Fréttablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 52
1. september 2011 FIMMTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Bandaríska hljómsveitin The Rapture er okkur Íslendingum að góðu
kunn eftir tvenna frábæra tónleika í Reykjavík. Þeir fyrri voru á Gauk
á Stöng á Iceland Airwaves árið 2002, skömmu áður en hljómsveitin
sló í gegn. Þeir seinni voru á Nasa 2007, þegar sveitin var að fylgja
eftir þriðju plötunni sinni, Pieces of the People We Love, sem kom út
2006. Nú er fjórða plata The Rapture loksins komin út.
Nýja platan heitir In the Grace of Your Love og kemur út á mánu-
daginn, en undanfarna daga hefur verið í boði að hlusta á hana á vef-
setrum valinna fjölmiðla, m.a. Rolling Stone og Guardian. Hljómsveit-
in hefur gengið í gegnum töluverðar breytingar að undanförnu. Nýja
platan markar endurkomu hennar til DFA-útgáfunnar sem gaf út smá-
skífuna sem hún sló í gegn með, House of Jealous Lovers, árið 2002 og
stóru plötuna Echoes ári seinna. Þriðja platan kom hins vegar út hjá
Universal-risanum, en það samstarf virkaði greinilega ekki. Stærsta
breytingin er samt að nú er The Rapture tríó en ekki kvartett. Bassa-
leikarinn Mattie Safer er hættur.
Eins og á fyrri plötunum er tónlistin á In the Grace of Your Love
einhvers konar dansrokk, en hljómurinn er breyttur. Yfirbragðið er
léttara og hljóðheimur sveitarinnar hefur stækkað. Þetta er plata sem
lofar góðu við fyrstu hlustun. Umslagið hefur vakið athygli, en á því er
mynd af pabba söngvarans og gítarleikarans Luke Jenner á brimbretti.
Léttara dansrokk frá Rapture
FIMM ÁRA BIÐ Á ENDA In the Grace of Your Love kemur út á mánudaginn.
Þriðja breiðskífa Beirut,
The Rip Tide, er komin
út. Sterk áhrif frá Balkan-
skaganum, Frakklandi og
Mexíkó eru sem fyrr til
staðar.
Þriðja breiðskífa bandarísku
hljómsveitarinnar Beirut, The Rip
Tide, er nýkomin út.
Beirut er hugarfóstur hins 25
ára Zachary Francis Condon. Tón-
list sveitarinnar hefur alla tíð verið
undir áhrifum frá tónlist Balkan-
skagans, Mexíkó og Frakklands
þar sem harmonikka, fiðla, ukulele
og hin ýmsu blásturshljóðfæri eru
notuð til að búa til heillandi hræri-
graut sem tónlistarspekúlantar
hafa yfirhöfuð tekið opnum örum.
Zach Condon fæddist í Santa
Fe í Nýju Mexíkó árið 1986. Hann
ólst upp í Virginíu en flutti aftur
á heimaslóðir og spilaði þar á
trompet í djassbandi á unglings-
árum sínum. Eftir að hafa hætt
í skóla ferðaðist hann til Evrópu
og kynntist þar Balkantónlistinni
og var Goran Bregovic á meðal
áhrifavalda. Condon fékk í fram-
haldinu mikinn áhuga á heimstón-
list og smám saman varð litríkur
hljóðheimur Beirut til.
Fyrstu plötuna, Gulag Orkestar,
tók Condon að mestu upp í svefn-
herbergi sínu en fékk síðan hjálp
til að klára hana frá náungum
sem gengu síðar til liðs við Bei-
rut. Condon samdi við útgáfufyrir-
tækið Ba Da Bing! og platan kom
út árið 2006 við góðar viðtökur
gagnrýnenda. Í framhaldinu spil-
aði Beirut á sínum fyrstu tónleik-
um í New York og boltinn var far-
inn að rúlla.
Næsta plata, The Flying
Club Cup, var undir áhrifum
frá franskri tónlist með Serge
Gainsbourg fremstan í flokki.
Owen Pallett úr Arcade Fire ann-
aðist strengjaútsetningar á plöt-
unni, sem var að hluta til tekin
upp í hljóðveri Arcade Fire í Kan-
ada. Gagnrýnendur héldu áfram
að hampa Beirut og sú hefur einn-
ig orðið raunin með nýju plöt-
una sem var gefin út hjá útgáfu
Condons, Pompeii Records. Til að
mynda gefa bresku tónlistartíma-
ritin Mojo, Q og Uncut henni fjórar
stjörnur af fimm mögulegum.
The Rip Tide þykir vera nokkuð
frábrugðin fyrri verkum Beirut og
öllu aðgengilegri. Mexíkósku og
evrópsku áhrifin eru að sjálfsögðu
enn til staðar en útsetningarnar
eru smærri í sniðum en áður og
platan sjálf er aðeins 33 mínútna
löng, með níu fagurlega smíðuðum
lögum. freyr@frettabladid.is
Litríkur hljóðheimur Beirut
FORSPRAKKI BEIRUT Níu lög eru á nýjustu plötu Zachary Condon og félaga í Beirut sem nefnist The Rip Tide. NORDICPHOTOS/GETTY
Hinar „týndu“ Smile-upptökur The
Beach Boys frá árunum 1966-67
líta loksins dagsins ljós 31. október.
Brian Wilson, Al Jardine og
Mike Love tóku allir þátt í útgáf-
unni. Þar er að finna: „Saman-
safn af því sem átti á endanum að
verða fullunnin Smile-plata, tekið
af upprunalegum segulböndum
The Beach Boys“, eins og segir í
tilkynningu frá hljómsveitinni.
Í viðhafnarútgáfu plötunnar eru
fimm geisladiskar, tvær vínyl-
plötur, tvær sjötommur og sextíu
blaðsíðna bók.
Margir samverkandi þættir
urðu til þess að Smile kom aldrei
út og varð í kjölfarið frægasta
óútgefna plata sögunnar. Geð-
heilsa lagahöfundarins Brians
Wilson var ekki góð og hjálpaði
þar ekki óhófleg eiturlyfja-
neysla hans. Einnig voru hinir
meðlimir sveitarinnar ósáttir
við nýju lögin og töldu ómögu-
legt að flytja þau á tónleikum.
Nokkur laganna litu þó dagsins
ljós á plötunni Smiley Smile,
þar á meðal hið vinsæla Good
Vibrations. Wilson tók upp
eigin útgáfu af Smile árið 2003
og kom mörgum á óvart með
því að flytja hana í heild sinni
á tónleikum.
Smile lítur dagsins ljós
BROSANDI Smile frá Brian
Wilson og félögum í The
Beach Boys er loksins að
koma út.
> Í SPILARANUM
Lil Wayne - Tha Carter IV
Girls - Father, Son, Holy Ghost
Lo-Fi-Fnk - The Last Summer
Blitzen Trapper - American Goldwing
Tinariwen - Tassili
> PLATA VIKUNNAR
Sálgæslan - Dauði og djöfull
★★★★
„Andrea Gylfadóttir, Stefán Hilmars-
son og vel valinn hópur hljóðfæra-
leikara flytja frumsamda blúsa og
sálartónlist af tilfinningu.“ TJ
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 25. - 31. ágúst 2011
LAGALISTINN
Vikuna 25. - 31. ágúst 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Of Monsters And Men .................................. Little Talks
2 Coldplay .........................Every Teardrop Is A Waterfall
3 Mugison ...........................................................Stingum af
4 Bubbi Morthens............................................Háskaleikur
5 Páll Óskar ..................................................... La Dolce Vita
6 Jón Jónsson .................................................Wanna Get It
7 Adele ............................................. Set Fire To The Rain
8 Pétur Ben & Eberg ..................................Over And Over
9 Adam Levine/Christina Aguile ....Moves Like Jagger
10 Rihanna ............................................................Man Down
Sæti Flytjandi Plata
1 Helgi Björns & reiðm. vinda .....Ég vil fara uppí sveit
2 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
3 Bubbi ..............................................................Ég trúi á þig
4 ADHD ......................................................................ADHD 2
5 Björk .....................................................................Gling gló
6 Jón Jónsson .................................................Wait For Fate
7 Valdimar ............................................................Undraland
8 Björgvin & Hjartagosarnir ...........................Leiðin heim
9 Rökkurró ..................................................... Í annan heim
10 Steindinn okkar.......................... Án djóks ... samt djók