiskveiðistjórnun-
arfrumvarpið sem bannar fram-
sal á aflaheimildum og setur leigu
strangari skilyrði en nú er.
Drög Evrópusambandsins miða
við að heimilt sé að takmarkað nýt-
ingartíma við 15 ár hið minnsta, en
séu engin tímamörk í núverandi
reglugerðum aðildarríkja verður
frestur til innköllunar heimilda
að minnsta kosti 15 ár. Í fiskveiði-
stjórnunarfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar er einnig gert ráð fyrir 15
ára nýtingartíma, sem mögulegt er
að framlengja um 8 ár til viðbótar.
Íslenska frumvarpið gerir ráð
fyrir að veiðigjald verði tvöfaldað
og verði 19% af framlegð sjávar-
útvegsfyrirtækja. Hugmyndir
ESB gera ráð fyrir að heimilt sé
að leggja á afnotagjald, en einung-
is til að standa straum af kostnaði
við rekstur kerfisins.
Varðandi hina svokölluðu
potta, sem er ákveðin hlutdeild af
heildaraflaheimildum sem fram-
kvæmdavaldið getur ráðstaf-
að, gera ESB-drögin ráð fyrir að
þeir verði ekki stærri en
fimm prósent aflaheim-
ilda. Íslenska frumvarpið
kveður hins vegar á um
að 15 prósent fari í potta.
Í skýrslu sem sérfræði-
hópur sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
gerði um væntanleg hag-
ræn áhrif frumvarpsins
var sérstaklega vikið að
hlutfalli aukinna afla-
heimilda í þorski sem
hafna á í pottunum. Gert
er ráð fyrir því að 45
prósent aukinna þorsk-
aflaheimilda, frá þeim
160.000 tonnum sem nú
er, muni fara í pottana,
sem myndi ná helmingi
ef aflaheimildir færu
yfir 200.000 tonn.
Sérfræðiskýrslan
vitnar hins vegar í spá
Alþjóðahafrannsóknaráðsins sem
gerir ráð fyrir að þorskafli við
Ísland nái 250.000 tonnum 2018.
Verði af því, munu rúm 40.000
tonn af þorskkvóta renna í pott-
ana til viðbótar við þau 15 prósent
sem fara í pottana til að byrja með.
ESB þokast í rétta átt
Þórólfur Matthíasson, hagfræði-
prófessor segir í samtali við
Fréttablaðið að þessi áform ESB
séu í samræmi við þróun mála-
flokka þar. „Kerfin í Evrópusam-
bandinu eru að þróast í átt að meiri
skilvirkni. Menn átta sig á því að
eitthvað er ekki að ganga upp eins
og það átti að gera. Menn eru að
reyna að gera þetta þannig að það
skili hagkvæmari framkvæmd
stefnunnar fyrir samfélagið í
heild.“
Þórólfur bætir við að núverandi
fiskveiðikerfi Íslendinga mætti,
að hans mati, reka óbreytt innan
ESB. Hann segir hins vegar margt
í frumvarpinu orka tvímælis,
meðal annars nýtingartímann.
„Í raun er nýtingartíminn í
frumvarpinu skemmri, vegna
þess að endurskoðun á kerfinu á
að hefjast þegar helmingur þess-
ara 15 ára er liðinn. Þannig að í
sjálfu sér gætu stjórnvöld komið
fram með tilkynningu eftir 7-8 ár
þar sem kerfið í heild er afturkall-
að bótalaust.“
En telur Þórólfur þá að hags-
mu nu m í s len sk ra
útvegsmanna gæti jafn-
vel verið betur borgið
innan þess kerfis sem
framkvæmdastjórn ESB
hefur lagt til?
„Samkvæmt yfirlýs-
ingum útvegsmanna
myndu þeir væntanlega
eiga auðveldara með að
starfa innan endurbætts
kerfis ESB.“
Ragnar Árnason hag-
fræðingur segir í sam-
tali við Fréttablaðið,
spurður um samanburð
á tillögunum að þær leiti
hvor í sína áttina. „Ann-
ars vegar eru Íslend-
ingar að fara úr nokkuð
góðu aflamarkskerfi, í
miklu slakara kerfi, á
meðan ESB er að reyna
að fikra sig úr mjög
slæmu kerfi yfir í aflamarkskerfi
með frávikum og undanþágum til
að mæta byggðasjónarmiðum.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landsambands
íslenskra útvegsmanna, segir að
frumvarp ríkisstjórnarinnar feli í
sér ákveðið afrek.
„Það hlýtur að teljast hreint
afrek að gera löggjöf um íslenska
fiskveiðistjórnun verr úr garði en
það sem Evrópusambandið er að
gera.“
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
kemur væntanlega fyrir Alþingi
í haust. Vonast er til þess að ný
sjávar útvegsstefna ESB taki gildi
í ársbyrjun 2013.
Samkvæmt
yfirlýsingum
útvegsmanna
myndu þeir
væntanlega
eiga auðveld-
ara með að
starfa innan
endurbætts
kerfis ESB.
ÞÓRÓLFUR
MATTHÍASSON
HAGFRÆÐINGUR
Finndu það vítamín sem hentar þér
og þú færð öll næringarefni sem þú þarfnast.
Kynntu þér vítamínin nánar á Vitabiotics síðunni á Facebook.
VITABIOTICS VÍTAMÍNLÍNAN
fæst í öllum verslunum Lyfja & heilsu
Vitabiotics vítamínum
20% afsláttur af
í Lyfjum & heilsu
við hlustum!
afslátturinn gildir til 30. september 2011
Allt sem þú þarft
N1 þjónustustöð, Aðalstöðinni, Keflavík
10-11, Keflavík
N1 verslun, Keflavík
Olís, Básinn, Reykjanesbæ
Samkaup Strax, Reykjanesbæ
10-11, Leifsstöð
Eymundsson, Leifsstöð
Tíu ellefu Hraðkaup, Reykjanesbæ
*Meðan birgðir endast
Nettó, Grindavík
Samkaup Strax, Sandgerði
Samkaup Strax, Garði
Bónus, Fitjum, Njarðvík
Þú færð Fréttablaðið á 12 stöðum á Suðurnesjum.
Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt
um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar.
Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt.
Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða
spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða fengið það sent
með tölvupósti daglega.
Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing.
Það fá allir afmælisblöðru*
á sölustöðum Fréttablaðsins
um land allt.
Fjöldi lausasölustaða á Suðurnesjum
Jákvæðar fréttir
fyrir sumarið
SKIPTAR SKOÐANIR UM FISKVEIÐIKERFI Breytingar standa fyrir dyrum á fiskveiðistefnu bæði í ESB og á Íslandi. Íslenska frum-
varpið er umdeilt og ESB-leiðin gæti verið hagkvæmari fyrir sjávarútvegsfyrirtæki hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Áform ESB hagkvæmari
en kvótafrumvarpið