Fréttablaðið - 01.09.2011, Síða 54
1. september 2011 FIMMTUDAGUR38
bio@frettabladid.is
Tom Hooper, sem síðast gerði The King‘s
Speech, er nú að safna liði fyrir sína
mynd. Hooper ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur því hann hyggst gera
mynd eftir söngleiknum Vesalingunum
sem er byggður á skáldsögu Victors
Hugo. Hooper hefur auðvitað ótak-
markaðan aðgang að fjármagni eftir
velgengni The King‘s Speech og
hefur fengið Anne Hathaway til að
leika aðalkvenhlutverkið. Hathaway
hefur haft í nægu að snúast eftir að
hafa staðið sig með stakri prýði sem
kynnir Óskarsverðlaunanna, en hún
mun meðal annars leika kattarkon-
una í The Dark Knight Rises, síðustu
Batman-mynd Christopher Nolan.
> HÆTTUR VIÐ
James Franco hafði gert ráð fyrir
því að leika við hlið Nicole Kid-
man á Broadway í Sweet Bird
of Youth en hefur nú hætt við.
Hann er nefnilega upptekinn
við nám sitt í Yale-háskól-
anum.
Þrátt fyrir ungan aldur spann-
ar ferill Ryans Gosling næstum
tuttugu ár, en hann verður að
teljast einn eftirsóttasti leikari
Hollywood um þessar mundir.
Hann hefur að mestu leyti eytt
tíma sínum í óháða kvikmynda-
geiranum en er smám saman
að fikra sig upp á yfirborðið.
Ryan Gosling leikur aðalhlutverkið í
Crazy Stupid Love sem verður frum-
sýnd um helgina, en þetta er fyrsta
gamanmynd leikarans. Gosling leikur
þar ungan glaumgosa sem reynir að
kenna hinum fráskilda Cal Weaver, sem
leikinn er af Steve Carell, að njóta lífs-
ins upp á nýtt. Julianne Moore, Emma
Stone, Marisa Tomei og Kevin Bacon
leika einnig stór hlutverk í myndinni,
sem fengið hefur afbragðsgóða dóma.
Ryan Gosling er fæddur í nóvember
1980. Hann byrjaði snemma að leika og
var meðal annars hluti af Mikka mús-
klúbbnum þar sem Christina Agui-
lera, Britney Spears og Justin Timber-
lake voru meðal samstarfsfélaga hans
Christina Aguilera, Britney Spears og
Justin Timberlake. Gosling ákvað hins
vegar að feta leiklistarbrautina þrátt
fyrir að tónlistin togi í hann af og til,
hann er meðal annars í hljómsveitinni
Dead Man‘s Bones sem gaf út sam-
nefndan disk árið 2009. Þrátt fyrir að
Gosling teljist meðal kynþokkafyllstu
karlmanna heims átti hann síður en svo
auðvelda æsku; hann var mikið lagður
í einelti og að endingu ákváðu foreldr-
ar hans að taka hann úr skóla og kenna
honum heima.
Gosling hefði vel getað fest í hlut-
verki hjartaknúsarans eftir að hafa
grætt hverja einasta unglingsstúlku í
kvikmyndinni The Notebook. En Gosl-
ing ákvað að halda aðra leið; hann tók að
sér hlutverk sérvitringa og utangarðs-
manna í óháðum kvikmyndum. Hann
sýndi stjörnuleik í kvikmyndunum
Half Nelson, sem hann var tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna fyrir, og
Lars and the Real Girl auk
Blue Valentine. Gosl-
ing hafði samþykkt
að leika í kvikmynd
Dags Kára, The
Good Heart, en
annríkið eftir Ósk-
arsverðlaunatil-
nefninguna kom
í veg fyrir sam-
starfið.
Leikarinn
v i rðist h i ns
vegar smám
sa ma n vera
að fikra sig
upp á yfirborð
Hollywood-
markaðs-
vélarinnar;
hann leikur á
móti heilum
her stórleikara
í The Ides of
March en þar
má meðal ann-
ars finna stjörn-
ur á borð við
George Clooney,
Marisu Tomei,
Paul Giamatti og
Philip Seymour
Hoffman.
freyrgigja@
frettabladid.is
Jesse Eisenberg leikur aðalhlut-
verkið í gamanhasarmyndinni 30
Minutes or Less sem frumsýnd
verður um helgina. Eisenberg sló
auðvitað fyrst í gegn í kvikmynd-
inni Zombieland og fylgdi þeirri
velgengni eftir með hinni frábæru
The Social Network.
Að þessu sinni er vinanetið ógn-
vænlega víðsfjarri því Eisenberg
leikur pitsusendilinn Nick, sem
er við það að deyja úr leiðindum
í smábæ. Á því verður hins vegar
breyting þegar honum er rænt af
tveimur skuggalegum náungum
sem eiga sér þann draum heitast-
an að verða stórglæpamenn. Þeir
festa á Nick stóra sprengju og skipa
honum að ræna banka, annars verði
hann sprengdur í loft upp.
Nick leitar á náðir fyrrverandi
vinar síns, kennarans Chet, og
saman takast þeir á við þetta eld-
fima vandamál sem upp er komið.
30 Minutes or Less er fyrsta
mynd Eisenbergs eftir að Face-
book-myndin var sýnd og verður
forvitnilegt að sjá hvernig þessum
unga leikara gengur að hrista af
sér Zuckerberg-stimpilinn. Mynd-
in hefur reyndar ekki fengið neina
sérstaka dóma, er meðal annars
með 48 á metacritic en 6,8 á imdb.
com. - fgg
Brjálaðir bankaræningjar
ÞVÆR ZUCKERBERG AF SÉR Jesse Eisenberg leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni 30
Minutes or Less. Það er fyrsta myndin hans eftir Zuckerberg-ævintýrið.
Hollywood heldur áfram að
koma á óvart ef marka má nýj-
ustu fréttir frá kvikmyndaborg-
inni. Til stendur að gera kvik-
mynd um sögufrægan bardaga
Davíðs og Golíats sem getið er
um í Gamla testamentinu. Og þá
kynnu sumir að halda að hringt
yrði í „vandaða“ leikara. Alls
ekki. Því þeir sem hafa verið
orðaðir við hlutverkin teljast
seint til þess hóps. Orðrómur
er á kreiki um að Dwayne
Johnson, eða The Rock,
hafi tekið að sér
hlutverk Golí-
ats en Tay-
lor Lautner
verði sjálfur
Davíð Ísra-
elskonung-
ur. Það er
Scott Der-
rickson
sem mun
leikstýra
mynd-
inni.
Golíat á hvíta tjaldið
SÉRSTAKT TVÍEYKI Taylor
Lautner hefur verið orð-
aður við hlutverk Davíðs
Ísraelskonungs sem felldi
risann Golíat. Sá verður
hugsanlega leikinn af The
Rock.
Hathaway í Vesalinga Hoopers
Í STUÐI Anna
Hatheway
hefur landað
hlutverki í söng-
leikjamyndinni
Vesalingunum
sem leikstjóri
The King‘s
Speech gerir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.
FIKRAR SIG UPP Á
YFIRBORÐIÐ
Á UPPLEIÐ Ryan
Gosling er einn
eftirsóttasti leikari
Hollywood um þessar
mundir, en hann er
smám saman að fikra sig
upp á yfirborð Hollywood
eftir að hafa haldið sig að
mestu leyti í óháða kvikmynda-
geiranum.
NORDICPHOTOS/GETTY
George Clooney er hættur við að
leika í kvikmynd Steven Soder-
bergh, U.N.C.L.E. Lengi hefur
staðið til að Clooney myndi leika
í þessari njósnamynd sem á að
gerast á sjötta áratug síðustu
aldar. Ekki er vitað af
hverju Clooney hefur
yfirgefið þessa skútu
en Soderbergh gaf
það til kynna í New
York Times um
helgina að hann hefði
hug á því að hætta í
kvikmyndagerð
og snúa sér
alfarið að því
að mála.
Clooney farinn