Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 28
1. september 2011 FIMMTUDAGUR
72
Karl Jónatansson, harmonikkuleikara
og tónlistarkennara, hefur lengi langað
að leggja sitt af mörkum til að minnka
það kynslóðabil sem myndast hefur
síðustu áratugi. Draumurinn hefur
verið að efna til harmonikkuballs í
anda þeirra sem voru á fyrri áratugum
síðustu aldar, þar sem ungir sem aldnir
dönsuðu saman. Drauminn hefur Karl
látið verða að veruleika en á sunnudag-
inn kemur, 4. september, stendur hann
fyrir harmonikkuballi í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi.
„Þegar ég var að alast upp fengum
við krakkarnir, 10 ára og eldri, að fara
með pabba, mömmu, afa og ömmu á tvö
til þrjú böll yfir veturinn, þorrablót og
slíkt. Kynslóðabilið var svo lítið að það
var ekki til að ég, sem var að byrja að
dansa, tæki eftir því hvort ég var að
dansa við Siggu gömlu í Ási eða skóla-
systur mína,“ segir Karl. Hann segir
að með stríðinu hafi þessi stemning
horfið og nýr tími tekið við.
Samkoman hefur verið nefnd Gleði-
hringur, innan sviga samkoma kyn-
slóðanna, en á henni verða gömlu,
sígildu dansarnir rifjaðir upp við
gömlu, góðu íslensku lögin. Þrír
Gleðihringir verða í Gerðubergi,
fyrsta sunnudag í september, októ-
ber og nóvember, frá klukkan 14-17
og eru opnir öllum á aldrinum 6-100
ára. Hljómsveitin Neistar leikur fyrir
dansi, efnt verður til fjöldasöngs og
Sigvaldi Þorgilsson danskennari leið-
beinir þeim sem hafa ekki dansað áður.
„Við myndum svo óska eftir því að
fleiri Gleðihringir mynduðust, þeir
gætu verið margir hér í Reykjavík
og jafnvel einn í hverju þorpi á lands-
byggðinni. Það er ekkert skilyrði að
vera með harmonikku, öll hljóðfæri
eru góð. Við myndum bara óska eftir
því að 10 prósent af tekjunum sem
kæmu þá inn yrðu látin renna til SOS
barnaþorpanna eins og ákveðið hefur
verið með Gleðihringina í Gerðubergi.“
Karl mun stjórna Neistum en Ingi
sonur hans spilar þar einnig á tromm-
ur, Sigurður Alfonsson og Hekla
Eiríksdóttir verða hvort á sinni harm-
onikkunni, Edwin Kaaber á gítar og
Pétur Urbancic á kontrabassa.
„Ég er afleitur maður að sögn sona
minna, Jónatans og Inga, þar sem ég
þarf alltaf að vera að finna upp á ein-
hverjum fjandanum. Jónatan segir að
ein af hundrað hugmyndum mínum sé
brúkleg, í mesta lagi, og ég er búinn að
lofa að þetta verði síðasta hugmyndin
sem ég ber á borð og þeir drengir ætla
að standa með mér í henni.“
Karl á í góðu sambandi við syni sína
en segist vita fjölmörg dæmi um að
gömul hjón á elliheimili fái sjaldan til
sín nánustu ættingja og barnabörnin
viti stundum ekki hvað þau heiti. „Þau
eru hjá þeim í klukkutíma og eru látin
taka í höndina á þeim og svona lagað
tek ég helvíti nærri mér. Mig hefur
langað til að gera eitthvað; þótt ekki sé
nema að bjarga nokkrum samböndum
ömmu og afa við börn og barnabörn,
þá er það betra en ekkert. Með Gleði-
hringnum heimtum við burt kynslóða-
bilið.“ juliam@frettabladid.is
KARL JÓNATANSSON HARMONIKKULEIKARI: EFNIR TIL HARMONIKKUBALLS
Ungir og aldnir dansa saman
VILL KYNSLÓÐABILIÐ BURT Mig hefur langað til að gera eitthvað, þótt ekki sé nema að bjarga
nokkrum samböndum ömmu og afa við börn og barnabörn, þá er það betra en ekkert.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LILY TOMLIN leikkona er 72 ára í dag.
„Áður hugsaði ég af hverju einhver gerði ekki eitthvað
í málunum. Svo fattaði ég að ég var þessi einhver.”timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir mín, félagi og vinur,
Susann Mariette
Schumacher
fyrrverandi flugfreyja, andaðist í faðmi fjölskyldunnar
mánudaginn 29. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni,
Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 15.00.
Þökkum fyrir sýndan kærleik, ást og vinarhug.
Þorvaldur Skúlason Schumacher
MOSAIK
Elskuleg móðir okkar,
Kristjana Halldórsdóttir
frá Ísafirði,
lést á Hrafnistu Reykjavík 30. ágúst.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórdís Guðmundsdóttir
Dalbraut 27 (áður Laugateigi 9),
sem andaðist þann 28. ágúst s.l. á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þann
14. september nk. kl. 11.
Guðmundur Þórir Guðmundsson Sigríður S.A.
Ágústsdóttir
Einar S. Guðmundsson Helena Frederiksen
Ágúst Már Guðmundsson
Þórdís Guðmundsdóttir
Ísak Hugi Einarsson
Mikael Þór Arnarsson
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Sigríður Ingunn
Ólafsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Hæðargarði 33, Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. ágúst. Jarðsungið
verður frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. september
kl. 13. Þeim sem vilja minnast Sigríðar er bent á
Styrktarsjóð Flateyjarkirkju, s. 848-5315.
Signý Þ. Óskarsdóttir
Ólafur H. Óskarsson Ingibjörg Björnsdóttir
Anna H. Óskarsdóttir Þorgrímur Ólafsson
Þráinn Sigurbjörnsson
Skarphéðinn P. Óskarsson Valgerður G. Björnsdóttir
Vigdís S. Ólafsdóttir
Jónas M. Ólafsson Guðrún B. Guðlaugsdóttir
Sigurrós Ólafsdóttir
Aðalheiður Sigurjónsdóttir
Skapti S. Ólafsson Kolbrún G. Gunnarsdóttir
Ólöf J. Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Mín ástkæra eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir og amma,
Jóhanna Þórisdóttir
Stuðlaseli 3, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
22. ágúst sl., verður jarðsungin frá Seljakirkju
föstudaginn 2. september kl. 15.
Ingþór Jónsson
Jón Ingþórsson Felicia Maríana Pralea
Jóhann María Jónsdóttir
Þórir Ingþórsson Jóhanna Kristín Björnsdóttir
Þórunn Jóhann, Elísabet Hildur Þórisdætur
Guðrún Bjarnadóttir
Guðni Rúnar Þórisson
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Óskars Ágústssonar
íþróttakennara
Laugum, Suður-Þingeyjarsýslu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi.
Elín Friðriksdóttir
Ágúst Óskarsson, Helga Sigurðardóttir
Hermann Óskarsson, Karín M. Sveinbjörnsdóttir, Knútur
Óskarsson, Guðný Jónsdóttir, Una María Óskarsdóttir,
Helgi Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn.
Verkmenntaskólinn á Akureyri tók formlega til
starfa þennan dag árið 1984. Fyrsta skólaárið
voru nemendur 780 en þeir eru í dag rúmlega
1.200. Að auki stunda 700-800 nemendur
nám við fjarnámsdeild skólans á hverju skóla-
ári og um 200 starfsmenn starfa við skólann.
Verkmenntaskólinn er einn af stærstu skólum
landsins og býður upp á fjölbreyttara náms-
framboð en flestir aðrir skólar á landinu.
Nemendum stendur til boða að stunda bæði
verklegt, iðnnám, starfsnám, listnám og
bóklegt nám til stúdentsprófs í skólanum.
Skólinn er áfangaskóli en það gerir nem-
endum kleift að fara hraðar eða hægar í námi
en almenn brautarlýsing gefur upp. Skólinn
hentar því jafnt nemendum með afburða
góðan námsárangur og þeim sem einhverra
hluta vegna þurfa að fara sér hægar.
ÞETTA GERÐIST 1. SEPTEMBER 1984
Verkmenntaskólinn tekur til starfa