Fréttablaðið - 01.09.2011, Side 30
Enska slanguryrðið bling eða bling-bling, sem er orðið Íslendingum tamt, á
rætur sínar að rekja til hip hop menningarinnar og vísar í áberandi, skínandi og
íburðarmikið skart sem fólk gengur með. Þetta geta verið skartgripir, símahulstur
og jafnvel tannagull. Það er ekki skilyrði að skartið sé ekta.
Heimasíðan Moda Operandi hefur
slegið í gegn meðal kaupenda
hátísku og hátískuhönnuða víða
um heim. Síðan er hugarfóstur
Áslaugar Magnúsdóttur og Laur-
en Santo Domingo sem starfar hjá
bandarísku útgáfu Vogue. Á heima-
síðunni er hægt að kaupa hátísku-
vörur beint af tískupöllunum í
skamman tíma eftir tískusýning-
ar en slík þjónusta hefur ekki verið
í boði fyrr.
Fjöldi tískuhönnuða sem vinna
með fyrirtækinu hefur tvöfaldast
frá því að vefsíðunni var hleypt
af stokkunum 16. febrúar síðast-
liðinn á tískuvikunni í New York.
Í upphafi voru hönnuðir sem unnu
með fyrirtækinu fimmtíu tals-
ins en eru orðnir hundrað í dag.
Þeirra á meðal eru Marc Jacobs,
Vera Wang og Nina Ricci. Áslaug
segir að fjöldi notenda síðunnar
hafi vaxið hratt og allt stefni í að
markmið fyrirtækisins um að þeir
verði orðnir 120 þúsund fyrir lok
ársins náist. „Þessu hefur verið
rosalega vel tekið, bæði af hönnuð-
um og notendum síðunnar. Stærsti
viðskiptavinur okkar hefur keypt
fimmtíu sinnum frá því í febrúar,“
segir Áslaug sem eitt sinn var köll-
uð álfadís tískunnar í Vogue.
„Áður en ég stofnaði fyrirtækið
heyrði ég hönnuði oft kvarta yfir
því að vera að búa til heila línu sem
væri sýnd á tískusýningum og svo
kæmu fulltrúar stóru verslananna
og veldu bara hluta af línunni.
Mörgum hönnuðunum fannst full-
trúar búðanna ekki velja þá réttu,“
segir Áslaug og bætir við að hönn-
uðirnir hafi kvartað yfir því að
vörurnar sem þeim sjálfum fannst
flottastar og fjölmiðlar höfðu haft
mestan áhuga á væru ekki fram-
leiddar því fulltrúar verslananna
veldu þær ekki. „Hugmyndin með
Moda Operandi var að í staðinn
fyrir að láta búðirnar taka ákvörð-
un um hvað væri framleitt og
keypt þá yrðu hönnuðir tengdir
beint við viðskiptavininn sem gæti
pantað hvað sem er úr línunni. Þá
væri hægt að panta vörurnar beint
eftir tískusýningu sem hingað til
hefur ekki verið hægt.“
Moda Operandi hefur stækk-
að hratt frá opnun. Starfsmanna-
fjöldinn hefur farið úr þremur upp
í tuttugu manns á þessu ári og gert
er ráð fyrir að bæta við tíu til við-
bótar á árinu. Auk þess tryggði
fyrirtækið sér tíu milljóna dollara
fjármögnun hjá New Enterprise
Associates, einum virtasta áhættu-
fjárfestingarsjóði heims í júní.
martaf@frettabladid.is
Hátískuvörur keyptar
beint af tískupöllunum
Áslaug Magnúsdóttir gerir það gott í bandaríska hátískugeiranum um þessar mundir. Á heimasíðu fyrir-
tækis hennar má kaupa hátískuvörur beint af tískupöllunum en það hefur hingað til ekki verið hægt.
Hugmyndin með Moda Operandi var að tengja hátískuhönnuði og viðskiptavini
þeirra saman að sögn Áslaugar Magnúsdóttur.
„Hugmyndin með Moda Operandi var að í staðinn fyrir
að láta búðir taka ákvörðun um hvað væri framleitt og
keypt þá yrðu hönnuðir tengdir beint við viðskiptavini“
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
flottar konur,
Nýjar og flottar vörur
í hverri viku
Vertu þú sjálf
vertu bella donna
Ballet-leikskóli (1 kennslustund í viku, 3 – 4 ára)
Ballet-forskóli (1 kennslustund í viku, 4 – 6 ára)
Balletstig (2 – 3 kennslustundir í viku, 7 ára og eldri)
Vetrarstarf skólans skiptist í tvær annir. Fyrir jól er
12 vikna námskeið og eftir jól er 12 – 14 vikna námskeið.
Kennt er í Skipholti 35 í Reykjavík,
og Íþróttahúsi Breiðabliks í Kópavogi.
Frekari upplýsingar á www.balletskoli.is
Skólinn er aðili að Frístundakorti ÍTR.
Námskeið fyrir yngri nemendur og framhaldsnemendur
Innritun er hafin í síma 567 8965 og 588 4960