Fréttablaðið - 01.09.2011, Side 62
1. september 2011 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
RÚNAR KRISTINSSON þjálfari KR og fyrrum landsliðsmaður Íslands, fær sérstaka viðurkenningu frá UEFA fyrir leik
Íslands og Kýpur á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Hann er einn af þeim 109 leikmönnum sem hefur leikið yfir 100 A-
landsleiki fyrir þjóð sína. Leikmennirnir 109 koma frá 36 knattspyrnusamböndum og meðal þeirra sem fá líka verðlaun
eru Michael Laudrup, Bobby Charlton, David Beckham, Zinedine Zidane, Kenny Dalglish og Franz Beckenbauer.
Knattspyrnusam-
bandið verður að
taka gjörsamlega nýjan kúrs
í umgjörð landsliðsins og allri
hugmyndafræði frá a til ö.
BJARNI JÓHANNSSON
snjótennur
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
FÓTBOLTI Bjarni Jóhannsson hefur
verið lengur en tvævetur í bolt-
anum og komið víða við. Hann fór
með Stjörnuna upp í efstu deild á
sínu fyrsta tímabili með liðið 2008
og hefur fest liðið í sessi í efstu
deild. Leiðin að árangrinum hefur
verið sóknarknattspyrna.
Hægir og kraftlausir menn enda
bara í utandeildinni
„Það eru ábyggilega fá lið sem
hafa komið upp með svoleiðis
krafti því yfirleitt hafa nýliðar í
gegnum tíðina lagst í vörn og stól-
að á að fá á sig fá mörk og halda
þannig sæti sínu í deildinni. Þann-
ig hefur það þó ekki verið í Stjörn-
unni,“ segir Bjarni.
Hann segir það mannskapn-
um sem hann hafi í höndunum að
þakka að hann þori að blása til
sóknar.
„Það er bara sálin í þessum
drengjum. Meira að segja varn-
armennirnir eru sóknarhugsandi
og tímasetningin er líka þrælgóð
því fótboltinn er að breytast mikið.
Þeir sem hafa ekki hraða og kraft
fram á við enda bara í utandeild-
inni.“
Undanfarin tvö tímabil hefur
Stjarnan raðað inn mörkunum
en einnig fengið haug af mörk-
um á sig. Breyting hefur orðið á
því í sumar, ekki í markaskorun
en í fjölda marka sem liðið hefur
fengið á sig. Bjarni segir nokkrar
ástæður fyrir því.
„Varnarleikur manna framar-
lega á vellinum hefur gengið betur,
pressan hefur tekist oftar. Svo eru
þessir strákar árunum eldri og við
erum tilbúnari í þennan líkam-
lega leik. Svo hefur liðið þroskast
þokkalega og við erum betri í að
halda bolta. Við töpum boltanum
sjaldnar.“
Bæta þarf aðstöðuna í Garðabæ
Framtíðin virðist björt hjá
Garðbæingum. Bjarni segir yngri
flokka Stjörnunnar meðal þeirra
bestu á landinu, karlaliðið hafi fest
sig í sessi í efstu deild og kvenna-
liðið sé fremst meðal jafningja.
Yngri flokkarnir eigi góðar fyrir-
myndir og nú þurfi allir að leggj-
ast á eitt og byggja á því góða.
Aðstaða knattspyrnufólks í
Garðabænum sé hins vegar stórt
vandamál.
„Það eru um sex hundruð iðk-
endur í fótboltanum og aðalvöll-
ur félagsins er einnig aðalæfinga-
völlur félagsins á árs grundvelli.
Það þarf að verða algjör bylting
í aðstöðumálum hér í Garðabæ
ef menn ætla að halda þessum
dampi og taka skrefið fram á við,“
segir Bjarni. Garðabær gefi sig út
fyrir að vera mikill íþróttabær og
stjórnmálamenn hafi gefið út að
menn eigi að fá að æfa við bestu
aðstæður.
„Nýjasta dæmið um það er bygg-
ing fimleikahallarinnar sem er á
heimsmælikvarða. Það er ekki
hægt að gera upp á milli íþrótta-
greina. Það verða allar íþrótta-
greinar að fá það besta og þannig
eiga menn að hugsa hér í Garða-
bænum. Næsta skref er auðvitað
bylting í aðstöðumálum fyrir
knattspyrnuna.“
Ráða á erlendan landsliðsþjálfara
KSÍ hefur gefið út að samning-
ur Ólafs Jóhannessonar lands-
liðsþjálfara verði ekki endurnýj-
aður. Bjarni segir nálægðina á
Íslandi hafa slæm áhrif á umgjörð
íslenska landsliðsins.
„Ég hef horft upp á eina fjóra
eða fimm Íslendinga hálshöggna
út af lélegum árangri. Það er
alltaf auðveldast að reka þjálfar-
ann en ég tel að stærstum hluta
þjálfarann ekki mesta vanda-
málið. Tengslin milli KSÍ og stóru
félaganna hér á landi eru sterk og
starfsfólkið í kringum landslið-
ið alltof tengt félögunum,“ segir
Bjarni. Hann segir tengslin gera
það að verkum að upp komi við-
kvæm og óþægileg mál sem hafi
klárlega áhrif á val á leikmönnum
í landsliðið.
Bjarni, sem var aðstoðarmaður
Eyjólfs Sverrissonar á tíma hans
með landsliðið, segist myndu taka
við starfinu yrði leitað til hans.
Hann er þó á þeirri skoðun að
tímabært sé að leita út fyrir land-
steinana.
„Við eigum hiklaust, með fullri
virðingu fyrir mér og öðrum
kollegum mínum á Íslandi, að
ráða erlendan þjálfara og hrista
almennilega upp í þessu. Knatt-
spyrnusambandið verður að
taka gjörsamlegan nýjan kúrs í
umgjörð landsliðsins og allri hug-
myndafræði frá a til ö.“
Bjarni segir KSÍ ekki geta borið
fyrir sig peningaskort þegar
kemur að ráðningu nýs þjálfara.
„Mér er sama hvað það kostar.
Ef menn telja sig ekki hafa efni á
því þá búa þeir til nefnd sem nær
í þessa peninga til þess að hafa
ofan í sig og á. Það verður að lyfta
grettistaki í málum landsliðsins.“
kolbeinntd@365.is
Kominn tími á erlendan þjálfara
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, segir Knattspyrnusamband Íslands þurfa að breyta allri umgjörð
þegar kemur að íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Bjarni, sem náð hefur eftirtektarverðum árangri með
Stjörnuna undanfarin ár, segir peningaskort enga afsökun fyrir því að leita ekki út fyrir landsteinana.
ÁRANGURSRÍKUR ÞJÁLFARI Bjarni gerði ÍBV tvisvar að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum. Fylkir varð bikarmeist-
ari undir hans stjórn auk þess sem hann kom Breiðabliki og Stjörnunni upp í efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Guðjón Pétur Lýðsson,
sem hefur að margra mati
verið besti leikmaður Vals í
sumar, hefur leikið sinn síðasta
leik fyrir félagið. Valsmenn
lánuðu hann í gær til sænska
úrvalsdeildarliðsins Helsingborg
en Helsingborg hefur síðan
forkaupsrétt á Guðjóni eftir
tímabilið.
„Ég er hrikalega spenntur og
vonandi er maður að fara þarna
út til að vinna einhverja titla. Ég
ætla heldur betur að sýna mig en
þetta er bara undir mér sjálfum
komið,“ sagði Guðjón Pétur í gær
og hann hefur ekki áhyggjur af að
brotthvarf hans hafi slæm áhrif á
Valsliðið.
„Ég hef engar áhyggjur af
þeim þótt að ég fari. Við erum
með stóran og góðan hóp og fullt
af góðum leikmönnum,“ sagði
Guðjón.
Helsingborg endaði í 2. sæti í
sænsku úrvalsdeildinni á síðasta
tímabili og er eins og er með
sex stiga forystu á toppi sænsku
úrvalsdeildarinnar. Guðjón á því
möguleika á því að verða sænskur
meistari í haust.
„Þetta er gott og vel spilandi lið
sem hentar mínum leik mjög vel.
Þeir eru með flottan þjálfara sem
er mjög ákveðinn og agaður. Hann
er búinn að fylgjast með mér frá
því í janúar á þessu ári en ég vissi
það ekki fyrr en í gær,“ segir Guð-
jón sem frétti fyrst af áhuga Hels-
ingborg á þriðjudaginn og sólar-
hring seinna var hann kominn í
nýtt félag.
„Þetta kom skemmtilega á óvart
og ég flýg bara út í fyrramálið. Ég
náði að kveðja strákana á æfingu
áðan, hvatti þá áfram og óskaði
þeim góðs gengis. Ég vona að þeir
nái Evrópusæti,“ segir Guðjón sem
er mjög ánægður með þróun mála.
„Það er frábært að komast að hjá
svona góðu liði og það er bara
viðurkenning á því sem maður er
búinn að vera að gera.“.
Guðjón Pétur hefur leikið
frábærlega á sínu fyrsta tímabili
með Valsmönnum í sumar og er
markahæsti leikmaður liðsins með
8 mörk í 17 leikjum.
Það síðasta sem Guðjón Pétur
gerði í Valsbúningnum var að
tryggja liðinu 1-1 jafntefli á móti
Breiðabliki með frábæru marki
beint úr aukaspyrnu á lokamínútu
leiksins. Hann hrósar því hvernig
Valsmenn tóku á þessu máli.
„Þeir stóðu sig frábærlega í
þessu máli. Þeir hugsuðu fyrst og
fremst um hag minn og ég vona
bara að ég standi mig og að þeir
fái pening fyrir mig,“ sagði Guðjón
að lokum. - óój
Valsmenn lánuðu í gær stjörnuleikmanninn sinn Guðjón Pétur Lýðsson til sænska toppliðsins Helsingborg:
Vona að Valsmenn fái pening fyrir mig
GUÐJÓN PÉTUR LÝÐSSON Hefur skoraði
8 mörk og gefið 4 stoðsendingar í
Pepsi-deildinni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/CCC
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen verður í stóru hlutverki með
íslenska landsliðinu á móti Norð-
mönnum í undankeppni EM á
morgun. Hann var í viðtali við
Hörð Magnússon íþróttafrétta-
mann Stöðvar 2 á æfingu liðsins
sem fram fór á gamla heimavelli
Stabæk í gær.
„Ég geri aðallega væntingar til
þess að við sýnum stolt og reyn-
um að koma út úr þessum leik
með einhverri jákvæðni. Það er
lítil sem engin jákvæðni í kring-
um okkur um þessar mundir. Það
er líka aðeins meira í húfi á móti
Norðmönnum sem eru frændur
okkar og ég held að við séum allir
staðráðnir í að snúa umræðunni í
kringum liðið í eitthvað jákvæð-
ara tal,“ sagði Eiður Smári sem
finnur sig vel í Grikklandi.
„Mér líkar mjög vel hjá AEK
í Grikklandi fram að þessu.
Þetta er allt öðruvísi og kannski
smá ævintýri. Ég er nokkuð
ánægður með undanfarnar vikur
því ég hef getað tekið þátt í
undirbúningstímabili. Við fórum
áfram inn í Evrópudeildina
sem er mjög mikilvægt fyrir
klúbbinn og fyrir fjárhagsstöðu
Grikklands í heild sinni. Það
var mikilvægt sem og að fá að
spila fótbolta því það er það
skemmtilegasta sem að maður
gerir,“ segir Eiður og bætir við:
„Það er ótrúleg stemmning
í Grikklandi og fótbolti virðist
vera aðalumræðuefnið. Þeir eru
skemmtilega blóðheitir og annað-
hvort eru menn hetjur eða skúrk-
ar. Við Elfar erum ágætir eins
og er og erum því ennþá í góðum
málum,“ segir Eiður. - óój
Eiður Smári um Grikki:
Skemmtilega
blóðheitir
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Finnur sig
vel hjá AEK og vill að landsliðið sýni
stolt gegn Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM