Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 22
1. september 2011 FIMMTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
Fyrirtæki í sjávarútvegi
fjárfesta ekki lengur í nýrri
íslenskri tækni. Fram-
kvæmdastjóri 3X Techno-
logy á Ísafirði segir orðið
ómögulegt að vinna hér.
„Það er sárara en tárum taki að
íslenskur sjávarútvegur er að
tapa forskoti sínu því tæknifram-
farir í sjávarútvegi eru að færast
úr landi,“ segir Jóhann Jónasson,
framkvæmdastjóri 3X Techno-
logy á Ísafirði.
Þetta er í samræmi við athug-
un Íslenska sjávarklasans á veltu
tæknifyrirtækja sem tengjast
sjávarútvegi.
Vi n n a v ið
verkefnið
hefur leitt í ljós
að um sjötíu
tæknifyrirtæki
fluttu út tækja-
b ú n a ð e ð a
vörur tengdar
sjávar-útvegi
f y r i r r ú m a
sextán milljarða króna í fyrra.
Áætlað er að hann aukist um fjóra
milljarða á þessu ári, eða um 25
prósent.
Á sama tíma nam veltan á inn-
anlandsmarkaði ellefu milljörð-
um króna í fyrra. Búist er við lít-
ils háttar samdrætti í ár. Ekki er
gert ráð fyrir að eftirspurn aukist
á innanlandsmarkaði á næstunni
þrátt fyrir uppsafnaða endurnýj-
unarþörf hjá sjávarútvegsfyrir-
tækjum.
Tæknifyrirtækið 3X Techno-
logy hefur þróað tækjalausn-
ir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki
víða um heim frá 1994 og hlaut
Útflutningsverðlaun forseta
Íslands fyrir fimm árum fyrir að
hafa náð árangri í sölu og mark-
aðssetningu á sérhönnuðum tækj-
um og tækjalausnum fyrir mat-
vælaiðnað.
Jóhann bendir á að frá því um
mitt ár 2007 þegar þorskkvótinn
var skorinn niður um þrjátíu pró-
sent hafi ríkt stöðnun í sjávarút-
vegi. Óvissa um fiskveiðistjór-
nunarkerfið bæti ekki ástandið.
„Það er ekki búist við að nokk-
uð gerist hér næstu árin. Maður
myndi vilja vinna heima en það
er ljóst að af því verður ekki,“
segir Jóhann sem staddur var í
skosku hálöndunum í vikubyrjun
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hann. „Við erum að ná okkur
í verkefni þar,“ segir hann.
jonab@frettabladid.is
Það er ekki búist við
að nokkuð gerist hér
næstu árin. Maður myndi
vilja vinna heima en það er
ljóst að af því verður ekki.“
JÓHANN JÓNASSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
3X TECHNOLOGY.
AFLI DREGINN UPP Framkvæmdastjóri 3X Technology segir sjávarútvegsfyrirtæki
ekki hafa fjárfest í nýrri tækni og tækjabúnaði síðan um mitt ár 2007 þegar
þorskkvóti var skorinn niður um 30 prósent. Óvissa bætir ekki ástandið, segir
hann. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
JÓHANN JÓNASSON
Sjávarútvegurinn er að staðna
MILLJARÐAR KRÓNA eru þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu nam 86 milljörðum króna á
fjórðungnum en innflutningur 70,1 milljarði. Halli á ferðaþjónustu nam 800 milljónum króna.
Sjávarklasinn er sjálfstætt fyrirbæri, sprottið upp úr doktorsverkefni Þórs
Sigfússonar, fyrrverandi forstjóra tryggingafélagsins Sjóvár, í alþjóðavið-
skiptum við Háskóla Íslands. Verkefnið felst í því að kortleggja umfang
sjávarútvegsins og skoða hvaða fyrirtæki tengjast honum. Nú þegar liggur
fyrir að sjö hundruð fyrirtæki starfa í sjávarútvegsklasanum og eru starfs-
menn þeirra ríflega tólf þúsund talsins. Þá hefur komið í ljós að velta tækni-
fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi nam 26 milljörðum króna í fyrra. Þetta
eru tæp tíu prósent af heildarumfangi sjávarútvegsfyrirtækja á sama tíma.
Hvað er Íslenski sjávarklasinn?
15,9
Klæddu þig velwww.66north.is
Höfuðborgarsvæðið: Bankastræti 5, Faxafen 12,
Kringlan, Smáralind og Miðhraun 11 Akureyri: Glerártorg
Kefl avík: Leifsstöð og söluaðilar um allt land
LAKI
Einstaklega mjúk og lipur dúnúlpa úr vatns-
fráhrindandi næloni. Skjólgóð hetta með
þvottabjarnarskinni sem hægt er að smella
af. Einangruð með 90/10 dúnfyllingu.
Tveir renndir utanávasar og einn renndur
innanávasi. Smelltur stormlisti að utan
og laus stormlisti að innan. Mjúkt stroff
og þrengingar á ermum.
Hlý og góð dúnúlpa fyrir veturinn.
Stærðir: S - 2XL Verð: 47.500 kr.
„Þegar ég tók við var eitt af því sem
ég lagði áherslu á að styrkja MP
Banka á sviði fyrirtækjaráðgjaf-
ar. Það er kjarninn í fjárfestingar-
bankastarfsemi bankans sem hafði
kvarnast úr,“ segir Sigurður Atli
Jónsson, forstjóri MP Banka.
Bankinn tilkynnti í gær að hann
hefði samið um kaup á fyrirtækja-
ráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka.
Með í kaupunum fylgja sex starfs-
menn, viðskiptavinir, réttindi og
skyldur.
Kaupverð er trúnaðarmál, að sögn
Sigurðar Atla, sem tók við forstjóra-
stólnum hjá MP Banka í byrjun júlí.
- jab
MP Banki kaupir ráðgjafarsvið:
Forstjórinn vill
stækka bankann
Miðengi, dótturfélag Íslandsbanka,
og fjármögnunarfyrirtækin SP
Fjármögnun og Lýsing hafa ákveð-
ið að setja eignarhaldsfélagið BLIH
í formlegt söluferli. Félagið á bíla-
umboðin Ingvar Helgason og Bif-
reiðar og landbúnaðarvélar (B&L).
Eigendur bílaumboðanna urðu
illa úti í banka- og gengishruninu
haustið 2008. Þegar þeir gátu ekki
staðið við skuldbindingar sínar
misstu þeir fyrirtækin úr höndun-
um í fyrra. Ofangreindir kröfuhaf-
ar eignuðust svo félögin í kjölfar
lánaafskrifta snemma á þessu ári.
- jab
Tvö bílaumboð sett í söluferli:
Banki opnar
bílskúrinn