Fréttablaðið - 09.09.2011, Síða 10
9. september 2011 FÖSTUDAGUR10
LAUGARDAGUR | 10. SEPTEMBERFÖSTUDAGUR | 9. SEPTEMBER SUNNUDAGUR | 11. SEPTEMBER
13:00-14:30 REYKJAVÍK: BÓK -
MENNTA BORG UNESCO
Ráðhús Reykjavíkur
20:00 UPPLESTUR | IÐNÓ
Bergsveinn Birgisson | Denise Epstein
Bjarni Bjarnason | Alberto Blanco
Herta Müller
9:00-12:00 ÍSLENDINGASAGNAÞING
12:30-15:00 VIÐTÖL | NH
Vikas Swarup & Pétur Blöndal | Paolo
Giordano & Hjalti Snær Ægisson |
Matt Haig & Ari Eldjárn | Ingo Schulze
& Halldór Guðmundsson | Denise
Epstein & Friðrik Rafnsson
13:30-16:00 ORÐUM REYKJAVÍK
Borgarbóka söfnin
15:30-17:00 UPPLESTUR | NH
Kristín Marja Baldursdóttir | Steve
Sem Sandberg | Ísak Harðarson |
Horacio Castellanos Moya
20:00 BÓKMENNTAGANGA
22:00 BÓKABALL Í IÐNÓ
með Geirfuglum
13:00-15:30 VIÐTÖL | NH
Nawal El Saadawi & Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir | Horacio Castellanos
Moya & Sjón | Pia Tafdrup & Haukur
Ingvarsson | Steve Sem-Sandberg &
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson |
Kristof Magnusson & Ólafur
Kristjánsson
20:00 UPPLESTUR | IÐNÓ
Oddný Eir Ævarsdóttir | Paolo
Giordano | Pia Tafdrup
Nawal El Saadawi | Eiríkur Örn
Norðdahl
Bókmenntahátíð | Dagskrá
RH
O
20
11
NÁNAR Á WWW.BOKMENNTAHATID.IS
VIÐSKIPTI Lokun tveggja
rótgróinna veitinga-
staða í miðborg Reykja-
víkur, La Primavera og
Domo, benda ekki til þess
að veitingastöðum hafi
fjölgað um of. Þetta segir
Hafliði Halldórsson, for-
seti Klúbbs matreiðslu-
meistara.
Fréttablaðið sagði
frá því í apríl að fínni
veitingastöðum í
Reykjavík hefði fjölgað nokkuð
með opnunum Sjávargrillsins,
Grillmarkaðar ins og svo veitinga-
staðanna tveggja í Hörpu, Kola-
brautarinnar og Munnhörpunnar.
Með tilkomu þeirra fjölgaði
sætum í miðborginni um 400.
Nýverið bárust fregnir af því
að La Primavera í Austur-
stræti hefði verið lokað
eftir 18 ára rekstur. Þá
var Domo í Þingholts-
stræti lokað í ágúst en
verður þó hugsanlega opn-
aður á ný í breyttri mynd.
„Ég held að þetta séu
bara eðlilegar breytingar.
Þau hjá Primavera vildu
einbeita sér að nýja staðn-
um sínum, Kolabraut-
inni, og ég veit ekki hvort
Domo er búið að loka fyrir fullt
og allt. Almennt hafa þessir nýju
staðir gengið vel og eins flestir
hinir gömlu. Það virðist því hafa
verið rúm fyrir nýja staði. Það má
kannski segja sem svo að þetta sé
eðlilegt á meðan ferðamönnum
hér fjölgar,“ segir Hafliði. - mþl
Fínni veitingastöðum hefur fjölgað í Reykjavík:
Segir pláss vera fyrir
alla nýju staðina
HAFLIÐI
HALLDÓRSSON
AUSTURRÍKI, AP Mjög vel varðveitt-
ar rústir af skóla fyrir skylm-
ingaþræla hafa fundist í Austur-
ríki. Rústirnar eru hluti af 50
þúsund manna borg austur af Vín,
sem var í blóma þar fyrir 1.700
árum. Borgin var mikilvæg hern-
aðar- og viðskiptaborg fyrir Róm-
verja.
Skólinn er sagður líkjast Ludus
Magnus, stærsta skylminga-
þrælaskólanum sem var í Róm.
Skólinn er þó betur varðveitt-
ur en sá í Róm, en hann er enn
neðanjarðar. Fundurinn er ein-
stakur og heimsviðburður, segja
yfirmenn í Carnuntum-fornleifa-
garðinum, þar sem skólinn er.
Hundruð þúsunda ferðamanna
koma á hverju ári í garðinn til að
skoða fornminjar. Uppgröftur hófst
þar árið 1870 en aðeins lítill hluti
borgarinnar hefur verið grafinn
upp. Ekki hefur verið ákveðið hve-
nær reynt verður að hefja uppgröft
á skólanum.
Þykkir veggir umlykja ellefu
þúsund fermetra stóra jörð þar
sem skólinn og aðrar byggingar
voru. Þar voru vistarverur þræl-
anna, æfingasvæði og lítið keppnis-
svæði með áhorfendapöllum. Þá
þykir líklegt að fyrir utan veggina
hafi verið grafreitur fyrir þá þræla
sem létust við æfingar. - þeb
Einstakar fornleifar frá tímum Rómverja grafnar upp í Austurríki:
Fundu rústir skylmingaþrælaskóla
SKÓLINN Mynd af því hvernig skólinn
hefur líklega litið út, samkvæmt mati
fornleifafræðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGSMÁL Samtök
íslenskra fiskimanna (SÍF) telja
að ekki sé heimilt að krefjast
þess að skip búi yfir aflaheim-
ildum til þess að stunda fiskveið-
ar í atvinnuskyni, eins og segir
í kvótafrumvarpi sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
samtökunum.
„Ekki verður séð að veiðar
skips sem að hefur gilt veiði-
leyfi en er án aflaheimilda rétt-
læti sviptingu veiðileyfis, þó
Fiskistofa hafi ítrekað beitt því
úrræði. Komi til þess að skip
félagsmanna verði svipt veiði-
leyfi af þeim sökum munu SÍF
verja rétt félagsmanna fyrir við-
eigandi dómstólum [...],“ - sv
SÍF mótmæla frumvarpi:
Ekki heimilt að
krefjast veiða
LOÐNUVEIÐAR Samtök íslenskra fiski-
manna telja að ekki sé heimilt að krefja
skip um aflaheimildir.
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur
maður hefur verið dæmdur í tíu
mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir fjölda afbrota framin á
árunum 2008 til 2011.
Maðurinn, sem er pólskur að
uppruna, er dæmdur fyrir sjö
þjófnaðarbrot, einkum á snyrti-
vörum, að aka fjórum sinnum
ökuréttindalaus og þrisvar sinn-
um undir áhrifum áfengis eða
fíkniefna, rækta og selja kanna-
bisefni, falsa pólskt vegabréf og
fleira. Auk tíu mánaða fangelsis-
refsingarinnar er hann sviptur
ökurétti ævilangt. - sh
Dæmdur fyrir brotahrinu:
Fangelsi fyrir
fjölda afbrota
FÓLK Útibú Fjölskylduhjálpar
Íslands á Suðurnesjum hefur
verið flutt í nýtt og stærra hús-
næði.
Fjölskylduhjálpin opnaði útibú
fyrir Suðurnesjabúa fyrir tíu
mánuðum og hefur síðan verið í
ókeypis húsnæði. Það var eignar-
haldsfélagið Gullmolinn sem
leigði út húsnæði við Hafnargötu
til starfseminnar endurgjalds-
laust. Nú hefur starfsemin verið
flutt í stærra húsnæði í Grófinni
10c og verður úthlutað þaðan á
fimmtudögum héðan í frá. - þeb
Fjölskylduhjálp Íslands:
Nýtt útibú opn-
að á Reykjanesi
DÓMSMÁL Málflutningur fór fram í gær fyrir
Hæstarétti í máli almennra kröfuhafa í þrota-
bú gamla Landsbankans sem krefjast þess að
innstæður á Icesave-reikningunum verði ekki
metnar sem forgangskröfur í búið.
Í neyðarlögunum sem sett voru í kjölfar
bankahrunsins haustið 2008 var kveðið á um
forgang innstæðna. Því er tekist á um hvort
neyðarlögin standist stjórnarskrá.
Verði neyðarlögunum hnekkt vonast kröfu-
hafar til að fá allt að þriðjung upp í sínar
kröfur en haldi þau gildi sínu rennur stærst-
ur hluti þeirra fjármuna til breskra og hol-
lenskra stjórnvalda sem endurgreiddu eigend-
um innstæðna á Icesave-reikningunum tap
þeirra vegna reikninganna. Vinni almennir
kröfuhafar málið er því viðbúið að mögulegt
tap íslenska ríkisins vegna dómsmáls varð-
andi Icesave aukist um hundruð milljarða.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði
almennum kröfuhöfum í óhag 27. apríl síðast-
liðinn en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar.
Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram að líta
þyrfti til eðlis neyðarlaganna og þeirra
aðstæðna sem uppi hafi verið í íslensku sam-
félagi þegar þau voru sett. Þá hafi þau verið
sett með stjórnskipulega réttum hætti.
Þegar dómur Héraðsdóms lá fyrir sagði
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, um mikilvægan áfanga að ræða.
Það yrði gríðarlegt áfall fyrir íslenska þjóð ef
neyðarlögin myndu bresta.
Breska dagblaðið Telegraph sagði í gær
að málinu yrði áfram áfrýjað til Evrópu-
dómstólsins staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu
Héraðsdóms.
Málflutningur hófst klukkan átta í gær-
morgun og stóð langt fram eftir degi. Sjö
dómarar hlýddu á en óalgengt er að svo fjöl-
mennur dómur taki fyrir mál. Málflutning-
urinn í dag beindist að innstæðum á Icesave-
reikningum í Bretlandi en á morgun verður
tekið fyrir sambærilegt mál sem beinist að
innstæðum í Hollandi.
Nærri eitt hundrað almennir kröfuhafar
standa að baki málinu sem er beint gegn
slita stjórn Landsbankans. Telja kröfuhafarn-
ir að með setningu neyðarlaganna hafi stjórn-
völd skert verðmæti í þeirra eigu og þar með
valdið þeim umtalsverðu tjóni á ólögmætan
hátt.
Fyrir hönd kröfuhafanna tóku til
máls hæstaréttarlögmennirnir Ragnar
Aðalsteinsson, Arnar Þór Jónsson, Óttar
Yngvason, Eyvindur Sólnes og Gunnar Jóns-
son. Vísuðu þeir meðal annars til eignar-
réttarákvæðis stjórnarskrárinnar og jafn-
ræðisreglunnar. Þá sagði Ragnar ekki hafa
verið sýnt fram á að nauðsynlegt hafi verið
að grípa til þeirra úrræða sem gripið var til.
Vægari úrræði hefðu náð fram sömu mark-
miðum. magnusl@frettabladid.is
Réttmæti neyðarlaganna
í umræðu fyrir Hæstarétti
Málflutningur fór fram í gær fyrir Hæstarétti í máli þar sem tekist er á um hvort neyðarlögin sem sett voru
haustið 2008 standist stjórnarskrá. Héraðsdómur staðfesti réttmæti þeirra en snúi Hæstiréttur þeirri niður-
stöðu við eykst mögulegt tap íslenska ríkisins vegna dómsmáls varðandi Icesave um hundruð milljarða.
HÆSTIRÉTTUR Í GÆR Fjöldi breskra og hollenskra lögmanna fylgdist með málflutningnum í Hæstarétti í gær.
Þýddu túlkar það sem fram fór en eftir því sem næst verður komist hefur það ekki verið gert áður í Hæstarétti. Þá
var málflutningurinn tekinn upp sem er einnig nýmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPORÐREISTIST Í WASHINGTON Krana-
bifreið sem notuð var til að gera við
kirkju í Washington-borg olli meiri
skemmdum þegar hún sporðreistist.
NORDICPHOTOS/AFP