Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 48
1. september 2011 FIMMTUDAGUR32 32
menning@frettabladid.is
Sýningaopnanir á teikningum eftir
Erró og grafíkverkum eftir Christi-
an Ludwig Attersee, sem Danielle
Kvaran stýrir, marka upphaf á
starfsári Listasafns Reykjavíkur.
Báðar hefjast sýningarnar laugar-
daginn 3. september klukkan 16.
Á sýningu Errós verða sýndar
um 200 teikningar eftir listamann-
inn, en hann hefur verið einna
minnst þekktur fyrir þá grein.
Verkin vann Erró frá árinu 1944
fram til dagsins í dag og beitti fjöl-
breyttri tækni og aðferðum við
gerð þeirra.
Við opnun sýningarinnar, sem
stendur yfir til ágústloka á næsta
ári, mun Erró afhenda verðlaunafé
úr sjóði sem kenndur er við móður-
systur hans, Guðmundu S. Kristins-
dóttur frá Miðengi. Verðlaunin eru
veitt myndlistarkonum sem þykja
hafa skarað fram úr í list sinni og
er þetta í tólfta sinn sem úthlutun
fer fram.
Nýverið var listasafninu fært að
gjöf safn grafíkverka frá austur-
ríska listamanninum Christian
Ludwig Attersee. Hann hefur skip-
að sér í fremstu raðir listamanna í
Austurríki, en gjöfin samanstend-
ur af 63 verkum sem unnin voru
á árunum 1970 til 2010. Listamað-
urinn verður viðstaddur opnunina,
sem stendur yfir til 6. nóvember.
Erró og Attersea í Listasafninu
TEIKNINGAR Erró hefur verið einna minnst þekktur fyrir teikningar sínar í gegnum
tíðina, en um 200 slíkar verða til sýnis á Listasafni Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Einn dagur - kilja
David Nicholls
Íslenskur fuglavísir - nýr
Jóhann Óli Hilmarsson
Stóra Disney köku- og
brauðbókin - Walt Disney
Indjáninn - kilja
Jón Gnarr
Frelsarinn - kilja
Jo Nesbø
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
24.08.11 - 30.08.11
Ég man þig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Sjálfstætt fólk
Halldór Laxness
Ensk íslensk orðabók - gul
Orðabókaútgáfan
Hægur dauði - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Friis
Fallið er hátt - kilja
Anna Grue
Leikritið The Island er
hugar fóstur fjögurra
íslenskra og kanadískra
listamanna. Mörkin milli
einstaklinga eru skoðuð í
verkinu sem er ekki hefð-
bundið leikrit.
„Hugmyndin að sameiginlegu verki
íslenskra og vestur-íslenskra lista-
manna kviknaði árið 2001, en í
fyrra fór að komast mynd á þetta.
Í september í fyrra tókum við góða
vinnutörn saman og svo í Winni-
peg síðastliðið vor,“ segir Freya
Olafson einn aðstandenda leiksýn-
ingarinnar The Island sem verður
frumsýnd 3. september á leiklist-
arhátíðinni Lókal. Freyja vann sýn-
inguna ásamt þeim Arne McPher-
son, Ingibjörgu Magnadóttur og
Friðgeiri Einarssyni. „Upphaflega
unnum við með hugmyndina um ein-
angrun. Okkur fannst það eðlilegur
útgangspunktur listamanna annars
vegar frá eyju eins og Ísland er og
hins vegar afskekktu svæði eins og
Manitoba-fylki í Kanada þar sem
tekur 28 tíma að aka í næstu stór-
borg. Einangrun var sem sagt upp-
hafspunkturinn en svo fórum við
að velta einmanaleika meira fyrir
okkur og í framhaldinu löngun fólks
til að tengjast og deila tíma saman,“
segir Freya.
Hún segir verkið ekki hefðbundið
frásagnarleikhús. „Við erum öll úr
sitthvorri áttinni, ég kem úr dans-
inum, Ingibjörg úr myndlistinni og
Arne og Friðgeir eiga rætur í leik-
listinni. Verkið endurspeglar það
vonandi.“
Auk þeirra fjögurra sem flytja
verkið standa þau Hugh Conacher
ljósahönnuður, Guðmundur Vignir
Karlsson og Margrét Bjarnadóttir
að sýningunni.
The Island er hluti af þátttöku
listahátíðar Now/Núna í Lókal. „Við
höfum starfrækt Now um nokkurra
ára skeið en á þeirri hátíð er íslensk-
um og kanadískum listamönnum
stefnt saman. Því er gaman að koma
hingað núna og taka þátt í hátíð hér,“
segir Freya sem er eins og aðrir
aðstandendur Now af íslenskum
ættum.
„Forfeður móður minnar fluttu
til Kanada 1875 en forfeður föður
míns um 1880. Foreldrar mínir end-
urvöktu svo tengslin við Ísland með
því að skíra okkur systkinin íslensk-
um nöfnum,“ segir Freya sem hefur
oft sótt Ísland heim. „Ég hef bæði
komið hingað sem ferðamaður og
svo til að sinna listinni, það er mjög
gaman.“
The Island verður sýnd á laugar-
dag og sunnudag í Gamla bíói en í
Kanada næsta vor í tengslum við
Now-listahátíðina. sigridur@frettabladid.is
Einangrun og einmanaleiki
á íslensk-kanadískri eyju
Frá árinu 2006 hefur listahátíðin Núna (Now) staðið að árlegri dagskrá þar
sem stefnt er saman íslenskum og kanadískum listamönnum, tónlistar-
mönnum, kvikmyndagerðarmönnum, dönsurum, myndlistarmönnum og
leiklistarfólki í Manitoba í Kanada. Meðal þeirra íslensku listamanna sem
komið hafa fram á þessari hátíð má nefna Lay Low, Megas, Ragnar Kjartans-
son, Mugison, FM Belfast, Erling TV Klingenberg og ýmsa fleiri. Í tilefni af
fimm ára afmæli hátíðarinnar stendur Núna (Now) að hátíðinni Now (Núna)
í Reykjavík og á Hofsósi samhliða leiklistarhátíðinni LÓKAL. Leiksýningin The
Island er aðeins einn af fjölmörgum liðum hátíðarinnar. Dagskrá hátíðarinnar
og frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.nunanow.com.
MÓT ÍSLENSKRA OG KANADÍSKRA LISTAMANNA
EYJAN Verkið The Island verður sýnt í Gamla bíói og þar voru aðstandendur á æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STÓRSVEIT SAMÚELS JÓNS SAMÚELSSONAR kemur fram í kvöld á Faktorý. Tón-
leikarnir eru hluti af Djasshátíð Reykjavíkur. Hljómsveitin, sem dansar á fínni línu fönks og afróbíts,
hefur leikinn klukkan níu.
Fyrsti fyrirlestur í fyrirlestraröð
um íslenska byggingarlist verður
haldinn í Norræna húsinu í kvöld.
Til umfjöllunar í kvöld er Sund-
laugin á Hofsósi.
Sigríður Sigþórsdóttir hjá Bas-
alt arkitektum hannaði sund-
laugina sem hlaut bæði stein-
steypuverðlaun Íslands 2011
og Menningarverðlaun DV.
Það eru þær Katrín Ragnars
og Guja Dögg Hauksdóttir sem
hafa umsjón með fyrirlestrinum
sem hefst klukkan átta. Næstu
umfjöllunarefni eru vistvæn
hönnun Hennings Larsen arki-
tekts 6. október og hið nýgerða
tónlistarhús Harpa 17. nóvember.
Rætt um Hofsóslaug