Fréttablaðið - 01.09.2011, Side 18
1. september 2011 FIMMTUDAGUR18 18
hagur heimilanna
Neytendur geta valið sér
þann raforkusala sem býður
besta verðið. Íbúar Reykja-
víkur geta til dæmis skipt
við Orkubú Vestfjarða eða
HS orku ef þeim sýnist
það vera hagstæðara en að
kaupa raforkuna af Orku-
veitu Reykjavíkur. Dreif-
ingu raforkunnar verða
neytendur hins vegar að
kaupa af þeirri dreifiveitu
sem bundin er svæðinu sem
þeir búa á.
Hægt er að gera samanburð á
verði raforkusalanna í sérstakri
samanburðarreiknivél Orkustofn-
unar og Neytendastofu á vefsíðu
Orkustofnunar, www.orkustofn-
un.is. Samkvæmt nýrri verðkönn-
un ASÍ hafa rafmagnsreikningar
þeirra sem skipta við Orkuveitu
Reykjavíkur hækkað meira en hjá
öðrum á einu ári eða um 20 pró-
sent.
Lengst af hefur verið lítill
munur á verði raforkusala, sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
frá Orkustofnun. Á undanförnum
fimm árum hafa fyrirtækin sem
skipt hafa um raforkusala verið
fleiri en einstaklingarnir, að því
er sjá má í töflu á vefsíðu Netorku.
Leiðbeiningar um skiptin er að
finna á vefsíðu Orkustofnunar. En
hvort sem neytendur skipta um
raforkusala eða ekki er hægt að
gera ýmsar ráðstafanir til þess að
draga úr rafmagnsnotkun.
Á vefsíðu HS Veitna segir að
dæmigerð skipting rafmagnsnotk-
unar meðalfjölskyldu sé þannig:
1. Þvottatæki 28%
2. Lýsing 17%
3. Kælitæki 19%
4. Eldunartæki 24%
5. Önnur notkun 1 2%
1. Þvottatækin: Bent er að á þvotta-
vélin notar 30% minni orku sé hit-
inn lækkaður um þriðjung. Að
sleppa forþvotti sparar 20% orku.
Sparnaðarhnappinn á uppþvotta-
vélinni ætti að nota sem oftast. Þvo
á upp sem fyrst til þess að matar-
leifar nái ekki að þorna. Þá nægir
styttra þvottakerfi og lægra hita-
stig.
2. Lýsingin: Mikilvægt er að nota
ekki stærri perur en þarf. Jafn-
framt þarf að gæta þess að lampa-
búnaðurinn dragi ekki um of úr
birtu. Oft loga ljós að óþörfu þar
sem enginn hefst við.
3. Kælitækin: Frystikistan notar
5% minna rafmagn fyrir hvert
stig sem umhverfishitinn er lægri.
Innilokuð og rykug kælirist á bak-
hlið kistunnar getur valdið 30%
meiri rafmagnsnotkun.
Léleg loftræsting bak við kæli-
skápinn getur valdið 5 til 10%
meiri rafmagnsnotkun.
4. Eldunartækin: Nota á þétt lok á
potta og pönnur. Ef lokið er ekki
á pottinum þarf tvöfalt meiri orku
en ella. Ósléttur botn getur valdið
40% meiri rafmagnsnotkun. Um
20% orkunnar fara til spillis ef
potturinn er til dæmis 2 cm minni
í þvermál en hellan.
5. Önnur tæki: Mörg heimilis-
tæki sem búin eru fjarstýringu
nota rafmagn þótt þau séu ekki
í gangi, eins og sjónvörp, hljóm-
tæki og fleiri. Með því að slökkva
alveg á þeim sparast rafmagn auk
þess sem hætta á íkveikju minnk-
ar. Hleðslutæki á að taka úr sam-
bandi þegar þau eru ekki í notkun.
Hægt að spara
hjá nýjum
raforkusala
HORFT Á SJÓNVARP Ekki er nóg að slökka á sjónvarpstækinu með fjarstýringunni ef
spara á rafmagn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grænatún 1
200 Kópavogur
Sími 554 4025
www.hrund.is
• 20% afsláttur af Clarins vörum
• Kaupauki að verðmæti 11.000 kr. ef verslað er
fyrir 6.900 kr. eða meira
• Glaðningur fylgir ef bókaður er tími í meðferð
• Fáðu prufu sem hentar þinni húðtegund
Kynningardagar CLARINS Snyrtistofunni Hrund
Í dag 1. september og á morgun 2. september
Danski læknirinn Jerk W. Langer, sem þekktur er fyrir fyrirlestra um hollustu og heilbrigði,
bendir á að innflutt bláber sem til sölu eru í verslunum séu oft ljósari að innan en nor-
rænu villtu berin. Þá vanti í innfluttu berin hollu efnin sem bláberin fái blárauða
litinn af. Þess vegna eigi neytendur að opna eitt bláber í versluninni áður en þeir
taka ákvörðun um að kaupa berin.
Læknirinn segir villt, klassísk norræn bláber með góð andoxunarefni.
Hann vill ekki fullyrða að bláber séu töfraávöxtur eða hollasti ávöxturinn sem
til er þótt þau innihaldi meðal annars c-vítamín, omega-3-fituefni og trefjar auk
þess sem í þeim eru kolvetni sem halda blóðsykrinum í jafnvægi og séu þar
með mettandi.
Mikilvægt sé að borða fjölbreytt úrval ávaxta með mismunandi næringarinnihald.
■ Matvæli
Bláberin holl þegar þau eru blárauð að innan
HÆKKUN varð á kílóverði á stórlúðu frá 2004
til 2010 samkvæmt gögnum frá Hagstofunni. 94%
„Bestu kaupin eru reyndar ekki mín eigin kaup – heldur
Árna afa míns,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur.
„Afi keypti teinótt jakkaföt í kringum 1956, að ég held hjá
Andrési á Skólavörðustíg, ég notaði þau sem útskriftarföt
árið 1993 og hef notað jakkann reglulega síðan.“ Andri
bætir við að hann hafi þó lagt jakkafötum afa síns í smá
tíma árið 2008. „Þá var teinótt ekki alveg málið. En það
hefur lagast. “
Andri telur að ef hlutir hefðu almennt jafn góðan
endingartíma og jakkafötin frá Skólavörðustígnum, væri
ekki búið að útrýma mörgum lífverum jarðar. Hann bendir
einnig á góð kaup sem hann gerði sjálfur, Nokia 6110
farsíma, keyptan árið 2001. „Hann virkar ennþá og eyðir
ekki tíma mínum í Internet eða Angry Birds. Reyndar eru
heildarsímreikningar komnir á aðra milljón,“ segir Andri
Snær.
Verstu kaupin sem rithöfundurinn hefur gert er
armbandsól sem hann keypti af götusala á Indlandi. Ólin
slitnaði um leið og hann festi ólina, sem átti að virka sem
ól fyrir armbandsúr, á handlegginn. Úr því varð ekki.
NEYTANDINN: ANDRI SNÆR MAGNASON RITHÖFUNDUR
Teinóttu jakkafötin hans
afa hafa komið sér vel