Fréttablaðið - 01.09.2011, Síða 50
1. september 2011 FIMMTUDAGUR34
Gjörningar, myndlist og tónleikar
eru meðal þess sem boðið verður
upp á á sýningu S.L.Á.T.U.R.
(Samtök listrænt ágengra tón-
smiða umhverfis Reykjavík) í
galleríinu Suðsuðvestur í Kefla-
vík á Ljósanótt annað kvöld.
Á sýningunni verða ný verk
eftir Pál Ivan Pálsson, Jesper
Pedersen, Þráin Hjálmarsson,
Magnús Jensson, Hallvarð
Ásgeirsson Herzog, Þorkel Atla-
son, Guðmund Stein Gunnarsson
og Áka Ásgeirsson.
Sýningin verður opnuð með
gjörningi á morgun klukkan 18. Á
laugardag verða tónleikar klukk-
an 15 en sama dag stendur yfir
myndlistarsýning frá klukkan
11-18 og frá 12-16 á sunnudag.
S.L.Á.T.U.R.
tíðin hafin
Fimm vegleg tónleikaverkefni
eru á dagskrá Söngsveitarinnar
Fílharmóníu, sem hefur sitt 52.
starfsár í vetur.
Fyrstu tónleikar starfsársins
verða í Norðurljósasal Hörpu
30. október þar sem flutt verð-
ur Jazzmessa eftir litháíska
tónskáldið Vytautas Miškinis.
Verkið var frumflutt á alþjóð-
legu kóraráðstefnunni í Kaup-
mannahöfn 2008. Síðan þá hefur
það verið flutt víða um heim
og hljómar nú í fyrsta skipti á
Íslandi.
Einnig tekur kórinn þátt í
flutningi Hringadróttinssinfóní-
unnar eftir Howard Shore ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Shore fékk tvenn Óskarsverð-
laun fyrir kvikmyndatónlistina
og hefur útbúið sérstaka tón-
leikaútgáfu verksins við miklar
vinsældir.
Hátíðartónleikar helgaðir ald-
arminningu stofnanda söngsveit-
arinnar, dr. Róberts Abrahams
Ottóssonar, verða í Langholts-
kirkju og Skálholtsdómkirkju í
apríl. Þá verður frumflutt verk
eftir Hildigunni Rúnarsdótt-
ur tónskáld, sem hún semur af
þessu tilefni fyrir Fílharmóníu.
Söngsveitin lýkur starfsárinu
á tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar á Listahátíð í maí, en
þar verður Fílharmónían í hlut-
verki Kapúlet-ættarinnar þegar
sinfónían Rómeó og Júlía eftir
Berlioz verður flutt undir stjórn
Ilans Volkov, nýs aðalstjórnanda
Sinfóníunnar.
Magnús Ragnarsson er söng-
stjóri sveitarinnar, sem nýtur
einnig liðsinnis Guðríðar St.
Sigurðardóttur píanóleikara og
Margrétar Sigurðardóttur radd-
þjálfara. Raddpróf fyrir nýja
félaga verða í Melaskóla við
Hagatorg sunnudaginn 4. sept-
ember klukkan 14.
Fílharmónía kunngjörir vetrardagskrána
Helga Gvuðrún Friðriksdóttir,
höfundur ritgerðarinnar Frida
Kahlo. Móðir án barna, heldur
erindi um ævi og verk Fridu
Kahlo í Gerðu-
bergi á laugar-
dag. Erindið
er flutt í til-
efni af sýning-
unni Samsekt:
Diego Rivera
og Frida Kahlo
í Gerðubergi.
Helga Gvuðrún
nam spænsku
við Universidad de Autónoma í
Madrid og lauk BA-gráðu árið
2006 frá Háskóla Íslands.
Í erindi sínu stiklar Helga
Gvuðrún á stóru um um líf Fridu
og átök í einkalífi hennar, auk
þess að ræða uppruna listaferils
Fridu og velta upp hvaðan tján-
ingarþörf listakonunnar kom.
Að erindi loknu verður Hólm-
fríður Ólafsdóttir sýningarstjóri
með leiðsögn um sýninguna, en
þar má sjá ljósmyndir þar sem
reynt er að fanga ástríðufull
augnablik sambands þeirra Fridu
Kahlo og Diegos Rivera.
Erindi Helgu Gvuðrúnar hefst
klukkan 14. Þetta er síðasta sýn-
ingarhelgi.
Rætt um
ævi Fridu
FRIDA KAHLO
SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA Fyrstu tónleikar vetrarins verða haldnir í lok október í Hörpu.
S.L.Á.T.U.R. Áki Ásgeirsson einn for-
kólfa hópsins S.L.Á.T.U.R. tekur þátt í
Ljósanótt ásamt félögum sínum.
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
Vala og Berglind í Ólátagarði
Ólátagarður
er ný hönnunarverslun
með barna- og barnatengda vöru
Við erum með til sölu tilbúna og hálfkláraða
vöru ásamt vinnustofu fyrir viðskiptavini
og leikaðstöðu fyrir börn.
Verslunin verður opnuð í dag að Snorrabraut 56.
Kíkið við í skapandi heim Ólátagarðs,
skoðið úrvalið og vinnustofuna.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Snorrabraut 56 / 511 3060 / olatagardur.is
OPNUM Í DAG,
SNORRABRAUT 56