Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 56
1. september 2011 FIMMTUDAGUR40
folk@frettabladid.is
Skandínavískir sjónvarpsþættir
hafa alltaf notið mikilla vinsælda
hér á landi og margir eru eflaust
þeirrar skoðunar að Norðmenn,
Svíar og Danir ættu að vera
fyrirmyndir íslenskra sjónvarps-
stöðva. Þeir eiga sér hins vegar
sínar dökku hliðar.
Kongerne af Marielyst er heitið á nýrri
raunveruleikaseríu sem er að gera
allt vitlaust í Danmörku. Í henni er
fylgst með átta dönskum ungmennum
skemmta sér á hinum vinsæla sumar-
leyfisstað Marielyst. Krakkarnir átta
láta allt eftir sér í glæsilegu húsi við
ströndina, það er drukkið ótæpilega og
fólk er ekki feimið við að stunda kyn-
líf. „Ég sef hjá einni stelpu um hverja
helgi,“ lét Knaldperlen hafa eftir sér í
samtali við dönsk blöð en hann er ein
aðalstjarna þáttanna. Nafnið Knaldper-
len væri hægt að þýða á íslensku sem
Bólfarabósann. Og hinir þátttakendurn-
ir hugsa á svipaðan hátt; líf þeirra fyrir
framan tökuvélarnar gengur einna helst
út á að torga eins miklu áfengi og mögu-
legt er og láta síðan kylfu ráða kasti.
En Danirnir eru ekki að finna upp
hjólið með þessum þætti því Svíarnir
höfðu fetað þessa braut í fyrra með
raunveruleikaþættinum Kungarna
av Tylösand, sem átti að vera sænska
útgáfan af Jersey Shore. Þátturinn
gerði allt brjálað í Svíþjóð, sænsku
blöðin gagnrýndu hann harðlega og
Twitter-notendur fóru hamförum í
kringum lokaþáttinn; taldar voru 340
þúsund færslur og flestir voru sam-
mála um að þetta væri botninn í
sænsku sjónvarpi. En það vantaði ekki
áhorfendurna þegar stjörnur þáttarins
mökuðust og supu af stút fyrir framan
tökuvélarnar.
Báðar þáttaraðirnar voru framleiddar
af sömu ástæðu; að veita raunveruleika-
þáttaröðinni Paradise Hotel verðuga
samkeppni. Paradise Hotel hefur slegið
í gegn hjá Norðmönnum, Svíum og
Dönum og ekkert lát virðist vera á vin-
sældum þeirra þátta. Nýjar þáttaraðir
fara í loftið í haust í löndunum þremur.
Söguþráðurinn er sá sami; ungmenn-
um er flogið í draumaveröld þar sem
áfengi drýpur af hverju strái, kon-
urnar skarta oftast sílikoni og karl-
arnir eru velþjálfaðir og sólbrúnir. Öll
eiga þau það sameiginlegt að vera allt-
af til í tuskið. Raunverulegt markmið
er óljóst en tilgangurinn augljós; að
framleiða ljósblátt sjónvarpsklám.
Og það er ekkert lát á framleiðslu
raunveruleikaþátta og þá sérstaklega í
Danmörku. TV 3 ætlar að ögra áhorf-
endum og bjóða þeim upp á eitthvað
sem þeir hafa ekki áður séð. Tíu dönsk-
um ungmennum hefur verið flogið til
Tyrklands þar sem þau munu matast,
drekka og njóta lystisemda holdsins. En
þau taka jafnframt þátt í einstökum leik
því þeim verður gert að velja milli kosta
sem reyna á þá bæði líkamlega og and-
lega. Stiklan minnir eilítið á hryllings-
mynd og ljóst að framleiðendurnir ætla
að ganga einu skrefi lengra en tíðkast
hefur í skandinavísku raunveruleika-
sjónvarpi til að laða áhorfendur að sjón-
varpsskjánum. freyrgigja@frettabladid.is
Skandínavar sjúkir í ljósblátt sjónvarpsefni
VINSÆLAST Á
NORÐURLÖNDUNUM
Kongerne af Marielyst (til hægri) hafa
slegið í gegn í dönsku sjónvarpi en þeir
eru gerðir eftir sænskri fyrirmynd, Kungarna
av Tylösand (að ofan), sem hneyksluðu
Svía fyrir ári enda var allt látið flakka í þeirri
þáttaröð. Báðar þessar þáttaraðir voru fram-
leiddar til höfuðs Paradise Hotel sem notið
hafa mikilla vinsælda í Noregi, Finnlandi og
Danmörku. Frægasta parið úr dönsku þátt-
unum var án nokkurs vafa turtildúfurnar Peter
og Amalie en þau skildu eftir fjörutíu daga
hjónaband. Amalie er nú með raunveru-
leikaþátt í dönsku sjónvarpi.
„Ég get lofað því að þetta verð-
ur svakalegasta bíóupplifun sem
fólk hefur séð á landinu. Ég held
að það komist ekkert í hálfkvisti
við þetta,“ segir Sigurður Kjart-
an Kristinsson.
Hann skipuleggur viðburðinn
Bíó í iðrum jarðar í tengslum
við Alþjóðlega kvikmyndahátíð
í Reykjavík sem hefst 22. sept-
ember. Farið verður með rútu
út fyrir Reykjavík í óvissubíó.
Þegar komið er á hinn leynilega
áfangastað verður gestum boðið
upp á veitingar og svo hefst sýn-
ingin. Aðeins verður um tvær
ferðir að ræða og aðeins þrjátíu
miðar verða seldir í hvora ferð.
„Þetta er ekki fyrsta árið
sem þetta kemur upp á borð hjá
okkur. Við erum búin að vera
með marga útlendinga sem hafa
verið að spá í bíó á skringilegum
stöðum úti á landi. Þetta gekk
upp í fyrsta skipti í ár,“ segir
Sigurður Kjartan og lofar eft-
irminnilegri upplifun. „Þetta
verður mikil adrenalínvíma og
þetta er hvorki fyrir viðkvæma
né fólk í lélegu líkamsástandi.
Þú þarft að vera ævintýraþyrst-
ur og í góðu formi líkamlega og á
sálinni,“ segir hann og bætir við
að allir verði í góðum höndum.
Þar á meðal verða fjallaleiðsögu-
menn til taks.
Hvor ferð mun taka hálfan
dag og miðaverð er 5.900 krón-
ur. Hægt er að kaupa miða á síð-
unni Riff.is. - fb
Svakaleg óvissuferð
kvikmyndaáhugafólks
SKIPULEGGUR ÓVISSUFERÐ Sigurður Kjartan Kristinsson skipuleggur viðburðinn Bíó í
iðrum jarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
17 ÁR verða á milli barna leikarans Robert Downey Jr. en hann á von á barni í byrjun næsta árs með eiginkonu sinni, Susan Downey. Fyrir á hann soninn Indio.