Fréttablaðið - 01.09.2011, Síða 36
1. SEPTEMBER 2011 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● ljósanótt
● STEMNING Á STÓRA
SVIÐINU TVÖ KVÖLD Í
RÖÐ Óhætt er að lofa góðri
stemningu á stóra sviðinu bæði
föstudags- og laugardagskvöld
á Ljósanótt. Fjöldi flottra tón-
listarmanna mun halda okkur
glæsilega tónlistarveislu, bæði
gestir og heimamenn, og eng-
inn vafi á að tónlistarbærinn
mun standa undir nafni. Þeir
sem fram koma á föstudeg-
inum eru Lifun, Hellvar, Who
Knew, Of Monsters and Men og
Blaz Roca og á laugardeginum
Friðrik Dór, Magnús og Jóhann,
Baggalútur, Helgi Björns og
Reiðmenn vindanna og síðast
en ekki síst hljómsveitin Valdi-
mar sem mun ljúka kvöldinu
eftir glæsilega flugeldasýningu.
Valgerður Guðlaugsdóttir
heldur sína níundu
einkasýningu á Ljósanótt. Hún
einbeitir sér að reynsluheimi
konunnar í nútíma þjóðfélagi.
S ýning Valgerðar Guðlaugs-dóttur „Dúkka“ verður opnuð í Listasafni Reykja-
nesbæjar fimmtudaginn 1. sept-
ember klukkan 18.00 og er liður
í Ljósanæturhátíðinni. Valgerð-
ur hefur búið í Reykjanesbæ um
skeið og er þetta hennar níunda
einkasýning. Hún hefur á und-
anförnum árum einbeitt sér að
reynsluheimi konunnar í nútíma
þjóðfélagi. Verk Valgerðar varpa
fram áleitnum spurningum um
mannseðlið, hlutskipti kynjanna
og einnig samskipti þeirra.
Valgerður lítur á sig sem pop-
feminista. Í list sinni notar hún
tilbúna hluti úr afþreyingariðnað-
inum og blandar þeim saman við
hluti úr sínum eigin hugmynda-
heimi. Á þessari sýningu velt-
ir hún fyrir sér kvenímyndinni,
hvernig konan reynir að uppfylla
þá ímynd sem gefin er af henni í
samfélaginu og hvernig hún fell-
ir sig inn í munstrið sem henni er
gefið en einnig hvernig hún getur
verið sinn eigin skapari. Þóra
segir enn fremur í sýningarskrá
að litlar stelpur byrji að þjálfa
sig í kvenleiknum frá unga aldri.
Kvenleikurinn sem er eins konar
grímuleikur miðast að því að taka
upp ákveðið viðurkennt kynhlut-
verk með tilheyrandi látbragði
og klæðaburði og þóknast þann-
ig ráðandi hugmyndafræðilegum
öflum feðraveldisins sem gegn-
sýra menninguna.
Sýningin er í sýningarsal Lista-
safns Reykjanesbæjar í Duushús-
um og stendur til 16. október. Þar
er opið virka daga frá kl. 12-17 og
um helgar frá kl. 13-17 og aðgang-
ur er ókeypis.
Dúkka í Listasafninu
Sýningin Dúkka verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar í dag.
Á fjölskylduhátíðinni okkar Ljósanótt kenn-
ir margra grasa eins og
dagskráin sem hér er
kynnt sýnir. Eins og á
svo mörgum bæjarhátíð-
um landsins sýna íbúar
og gestir sínar bestu hlið-
ar. Hér fögnum við því að
þótt daginn stytti, lýsir
mannlífið. Tónlist, íþrótt-
ir, myndlist, hönnun,
saga, skemmtiefni, góður
matur og frábærar upp-
ákomur einkenna hátíð-
ina okkar. Ein slík er kl.
10.30 á fimmtudeginum.
Þá er setning Ljósanæt-
ur með táknrænum hætti
þar sem þúsundir grunn-
og leikskólabarna sleppa mislitum blöðrum til himins. Önnur slík er
„Árgangagangan“. Þá flæðir saga lífsins eftir Lífæðinni okkar niður
Hafnargötu, vonandi með þátttöku þinni. Gangan fer af stað kl.13.30
á laugardaginn. Nokkru fyrr hafa allir safnast saman við hvert hús-
númer við Hafnargötu, sem ber seinni hlutann í fæðingarári hvers
og eins. Ég mæti því samviskusamlega við Hafnargötu 56 og hitti þar
ungt og skemmtilegt fólk, fullt af orku, reynslu og lífsgleði.
Svo hefst gangan. Fyrst af þeim sem hafa yngstu árgangstöluna, efst
á Hafnargötunni, unglingar, þá nýorðnir foreldrar með barnavagna,
svo afar og ömmur. Þannig má lesa augljós einkenni út úr hverjum
árgangi. Ég sé eiginkonuna ganga framhjá í sínum ungmennahópi,
stuttu áður en minn hópur fær að arka af stað. Á leiðinni eltir maður
því ungviðið en gengur fram á stöðugt eldri árganga. Nú ætlum við
í árgangi 56 að sýna fram á að hann er sá stærsti og líkamlega virk-
asti... miðað við aldur. Það sýnum við með því að allir Íslendingar sem
fæddir eru 1956 eru hvattir til að mæta við Hafnargötu 56 í Reykja-
nesbæ. Á göngunni lyftum við hnjánum hátt og sýnum þennan ein-
staka árgang – í öllum gangtegundum.
Hér með skora ég á aðra árganga að hvetja alla vini og kunningja í
sínum árgangi, hvaðanæva að af landinu, að mæta – notið fésbókina
og símann, allt er leyfilegt. Svo skulum við mæla hvaða árgangur er
raunverulega mest lifandi og virkur! Tekið skal fram að sá sem mætir
úr árgangi 1935 og neðar hefur tvöfalt vægi!
Verið öll innilega velkomin á Ljósanótt!
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Áskorun!!
Venju samkvæmt býður Tónlistar-
félag Reykjanesbæjar upp á glæsi-
lega hátíðartónleika í tilefni af
Ljósahátíð. Þetta árið hafa þeir
hlotið nafnið Með blik í auga, og
eru tímaferðalag aftur til áranna
1950 til 1970 í tónum, máli og
myndum. Við förum í tímaflakk
aftur til áranna þegar Hafnargat-
an var ómalbikuð og breyttist í
stórfljót í rigningum. Þegar kaup-
menn versluðu á öllum hornum og
Kaupfélagið var stórveldi. Bærinn
ilmaði fyrst og fremst af fiski og
herinn nýbúinn að koma sér fyrir á
Háaleitinu. Hallbjörg Bjarnadótt-
ir, Ellý Vilhjálms, Haukur Mort-
hens og Raggi Bjarna hljómuðu í
óskalagaþáttum sjúklinga og sjó-
manna. Það verður einmitt boðið
upp á tónlist þessara listamanna
auk Hljóma, Villa Vill, Flowers
og Trúbrots í Andrews Theater á
Ásbrú í Reykjanesbæ, sunnudag-
inn 4. september kl. 16 og aftur
kl. 20.
Það eru frábærir söngvarar af
Suðurnesjum sem stíga á svið,
Valdimar Guðmundsson, Fríða
Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna
Valdemarsdóttir, Jana María Guð-
mundsdóttir, Guðmundur Her-
mannsson, Birna Rúnarsdóttir,
Sveinn Sveinsson og fleiri. Það
er fjórtán manna hljómsveit sem
leikur undir. Arnór B. Vilbergsson
stjórnar hljómsveitinni og útsetur
tónlistina í upprunalegum anda og
Kristján Jóhannsson skrifar hand-
rit og kynnir viðburðinn.
Miðasala er á midi.is en einn-
ig verður hægt að nálgast miða
á heimaslóð í forsölu sem nánar
verður auglýst síðar.
Tíðarandi 1950 til 1970
Tónlistarbærinn stendur undir
nafni.
Söngvarar af Suðurnesjum flytja lög Hljóma, Villa Vill, Flowers og Trúbrots.
Útgefandi: Reykjanesbær | Heimilisfang: Tjarnargata 12 | Ritstjóri og ábyrgðar-
maður:Guðrún Þorsteinsdóttir | Vefsíða: www.reykjanesbaer.is www.ljosanott.is |
Sími: 421 6700
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing