Fréttablaðið - 09.09.2011, Side 4
9. september 2011 FÖSTUDAGUR4
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
BÖRN Heimili og skóli – lands-
samtök foreldra og SAFT skora
á alla skóla, frístundaheimili
og aðra í íþrótta- og tómstunda-
starfi með börnum og ungling-
um að fara gætilega með ljós-
myndir úr starfinu.
„Sérstaklega þarf að huga að
því hvaða efni er sett á vefinn.
Dæmi eru um að sakleysislegum
myndum úr sundferðum eða
öðrum tómstundum sé breytt og
þær jafnvel teknar úr samhengi
með því að setja afrit á aðrar
síður,“ segir í tilkynningunni.
„Mikilvægt er að skoða vel allar
friðhelgisstillingar á Facebook,
merkja myndir og setja jafnvel
klausu um höfundarrétt á
myndavefi svo hægt sé að sækja
rétt sinn ef út í það fer.“ - gar
Áskorun frá Heimili og skóla:
Sýni varúð með
barnamyndir
NÁTTÚRA Berja-, sveppa- og jurta-
tínsla er óheimil innan eignar-
landa hér á landi sé leyfi eig-
anda ekki veitt.
Þó er öllum heimilt að tína
í eignarlöndum til neyslu
á vettvangi, en ekki til
söfnunar. Sérstakt ákvæði er
í náttúruverndar lögum um
heimild almennings til að tína
nytjajurtir á jörðum og er öll
slík tínsla heimil utan eignar-
landa, það er í þjóðlendum. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
Umhverfisstofnun.
„Sýna ber eiganda lands og
nytjarétthöfum fyllstu tillits-
semi og hlíta tilmælum þeirra
um umgengni við landið og
fylgja slóðum og stígum þar sem
það á við,“ segir í tilkynning-
unni. - sv
Berjatínsla háð leyfi eigenda:
Bannað að tína
á eignarlöndum
ALÞINGI Stjórnarandstaðan fór
mikinn á þingi í gær og kvart-
aði yfir því að Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra væri ekki
viðstödd óundirbúinn fyrirspurn-
artíma ráðherra. Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, forseti Alþingis,
útskýrði að forsætisráðherra
væri upptekinn vegna komu
erlendra ráðamanna. Það sló ekki
á gagnrýni stjórnarandstöðunnar.
Stjórnarliðar töldu ómaklega
að Jóhönnu vegið, hún væri
þaul sætin á þingi, nokkuð sem
stjórnarandstaðan tók ekki undir.
Stjórnarliðar minntu á að þetta
væri annar fyrirspurnartím-
inn á þingstubbnum og forsætis-
ráðherra mundi reyna að vera
viðstaddur fyrirspurnartíma í
næstu viku. - kóp
Tekist á um viðveru:
Kallað eftir for-
sætisráðherra
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
29°
18°
18°
24°
25°
17°
17°
29°
22°
31°
27°
28°
17°
25°
23°
17°Á MORGUN
3-8 m/s en
hvassara V- og SA-til.
SUNNUDAGUR
NA-strekkingur
við SA-ströndina.
9
7
5
6
5
5
4
7
9
10
1
7
6
2
5
6
10
8
10
4
8
6
11
7 6
4
8 12
7
6
6
11
HLÝNAR Á NÝ
Næstu daga verður
norðaustanátt
ríkjandi að mestu.
Í dag verður vindur
víða hægur en það
hvessir heldur á
Snæfellsnesi og
við SA-ströndina á
morgun. Búast má
við nokkuð björtu
veðri S- og V-til en
austanlands verður
heldur þungbúið
og væta með
köfl um.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
ALÞINGI Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins kröfðust þess að fjár-
málaráðherra gæfi þeim munn-
lega skýrslu um aðkomu sína að
kaupum Magma Energy á hlut
Geysis Green Energy í HS Orku.
Vitnuðu þeir í frétt Morgunblaðs-
ins, þar sem segir að Steingrím-
ur J. Sigfússon hafi verið í leyni-
makki vegna málsins.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst
að fjármála-
ráðherra hafi
lagt blessun
sína yfir að
Magma eign-
aðist hel m-
ingshlut í HS
Orku. Það hafi
brotið í bága
við yfirlýsing-
ar umhverfis-
ráðherra um
pólitískan vilji
fyrir því að fyrir tækið væri í inn-
lendri eigu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
vitnaði í Morgunblaðið þar sem
sagt var að fjármálaráðherra
hefði krafist fjölbreytni í við-
skiptahópi fyrirtækisins.
Steingrímur segir það af og
frá. Stjórnvöld hafi reynt að koma
saman eigendahópi til að tryggja
að HS Orka yrði að meirihluta,
eða að minnsta kosti að helmingi,
í eigu innlendra aðila. Það hafi
öllum átt að vera ljóst, enda hafi
verið margfjallað um málið í fjöl-
miðlum.
„Að öðru leyti var ekki fjallað
um áform fyrirtækisins. Það var
ekki verið að reyna að stýra því í
hvað rafmagnið færi. Ég ræddi við
Beaty [forstjóra Magma Energy]
um almennar áherslur okkar um
að auka fjölbreytni í orkunotk-
un. Beaty var sammála því, sem
og því að æskilegt væri að fá sem
hæst orkuverð. Þetta voru á engan
hátt inngrip stjórnvalda,“ segir
Steingrímur.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra segir allar hugmyndir
stjórnvalda um orkusölu fyrir-
tækisins hafa verið hluta af fram-
tíðarsýn, færi svo að ríkið gengi á
einhvern hátt inn í kaupin.
Menn voru að skoða alvarlega
hvort hægt væri að ná saman
hópi opinberra aðila, lífeyris-
sjóða, sveitarfélaga og ríkis, til að
tryggja að fyrirtækið færi ekki í
eigu erlendra aðila. Allir vita
hvernig fór.“
Katrín segir fráleitt að tala um
óeðlileg afskipti ráðherra. „Ég
veit ekki til að fjármálaráðherra
hafi einhver tök á að gefa HS orku
einhver fyrirmæli.“
kolbeinn@frettabladid.is
Ráðherra sakaður
um afskipti af sölu
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sökuðu fjármálaráðherra um óeðlileg afskipti
af kaupum Magma á hlut í HS Orku. Ráðherra segir það af og frá. Iðnaðarráð-
herra segir um eðlilegar áætlanir að ræða yrði af kaupum ríkisins á hlutnum.
GAGNRÝNINN Formaður Sjálfstæðisflokksins og fleiri þingmenn flokksins voru gagn-
rýnir á fjármálaráðherra og sögðu hann hafa átt óeðlilega aðkomu að sölu HS Orku
til Magma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
MENNTAMÁL Svandís Svavarsdóttir, starf-
andi mennta- og menningarmálaráðherra,
hefur skipað hóp til að finna lausn á mál-
efnum nemenda Kvikmyndaskóla Íslands.
Markmiðið er að finna viðeigandi kennslu
fyrir þá sem skráðir eru í skólann nú
þegar.
Nemendur komu að máli við ráðherra á
mánudag og óskuðu eftir því að ráðuneytið
tryggði námsframvindu þeirra og stæði
vörð um gæði námsins.
Þeir telja að skólinn geti ekki uppfyllt
skuldbindingar sínar við þá og óskuðu því
liðsinnis ráðherra.
„Nemendur óskuðu eftir innkomu ráðuneytisins
við að finna bráðabirgðalausn svo þeir geti haldið
áfram námi eins fljótt og kostur er,“ segir
Svandís.
Starfshópurinn hefur óskað efir upplýs-
ingum frá skólanum um námsframvindu
nemendanna. Í framhaldi af því verður
leiða leitað til að finna lausnir. Svandís
segir að það verði að gerast á allra næstu
dögum.
„Það er ljóst að þarna er um að ræða
neyðaráætlun sem tekur hliðsjón af stöðu
þessara nemenda. Við þurfum samhliða
þessari ráðstöfun að vinna að stefnumót-
un um nám í kvikmyndagerð á Íslandi til
lengri tíma.“
Svandís segir æskilegt að nýnemar geti skráð sig
inn í nýtt námsfyrirkomulag haustið 2012. - kóp
Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands óskuðu liðsinnis ráðuneytisins:
Neyðaráætlun um Kvikmyndaskóla
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
EFNAHAGSMÁL Verðmæti útflutn-
ings í ágúst nam 55,5 milljörðum
króna, samkvæmt bráðabirgða-
tölum frá Hagstofunni. Innflutn-
ingur á sama tímabili nam 47,3
milljörðum króna. Vöruskipti við
útlönd voru því hagstæð um 8,2
milljarða króna í ágúst.
Iðnaðarvörur og sjávarafurðir
standa undan megninu af útflutn-
inginum. Verðmæti útfluttra
iðnaðar vara nam tæpum 30 millj-
örðum og sjávarafurða tæpum 24
milljörðum. Mest er flutt inn af
hrávörum og rekstrarvörum. - kóp
Vöruskipti við útlönd:
Mun meira
flutt út en inn
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja skoðaði í síðustu viku
drykkjarvatn flugvéla Astraeus á
Keflavíkurflugvelli. Astreus flýg-
ur fyrir Iceland Express.
„Fyrstu niðurstöður benda til
þess að í lagi sé með vatnið,“ segir
Magnús H. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri HES.
Magnús segir að borist hafi
nafnlaus kvörtun um að ekki
hafi verið staðið rétt að dælingu
drykkjarvatns á vélarnar. „Heil-
brigðiseftirlitið gat ekki staðfest
að eitthvað hefði farið úrskeiðis
en tók gerlasýni af vatni tveggja
flugvéla sem voru á stæði,“ segir
Magnús. Kvörtunin mun hafa
borist frá starfsmanni þjónustu-
fyrirtækisins Birk Flight Services
sem ekki hlaut áframhaldandi
ráðningu þegar starfsfólki var
fækkað um mánaða mótin. - gar
Athugun heilbrigðisfulltrúa:
Ekkert að vatni
Iceland Express
GENGIÐ 08.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,0515
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,18 115,72
183,94 184,84
161,71 162,61
21,710 21,838
21,352 21,478
18,066 18,172
1,4900 1,4988
182,80 183,88
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is