Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 32
1. september 2011 FIMMTUDAGUR4
„Trefillinn er í miklu uppáhaldi,
en hann átti mamma á sínum
menntaskólaárum. Mamma var
hippi á sínum tíma og ég er svo
heppin að fötin hefur hún geymt
alla tíð og ég fer reglulega upp á
háaloft hjá henni til að grúska. Það
sem heillar mig við þetta tímabil
tískunnar er litirnir og hugmyndin
um endurnýtingu. Ég er til dæmis
ógurlega dugleg að gera við gömul
föt og sauma jafnvel eitthvað nýtt
úr þeim,“ segir Harpa.
Grifflurnar keypti Harpa í
Rauðakrossbúðinni við Lauga-
veg, en þar kíkir hún gjarnan við
og kaupir sér vettlinga, trefla og
húfur. Húfan er úr Gyllta kettin-
um og er með prjónuðum kanti en
er að öðru leyti úr kanínuskinni.
Harpa er aldrei með skartgripi en
með vísun í eigið nafn er hún alltaf
með pínulitla munnhörpu í keðju
um hálsinn.
Harpa er önnum kafin þessa
dagana, bæði í starfi sínu hjá
FRAFL sem framleiðir og verk-
efnastýrir myndlistartengdum
viðburðum og við að skipuleggja
eigin afmælisveislu, en hún varð
þrítug um miðjan ágúst. Veisluna
heldur hún með vinkonum sínum
sem einnig eiga afmæli um þess-
ar mundir en það eru þær Marsibil
Sæmundardóttir og Kristín Andr-
ea Þórðardóttir. Veislan verður
óvenjuleg að því leyti að boðið
verður upp á gamaldags „alvöru
reif“ eins og Harpa orðar það,
undir nútímalegum formerkjum
með hvorki meira né minna en sex
plötusnúðum.
„Hugmyndin kviknaði eftir að
ég var að kenna í Listaháskól-
anum í ár og lokaverkefni eins
kennarans þar var að halda reif.
Það hefur verið svolítið leiðin-
legur stimpill á reifum en reifið
sem kennarinn hélt var algerlega
vímuefnalaust og stóð frá klukk-
an 5 um daginn til 9 um kvöldið.
Reif er eitt skemmtilegasta fyrir-
bæri sem ég hef kynnst. Það jafn-
ast ekkert á við að missa sig í ljós-
um, dansi og brjálaðri stemningu
og missa kúlið og meðvitund um
eigið sjálf undir brjáluðum takti,“
segir Harpa og segir reif því vera
upplagt fyrir Íslendinga sem þori
oft varla einu sinni að dansa á
Kaffibarnum, nema þá eftir tutt-
ugu bjóra.
Trefilinn átti móðir Hörpu á sínum menntaskólaárum.
Framhald af forsíðu
Dalvegi 18, Kóp.
Sími 568 6500
www.fondra.is
Opið 10-18 virka daga,
lokað á laugardögum í sumar.
Ný snið og sníðablöð. Höfum bætt við efnum á útsöluborðin Síðustu dagar útsölunar.
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
VÖRUM
Aðeins tvö verð á
útsöluvörum 1.990 - 2.990
Haustvörurnar
komnar.
Útsölulok
La Comédie-Française er nafn franska Þjóðleik-hússins sem er kallað heimili leikskáldsins
Molière hér í Frakklandi. Þjóð-
leikhúsið La Comédie-Française
varðveitir tíu þúsund hátísku-
flíkur, sem rekja sumar hverjar
sögu sína allt til 18. aldar. Hluti
safns Þjóðleikhússins er búning-
ar sem voru gjafir aðalsmanna
eftir byltinguna árið 1789 og
hafa verið notaðir í gegnum ald-
irnar í hvert sinn sem klassísk
leikhúsverk franska leikhússins
hafa verið á fjölunum. Í landi
tískunnar teljast þessir bún-
ingar til þjóðargersema og eru
þeir varðveittir eins og íslensk
handrit hjá Árnastofnun, við rétt
hita- og rakastig og í myrkum
geymslum, fjarri dagsljósi. Þetta
eru búningar sem hafa verið not-
aðir í Ríkharði III, Macbeth, í
verkum Molière og Beaumarcha-
is svo nokkur nöfn séu nefnd.
Franska Þjóðleikhúsið er eina
leikhúsið hér í landi þar sem
leikhúsfólk býr við þann munað
að hafa hátískuhönnuði og vinnu-
stofu á sínum snærum. Enn
þann dag í dag eru hannaðar þar
hátískuflíkur og hver flík er ein-
stök. Þar hafa leikarar eignast
sitt eigið búningasafn.
Um þessar mundir gefst
almenningi kostur á að berja
augum tvö hundruð af þessum
dýrgripum La Comédie-Fran-
çaise, sem fram til 1970 var enn
breytt fyrir hverja nýja uppsetn-
ingu fyrri verka. Margir þeirra
eru ómetanlegir. En þar sem
klæðin eru viðkvæm eru aðeins
tvær búningasýningar settar
upp á ári til að stilla notkuninni
á þeim í hóf. Sýningin nú, sem
er uppsett af frönsku leikbún-
ingastofnuninni í Moulins-sur-
Allier, stendur til ársloka. (Upp-
lýsingar á www.cncs.fr). Þar eru
sýndir búningar nærri þriggja
alda, jakkar með útsaumi, bæði
úr silfri og gulli, kjólar með
tugum laga af satíni og silki,
skreyttir demöntum. Margar
stjörnur úr tískuheiminum hafa í
gegnum tíðina lagt leikhúsinu lið
og á sýningunni má sjá búninga
Thierry Mugler úr Macbeth frá
árinu 1985 og kjóla Elisabetar í
Fantasio, hannaða undir stjórn
Christian Lacroix. Um 1950
spásseruðu leikarar um sviðið í
fötum frá Pierre Balmain. Einn-
ig má líta augum kórónu og skó
Söruh Bernhardt úr Thölmu sem
minna á muni postulínsdúkku.
Tískuhönnuðum hefur löngum
þótt það upphefð að klæða fræg-
ar sögupersónur leikhússins og
fá um leið listrænan innblástur.
Stundum hafa höfundar jafn-
vel gefið höfundarlaun sín til að
kaupa búninga, eins og Voltaire
gerði árið 1755 fyrir uppsetn-
ingu l´Orphelin de la Chine.
bergb75@free.fr
Leikhúshátíska í þrjú hundruð ár
Victoria‘s Secret-fyrirsætan Miranda Kerr þakk-
ar kókosolíu lýtalaust útlit sitt. „Það líður ekki
sá dagur sem ég nota ekki kókosolíu í elda-
mennsku eða á húðina.“ Sérfræðingar vara
þó við of mikilli notkun kókosolíu, enda inni-
heldur hún mikið magn mettaðrar fitu sem
eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Heimild: vogue.co.uk
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice
Augabrúnir eiga að
vera þykkari nú en oft
áður og er mælt með
því að fyllt sé upp í
þær með dökkum
lit. Þær virðast bæði
vera að þykkjast og
lengjast. Til að halda
þeim mótuðum yfir
daginn er mælt því að
renna yfir þær með
örlitlu hárspreyi.
Heimild: total-
beauty.com