Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 46
1. september 2011 FIMMTUDAGUR30
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. gljáhúð, 6. 999, 8. fæða, 9. þunnur
vökvi, 11. frá, 12. dútl, 14. bæ, 16.
hvað, 17. kvenkyns hundur, 18. eyrir,
20. gjaldmiðill, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. kvenflík, 3. samtök, 4. sígild list, 5.
kóf, 7. græn baun, 10. erfiði, 13. sæti,
15. skrifa, 16. merki, 19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lakk, 6. im, 8. ala, 9. lap,
11. af, 12. stúss, 14. bless, 16. ha, 17.
tík, 18. aur, 20. kr, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. aa, 4. klassík, 5.
kaf, 7. matbaun, 10. púl, 13. set, 15.
skrá, 16. hak, 19. rú.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
... þetta er full-
þroskað, með
eikarkeimi sem
á hógværan hátt
leyfir manni að
njóta bragðsins í
nokkrum lögum.
Vínekran
Smökkun
Af hverju
þurfum
við að taka
vítamín?
Af því þau
gera þér gott.
Þau hjálpa þér
að vaxa og
dafna.
Alveg
eins og
pabbi
þinn.
Láttu mig
hafa tvær
pillur.
Segðu mér nú Jói.
Hverju ert þú eigin-
lega að leita að í
sambandi?
Tja... ein-
hverju svona!
... og kannski
einhverjum
smá húmor
með!
Næst þegar þú ferð
að ná þér í tónlist,
passaðu þig að
lögin séu ekki merkt
„explicit“.
Ég skal
reyna að
muna
það.
Skrap Skrap Skrap
„SUMARIÐ kom aldrei og nú er komið
haust, það er ekki búandi á þessu grjót-
kalda skeri,“ heyri ég nöldrað í kringum
mig. Ég get orðið móðguð yfir þessu tuði
og þreytt á staglinu um að allt sé ómögu-
legt á Íslandi, ekki bara veðrið. En stund-
um tek ég sjálf undir nöldrið af fullum
móð, þegar þannig liggur á mér. Enda var
nú óvenju kalt í sumar!
ÞANN 17. júní var ég til dæmis í 3 stiga
hita, lemjandi slagveðri og svartaþoku
norðan heiða. Ég hafði bara aldrei
vitað annað eins. Ísköld rigningin
lamdi kinnarnar og rann niður um
hálsmál svo á mér var ekki þurr
þráður. Ég var í útivinnu nokkra
daga við verk sem ekki mátti slá
á frest. Verkið var erfitt og hefði
svo sem verið það þótt sólin hefði
skinið en rigningin og kuldinn
gerðu það nánast ógerlegt.
Dag eftir dag var strit-
að í úrhellinu fram á
kvöld og ekkert dregið
af. Sem betur fer var
ég ekki ein um verkið
og sjálfsagt má deila
um hversu mikið gagn
ég gerði. Snöktandi sá ég
ekki fyrir mér að verkinu
myndi nokkurn tímann
ljúka í þessari endemis ótíð, hvað þá að
sólin myndi nokkurn tímann skína á ný.
MÁNUÐI síðar var ég þó aftur stödd á
sama stað, í 20 stiga hita og heiðskíru.
Verkinu var lokið og það tókst svona
dæmalaust vel. Þessa sólskinsdaga hristi
ég því hausinn yfir því hvernig ég hafði
látið nokkrum vikum fyrr, snöktandi yfir
nokkrum regndropum. Sumarið lék við
hvern sinn fingur og ég sá ekki fyrir mér
að því myndi nokkurn tímann ljúka. Sem
betur fer er alltaf dýpra á óveðursdögun-
um í skúffum minninganna og þegar ég
rifja upp aftur í tímann finnst mér alltaf
hafa verið ágætis veður. Eða hvað?
SÓLSKINSDAGARNIR urðu ekki margir
þetta sumarið og í morgun sá ég að haust-
ið hafði læðst aftan að mér. Ég átti alls
ekki von á því strax! „Það er ekki búandi
á þessu grjótkalda skeri,“ tautaði ég og
vafði treflinum upp fyrir nef. Ég fann
rigninguna smeygja sér niður um háls-
málið og í huganum bjó ég til langan lista
yfir allt sem er ómögulegt á Íslandi, ekki
bara veðrið.
ÞAÐ lá ekki vel á mér ég viðurkenni það.
Enda gerir það ekkert til. Það kemur sól
upp úr þessari skúffu seinna, þegar ég
rifja upp.
Sólskin í skúffunum