Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 51
FIMMTUDAGUR 1. september 2011 35
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 01. september 2011
➜ Leiklist
18.00 Lókal - alþjóðleg leiklistarhá-
tíð í Reykjavík hefst með opnunarhófi í
Tjarnarbíói. Hátíðin stendur yfir dagana
1. - 4. september. Nánari upplýsingar
má finna á www.lokal.is.
20.00 Leikverkið School of Trans-
formation sýnt í Tjarnarbíói. Sýningin
er hluti af leiklistarhátíðinni Lókal og
samvinnuverkefni netleikhússins Her-
bergi 408 og norska leikhópsins Mobile
Homes. Miðaverð er kr. 3.200 en
hátíðarpassi kostar kr. 15.000.
➜ Opnanir
17.00 Sýningin Brosir þangað sólin
inn opnuð í Kirsuberjatrénu, Vestur-
götu 4. Þar verða sýnd verk eftir ein-
staklinga með þroskafrávik sem starfa
hjá Örva. Allir velkomnir.
18.00 Sýningin Dúkka opnuð í sýn-
ingarsal Listasafns Reykjanesbæjar í
Duushúsum. Allir velkomnir.
➜ Íþróttir
17.00 U21 landslið karla í fótbolta
keppir gegn Belgíu í undankeppni EM
2013 á Vodafonevellinum, Hlíðarenda.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Heimildamyndir
17.00 Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir kínversku heimildarmyndina
Hinsti flutningurinn úr heimildar-
myndaröðinni China Screen í stofu 101
í Odda, Háskóla Íslands. Aðgangur er
ókeypis.
➜ Uppistand
21.00 Inn-
rásarvíking-
arnir Beggi
blindi, Rökkvi
Vésteins og
Elva Dögg
Gunnarsdóttir
með uppistand
í Salthúsinu
í Grindavík.
Aðgangseyrir er
kr. 1.500.
➜ Tónlist
21.00 Lím Drím Tím syngjandi
plötusnúðar koma fram í fyrsta sinn á
Faktorý. Allir velkomnir.
21.00 Breakbeat.is kvöld á Prikinu
þar sem Fróði, Hypno og Suspect B
þeyta skífum. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Plötusnúðarnir Karíus & Baktus
þeyta skífum á Kaffibarnum. Allir
velkomnir.
➜ Tónlistarhátíð
18.00 Samúel Jón Samúelsson Big
Band með tónleika á Faktorý. Dj Lucky
þeytir skífum. Tónleikarnir eru hluti af
Jazzhátíð Reykjavíkur. Aðgangseyrir er
kr. 2.000.
➜ Myndlist
11.00 Ragnhildur Jóhanns, mynd-
listarkona, sýnir ný verk í bland við eldri
verk á sýningunni Orðbelg í verslun og
veitingastofu Þjóðmenningarhússins.
Verkin eru til sölu og allir eru velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Myndlistarsýningin Almynstur verður opnuð í
Listasafni Árnesinga á laugardag. Þar verða verk
Arnars Herbertssonar, JBK Ransu og Davíðs
Arnar Halldórssonar skoðuð í samhengi þar sem
sýningarstjórinn, Sigríður Melrós Ólafsdóttir, leit-
ast við að varpa ljósi á hvað þeir eigi sameiginlegt
og hvað skilji þá að í ljósi listasögunnar.
Arnar, JBK og Davíð Örn er starfandi mynd-
listarmenn sem þekkjast ekki persónulega og eru
hver af sinni kynslóð. Í tilkynningu frá Listasafni
Árnesinga segir að þeir hafi allir valið sér tjáning-
armáta óhlutbundinnar listar og dragi fram form
og mynstur í sterkum litum.
Arnar Hertbertsson hóf feril sinn með haust-
sýningum FÍM um miðjan 7. áratuginn 1965 en
gekk fljótlega til liðs við framúrstefnuhreyfinguna
SÚM.
Verk JBK Ransu eru oftar en ekki þaulhugsuð
konseptverk þar sem hann teflir gjarnan saman
ólíkum straumum í myndlist. Davíð Örn er fulltrúi
enn nýrri strauma, sem spretta upp úr teikni-
myndum, tölvugrafík og götulist.
Sigríður Melrós er menntaður myndlistarmaður
en hefur snúið sér að sýningargerð og sýningar-
stjórnun. Hún er nú deildarstjóri sýningardeildar
Listasafns Íslands. Opnunin hefst klukkan 15.
Almynstur í Listasafni Árnesinga
NÝTT
STAR BRONZER
ENDINGARGOTT SÓLARPÚÐUR.
FULLKOMINN LJÓMANDI SÓLARLITUR.
Eilífur sólarkoss
4 mattandi og 4 ljómandi sólarlitir
við hlustum!
Í LYFJUM & HEILSU KRINGLUNNI
1. – 4. SEPTEMBER
LANCÔME KYNNING
Vertu velkomin og fáðu ráðgjöf og leiðbeiningar.
20%
Púðurbursti fyrir sólarpúður fylgir með fyrstu
30 sólarpúðrunum sem seljast.
ALMYNSTUR Verk eftir Arnar Herbertsson, JBK
Ransu og Davíð Örn Halldórsson verða til sýnis
í Listasafni Árnesinga, skoðað hvað þeir eiga
sameiginlegt og hvað skilur þá að.