Fréttablaðið - 01.09.2011, Page 66
1. september 2011 FIMMTUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
Hollráð Hinna
Vítalausar lausnir
87
Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu
hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, er hér með hugleiðingar varðandi vítalausar lausnir.
Þegar tekin er lausn samkvæmt reglum 24-2 (óhreyfanleg hindrun), 25-1 og
25-3 (óeðlilegt ástand vallar og röng flöt) er það vítalaust.
Kylfingar verða hins vegar að hafa í huga að þarna er ekkert val, það verður að
finna „Næsta stað fyrir lausn“ og það er bara einn slíkur staður til.
Skilgreiningin hljóðar svo: „Næsti staður fyrir lausn“ (Nearest point of relief)
er viðmiðunarpunktur þegar tekin er lausn vegna truflunar frá óhreyfanlegri
hindrun (regla 24-2), óeðlilegu ástandi vallar (regla 25-1) eða rangri flöt (regla
25-3).
Það er sá punktur á vellinum sem er næstur boltanum þar sem hann liggur,
a) sem er ekki nær holu og
b) hvaðan, lægi boltinn þar, væri ekki um truflun að ræða fyrir höggið sem
leikmaðurinn hefði greitt úr hinni upphaflegu legu, væri truflunin ekki til
staðar.
Aths.: Við að ákvarða næsta stað fyrir lausn nákvæmlega ætti leikmaðurinn
að nota þá kylfu sem hann hefði notað ef truflunin væri ekki fyrir hendi, þegar
hann líkir eftir miðunarstöðu, leikátt og sveiflu fyrir slíkt högg.
Boltann verður að láta falla innan einnar kylfulengdar frá næsta stað fyrir
lausn. Næsti staður fyrir lausn getur ekki verið í torfæru eða á flöt. Boltinn má
renna tvær kylfulengdir frá þeim stað sem hann snertir fyrst
jörðina innan kylfulengdar og er ekki nær holu, ekki gætir
truflunar lengur og og er ekki í torfæru eða flöt. Boltann má
hreinsa þegar honum er lyft samkvæmt þessum reglum.
Nokkrar þarfar ábendingar: kylfingar ættu ávallt að athuga
hvar næsti staður fyrir lausn er áður en þeir merkja og lyfta
boltanum vegna þess að næsti staður fyrir lausn getur verið
svæði þar sem boltinn getur orðið nánast ósláan-
legur – muna að það er ekkert val. Það er bara einn
staður á vellinum sem er næsti staður fyrir lausn.
Því miður virðist gæta ákveðins misskilnings
hjá íslensku kylfingum (og sjálfsagt víðar) að
þetta sé ekki næsti staður fyrir lausn heldur
besti staður fyrir lausn og er því oft farið
frjálslega með þessa lausn. Vonandi greiðist
úr þessum misskilningi hér og nú.
Síðasta mótið á Eimskipa-
mótaröðinni í golfi fer fram
um helgina. Efstu keppend-
ur á mótaröðinni eru fjarri
góðu gamni, bæði í karla-
og kvennaflokki. Spennan í
karlaflokki er gríðarleg, en
ellefu kylfingar geta orðið
stigameistarar.
Chevrolet-mótið, síðasta mótið í
Eimskipsmótaröðinni í golfi, fer
fram á Urriðavelli um helgina.
Leiknar verða 54 holur, 36 holur
fyrri dag mótsins og 18 þann síð-
ari. Mikil spenna er í karlaflokki
því ellefu kylfingar geta fræðilega
séð unnið Eimskiptamótaröðina.
Úrslitin í kvennaflokki eru
heldur ekki ráðin. Ólafía Þór-
unn Kristins dóttir úr Golfklúbbi
Reykjavíkur hefur rúmlega 900
stiga forystu á toppnum fyrir síð-
asta mótið. Hún verður fjarri góðu
gamni þar sem hún er við nám í
Bandaríkjunum. Signý Arnórs-
dóttir úr Golfklúbbnum Keili á
möguleika á að ná Ólafíu Þórunni
að stigum. Signý er í öðru sæti á
stigalistanum og henni dugir í raun
5. sætið til að tryggja sér sigur á
Eimskiptamótaröðinni.
Sunna Víðisdóttir, GR, er í
fimmta sæti en hún er 2.403 stig-
um á eftir Ólafíu Þórunni. Sunna
getur mest náð 2. sætinu. Fari svo
að Signý hafi sigur í mótinu um
helgina nægir Sunnu þriðja sætið
til að ná þriðja sætinu á mótaröð-
inni.
Staðan í karlaflokki á Eimskipa-
mótaröðinni er hins vegar mun
flóknari. Rúmlega 1.340 stigum
munar á efsta sætinu og því ellefta.
Fræðilega séð geta ellefu kylfing-
ar því farið með sigur af hólmi á
mótaröðinni.
Íslandsmeistarinn í höggleik,
Axel Bóasson úr Golfklúbbnum
Keili, leiðir mótaröðina með 4.077,5
stig. Hann verður hins vegar ekki
með um helgina þar sem hann er
farinn til náms í Bandaríkjunum.
Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR,
Kristján Þór Einarsson úr GKj og
Þórður Rafn Gissurarson úr GR
verða einnig fjarverandi. Sjö kepp-
endur munu því kljást um stiga-
meistaratitilinn í karlaflokki.
Aðeins fimmtíu stig skilja að
Harald Franklín Magnús úr GR,
Stefán Má Stefánsson úr GR og
Helga Birki Þórisson úr GSE, sem
eru í öðru til fjórða sæti á mótaröð-
inni. Því má búast við harðri bar-
áttu þeirra á milli.
kristjan@frettabladid.is
Sæti Hlutfall Stig
1. sætið 10% 1.500
2. sætið 8% 1.200
3. sætið 7,1% 1.065
4. sætið 6,35% 952,5
5. sætið 5,75% 862,5
6. sætið 5,25% 787,5
7. sætið 4,75% 712,5
8. sætið 4,25% 637,5
9. sætið 3,75% 562,5
10. sætið 3,55% 532,5
Stigagjöfin
Sæti Kylfingur Klúbbur Stig
1. Axel Bóasson GK 4077.50*
2. Haraldur Franklín Magnús GR 3979.17
3. Stefán Már Stefánsson GR 3960.00
4. Helgi Birkir Þórisson GSE 3932.50
5. Arnór Ingi Finnbjörnsson GR 3507.50*
6. Arnar Snær Hákonarson GR 3339.75
7. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 3337.25
8. Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 3310.00
9. Andri Már Óskarsson GHR 3159.70
10. Kristján Þór Einarsson GKJ 2987.50*
11. Þórður Rafn Gissurarson GR 2734.20*
* Er ekki skráður til leiks á lokamótinu
Staðan á Eimskipsmótaröðinni – karlar
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON Það verður
í nógu að snúast hjá Birgi Leifi Hafþórs-
syni næstu mánuðina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Birgir Leifur Hafþórsson úr
GKG verður á meðal keppenda
í Kazakh stan Open á evrópsku
áskorendamótaröðinni sem hefst
8. september. Mótið er eitt það
stærsta á mótaröðinni og er verð-
launafé í mótinu öllu hærra en
gengur og gerist á mótaröðinni, að
því er fram kemur á Kylfingur.is.
Birgir staðfesti einnig í sam-
tali við Kylfingur.is að hann sé að
íhuga að fara í úrtökumót fyrir
bandarísku PGA-mótaröðina.
Hann þarf að hefja leik í úrtöku-
móti á fyrsta stigi í október og
segir að hann muni taka loka-
ákvörðun um það á næstu vikum.
Birgir Leifur gerir víðreist:
Stefnir á PGA
Síðustu vikuna hafa minnst fimm
íslenskir kylfingar farið holu í
höggi, að því er fram kemur á
kylfingi.is.
Hinrik Stefánsson fór holu í
höggi á 6. holu á Grafarholts-
velli, Ellen Blumenstein fór holu
í höggi á 3. holu, Helga Ingibjörg
Reynisdóttir fór holu í höggi á
14. holu á sama velli og þá fór
Sigurður Hreinsson holu í höggi
á 3. holu á Katlavelli á Húsavík.
Segir sagan að fagnaðarlætin
hafi heyrst af vellinum alla leið
niður í bæ.
Ótrúlegt afrek hjá kylfingum:
Minnst fimm
fóru holu í höggi
KYLFINGAR eru skráðir til leiks í síðasta mótinu í
Eimskipamótaröðinni í golfi – 66 karlar og 21 kona.
Tiger Woods ætlar að taka þátt
í Frys.com Open sem fram fer í
Kaliforníu fyrstu vikuna í októ-
ber.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Tiger keppir á PGA-haustmóta-
röðinni, en hann er að undirbúa
sig fyrir Forsetabikarinn.
„Mér finnst alltaf jafn gaman
að spila á heimaslóðum og þetta
mót hentar undirbúningi mínum
fullkomlega,“ sagði Woods á
heimasíðu sinni á mánudag. „Ég
hlakka til að hitta gamla vini.“
Þetta er í fimmta skipti sem
Frys.com Open er haldið. Mótið
í fyrra þótti ákaflega spennandi,
en þá fór Rocco Mediate með
sigur af hólmi.
Óvæntur þátttakandi á PGA:
Tiger á Frys.com
Á BATAVEGI? Tiger vonast til að koma
ferlinum á réttan kjöl.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 6673.75*
2. Signý Arnórsdóttir GK 5761.25
3. Valdís Þóra Jónsdóttir GL 5241.25*
4. Tinna Jóhannsdóttir GK 4600.00*
5. Sunna Víðisdóttir GR 4270.00
* Er ekki skráð til leiks á lokamótinu
Staðan á Eimskipamótaröðin – konur
Ellefu geta orðið stigameistari
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
lÍs en ku
A PARNIR
s
Útivistarjakkar 20% til 60% afsláttur
Útivistarbuxur 20% til 60% afsláttur
og fleira og fleira...
Ekki missa af þessu
akmarkað magn!
LÍKLEG TIL AFREKA Sunna Víðisdóttir (t.v.) og Signý Arnórsdóttir eiga möguleika á
sigri á Eimskipamótaröðinni. Sömu sögu er að segja af Helga Birki (t.v.) Stefáni Má
og Haraldi Franklín Magnús (t.h.) en þeir eru í öðru til fjórða sæti á mótaröðinni.