Fréttablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 70
1. september 2011 FIMMTUDAGUR54
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt,“ segir
Kamilla Ingibergsdóttir hjá Iceland
Airwaves.
Breska rokksveitin The Vaccines, með
Íslendinginn Árna Hjörvar Árnason á
bassanum, er hætt við að koma fram á
tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem
fer fram í Reykjavík í október. Ástæð-
an er hálsaðgerð sem söngvarinn Justin
Young þarf að gangast undir, sú þriðja
á þessu ári. Fyrir vikið hefur sveitin
aflýst fyrirhuguðum tónleikum sínum
víða um heim í september og fram til
26. október, skömmu eftir að Airwaves-
hátíðinni lýkur.
Tónleikar The Vaccines áttu að vera
einn af hápunktum Airwaves og því eru
þetta mikil vonbrigði fyrir þá sem hafa
þegar keypt sér miða. „Við vorum mjög
spennt fyrir því að fá The Vaccines hing-
að en þetta er eitthvað sem var alls ekki
hægt að koma í veg fyrir. Þeir eru að
aflýsa risastórum túr og því hræðilegt
fyrir þá líka, enda eru þeir að byrja fer-
ilinn sinn,“ segir Kamilla. Til stendur að
finna góðan staðgengil fyrir The Vacc-
ines og er sú vinna í fullum gangi. „Við
getum huggað fólk með því að það eru
tvö hundruð önnur atriði í boði. Ég hugsa
að það verði enginn ósáttur á Airwaves.“
Á meðal erlendra flytjenda á hátíðinni
verða Sinéad O´ Connor, Beach House,
John Grant og Yoko Ono Plastic Ono
Band. - fb
HÆTTIR VIÐ Breska rokk-
sveitin The Vaccines er
hætt við að koma fram á
Airwaves-hátíðinni.
Lausn er fundin á deilu norska rithöfund-
arins Margit Sandemo og Ríkissjónvarps-
ins vegna sjónvarpsþáttarins Ísfólk-
ið með Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur.
Þátturinn mun heita Ísþjóðin með Ragn-
hildi Steinunni.
Fréttablaðið greindi frá þessu allsér-
staka máli á laugardaginn en skáldkon-
an var ekki par sátt við að RÚV hygðist
nefna nýjan sjónvarpsþátt þessu nafni en
frægur bókaflokkur Sandemo heitir ein-
mitt Ísfólkið. „Ég er bara mjög ánægð að
RÚV skuli hafa hlustað á okkar málstað
og tekið athugasemdir okkar til greina.
Þetta er bara mjög flott og fínt nafn og
passar þættinum betur,“ segir Sigrún
Halldórsdóttir, útgefandi Sandemo.
„Við ákváðum að fara þessa leið og ég
vona svo sannarlega að enginn eigi einka-
leyfi á Ísþjóðinni,“ segir Ragnhildur
Steinunn. Hún segist hafa fengið frjáls-
ar hendur frá Ríkisútvarpinu og raunar
sjálfdæmi í málinu og hún hafi ákveðið að
láta hagsmuni þáttarins ráða för. „Við
ákváðum að breyta þessu fyrst þetta
er svona mikið tilfinningamál, ég vil
fyrst og fremst að innihald þáttanna
fái að njóta sín.“
Í gær var síðan unnið hörð-
um höndum að því að breyta
öllu kynningarefni þáttanna og
„lógói“. „Þetta er án nokkurs
vafa með því áhugaverðasta sem
ég hef lent í á mínum sjónvarps-
ferli, þetta mun seint gleymast.“
- fgg
„Þetta var í raun grín sem varð
að veruleika,“ segir Marín Manda
Magnúsdóttir, sem er komin með
annan fótinn til Íslands eftir tíu
ára búsetu í Danmörku. Ástæðan
er vinnutilboð sem hún gat ekki
hafnað.
„Ég hitti gamla starfsfélaga fyrir
tilviljun þegar ég var heima í fríi
í vor og þeir spurðu mig hvort ég
væri ekkert á leiðinni heim. Ég
svaraði í gríni: ef þú ert með góða
vinnu fyrir mig kem ég heim á
morgun,“ segir Marín Manda hlæj-
andi en hún fékk símtal strax dag-
inn eftir þar sem henni bauðst að
verða framkvæmdastjóri vefversl-
unarinnar Skor.is. Verslunin verður
opnuð í september og kemur Marín
Manda að innkaupum og sér um
rekstur verslunarinnar sem hún
segir vera sérsniðna að nútíma
Íslendingnum.
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni enda verður verslunin sú
stærsta sinnar tegundar á Íslandi.
Það verður fjölbreytt úrval af
skóm, stöðugar nýjungar og frí
heimsending svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Marín Manda en hún
hefur dágóða reynslu í verslunar-
mennsku.
Hún rak sína eigin barnafata-
verslun í Kaupmannahöfn við
góðan orðstír og lærði fatahönnun
úti. „Að reka mitt eigið fyrirtæki
var tvímælalaust besti skóli sem ég
gat fengið en þetta verkefni er það
stærsta sem ég hef tekið að mér.
Það er mjög gaman að takast á við
eitthvað nýtt.“
Marín Manda skildi við dansk-
an barnsföður sinn í byrjun árs en
þau eiga tvö börn saman. „Það að
ég sé að vinna á Íslandi er púslu-
spil enn sem komið er en við erum
mjög góðir vinir og finnum út úr
því,“ segir hún og bætir við: „Ég
er eiginlega of dönsk til að vera
íslensk og öfugt. Danirnir kenndu
mér að vera jarðbundnari og kunna
að meta einkalífið. Ég er hins vegar
ennþá íslenski vinnualkinn og hef
gaman af því.“ alfrun@frettabladid.is
MARÍN MANDA MAGNÚSDÓTTIR: KOMIN HEIM OG SELUR SKÓ Á NETINU
Komin niður á jörðina eftir
tíu ára búsetu í Danmörku
GAMAN AÐ VINNA Á ÍSLANDI Marín Möndu Magnúsdóttur líkar vel að vera komin heim og ætlar að sjá kaupglöðum Íslendingum
fyrir skóm gegnum netið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
The Vaccines hætt við Airwaves
Ísfólkið verður Ísþjóðin
NAFNINU BREYTT Ragn-
hildur Steinunn ákvað að leyfa
innihaldi þáttanna að njóta sín
í stað þess að láta allt snúast
um nafn þeirra. Ísfólkið verður
því Ísþjóðin og því ætti Margit
Sandemo að geta sofið rótt.
„Besti bitinn í bænum er hrís-
grjónaréttur númer eitt hjá
Krua Thai. Ég fæ mér hann
alltaf.“
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði
Íslandsmeistara Stjörnunnar.
HEF FLUTT MIG UM SET
Býð alla gamla og nýja viðskiptavini
velkomna
Gerður Sævarsdóttir hársnyrtimeistari
GREIÐAN
Háaleitisbraut 58-60
sími 5813090 / 8621323
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfimina
no3 - st. 36-41 verð kr. 2500.-
Opið virka daga 11-18
laugardag 11-16
SKÓMARKAÐUR
no2 - st. 41-46 verð kr. 6795.-
no1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
OÐTILB
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
9 tilnefningar
GRÍMAN 2011:
Leikskáld ársins
Sala áskrift
arkorta
í fullum gangi
– vertu með í vet
ur
(E.B.FBL) (J.V.J. DV)
Sýningar hefjast
2. september