Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 58
1. september 2011 FIMMTUDAGUR42
Meðlimir rappsveitarinnar Out-
lawz sem Tupac Shakur stofnaði
segjast hafa reykt ösku rappar-
ans sáluga. Þetta gerðist á minn-
ingarathöfn um Tupac, sem var
skotinn til bana í Las Vegas 1996.
„Við héldum litla minningar-
athöfn fyrir hann með mömmu
hans og fjölskyldu hans. Við
fórum á ströndina með alls konar
dót sem hann fílaði, eins og gras,
kjúklingavængi og appelsín,“
sagði rapparinn Young Noble.
Það var svo rapparinn EDI Mean
sem ákvað að aska Tupac yrði
reykt. Hugmyndina fékk hann
úr laginu Black Jesus, þar sem
Tupac biður félaga sína um að
reykja ösku sína þegar hann
deyr.
Reyktu ösku
Tupac Shakur
TUPAC SHAKUR Félagar Shakur í
Outlawz gerðu sér lítið fyrir og reyktu
ösku hans.
Tónlistarmaðurinn Lou Reed
segir að samstarf hans við rokk-
arana í Metallica sé toppurinn á
hans ferli. „Við spiluðum saman
og þá vissi ég það strax,“ sagði
hann. „Þetta var algjör draum-
ur.“ Reed og Metallica hófu
óvænt samstarf og tóku upp plöt-
una Lulu sem kemur út 31. októ-
ber. Á meðal laga eru Junior Dad,
Little Dog og Pumping Blood.
Platan er byggð á tveimur verk-
um þýska leikskáldsins Frans
Wedekind og samdi Reed lögin
upphaflega fyrir leikrit í Berlín.
„Þetta er það besta sem ég hef
nokkru sinni gert og ég gerði það
með besta bandinu sem ég gat
fundið,“ sagði Reed, fyrrverandi
forsprakki The Velvet Undergro-
und.
Toppurinn
á ferlinum
ÁHUGAVERT SAMSTARF Lou Reed er
afar ánægður með samstarf sitt við
Metallica.
Tískuhönnuðurinn Mundi Vondi
hefur frestað tískusýningu sem
hann ætlaði að halda í Gamla bíói
á föstudagskvöld. Ástæðan er sú
að hann er upptekinn við búninga-
hönnun fyrir leikritið Axlar-Björn
auk þess sem Airwaves-tónlistar-
hátíðin er á næsta leiti.
„Það var mælt með því við mig
að sýna hana á meðan Airwaves-
hátíðin væri í gangi því þá verða
hérna margir erlendir fjölmiðlar,
þannig að ég ætla að gera það,“
segir Mundi. Sýningin verður því
haldin 15. október í Gamla bíói.
Þar ætlar Mundi að sýna prjónaða
sumarlínu sína, sem hann kallar
sjóaralínu og er að miklu leyti úr
bambus.
Þrátt fyrir frestunina verður
eftirpartínu sem halda átti að
lokinni sýningunni á föstudag-
inn ekki frestað. Það verður á
skemmtistaðnum Square við
Lækjartorg. „Ég mun verða þar
og gera eitthvað skemmtilegt,“
segir Mundi leyndar-
dómsfullur.
Belgíski/ítalski
tónlistarmaðurinn
Aeroplane, sem
heitir réttu
nafni Vito
De Luca,
spilar í partíinu ásamt íslensku
plötusnúðunum Benna
B-Ruff, Gísla Galdri,
Introbeats, Óla Ofur og
Oculus. „Þetta verður
rosalegt. Þetta er hald-
ið í samvinnu við RVK
Underground sem eru
mega partígæjar,“ segir
tískuhönnuðurinn.
- fb
Frestar bambustískusýningu
FRESTAR SÝNINGU
Mundi Vondi hefur
frestað tískusýningu
sem hann ætlaði að
halda á föstudags-
kvöld.
Gúmmískór
st. 20-35
Vnr. 787455
2 299
tígvél
Vnr. 822071
Vnr. 836357, 836358
ístígvél
3
Vnr. 836359
kr
ístígvél
35
Vnr. 836361
9kr
Vnr. 822070
Vnr. 787456
Vnr. 836360
mér finnst
rigningin góð...
LOÐFÓÐRU
Ð
Popparinn Justin Bieber slapp með skrekk-
inn þegar hann lenti í árekstri í Los Angeles.
Atvikið átti sér stað í bílastæðahúsi neðanjarð-
ar þegar ökumaður Hondu-bifreiðar ók lítil-
lega utan í svarta Ferrari-glæsikerru Biebers.
Enginn slasaðist og hvorugur bíllinn skemmd-
ist. Atvikið átti sér stað innan við tveimur
sólarhringum eftir að Bieber hlaut MTV-verð-
laun fyrir myndband sitt við lagið U Smile. Popp-
arinn, sem var uppgötvaður af söngvaranum
Usher, er um þessari mundir að fylgja eftir sinni
fyrstu plötu, My World, sem kom út í fyrra.
Slapp með skrekkinn
SLAPP VIÐ MEIÐSLI Justin Bieber slapp
með skrekkinn eftir að hafa lent í árekstri
í Los Angeles.