Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 1. september 2011 25
Alþingi ákvað í samræmi við tillögur Rannsóknarnefndar
Alþingis að efna til endurskoð-
unar stjórnarskrárinnar frá
1944. Gömlu Gránu var aðeins
ætlað að standa til bráðabirgða.
Endurskoðun hennar hefur þó
miðað hægt vegna ósamkomu-
lags milli stjórnmálaflokka um
ýmis mál. Alþingi ákvað því af
ærnu tilefni eftir hrun að kveðja
saman þjóðfund, skipa stjórn-
laganefnd, efna til þjóðkjörs
til Stjórnlagaþings og skipa
síðan eftir makalausa ógildingu
Hæstaréttar á kosningunni 25
kjörna fulltrúa í Stjórnlagaráð,
sem var falið að gera tillögur um
endurskoðun stjórnarskrárinn-
ar innan fjögurra mánaða. Því
var heitið á Alþingi, að tillög-
urnar yrðu bornar undir þjóðar-
atkvæði, enda ákvað Alþingi að
fela Stjórnlagaráði frekar en
sjálfu sér að semja frumvarp að
nýrri stjórnarskrá.
Ákvörðun Alþingis var að
minni hyggju rétt af tveim
höfuðástæðum. Í fyrsta lagi
hefur Alþingi ekki getað komið
sér saman um neina verulega
endurskoðun stjórnarskárinnar,
þótt hún sé að verða sjötug og
standist hvorki kall né kröfur
tímans. Í annan stað fer ekki
vel á því, að Alþingi skipti sér
efnislega af stjórnarskránni,
þar eð hún fjallar auk annars
um Alþingi og setur því rammar
skorður til að vernda almenn-
ing fyrir stjórnvöldum. Betur
fer á því, að þjóðkjörnu stjórn-
lagaþingi eða stjórnlagaráði sé
falið að endurskoða stjórnar-
skrána frekar en stjórnmála-
mönnum, sem stjórnarskránni
er ætlað að koma í veg fyrir,
að misbeiti valdi sínu. Þetta er
alþekkt og þaulreynt fyrirkomu-
lag (t.d. Bandaríkin 1787, Frakk-
land 1792, Noregur 1814, Kan-
ada 1864-66, Ástralía 1891, 1897,
1973, 1998, Ítalía 1946, Indland
1947, Þýzkaland 1948, Eistland
1920, 1992). Þjóðkjör er þó ekki
einhlít regla. Þjóðir setja sér
stjórnarskrár meðal annars til
að reisa lagaskorður við skað-
legu atferli. Réttur almennings
til góðs og heilbrigðs stjórnar-
fars skerðir rétt stjórnvalda til
að fara sínu fram. Þess er því
að vænta, að sumir þeirra, sem
nýrri stjórnarskrá er ætlað að
halda í skefjum, felli sig ekki
vel við hana. Um þetta þurfa
alþingismenn að hugsa.
Gagngerar réttarbætur
Þetta þaulreynda verklag – að
fela þjóðkjörnum fulltrúum
frekar en þingmönnum að semja
frumvarp að nýrri stjórnarskrá
– vakti fyrir Alþingi, þegar það
setti endurskoðun stjórnar-
skrárinnar í gang 2009. Alþingi
þarf að ljúka málinu eins og til
var stofnað með því að leggja
frumvarp Stjórnlagaráðs í dóm
þjóðarinnar að loknum rækileg-
um rökræðum um frumvarpið.
Telji Alþingi sig geta borið fram
betra frumvarp, getur það boðið
þjóðinni að velja á milli frum-
varps Stjórnlagaráðs og frum-
varps Alþingis. Að öðrum kosti
hlýtur val kjósenda í væntan-
legri þjóðaratkvæðagreiðslu að
þurfa að standa á milli frum-
varps Stjórnlagaráðs og gildandi
stjórnarskrár. Rökræður um
málið munu auðvelda kjósendum
valið. Telji Alþingi sig geta lagt
fram betra frumvarp en Stjórn-
lagaráð, er þess að vænta, að
þingið taki sér ekki lengri tíma
til verksins en fjóra mánuði,
en það var sá tími, sem Alþingi
skammtaði Stjórnlagaráði. Telji
alþingismenn frumvarp Stjórn-
lagaráðs lakara en gildandi
stjórnarskrá, geta þeir reynt
að vinna þeirri skoðun fylgi á
jafnræðisgrundvelli í aðdrag-
anda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hitt væri beinlínis ólýðræðis-
legt, ef Alþingi léti andúð á til-
teknum atriðum í frumvarpi
Stjórnlagaráðs freista sín til að
svipta þjóðina réttinum til að
greiða atkvæði um frumvarpið
til samþykktar eða synjunar.
Slíkt gæti vakið hörð viðbrögð
og einnig grunsemdir um, að
áhugi meiri hluta Alþingis á
endurskoðun stjórnarskrárinn-
ar hafi frá byrjun verið bund-
inn við blóðlausa endurskoðun
eftir forskrift Alþingis frekar en
þær gagngeru réttarbætur, sem
frumvarp Stjórnlagaráðs boðar
nú að kröfu 84.000 kjósenda,
sem neyttu atkvæðisréttar síns í
nóvember sl.
Tilboð til þings og þjóðar
Frumvarp Stjórnlagaráðs felur í
sér tilboð til þings og þjóðar um
nýjan stjórnskipulegan grund-
völl að opnara og réttlátara
samfélagi í þágu valddreifingar,
ábyrgðar og gegnsæis og gegn
flokksræði, forréttindum, leynd
og spillingu. Frumvarpið speglar
í grófum dráttum niðurstöður
þjóðfundar og hugmyndir stjórn-
laganefndar, sem Stjórnlaga-
ráði bar að lögum að taka mið af.
Frumvarpinu er ætlað að leggja
grunn að jöfnu vægi atkvæða
alls staðar á landinu með pers-
ónukjöri við hlið listakjörs,
auknu jafnræði milli Alþingis,
ríkisstjórnar og dómstóla með
gagnkvæmu aðhaldi og eftir-
liti, gegnsærri stjórnsýslu og
greiðum aðgangi að upplýsingum
frá stjórnvöldum, auðlindum í
þjóðareign, sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda í almannaþágu,
öflugri náttúruvernd og óspillt-
um embættaveitingum, svo að
fátt eitt sé nefnt. Ég lýsi eftir
stuðningi fólksins í landinu við
frumvarp Stjórnlagaráðs og heiti
á Alþingi að efna fyrri ásetning
um að leyfa þjóðinni að greiða
atkvæði um frumvarpið til sam-
þykktar eða synjunar.
Til umhugsunar fyrir alþingismenn
Alþingi þarf að ljúka málinu eins og til
var stofnað með því að leggja frumvarp
Stjórnlagaráðs í dóm þjóðarinnar að
loknum rækilegum rökræðum um frumvarpið. Telji
Alþingi sig geta borið fram betra frumvarp, getur það
boðið þjóðinni að velja á milli frumvarps Stjórnlaga-
ráðs og frumvarps Alþingis.
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
AF NETINU
Það má ekki skrökva,
Már!
Seðlabankinn nefnir engin
dæmi um verðtryggð neytenda-
lán máli sínu til stuðnings. Það
er vegna þess að hvergi í sið-
uðum heimi er sett verðtrygg-
ing á neytendalán. Verðtryggð
neytendalán eru séríslenskt
fyrirbæri. Annars staðar vernda
reglur um neytendavernd
venjulegt fólk frá því að undir-
gangast þá flóknu afleiðusamn-
inga, sem verðtryggð lán eru.
Því er ekki að heilsa í landinu
bláa, sem skilgreinir eignar-
réttinn út frá hagsmunum fjár-
málastofnana og fjármagns-
eigenda og verndar eingöngu
kampavíns- og kavíarneytendur.
Svar Seðlabankans við erindi
umboðsmanns Alþingis er
innihaldslaust bull og laga-
tæknilegur þvættingur.
http://www.pressan.is/pressu-
pennar/LesaOlafArnarson
Ólafur Arnarson
Viðskiptafortíðin
Landsbankanum er uppálagt að
athuga fortíð þeirra sem hann
hyggur á stórviðskipti við, til að
ganga úr skugga um að þar sé
á ferð fólk sem ekki á vafasama
fortíð. Er ekki full ástæða til
að gera sams konar úttekt á
Huang Nubo, sem efnaðist á
svo undraverðum hraða að
flestir íslenskir viðskiptaglæpa-
menn síðustu ára blikna við
hliðina á honum? Og, ef það er
ástæða til að athuga viðskipta-
fortíð fólks áður en gerðir eru
samningar við það, er nokkuð
minni ástæða til að athuga
hvort það á að baki störf við
stórfelld mannréttindabrot?
http://blog.eyjan.is/einar/
Einar Steingrímsson
Veldu leið, sjáðu rými
Citroën Berlingo Van 1,6 Hdi
Hleðslurými 3,3m3
Burðargeta 850kg
Eldsneytisnýting 5,6L/100km*
Verð frá aðeins kr. 2.462.000 án/vsk**
* Blandaður akstur
** kr. 3.090.000 m/vsk
Finndu leiðina með nýjum Citroën Berlingo.
Þú finnur rýmið. Veldu farþegadyrnar. Þar er
rými fyrir 2 farþega auk bílstjóra. Það er gott
fyrir fjölmenna. Veldu afturdyrnar. Þær opnast
í 180 gráður. Það er gott fyrir fyrirferðarmikla.
Veldu topplúguna. Með fellanlegum framsætum
er hún góð fyrir langa. Veldu bílstjóradyrnar. Þar
finnur þú rými fyrir höfuð og fætur. Það er gott
fyrir þig þegar þú ekur Citroën Berlingo.
Veldu aukið hleðslurými og burðargetu. Veldu sparneytni og gott verð. Veldu öryggi, þægindi og notagildi.
Ko
md
u
í B
rim
bo
rg
Re
yk
jav
ík
eð
a
Br
im
bo
rg
Ak
ur
ey
ri.
Sp
yrð
u u
m
ný
jan
Ci
tro
ën
Be
rlin
go
se
nd
ife
rð
ab
íl.
Ha
nn
er
nú
en
n r
úm
be
tri
og
ha
gk
væ
ma
ri í
r
ek
str
i o
g ö
ru
gg
ari
en
áð
ur.
Sjáðu
Opið í dag,
Bíldshöfða 8
Reykjavík og
Tryggvabraut
5 Akureyri,
milli kl. 9 og 1
7
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 | citroen.is