Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 59
FIMMTUDAGUR 1. september 2011 43
Britney Spears er sögð vilja
eignast barn með kærasta sínum
Jason Trawick. Söngkonan á
fyrir tvo syni, hinn fimm ára
Sean Preston og hinn fjögurra
ára Jayden James, með fyrrver-
andi eiginmanni sínum Kevin
Federline. Fregnir herma að Spe-
ars vilji reyna að búa til systkini
handa þeim eftir að tónleikaferð
hennar um heiminn lýkur í lok
ársins. „Hún hefur alltaf viljað
eignast stóra fjölskyldu en vill
líka sanna fyrir sjálfri sér og
fjölskyldu sinni að hún sé góð
móðir. Hún vill annað tækifæri
til að sýna hvað í henni býr,“
sagði heimildarmaður.
Britney vill
eignast barn
VILL BARN Britney Spears vill eignast
barn með kærasta sínum Jason Trawick.
Fyrirtæki Stevens Spielberg,
DreamWorks Television, ætlar
að framleiða nýja sjónvarps-
þáttaröð byggða á vísindaskáld-
sögu Stephens King, Under the
Dome. King sjálfur tekur þátt í
framleiðslunni. Þættirnir fjalla
um íbúa smábæjarins Chester’s
Mill í Maine sem festast inni í
einhvers konar lofthjúpi sem ekk-
ert kemst í gegnum, þar á meðal
flugvélar. Enginn skilur hvernig
þessi hjúpur varð til eða hvaðan
hann kom. Dale Barbara, fyrr-
verandi hermaður í Írak, og aðrir
hugrakkir bæjarbúa gera hvað
þeir geta til að losa sig við hjúp-
inn áður en það verður of seint.
Íbúar fastir
í lofthjúpi
FRAMLEIÐIR SJÓNVARPSÞÆTTI Þættirnir
eru byggðir á skáldsögu Stephens King,
Under the Dome.
„Við virðumst hafa hitt naglann með þessu hlut-
verkavali og höfum verið með puttann á púlsin-
um. Svartur á leik er alvöru,“ segir Þórir Snær
Sigurjónsson kvikmyndaframleiðandi.
Frásögn DV af vitnisburði fyrirsætunnar
Hildar Lífar í Héraðsdómi Reykjavíkur í svo-
kölluðu Black Pistons-máli vakti mikla athygli
í gær. Mikið hefur verið fjallað um réttarhöldin
enda bera þau vott um sívaxandi hörku og nán-
ast sjúklegt ofbeldi í undirheimum Reykjavíkur
en tveimur mönnum er gefið að sök að hafa beitt
þriðja aðila óhugnanlegu ofbeldi. Hildi Líf bregð-
ur hins vegar einnig fyrir í kvikmyndinni Svartur
á leik sem Þórir Snær framleiðir og byggir á sam-
nefndri bók Stefáns Mána um undirheima Reykja-
víkur við aldamótin. Þórir segir þetta hrikalega
tilviljun en svona geti raunveruleikinn og skáld-
skapurinn stundum skarast. Þórir hefur
næg verkefni á sinni könnu því á skipu-
laginu er kvikmyndin Only God Forgives
sem Cannes-verðlaunahafinn Nicholas
Winding Refn leikstýrir. „Við höfum gert
tvær myndir saman, Bronson og Valhalla
Rising, og Nicholas er líka einn af fram-
leiðendum Svartur á leik,“ segir Þórir
en meðal annarra framleiðenda
eru breska stórstjarnan Krist-
in Scott Thomas og Holly-
wood-sjarmörinn Ryan
Gosling. Þau tvö munu
jafnframt leika aðalhlut-
verkin í myndinni sem
Þórir kýs að lýsa sem
„ofbeldislist“. -fgg
SKRÝTIN SKÖRUN Hildur Líf (lengst til
hægri) leikur lítið hlutverk í kvikmyndinni
Svartur á leik en nafn hennar var óvænt
dregið inn í hið svokallaða Black Pistons-mál.
Þórir Snær segir það stundum skrýtið hvernig
raunveruleikinn og skáldskapurinn skarast.
Framleiðir mynd með Hollywood-stjörnum